Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Blaðsíða 26
Vikublað 21.–23. febrúar 201722 Sport
Kyriakos Papadopoulos
Miðvörður Hamburg SV
Treyjunúmer: 9
Gríska varnartröllið var oft
talið einn efnilegasti ungi
leikmaður Evrópu í sinni stöðu.
Hann ákvað að Boulahrouz-a
yfir sig þegar hann var sendur
á láni til Hamburg SV frá
Bayer Leverkusen. Kannski
er eitthvað í vatninu þarna í
Bundesligunni en aldrei, undir
nokkrum kringumstæðum,
ætti miðvörður að skarta treyju
númer 9.
Glæsibæ • www.sportlif.is
PróteinPönnukökur
Próteinís Próteinbúðingur
Treyjunúmerin sem
pirra þig óstjórnlega
n Þegar staðan passar ekki við númerið á bakinu n Þessir syntu gegn straumnum
L
iðin er sú tíð þegar staðan
sem knattspyrnumenn leika
ákvarðar treyjunúmerið sem
þeir bera. Þegar byrjunar
liðin samanstóðu af leik
mönnum í treyjum með númerin
1 til 11 á bakinu. Það er allt gott
og blessað, leikurinn breytist og
mennirnir með. Nú geta leikmenn
valið sér númer allt frá 1 og upp í
99.
Þrátt fyrir þetta aukna frjáls
ræði þá kemur það einstaka sinn
um fyrir að leikmenn ganga of langt
og strjúka fótboltapúritönum and
hæris svo um munar. Eins og þegar
miðverðir henda sér í treyju númer
9, eins og Khalid Boulahrouz gerði
sem frægt er orðið hjá Chelsea á
sínum tíma. Þvílíkur hryllingur.
Af því tilefni hefur breska dag
blaðið Mirror tekið saman lista yfir
byrjunarlið verstu treyjunúmer
anna þar sem leikmenn velja sér
númer frá 1–11 sem engan veginn
hæfa stöðunni sem þeir leika. n
Emiliano Viviano
Markvörður Sampdoria
Treyjunúmer: 2
Ítalski markvörðurinn ætti að vera sendur
í bann fyrir að velja sér treyjunúmer hægri
bakvarðar. Viviano (31) hefur líka leikið
með Brecia, Bologna og Fiorentina á ferlin-
um auk þess sem hann fór eitt sinn á láni til
Arsenal. Státar af sex landsleikjum fyrir Ítalíu
en sagan segir að hann hafi valið sér treyju númer
2 hjá Sampdoria árið 2014 vegna þess að eina númerið sem annars
var í boði var 12 og Viviano líkar ekki við háar tölur. Markmenn eru
sérstakar týpur.
Glen Johnson
Hægri bakvörður Stoke City
Treyjunúmer: 8
Bakvörðurinn Glen Johnson var
eitt mesta efni Englands þegar
Chelsea keypti hann ungan
frá West Ham árið 2003. Hann
renndi sér í hina dæmigerðu
treyju númer 2 hjá Chelsea
eftir að hafa verið í númer 23 hjá
West Ham. Þaðan lá leið hans til
Portsmouth þar sem hann fór í
treyju númer 5 og aftur í treyju
númer 2 hjá Liverpool. Hvað
varð til þess að hann ákvað að
velja sér númer 8 hjá Stoke City
árið 2015 er einn af leyndardóm-
um nútímaboltans.
Artem Fedetskiy
Miðvörður Darmstadt
Treyjunúmer: 7
Stór og stæðilegur, úkraínskur miðvörður
í treyju númer 7, SJÖ!, er bara furðulegt,
jafnvel fyrir þýsku Bundesliguna. Fedetskiy
hafði skartað númer 44 í fjögur ár hjá Dnipro í
heimalandinu en ákvað að flippa létt þegar í ljós
kom að hefðbundin varnartreyjunúmer voru öll upptekin hjá
Darmstadt.
