Fréttablaðið - 27.10.2017, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 27.10.2017, Blaðsíða 4
 LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–15 ELDHRESS OFURHETJA „Einlæg og skondin fantasía sem flytur mannbætandi boðskap sem bæði stórir og smáir lesendur hafa gott af að heyra.“ HELGA BIRGISDÓTTIR / FRÉTTABLAÐIÐ Bergens Tidende (um Gildruna) Mosfellsbær Sigrún Pálsdóttir og Hildur Margrétardóttir, aðal- og varamenn Íbúahreyfingarinnar í bæjarráði Mosfellsbæjar, saka bæjarstjóra Mosfellsbæjar og aðra bæjarfulltrúa um einelti í sinn garð og annarra í Íbúahreyfingunni. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs í gær. Óskaði bæjarfull- trúi Íbúahreyfingarinnar, Sigrún Pálsdóttir, þess að fenginn yrði vinnusálfræðingur sem hlotið hefði viðurkenningu Vinnueftirlits ríkis- ins til að gera úttekt á samskiptum fulltrúa í bæjarráði og bæjarstjórn Mosfellsbæjar og honum falið að gera áætlun um úrbætur. Tilefnið er bréf sem Hildur Margrétardóttir ritaði eftir upplifun sína af bæjar- ráðsfundi þann 12. október. Á bæjarstjóri að hennar mati að hafa viðhaft eineltistilburði. Sigrún, aðalmaður hreyfingar- innar, sem sat ekki umræddan fund, segir einelti hafa viðgengist allt kjörtímabilið. „Ég hef þurft að sitja undir þessu í þrjú ár, hvern fundinn á fætur öðrum. Það er verið að uppnefna mann og rjúka út af fundum og sýna mikla bræði. Þetta er slítandi og streituvaldandi,“ segir Sigrún. Í Bréfi Hildar er farið yfir mála- vöxtu. „Mér var illa misboðið á síð- asta bæjarráðsfundi þar sem ég sat sem varamaður fyrir fulltrúa okkar í Íbúahreyfingunni. Hegðun nefndar- manns meirihlutans var með engu sæmandi á vettvangi bæjarráðs,“ skrifar Hildur í bréfi sem lagt var fram á bæjarráðsfundi Mosfells- bæjar í gær. Að sögn Sigrúnar var það bæjarstjóri í þessu tilfelli sem viðhafði meint einelti. Tillaga Sigrúnar um að fá vinnu- sálfræðing var felld og bókuðu full- trúar Vinstri grænna, Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks um málið. Telja þau samskiptin eðlileg og ósk um áminningu væru innistæðulaus. „Samkvæmt mínum bókum var ekki um einelti að ræða,“ segir Anna Sig- ríður Guðnadóttir, oddviti Samfylk- ingarinnar, sem situr í minnihluta bæjarstjórnar. Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, vísar því alfarið á bug að hér sé um einelti að ræða. „Það kom upp tillaga um móttöku flóttamanna. Bæjarráð var einhuga um að taka jákvætt í erindið. Síðan kom tillaga frá Íbúahreyfingunni sem gekk á skjön við það sem bæjar- ráð var búið að ræða um. Ég kallaði það popúlisma,“ segir Haraldur. „Ég rauk ekki á dyr eða fór í fússi af fundi. Þetta var ekki einelti. Sam- skiptin eru hins vegar ekki góð milli þessa eina bæjarfulltrúa og hinna átta og hefur verið þannig allt kjör- tímabilið, en einelti heitir það ekki.“ „Eineltishegðun þess sem valdið hefur og meðvirkni annarra nefnd- armanna sést á því að nefndarmenn taka þátt í að smætta, uppnefna eða með öðrum leiðum tala illa um, og til, fulltrúa Íbúahreyfingarinnar,“ segir í bréfi fulltrúa Íbúahreyfing- arinnar. „Við munum ekki hætta og höfum ákveðið að fara með þetta til Vinnueftirlitsins,“ segir Sigrún, bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar. Haraldur segir augljóst að hér sé um pólitískt upphlaup að ræða. „Ef viðkomandi telur um einelti að ræða á að kalla til eineltisteymi bæjarins sem bæjarfulltrúinn veit af. Hér er verið að koma pólitísku höggi á meirihlutann og ekki gott að nota eineltishugtakið með þeim hætti,“ segir Haraldur. sveinn@frettabladid.is Vilja fá vinnustaðasálfræðing í bæjarstjórn