Fréttablaðið - 27.10.2017, Qupperneq 27
Meðal rétta á
jólahlaðborði
Mathússins eru
dýrindis nauta-
lundir.
Maturinn í Mathúsinu var afbragðs góður fyrir en nær nú hæstu hæðum eftir að
við fengum flottasta kokka dúett
landsins í lið með okkur,“ segir
Stefán Magnússon í Mathúsi Garða-
bæjar. Í eldhúsinu ráða nú ríkjum
Fannar Vernharðsson, fyrrverandi
fyrirliði landsliðsins í matreiðslu, og
matreiðslumeistarinn Garðar Aron
Guðbrandsson, sem áður störfuðu
saman á Vox.
Þeir Fannar og Garðar standa nú
í ströngu við að matbúa gómsætar
jólakrásir fyrir glæsilegt jólahlað-
borð Mathússins sem verður opnað
fimmtudaginn 16. nóvember.
„Við hlökkum mikið til að gleðja
matargesti okkar með dýrindis
jólamat og hátíðarstemningu,“
segir Stefán, minnugur einlægrar
hamingju jólahlaðborðsgesta Mat-
hússins í fyrra.
„Það er sannkallað jólaævintýri
að njóta jólaveislu í Mathúsinu og
dekrað við munn og maga. Hér er
notaleg samvera og gómsætur matur
í fyrirrúmi. Við stjönum við gestina
og berum úrval jólaforrétta á borðið
til þeirra, sem og lostæta eftirréttina,
en aðalréttirnir eru bornir fram á
hefðbundnu jólahlaðborði þar sem
hver og einn velur sér girnilega jóla-
rétti á disk.“
Meðal girnilegra jólakrása Mat-
húss Garðabæjar er grafinn nauta-
hryggvöðvi, andaconfit, purusteik,
heitreyktur lax, nautalund, kirsu-
berjaís og karamellubrúnkur, og þá
er fátt upptalið.
„Mathúsið er fjölskylduvænn
staður og við gerum börnum hátt
undir höfði í sérinnréttuðu leikher-
bergi og litlum bíósal, sem heldur
þeim uppteknum á meðan fullorðna
fólkið vill sitja lengur. Það eru enda
blessuð börnin sem ráða ferðinni
þegar fjölskyldan fer út að borða,
því ef börnin eru ánægð koma for-
eldrarnir aftur,“ segir Stefán og bætir
við að öll börn fái ís í eftirmat.
Þess má geta að Mathús Garða-
bæjar gefur Barnaspítala Hringsins
200 krónur af hverri seldri barna-
máltíð ásamt því að styrkja duglega
við íþróttafélag Stjörnunnar.
Draumur sem rættist
Mathús Garðabæjar er draumur sem
rættist hjá matreiðslumeistaranum
Stefáni Magnússyni um að opna
lifandi og eftirsóttan veitingastað
með fyrsta flokks matargerð í hjarta
heimabæjar síns.
„Ég er Garðbæingur og mikill
áhugamaður um íþróttir í bænum.
Því styrkjum við körfuknattleiks-
lið félagsins, sem og fimleika- og
handbolta Stjörnunnar,“ upplýsir
Stefán sem er gríðarlega áhugasamur
um körfuna í Stjörnunni. „Ég reyni
að fara á alla leiki í bæði karla- og
kvennadeild, og eftir leiki koma liðin
alltaf í mat til okkar í Mathúsið,“
segir hann kátur.
Mathúsið var opnað í maí í
fyrra og fóru viðtökurnar fram úr
björtustu vonum Stefáns sem var
áður yfirkokkur á Argentínu og
Vegamótum, og stóð á bak við Kol.
Mathúsið hafði lengi verið draumur
Stefáns og sá hann einnig um glæsi-
lega innanhússhönnun staðarins.
„Við ákváðum að eltast ekki við
ferðamannastrauminn heldur fá til
okkar Íslendinga á fjölskylduvænan
stað sem býður upp á vandaðan mat
sem er matreiddur úr fyrsta flokks
hráefni. Mathúsið er afsíðis, fjarri
daglegum skarkala og ekki miðsvæð-
is í stöðugri umferð ferðamanna.
Hjá okkur geta því fjölskyldur, vinir
og vinnufélagar sest að borði yfir
góðum mat í yndislegu rými og unað
sér vel,“ segir Stefán.
Jólahlaðborð Mathúss Garða-
Jóladraumur í Garðabæ
Bragð og ilmur af jólum fær dásamlega freistandi blæ í höndum Fannars Vernharðssonar, áður
fyrirliða landsliðsins í matreiðslu, á girnilegu og glæsilegu jólahlaðborði Mathúss Garðabæjar.
Mathús Garðabæjar er fjölskylduvænn staður þar sem börnum er líka gert hátt undir höfði. Orðspor af gómsætum mat hefur farið víða og koma gestir hvaðan-
æva af landinu. Garðbæingurinn og matreiðslumaðurinn Stefán Magnússon er eigandi Mathússins og hafði veg og vanda af glæsilegu útliti staðarins. MYND/EYÞÓR
Kokkarnir Fannar Vernharðsson og Garðar Aron Guðbrandsson sjá um að gleðja munn og maga matargesta.
Jólaforréttir
l hreindýrapaté
l reyktar andabringur með
valhnetum
l laxatartar með seljurótar
remúlaði
l grafinn nautahryggvöðvi
Jólaaðalréttir
l eplasalat
l grænt salat
l rauðrófu og perusalat
l rauðkál
l heitreyktur lax
l grafinn lax
l skelfiskur ceviche
l svartbaunabuff
l kalkúnn
l andaconfit
l nautalund
l purusteik
l rótargrænmeti
l kartöflugratín
l sykurbrúnaðar kartöflur
l villisveppasósa
l Madeiragljái
Jólaeftirréttir
l ris à l’amande
l hrísgrjón
l vanilla
l hvít súkkulaðimús
l kirsuber
l karamella
l möndlur
l kirsuberjaís
l smákökur
l karamellubrownies
l makkarónur
bæjar hefst 16. nóvember og frá
18. nóvember verður boðið upp á
jólabröns um helgar. Bókanir raðast
hratt inn og er mælt með því að
bóka borð sem fyrst.
Mathús Garðabæjar er á Garðatorgi
4B. Borðapantanir í síma 571 3775
og á mathus@mathus.is.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 F Ö S T U DAG U R 2 7 . o k tó B e r 2 0 1 7
2
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
1
5
-4
6
7
8
1
E
1
5
-4
5
3
C
1
E
1
5
-4
4
0
0
1
E
1
5
-4
2
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K