Aleksandar Kolarov
Vinstri bakvörður Manchester City
Treyjunúmer: 11
Það má vissulega færa fyrir því rök að Kolarov hafi alltaf litið meira á
sig sem vinstri kantmann en varnarsinnaðan bakvörð. Á ferlinum hafði
hann áður sótt í þristinn, hið hefðbundna treyjunúmer vinstri bakvarða. Bæði hjá OFK
Beograd í heimalandinu og Lazio á Ítalíu en síðan hóf hann ferilinn hjá Man City í treyju
númer 13. Það slapp. En þegar Scott Sinclair hvarf á braut frá City sætti Kolarov færis og
stökk á treyju númer 11! Það númer hafði hann reyndar notað síðasta tímabilið sitt hjá
Lazio og hefði því augljóslega átt að vita betur.
Jonathan de Guzman
Miðjumaður Chievo
Treyjunúmer: 1
Hollenski miðjumaðurinn er á láni hjá Chievo frá Napoli á Ítalíu
og kannski er hann bara pirraður að hafa verið álitinn afgangs-
stærð hjá Napoli og ákveðið að gefa skít í hefðir knattspyrnunn-
ar. Hver veit, en það er hins vegar vitað mál að hann og Viviano
mættu gjarnan skiptast á númerum á þessum lista.
Henri Lansbury
Miðjumaður Aston Villa
Treyjunúmer: 5
Klárlega ekki versta brotið á þessum lista en Mirror-menn virðast
líta þannig á að treyjunúmerið 5 eigi heima í vörninni. Mörg dæmi
eru raunar um að miðjumenn skarti fimmunni, meðal annars Zinedine
Zidane hjá Real Madrid á sínum tíma, sem var reyndar mjög einkennilegt
val. Lansbury átti að mati Mirror að bíða í nokkra daga og taka númer 10 hjá Villa sem
losnaði nokkrum dögum síðar nú í janúar þegar Jordan Ayew var seldur.
Nabil
Bentaleb
Miðjumaður Schalke
Treyjunúmer: 10
Bentaleb er fínn leikmaður og teknískur. Er
á láni frá Tottenham hjá Schalke en starfar
mest sem djúpliggjandi miðjumaður og við
vitum öll að þeir eiga að láta treyju númer
10 vera. Menn áttu að læra af vitleysunni
í Lassana Diarra hjá Real Madrid. Leyfum
Pele, Maradona og Messi-týpunum að eiga
tíuna. Menn í miðjuharki eiga sín númer.
Steven
Fletcher
Framherji Sheffield
Wednesday
Treyjunúmer: 6
Skoski framherjinn
hefur leikið í treyjum
9 og 10 allan sinn
feril eins og vera ber
en þegar hann gekk í raðir
Sheffield Wednesday í fyrra virðist hann
hafa hætt að reyna. Hann leyfði í alvör-
unni eiganda liðsins, Dejphon Chansiri,
að velja treyjunúmerið fyrir sig.
„Hann velur þau í raun öll eftir til-
finningu sinni fyrir hverjum leikmanni,“
útskýrði Fletcher. „Ég veit ekki af hverju
hann valdi númer 6 fyrir mig. En hann er
yfirmaðurinn, svo ég ákvað að best væri
að spyrja ekki út í það.“ Fletcher minn,
þú hefðir átt að spyrja.
Hal Robson-Kanu
Framherji West Bromwich Albion
Treyjunúmer: 4
Velski framherjinn þráði að komast í ensku úrvals-
deildina eftir fína frammistöðu með Wales á EM í
fyrrasumar. Hann var greinilega svo ánægður með að
WBA gaf honum tækifærið á lokadegi félagaskipta-
gluggans í haust að hann pældi ekkert í vitleysunni
sem hann var að samþykkja með að taka fjarkann.
Aðeins skorað eitt mark og það er pottþétt treyju-
númerinu að kenna.
Jordan Ayew
Framherji Swansea
Treyjunúmer: 3
Gylfi Sigurðsson hefði mátt hnippa aðeins í Jordan til að koma fyrir hann
vitinu þegar Swansea keypti hann í janúarglugganum. Ayew hefur að sjálfsögðu verið
spurður út í val sitt og borið því við að hann hafi ekki haft úr mörgu að velja og einnig
að hann hafi áður leikið í treyju númer þrjú, þegar hann var lánsmaður í Frakklandi hjá
Souchaux. Eins og margir muna hefur landi hans, Ganamaðurinn Asamoah Gyan, ávallt
leikið í treyju númer 3, þrátt fyrir að vera framherji. En það þýðir ekki að það sé í lagi.
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Mynd EPA
Mynd EPA
Mynd EPA
Mynd EPA
Mynd EPA