Fréttablaðið - 27.10.2017, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 27.10.2017, Blaðsíða 27
Meðal rétta á jólahlaðborði Mathússins eru dýrindis nauta- lundir. Maturinn í Mathúsinu var afbragðs góður fyrir en nær nú hæstu hæðum eftir að við fengum flottasta kokka dúett landsins í lið með okkur,“ segir Stefán Magnússon í Mathúsi Garða- bæjar. Í eldhúsinu ráða nú ríkjum Fannar Vernharðsson, fyrrverandi fyrirliði landsliðsins í matreiðslu, og matreiðslumeistarinn Garðar Aron Guðbrandsson, sem áður störfuðu saman á Vox. Þeir Fannar og Garðar standa nú í ströngu við að matbúa gómsætar jólakrásir fyrir glæsilegt jólahlað- borð Mathússins sem verður opnað fimmtudaginn 16. nóvember. „Við hlökkum mikið til að gleðja matargesti okkar með dýrindis jólamat og hátíðarstemningu,“ segir Stefán, minnugur einlægrar hamingju jólahlaðborðsgesta Mat- hússins í fyrra. „Það er sannkallað jólaævintýri að njóta jólaveislu í Mathúsinu og dekrað við munn og maga. Hér er notaleg samvera og gómsætur matur í fyrirrúmi. Við stjönum við gestina og berum úrval jólaforrétta á borðið til þeirra, sem og lostæta eftirréttina, en aðalréttirnir eru bornir fram á hefðbundnu jólahlaðborði þar sem hver og einn velur sér girnilega jóla- rétti á disk.“ Meðal girnilegra jólakrása Mat- húss Garðabæjar er grafinn nauta- hryggvöðvi, andaconfit, purusteik, heitreyktur lax, nautalund, kirsu- berjaís og karamellubrúnkur, og þá er fátt upptalið. „Mathúsið er fjölskylduvænn staður og við gerum börnum hátt undir höfði í sérinnréttuðu leikher- bergi og litlum bíósal, sem heldur þeim uppteknum á meðan fullorðna fólkið vill sitja lengur. Það eru enda blessuð börnin sem ráða ferðinni þegar fjölskyldan fer út að borða, því ef börnin eru ánægð koma for- eldrarnir aftur,“ segir Stefán og bætir við að öll börn fái ís í eftirmat. Þess má geta að Mathús Garða- bæjar gefur Barnaspítala Hringsins 200 krónur af hverri seldri barna- máltíð ásamt því að styrkja duglega við íþróttafélag Stjörnunnar. Draumur sem rættist Mathús Garðabæjar er draumur sem rættist hjá matreiðslumeistaranum Stefáni Magnússyni um að opna lifandi og eftirsóttan veitingastað með fyrsta flokks matargerð í hjarta heimabæjar síns. „Ég er Garðbæingur og mikill áhugamaður um íþróttir í bænum. Því styrkjum við körfuknattleiks- lið félagsins, sem og fimleika- og handbolta Stjörnunnar,“ upplýsir Stefán sem er gríðarlega áhugasamur um körfuna í Stjörnunni. „Ég reyni að fara á alla leiki í bæði karla- og kvennadeild, og eftir leiki koma liðin alltaf í mat til okkar í Mathúsið,“ segir hann kátur. Mathúsið var opnað í maí í fyrra og fóru viðtökurnar fram úr björtustu vonum Stefáns sem var áður yfirkokkur á Argentínu og Vegamótum, og stóð á bak við Kol. Mathúsið hafði lengi verið draumur Stefáns og sá hann einnig um glæsi- lega innanhússhönnun staðarins. „Við ákváðum að eltast ekki við ferðamannastrauminn heldur fá til okkar Íslendinga á fjölskylduvænan stað sem býður upp á vandaðan mat sem er matreiddur úr fyrsta flokks hráefni. Mathúsið er afsíðis, fjarri daglegum skarkala og ekki miðsvæð- is í stöðugri umferð ferðamanna. Hjá okkur geta því fjölskyldur, vinir og vinnufélagar sest að borði yfir góðum mat í yndislegu rými og unað sér vel,“ segir Stefán. Jólahlaðborð Mathúss Garða- Jóladraumur í Garðabæ Bragð og ilmur af jólum fær dásamlega freistandi blæ í höndum Fannars Vernharðssonar, áður fyrirliða landsliðsins í matreiðslu, á girnilegu og glæsilegu jólahlaðborði Mathúss Garðabæjar. Mathús Garðabæjar er fjölskylduvænn staður þar sem börnum er líka gert hátt undir höfði. Orðspor af gómsætum mat hefur farið víða og koma gestir hvaðan- æva af landinu. Garðbæingurinn og matreiðslumaðurinn Stefán Magnússon er eigandi Mathússins og hafði veg og vanda af glæsilegu útliti staðarins. MYND/EYÞÓR Kokkarnir Fannar Vernharðsson og Garðar Aron Guðbrandsson sjá um að gleðja munn og maga matargesta. Jólaforréttir l hreindýrapaté l reyktar andabringur með valhnetum l laxatartar með seljurótar­ remúlaði l grafinn nautahryggvöðvi Jólaaðalréttir l eplasalat l grænt salat l rauðrófu­ og perusalat l rauðkál l heitreyktur lax l grafinn lax l skelfiskur ceviche l svartbaunabuff l kalkúnn l andaconfit l nautalund l purusteik l rótargrænmeti l kartöflugratín l sykurbrúnaðar kartöflur l villisveppasósa l Madeira­gljái Jólaeftirréttir l ris à l’amande l hrísgrjón l vanilla l hvít súkkulaðimús l kirsuber l karamella l möndlur l kirsuberjaís l smákökur l karamellu­brownies l makkarónur bæjar hefst 16. nóvember og frá 18. nóvember verður boðið upp á jólabröns um helgar. Bókanir raðast hratt inn og er mælt með því að bóka borð sem fyrst. Mathús Garðabæjar er á Garðatorgi 4B. Borðapantanir í síma 571 3775 og á mathus@mathus.is. FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 F Ö S T U DAG U R 2 7 . o k tó B e r 2 0 1 7 2 7 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 1 5 -4 6 7 8 1 E 1 5 -4 5 3 C 1 E 1 5 -4 4 0 0 1 E 1 5 -4 2 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 2 6 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.