Fréttablaðið - 27.10.2017, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 27.10.2017, Blaðsíða 10
Audi Q7 e-tron quattro er umhverfismildur tengiltvinnbíll semsameinar krafta rafmagnsmótors og dísilvélar. Mættu nýrri árstíð með grænni samvisku og allt að 56 km drægni á rafmagni.* Verð frá 10.290.000 kr. Audi Q7 e-tron quattro *S kv . N ED C s ta ðl in u m . Verslun  „Þetta hefur haft mikil áhrif á okkar rekstur og það virðist vera samdráttur alls staðar og áhrif- in meiri en maður áætlaði,“ segir Pétur Thor Gunnarsson, markaðs- stjóri Freyju, um áhrif komu Costco hingað til lands en sælgætisgerðin hefur að hans sögn þurft að segja upp sex manns eða um tíu prósent af  starfsliði sínu  síðan verslunin var opnuð fyrir rúmum fimm mán- uðum. „Samdrátturinn lýsir sér í minni sölu en enginn af okkar núverandi viðskiptavinum er að sýna meiri sam- drátt en aðrir heldur er þetta heilt yfir. Hins vegar sjáum við sem betur fer að salan er að batna. Þó við værum með gott vöruúrval í Costco þá myndi það ekki endilega bæta upp fyrir það sem við höfum tapað heldur hefur orðið aukning í sölu á innfluttu sæl- gæti,“ segir Pétur Thor. Verslunarfyrirtækið Hagar, sem rekur meðal annars Bónus og Hag- kaup, greindi á þriðjudag frá því að vörusala þess frá júníbyrjun til ágústloka hefði dregist saman um 2,6 milljarða eða 12,6 prósent milli ára. Þá hefði rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBIDTA) lækkað úr 1,8 milljörðum í 1,1. Breytingar á smá- sölumarkaði hefðu gjörbreytt sam- keppnisumhverfi en verslun Costco í Kauptúni var opnuð í síðustu viku maímánaðar. „Þetta hefur auðvitað áhrif á okkar rekstur þegar stærsti við- skiptavinurinn verður fyrir þeim áhrifum sem lýst er. En eins og kom fram í máli Finns [Árnasonar, for- stjóra Haga] eru áhrifin meiri en menn bjuggust við og varanleg en þau eru ekki endilega alveg komin fram,“ segir Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri heildsölunnar Ísam, „Ég get ekki sagt þér hvað salan hefur minnkað í prósentum en við erum með gríðarlega breitt vöruúr- val og samdráttur í sölu er mismun- andi eftir því. En það er klárt mál að þetta hefur haft gríðarleg áhrif og sérstaklega í sumar og það kemur illa við okkur því sumarið er okkur mjög mikilvægt,“ segir Bergþóra en Ísam á meðal annars framleiðslu- fyrirtækin Mylluna, Ora og Frón. Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands (SS), sem framleiðir matvæli en er einnig stór heildsali, segir áhrif Costco á íslenskan smásölumarkað meiri en flestir hafi búist við. Ekki hafi verið ástæða til uppsagna hjá SS  vegna þessa enn sem komið sé. „Í ákveðnum vöruflokkum merkj- um við allt að tíu prósentum minni sölu miðað við það sem áætlanir gerðu ráð fyrir. Við sjáum líka að það eru ákveðin hughrif í gangi. Fólk skiptir svolítið um persónu- leika þegar það fer þarna inn og það kannski kaupir fullt af hlutum sem eru ekki ódýrari í öllum tilfellum. Okkur sýnist að þeir hafi náð allt að 20 prósenta markaðshlutdeild í þeim vöruflokkum sem þeir leggja áherslu á,“ segir Steinþór. haraldur@frettabladid.is Uppsagnir og minni sala fylgja Costco Áhrifin af komu Costco hingað til lands eru meiri en heildsalar á borð við Ísam og Sláturfélag Suðurlands bjuggust við. Sælgætisgerðin Freyja hefur þurft að ráðast í uppsagnir. Forstjóri SS segir verslunina hafa náð 20 prósenta markaðshlutdeild í ákveðnum vöruflokkum.   Koma Costco hefur gjörbreytt stöðu margra íslenskra framleiðslufyrirtækja og heildsala. Fréttablaðið/Eyþór Þetta hefur auð- vitað áhrif á okkar rekstur þegar stærsti við- skiptavinurinn verður fyrir þeim áhrifum sem lýst er. Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Ísam 2 7 . o k t ó b e r 2 0 1 7 F Ö s t u D A G u r10 F r é t t i r ∙ F r é t t A b l A ð i ð 2 7 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 1 5 -5 F 2 8 1 E 1 5 -5 D E C 1 E 1 5 -5 C B 0 1 E 1 5 -5 B 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 2 6 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.