Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Blaðsíða 4
Vikublað 21.–23. febrúar 20174 Fréttir
Í
slandsbanki, sem nú er í 100 pró
sent eigu íslenska ríkisins, sér
allri framkvæmdastjórn sinni,
alls níu manns, fyrir bifreiðum
líkt og Landsbankinn. Átta fram
kvæmdastjórar Íslandsbanka auk
bankastjórans, Birnu Einarsdóttur,
fá bifreiðar til afnota frá bankanum.
Bifreiðin sem Birna fær kemur ekki
til lækkunar á launum hennar sam
kvæmt upplýsingum frá bankan
um. Lykilstjórnendur Íslandsbanka
fengu alls rúmar 300 milljónir króna
í laun og árangurstengdar greiðslur
árið 2015. Bankinn birtir ársreikn
ing sinn fyrir árið 2016 á föstudag.
DV fjallaði um það í helgarblaði
sínu að allir sjö lykilstjórnend
ur Landsbankans fái bifreiðar sem
teljist til bifreiðahlunninda sam
kvæmt ákvæðum ráðningarsamn
ings. Í svari bankans kom fram að
í ráðningarsamningi lykilstjórn
endanna væri kveðið á um heildar
laun en starfsmennirnir geti farið
fram á að bankinn sjái þeim fyrir
bifreið. Geri þeir það lækka laun
þeirra sem nemur tekjumati Ríkis
skattstjóra fyrir viðkomandi bifreið
og viðkomandi starfsmenn greiða
hlunnindaskatt samkvæmt tekju
mati Ríkisskattstjóra.
Lækkar ekki laun Birnu
Í svari Íslandsbanka við fyrirspurn
DV um hvernig þessum málum
væri háttað þar kemur fram að
bankastjóri Íslandsbanka, Birna
Einarsdóttir, hafi bifreið til afnota
sem hluta af launakjörum. Fram
kom að afnot hennar af
bifreiðinni væru ekki
dregin af launum
hennar. Það er
því eðlismunur
á hlunnindum
bankastjórans og
framkvæmda
stjóranna átta.
„Til viðbótar
eru fram
kvæmdastjórar
með bifreiðar til
afnota en kjósi þeir að
hafa bifreiðar til afnota
lækka laun þeirra á móti
sem nemur bifreiðahlunnindum.
Þannig koma bifreiðahlunnindi
ekki til viðbótar öðrum launum.“
Líkt og DV fjallaði um í síðasta blaði
þá miðast áðurnefnt tekjumat Ríkis
skattstjóra fyrir bifreiðar við verð
bifreiðar og aldur. Bifreið sem keypt
er 2014 eða síðar miðast þannig við
28 prósent af upphaflegu kaupverði
bifreiðarinnar samkvæmt eigna
skrá bankans í þessu tilfelli. Heim
ilt er að færa verð bifreiðarinnar
niður um 10 prósent á ári en mest
þannig að viðmiðunarverð til út
reikninga á bifreiðahlunnindum
verði aldrei lægra en 50 prósent af
kaupverði hennar. Inni í fullum og
ótakmörkuðum afnotum er rekstr
arkostnaður innifalinn þannig að
bankarnir í þessum tilfellum taka á
sig eldsneytiskostnað, smurningu,
þrif og þess háttar. Líkt og fram kom
í helgarblaði DV þá er fyrirkomulag
sem þetta, um bifreiðahlunnindi
lykilstjórnenda, nokkuð algengt hjá
stærri fyrirtækjum.
Vellaunaðir lykilstjórnendur
Birna Einarsdóttir var með 43,7
milljónir króna í laun árið 2015 auk
þess sem hún fékk frammistöðu
tengdar greiðslur upp á 7,2 millj
ónir það ár. Þrátt fyrir að íslenska
ríkið hafi yfirtekið Íslandsbanka í
fyrra þá voru kjör Birnu aldrei færð
undir kjararáð sem hefði þýtt veru
lega launalækkun fyrir hana. Jafn
vel þó svo það hefði gerst, eða yrði
gert úr þessu, þá myndi það
ekki hafa nokkur áhrif
til lækkunar fyrir
hana þar sem þá
yrði að segja upp
núverandi ráðn
ingarsamningi
Birnu við bank
ann til að færa
hana undir kjara
ráð. Í því sam
hengi verður að
hafa í huga að Birna
hefur 12 mánaða upp
sagnarfrest samkvæmt
ráðningarsamningi en ný lög
um kjararáð taka gildi 1. júlí næst
komandi þar sem ákvörðunarvald
um laun bankastjórans flytjast aftur
frá kjararáði til stjórnar bankans. Á
tímabilinu síðan ríkissjóður eign
aðist bankann að fullu hefur Birna
því líklega verið launahæsti opin
beri starfsmaður landsins. Ólíklegt
er að laun hennar lækki verulega á
næstunni, eins og þau hefðu þurft
að gera hefði kjararáð ákvarðað
þau.
Samkvæmt ársreikningi Íslands
banka fyrir árið 2015 fengu fram
kvæmdastjórarnir átta alls 221,3
milljónir í laun og 29,1 í bónus
greiðslur. Laun og árangurstengdar
greiðslur lykilstjórnendanna níu
hjá bankanum námu því 301
milljón króna. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Níu á bílum frá bankanum Átta
framkvæmdastjórar auk bankastjóra
Íslandsbanka fá bíla til fullra og
ótakmarkaðra afnota. Bankinn
greiðir rekstrarkostnað bifreiðanna.
Elín Jónsdóttir
Framkvæmdastjóri
VÍB.
Sverrir Örn
Þorvaldsson
Framkvæmdastjóri
áhættustýringar.
Jón Guðni
Ómarsson
Framkvæmdastjóri
fjármálasviðs.
Sigríður Olgeirs-
dóttir Fram-
kvæmdastjóri
rekstrar- og upplýs-
ingatæknisviðs.
Björgvin Ingi
Ólafsson Fram-
kvæmdastjóri við-
skipta og þróunar.
Vilhelm Már
Þorsteinsson
Framkvæmdastjóri
fyrirtækjasviðs.
Tryggvi Björn
Davíðsson
Framkvæmdastjóri
markaða.
Una Steins-
dóttir Fram-
kvæmdastjóri við-
skiptabankasviðs.
MyNDIr ÍSLaNDSBaNkI.IS
LykiLstjórnendur
n Afnot bankastjóra ekki dregin af launum n Framkvæmdastjórn fékk 300 milljónir í árslaun 2015
Birna Einars-
dóttir Bankastjóri
Íslandsbanka. MyND
ÞOrMar VIGNIr GUNNarSSON
ÍsLandsbanka fá LÍka bÍLa
Nýjar vörur
í hverri viku
Holtasmári 1, Kópavogur / Sími: 571 5464
Sjáðu úrvalið á
tiskuhus.is