Fréttablaðið - 27.10.2017, Blaðsíða 24
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 |
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
„Ég er svo heppin að vera heimavinnandi og veit að það eru mikil forréttindi en á sama tíma er mér mikilvægt að virkja
hugann í metnaðarfullu námi og verkefnum,“ segir Hanna. MYND/HANNA
Fjölskyldan býr í Frakklandi en er í heimsókn á Íslandi, meðal annars vegna handbolta og stórafmælis. Hanna og
Ásgeir með Tuma og Dag.
Hanna Borg segir að þau dvelji á landinu í tvær vikur. Ásgeir Örn kom heim til að leika
með landsliðinu í vináttuleikjum
við Svía, hún nýtir tímann í verk-
efni í háskólanum auk þess sem þau
munu fagna stórafmæli foreldra
hennar á morgun, kosningadag.
Hanna vakti athygli í fyrra þegar
hún sendi frá sér bókina Rúnar
góði þar sem áhugamál hennar,
mannréttindi barna, voru kynnt
fyrir lesendum. Bókin var skrifuð
með Barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna að leiðarljósi og hefur
nýst vel í yngstu bekkjum grunn-
skólanna. Það var Heiðdís Helga-
dóttir sem myndskreytti bókina.
Rúnar góði hvetur börn til hugleið-
inga um mismunandi aðstæður og
líf barna. Hanna kynntist vel skóla-
starfi á Íslandi þegar hún kynnti
bókina og kolféll fyrir því, að eigin
sögn. „Augun fóru að opnast fyrir
svo mörgum möguleikum í skóla-
starfinu og svo var vinnan með
börnunum svo ótrúlega gefandi.
Þau eru uppfull af hugmyndum og
sjónarmiðum sem við fullorðna
fólkið mættum svo gjarnan læra af
þeim,“ segir hún.
Mannréttindi fyrir börn
Hanna lauk laganámi frá Háskóla
Íslands árið 2012 og fór síðan í
framhaldsnám í mannréttindum
við University of London sem hún
kláraði í vor. „Margir spyrja mig af
hverju ég sé í námi í kennslufræði
fyrir grunnskóla. Ég er sem sagt í
fjarnámi hjá menntavísindasviði
Háskóla Íslands. Þetta er skemmti-
legt nám sem ég er afskaplega
ánægð með að hafa valið. Í gegnum
allt lögfræðinámið mitt var ég að
leita leiða til að sérhæfa mig til að
vinna með börnum. BA-verkefnið
mitt tengdist forsjárdeilumálum.
Mastersritgerðin mín fjallaði um
mannréttindi barna í íþróttum.
Mér fannst því stórkostlegt tæki-
færi að komast í þetta nám og geta
stundað það frá Frakklandi. Ég var
eiginlega að hlusta á hjarta mitt,“
segir Hanna sem hefur sannarlega
fundið sig í náminu. „Námið opnar
mér dyr að vinna með börnum. Í
þessari námsgrein ræðum við hluti
sem hægt er að framkvæma til
að bæta skólastarfið og menntun
barna í landinu. Til dæmis gæti
það bætt samfélag okkar mikið að
kenna börnum strax frá byrjun um
réttindi þeirra og leggja enn frekari
áherslu á lýðræðislega hugsun og
samfélagslega ábyrgð. Að byggja
upp góða og virka samfélagsþegna.
Til að umbætur geti orðið að
veruleika þarf öfluga leiðtoga með
opinn huga og trú á því að það sé
hægt. Þá trú hef ég,“ segir Hanna og
hér er greinilega um hjartans mál
að ræða hjá henni.
En hvaðan kemur þessi mikli
áhugi á mannréttindum?
„Ég hef alltaf haft mjög ríka rétt-
lætiskennd. Get komist í mikið
uppnám ef mér finnst brotið á ein-
hverjum. Sumir hræðast þetta orð,
mannréttindi, og þá sérstaklega
mannréttindi barna. Aðrir spyrja
hvort ástæða sé til að ræða svoleiðis
hluti við börn. Mín skoðun er sú að
um leið og við fræðum börnin um
réttindi þeirra og skyldur verða þau
meðvituð um hvað sé rangt og hvað
sé rétt. Þá standa þau upp bæði fyrir
sjálfum sér og hvert fyrir öðru til
að verjast óréttlæti. Það verður líka
auðveldara að útskýra fyrir þeim af
hverju sumt má en annað ekki. Að
bera virðingu fyrir náunganum er
mér hugleikið, rétt eins og jafnrétti
kynjanna,“ útskýrir Hanna.
Að láta drauma sína rætast
Hanna er tvíburasystir Jóns Jóns-
sonar tónlistarmanns og yngri
bróðir þeirra er Friðrik Dór en
báðir eru þeir að hasla sér völl í
sjónvarpi um þessar mundir. Hún
vitnar í texta tvíburabróður síns
þegar hún segir: „Mér er ofarlega í
huga það sem Jón syngur: „Ávallt
virtu hjartans birtu, hún þig leiðir,
sorgum eyðir.“ Það hefur svo góð
áhrif að hafa áhuga og ástríðu fyrir
einhverju. Ef þú hefur það gerir þú
allt af svo mikilli alúð og þess vegna
miklu betur. Það er mikilvægt að
hvetja fólk til að hlusta á hjartað og
framkvæma það sem það langar til.