Mosfellsbæjar Bæði aðal- og varamaður Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ telja sig verða fyrir einelti af hálfu annarra bæjarfulltrúa og bæjarstjóra. Bæjarstjóri vísar því alfarið á bug. Málið tekið fyrir á síðasta fundi bæjarráðs. DóMsMál Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær ummæli fjögurra frétta- manna fréttastofu 365, sem Frétta- blaðið tilheyrir, dauð og ómerk. Fréttamennirnir voru jafnframt dæmdir til að greiða tveimur mönn- um miskabætur, samtals 1,9 milljónir króna. Ummælin sem um ræðir eru úr fréttum um hið svokallaða Hlíðamál.  Í nóvember 2015 greindi blaðið frá meintri nauðgun í íbúð í Hlíðunum sem var sögð útbúin til nauðgana. Fréttamennirnir eru Nadine Guð- rún Yaghi, Stefán Rafn Sigurbjörnsson, Þórhildur Þorkelsdóttir og Heimir Már Pétursson. Var Nadine gert að greiða hæstu bæturnar, 700.000 krón- ur hvorum manni um sig. Þórhildi var gert að greiða öðrum manninum 100.000 krónur og hinum 200.000 krónur en Heimi og Stefáni var gert að greiða hvorum manni 50.000 krónur. Kristín Þorsteinsdóttir, aðalritstjóri 365, segir að málinu verði áfrýjað. Í leiðara Fréttablaðsins segir hún að það sé orðin þekkt tækni í sambæri- legum málum að einblína á smáatriði, sem mögulega séu röng, og þannig beina athygli frá stóru myndinni. „Starfsumhverfi fjölmiðla er eitt, en annað og verra við niðurstöðu héraðsdóms eru þau skilaboð sem send eru þolendum kynferðisbrota og fordæmið sem sett er varðandi umfjöllun um kynferðisbrot,“ segir í leiðaranum. – þea Fjórir fréttamenn á 365 dæmdir til að greiða tæpar tvær milljónir Erfiðlega hefur gengið að slíðra sverðin milli Íbúahreyfingarinnar og annarra bæjarfulltrúa í Mosfellsbæ. Fréttablaðið/GVa Ég rauk ekki á dyr eða fór í fússi af fundi. Þetta var ekki einelti. Samskiptin eru hins vegar ekki góð milli þessa eina bæjarfulltrúa og hinna átta. Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar Kristín Þorsteinsdóttir, aðalritstjóri 365, og Nadine Guðrún Yaghi frétta- maður. Fréttablaðið/aNtoN briNK sveitarstjórnir Breiðdalshreppur hefur óskað eftir við Fjarðabyggð að kannaðir verði möguleikar á sam- einingu sveitarfélaganna. Sveitar- stjórn hreppsins samþykkti þetta samhljóða. Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur tekið jákvætt í erindið og vísar meðal annars í fyrirliggjandi skýrslu Rannsóknastofnunar Háskólans á Akureyri sem ber heitið  Breið- dalshreppur  – samfélagsgreining og sameiningarkostir. Verði af við- ræðum milli sveitarfélaganna þarf að kjósa sérstaka samstarfsnefnd um málið. Íbúar í Breiðdalshreppi eru 182 en um 4.700 manns búa í Fjarða- byggð.  – gar Vilja sameinast Fjarðabyggð Á breiðdalsvík. Fréttablaðið/Valli sýrlanD Ríkisstjórn Bashars al- Assad í Sýrlandi er ábyrg fyrir efna- vopnaárás sem gerð var á Khan Sheikhoun þar í landi í apríl. Sam- einuðu þjóðirnar komust að þessari niðurstöðu í gær en um var að ræða árás þar sem herinn varpaði sar- íngasi á almenna borgara og felldi að minnsta kosti 74. Assad-liðar hafa alla tíð neitað þessu og forsetinn sagt að herinn hafi aldrei gert árás á bæinn. Gefið var í skyn að efnavopnaframleiðsla uppreisnarmanna hafi sprungið á svæðinu. Saríngas er tuttugu sinn- um banvænna en blásýra. – þea Assad-liðar vörpuðu saríngasi 2 7 . o k t ó b e r 2 0 1 7 f Ö s t U D a G U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 2 7 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 1 5 -3 C 9 8 1 E 1 5 -3 B 5 C 1 E 1 5 -3 A 2 0 1 E 1 5 -3 8 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 2 6 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.