Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Qupperneq 14
Vikublað 21.–23. febrúar 201714 Fréttir Erlent
Í
rönsk systkini, þátttakendur á Al-
þjóðlega Reykjavíkurskákmótinu í
apríl, eiga á hættu að verða útilok-
uð frá landsliðsverkefnum sem og
þátttöku í skákmótum heima fyrir
ef eitthvað er að marka orð formanns
íranska skáksambandsins, Mehrdad
Pahlevanzadeh. Glæpur hinnar 18
ára gömlu Dorsa Derakhshani var sá
að hún tefldi án „hijab“ eða slæðu í
einni umferð Tradewise-mótsins á
Gíbraltar, sem er eitt virtasta opna
skákmót heims. Bróðir hennar, hinn
15 ára gamli Borna Derakhshani, var
paraður gegn ísraelska stórmeistar-
anum Alexander Huzman og hans
ófyrirgefanlegi glæpur var að mæta
til leiks gegn stórmeistaranum.
Alþekkt er að skákmönnum frá til-
teknum löndum í Mið-Austurlönd-
um er bannað að tefla við skákmenn
frá Ísrael. Þeir mæta því yfirleitt ekki
til leiks og gefa því skákina baráttu-
laust. Það gerði hinn ungi Borna
hins vegar ekki og varð að lúta í gras
eftir harða baráttu. Derahkshani-
systkinin eru skráð til leiks á Alþjóð-
lega Reykjavíkurskákmótinu sem
hefst þann 19. apríl í Hörpu. „Það á
ekki að blanda keppnisíþróttum og
pólitík saman með þessum hætti. Við
erum stolt af því að taka á móti þessu
unga baráttufólki,“ segir Gunnar
Björnsson, forseti Skáksambands Ís-
lands, sem skipuleggur mótið.
Alvarlegar afleiðingar banns
„Fyrsta skrefið verður að útiloka þau
frá þátttöku í skákmótum í Íran auk
þess sem þau munu ekki fá að tefla
í nafni landsins. Þá verður þeim út-
hýst frá öllum landsliðsverkefnum,“
segir áðurnefndur Pahlevanzadeh í
samtali við Fars-fréttastofuna í Íran
vegna hinna meintu glæpa Derakhs-
hani-systkinanna. Afleiðingarnar
verða alvarlegar fyrir þau en afar
erfitt er að taka þátt í alþjóðlegum
mótum án stuðnings skáksambanda
heima fyrir. Til þess að taka þátt í
Asíu – og Heimsmeistaramótum –
þá er eingöngu tekið við skráning-
um frá skáksambandi hvers lands og
því er ljóst að möguleiki þeirra til að
iðka list sína mun skerðast verulega.
Þessi hörðu viðbrögð gegn
Derakh shani-systkinunum eru ekki
eina hneykslið í alþjóðlega skáksam-
félaginu í tengslum við harðlínu-
stefnu Íran í blæjunotkun kvenna.
Nú stendur yfir heimsmeistaramót
kvenna í höfuðborginni Teheran.
Mótið hófst þann 11. febrúar síðast-
liðinn og lýkur þann 3. mars. Alls var
64 af bestu skákkonum heims boðið
til leiks og er teflt með útsláttarfyrir-
komulagi. Ófrávíkjanlegt skilyrði var
að skákkonurnar tefldu með slæðu
yfir hári sínu.
Mótmæli vegna HM í Íran
Sú krafa, sem og sú staðreynd að
Íran hafi fengið að halda mótið,
olli gríðarlegum titringi í alþjóð-
lega skáksamfélaginu. Meðal annars
neitaði kvennaskákmeistari Banda-
ríkjanna, Nazi Paikidze, að taka þátt
í mótinu og sat því heima ásamt
fjölmörgum öðrum skákkonum
frá Vesturlöndum. Sagði sú banda-
ríska að hún gæti ekki hugsað sér
að ljá kúgun kvenna stuðning sinn
með því að gangast undir reglur
mótshaldara og því vilji hún styðja
íranskar konur með því að taka ekki
þátt. Málið vakti athygli stærstu fjöl-
miðla heims og í viðtali við New
York Times stigu íranskar skákkon-
ur fram og fordæmdu aðgerðir hinn-
ar bandarísku. Sögðu þær að mótið
myndi hvetja íranskar konur til dáða
og á því þyrftu þær mjög að halda.