Jón bætir við í textanum: „Lífsins
lausnir inni í þér“ sem fær mig
til að hugsa um kosningarnar á
morgun og alla þá sem eru virkir
á samfélagsmiðlum. Þar er mikil
neikvæðni og margir kappkosta að
skjóta hinn aðilann niður. Ég hef
lengi búið erlendis og sé hlutina
kannski úr meiri fjarlægð. En ég
spyr, hefur allt þetta neikvæða
fólk horft í eigin barm? Er kannski
eðlilegra að byrja hjá sjálfum sér til
að bæta eigið líf og gera samfélagið
betra? Hvað get ég gert?“ spyr
Hanna og segist hafa fylgst af áhuga
með stjórnmálaumræðunni undan-
farna daga. „Ég veit samt ekki enn
hvar x-ið mitt endar,“ segir þessa
unga kona og bætir við: „Það kemur
mér til dæmis mikið á óvart hversu
lítið er fjallað um framtíðarmennta-
stefnu í grunnskólum. Aðalnám-
skrá er mjög lituð af pólitík sem
getur verið afar óþægilegt þegar
oft er skipt um ráðherra. Mikil og
metnaðarfull vinna getur farið for-
görðum við stjórnarslit.“
Stefnir heim
eftir rúman áratug erlendis
Hanna og Ásgeir stefna á að flytja
heim eftir eitt og hálft ár. Þau eru
búin að vera í Frakklandi í fimm
ár en bjuggu áður í Þýskalandi og
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Framhald af forsíðu ➛
Danmörku. Þau eiga tvo drengi,
Dag, 3ja ára, og Tuma, 5 ára. „Ég vil
að strákarnir mín fái metnaðarfulla
kennslu þegar þeir fara í skóla hér
heima. Það má ekki vera tilviljana-
kennt hvernig hún verður, þessi
vöntun á kennurum með kennslu-
réttindi er háalvarlegt mál. Það er
að svo mörgu að hyggja, við þurfum
að horfa fram á við og notfæra
okkur og takast á við nýjustu þekk-
ingu. Það er ekki nóg að eitthvað sé
gott eða ágætt, við verðum að halda
áfram að gera betur. Ég stóð lengi í
þeirri trú að Ísland væri besta land í
heimi varðandi jafnrétti kynjanna.
En við nánari athugun ríkir hér til
dæmis gríðarlegur kynbundinn
launamunur og konur eru ekki að
uppskera til jafns við karlmenn
af menntun sinni þegar kemur að
völdum og áhrifum. Það er því enn
mikil vinna eftir til að ná fullu jafn-
rétti kynjanna en til að vinna að því
er einmitt ýmis tækifæri að finna í
skólunum,“ segir hún.
Hanna segir að þótt gott sé að
búa í Frakklandi á margan hátt séu
líka ókostir. Hún saknar frelsisins
hér heima og segir að traust gagn-
vart öðrum sé verðmætt. „Í Frakk-
landi lokar fólk heimili sín mikið af,
t.d. með girðingum, þar ríkir mikið
vantraust gagnvart náunganum.
Hryðjuverkaógn setur svip sinn á
allt lífið, meira að segja í skólum.“
Skólaskylda í Frakklandi
hefst þegar börn eru þriggja ára.
„Strákarnir eru mjög ánægðir í skól-
anum. Mikil áhersla er lögð á aga í
frönskum skólum en námið gengur
ótrúlega vel og hentar þeim. Ég er
svo heppin að vera heimavinnandi
og veit að það eru mikil forréttindi
en á sama tíma er mér mikilvægt
að virkja hugann í metnaðarfullu
námi og verkefnum. Mér finnst
æðislegt að vera mamma og nýt
þess. Tíminn líður hratt og fyrstu ár
barnanna eru mikilvæg. Ég er þess
vegna mjög þakklát fyrir að hafa
tíma til að sinna börnunum mínum
eins vel og ég vil og vera til staðar.
Við hugum að hollu mataræði og
svo finnst mér rosalega gaman að
dansa. Við hjónin dönsum alveg
helling með strákunum okkar á
stofugólfinu heima og skemmtum
okkur vel. Dansinn bætir lífið,“ segir
Hanna sem stundar einnig jóga.
„Mér finnst íþróttastarf með yngri
börnum til fyrirmyndar á Íslandi.
Árangur landsliða okkar á erlendri
grundu vekur mikla athygli í Frakk-
landi.“
En er væntanleg ný barnabók?
„Ég er með ótrúlega margar hug-
myndir í kollinum og ný bók kemur
örugglega einn daginn.“
Tvíburasystkinin Hanna Borg Jónsdóttir og Jón Jónsson eru samrýmd. Þessi
mynd var tekin af þeim árið 2004. Hanna vísar í texta Jóns þegar hún rabbar
um lífsins gildi.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . o K TÓ B E R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
2
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
1
5
-6
9
0
8
1
E
1
5
-6
7
C
C
1
E
1
5
-6
6
9
0
1
E
1
5
-6
5
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K