Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Síða 28
Vikublað 21.–23. febrúar 201724 Skrýtið Sakamál
Þegar konur drepa
n Sjö nafntogaðar konur n Hryðjuverk, fjöldamorð, njósnir og dráp
M
orðið á Kim Jong-nam,
hálfbróður Kim Jong-un,
einræðisherra Norður-
Kóreu, í síðustu viku hefur
vakið mikla athygli. Lög-
reglan í Malasíu hefur síðan hand-
tekið tvær konur sem grunaðar eru
um aðild að morðinu en hinn 46 ára
gamli Kim Jong-nam hneig niður á
alþjóðaflugvellinum í Kúala Lúmpúr.
Grunur leikur á að eitrað hafi verið
fyrir honum með rísin, sem er eitrað
prótínduft úr aldinkjörnum krist-
pálma og dugar eitt milligramm af
því til að drepa fullorðinn einstak-
ling.
Yfirvöld í Suður-Kóreu eru þess
fullviss að leigumorðingi hafi verið
að verki; Kim Jong-nam hafi verið
þyrnir í augum yfirvalda í Pyongyang
í Norður-Kóreu og að lengi hafi staðið
til að ráða hann af dögum. Til marks
um það hafi hann notið verndar kín-
verskra yfirvalda síðastliðin fimm ár.
Hann var á leið til Makaó, sérstjórn-
arhéraðs í Kína, þar sem hann bjó í
útlegð.
Samkvæmt umfjöllun breska dag-
blaðsins Telegraph hefur óstaðfestur
orðrómur farið á flug þess efnis að
konurnar hafi verið launmorðingjar
á vegum leyniþjónustu Norður-
Kóreu og ef rétt reynist eru þær ekki
fyrstu konurnar sem komast í heims-
fréttirnar fyrir glæpi sína.
Telegraph tók af þessu tilefni
saman lista yfir sjö alræmda kvenkyns
launmorðingja fyrri tíma, sem komið
hafa að morðum, hryðjuverkum og
annars konar fjöldamorðum. n
3 La Tigresa Idoia Lopez Riano, einnig þekkt undir gælunafninu La Tigresa, var
ein af leiðtogum herskárra Baska sem börðust
fyrir sjálfstæði frá Spáni á níunda áratug síðustu
aldar. Hún bar ábyrgð á sprengjuárás sem banaði
12 borgarahermönnum árið 1986 og annarri, síðar
sama ár, sem banaði fimm manns. Þá segir sagan
að hún hafi dregið lögreglumenn á tálar áður en
hún myrti kollega þeirra og varð hún fljótt einn
mest eftirlýsti hryðjuverkamaður aðskilnaðar-
sinna, ETA.
Árið 2003 var hún loks dæmd í 1.500 ára
fangelsi fyrir glæpi sína. Árið 2011 var hún rekin úr
og afneitað af ETA eftir að hún baðst afsökunar á
gjörðum sínum.
Skipulagt Kim
Jong-nam var myrtur
í Malasíu í síðustu
viku og konan í hvíta
LOL-bolnum er ein
þeirra kvenna sem
handteknar hafa verið í
tengslum við málið.
2 Mata Hari Margaretha MacLeod var þekktur exótískur
dansari víða í Evrópu á tímum fyrri
heimsstyrjaldarinnar. Í dag er hún þó
þekktust undir nafninu Mata Hari og
oft kölluð mesti kvennjósnari 20.
aldarinnar. Hún er talin hafa safnað
leynilegum upplýsingum frá
háttsettum bandamönnum og komið
þeim í hendur Þjóðverja. Með gjörðum
sínum er hún talin hafa átt beinan
þátt í dauða allt að 50 þúsund
franskra hermanna.
Hún var fyrst fengin til starfa
af þýsku leyniþjónustunni árið 1914
sem sá möguleika í njósnum hennar
vegna þess hversu háttsetta elskhuga
hún átti og þeirri staðreynd að hún
gat ferðast næsta óáreitt þvert um
Evrópu sem hollenskur ríkisborgari.
Eftir að Bretar afhjúpuðu hana
sem njósnara var hún á endanum tek-
in af lífi af Frökkum árið 1917, þá 41 árs,
eftir að hafa verið fundin sek um að
sjá Þjóðverjum fyrir hernaðarleyndar-
málum. Sagan segir að hún hafi
„flassað“ aftökusveitina með því að
fletta af sér yfirhöfninni, andartökum
áður en skotin riðu af.
1 Shi Jianqiao Þegar herforinginn Shi Congbin var myrtur af Zhili-stríðsherranum
Sun Chuanfang árið 1925, ákvað dóttir herforingjans,
Shi Jianqiao, að hefna föður síns. Morðið á
herforingjanum var sérlega ógeðfellt en hann var
afhöfðaður og höfuð hans rekið á tein og haft til
sýnis á lestarstöð. Shi ákvað í kjölfarið að hafa uppi á
stríðsherranum alræmda og myrti hann á förnum
vegi með þremur skotum. Hún flúði þó ekki
vettvanginn heldur varð eftir til að réttlæta gjörðir
sínar fyrir vegfarendum, meðal annars með því að
útdeila bréfum til að útskýra aftökuna. Þessi
siðferðislega afstaða hennar varð enda til þess að
hún var náðuð að fullu árið 1936
á grundvelli „filal piety“
sem byggir á
kenningum
Konfúsíusar um
dyggð sem drýgð
er af virðingu við
foreldra sína,
sér eldri og
forfeður.
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
V e g a m ó t a s t í g u r 4 | 1 0 1 R e y k j a v í k | s í m i 5 1 1 3 0 4 0 | v e g a m o t @ v e g a m o t . i s
FRÁ 11–16