Stuðningur ríkisins við skák gæfi
þeim tækifæri til þess að ferð-
ast til framandi landa og
kynnast öðrum menn-
ingarheimum. „Fram-
farir í réttindum
kvenna gerast skref
fyrir skref og rétta
leiðin er ekki sú að
hundsa þennan
viðburð. Það styrkir
réttindi kvenna alls
staðar þegar kon-
ur sýna snilli sína
í tilteknum íþrótt-
um. Þau fræ dreifa sér
langt út fyrir íþróttina,“
sagði Jila
Baniyag-
hoob. n
Tefldi eina skák án
slæðu og fer í bann
n Írönskum systkinum verður refsað fyrir agabrot n Munu tefla í Reykjavíkurskákmótinu
„Það styrk-
ir réttindi
kvenna alls stað-
ar þegar konur
sýna snilli sína í
tilteknum íþrótt-
um. Þau fræ
dreifa sér langt út
fyrir íþróttina.
HM í Teheran Skákkonurnar Natalia Pogonina og Natalia Zhukova takast á.
Dorsa
Derakhs-
hani
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Leiðandi á leiksvæðum • Sími 565-1048
jh@johannhelgi.is • www.johannhelgi.is
Rhino
Ramps
Jóhann Helgi & Co ehf, „Stofnað 1990“
Sími 565 1048 - 820 8096
jh@johannhelgi.is – www.johannhelgi.is
Útileiktæki: Rólur, vegasölt,
gormatæki, rennibrautir,
leikkastalar ofl. Frá viðurkenndum
framleiðendum eins og Lappset,
Wicksteed, Stilum, Dynamo, Huck
ofl.
Járnrimlagirðingar fyrir
skóla- og leikskólalóðir, íþróttavelli,
fjölbýli hús og einkalóðir. Þýsk gæði
frá Legi.
Hjólabrettapallar frá Rhino
Ramps í Belgíu, komnir upp víða
um land við frábærar undirtektir
notenda.
Fallvarnarefni: Gúmmíhellur
frá Þýskalandi og gúmmímottur á
gras, þar sem grasið vex upp í gegn
um motturnar og motturnar hlífa
grasinu og virka sem fallvörn.
Leikföng, húsgögn og
búnaður fyrir leikskóla frá
stærsta dreifingaraðila Danmörku,
Lekolar (áður Rabo - Brio).
Mörk og körfur,
útiþrektæki og ýmsar
gerðir af sparkvöllum frá
viðurkenndum framleiðendum eins
og t.d. Sure Shot, Lappset, Wicksteed
og Saysu.
Bekkir, ruslafötur,
stubbahús, skýli,
reiðhjólagrindur,
trjágrindur, pollar,
ljósastaurar, blómaker ofl.
frá GH Form, Vekso, Nifo, Orsogril
Vestre o.fl.
Bændur og hestamenn:
Nótuð plastborð, fjárhúsgólf,
búgarðagirðingar (Dallas), gerði
og girðingarstaurar. úr plasti,
básamottur og fóðurgangamottur.
BJóðuM HeiLdarLausnir á
LeiksvæðuM. uppsetning,
viðHaLd og þJónusta
Leitið tiLBoða
w
w
w
.jo
ha
nn
he
lg
i.i
s
Sumarhúsið og garðurinn 2. 2009 33
M
yn
di
r f
rá
F
er
ða
þj
ón
us
tu
nn
i V
at
ns
ho
lti
w
w
w
.s
ta
yi
ni
ce
la
nd
.is