Fréttablaðið - 01.11.2017, Side 26
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.is,
s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage,
johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is,
s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Kúnígúnd hefur opnað nýja og glæsilega verslun á neðri hæðinni í Kringlunni á móti Hraðlestinni. MYND/ANTON BRINK
Það er hægt að velja um mörg falleg
stell í Kúnígúnd, mörg með langa sögu.
Annað fallegt matarstell í Kúnígúnd. Glæsilegar jólavörur eru komnar í
Kúnígúnd.
Jórunn Þóra Sigurðardóttir verslunarstjóri. MYND/ANTON BRINK
Í Kúnígúnd er
mikið úrval fal-
legra gjafavara.
Jólagjafir, afmælisgjafir, brúðargjafir, skírnargjafir eða aðrar tækifærisgjafir.
Þær fást allar í Kúnígúnd.
Nýtt og ferskt útlit einkennir verslunina Kúnígúnd í Kringlunni. Mikil lofthæð
gerir rýmið opið og fallegar upp-
stillingar sýna vel það mikla úrval
af matarstellum og öðrum vörum
sem boðið er upp á. Allar vörur
verslunarinnar njóta sín í björtu
og fallegu umhverfi.
Í Kúnígúnd fást fjölmörg heims-
þekkt vörumerki í gjafavöru og
hönnun, má þar nefna Georg
Jensen, Georg Jensen Damask,
Royal Copenhagen, Villeroy &
Boch, Kay Bojesen, Kosta Boda,
Holmegaard, Rosendahl og
Stelton svo nokkur séu nefnd.
Það verður því úr miklu úrvali
gjafavöru að velja þegar líður að
jólagjafainnkaupum. Á næstunni
mun vöruúrvalið aukast enn
meira.
Falleg jólavara
Að sögn Jórunnar Þóru Sig-
urðardóttur, verslunarstjóra í
Kúnígúnd, var verslunin búin að
sprengja utan af sér húsnæðið í
Kringlunni og því er stækkunin
kærkomin. „Nýja rýmið býður
upp á mikla möguleika. Nú getum
við boðið Georg Jensen Damask
í Kringlunni en áður var sú vara
einungis seld á Laugaveginum.
Við eigum von á miklu úrvali af
gjafavöru á næstu dögum og erum
klár í jólin,“ segir hún. „Sömu-
leiðis bjóðum við mikið úrval af
jólavöru, til dæmis hina vinsælu
Georg Jensen jólaóróa. Einnig
afar fallega jólavöru frá Villeroy
& Boch, Royal Copenhagen og
Holme gaard,“ segir hún.
Brúðargjafalistar
Jórunn Þóra bendir á að brúðar-
gjafalistar hafi alla tíð verið mjög
vinsælir í búðinni. Verðandi
brúðhjón koma í búðina og skoða
vöruúrval en geta síðan sett upp
óskalista á heimasíðu verslunar-
innar. „Þetta þykir mörgum mjög
þægilegt og margir nýta sér þessa
þjónustu,“ segir hún.
Matarstell með langa sögu
„Við leggjum mikla áherslu á
vandaðar og eigulegar vörur.
Matarstellin eru sívinsæl en
þau eru meðal annars frá Royal
Copenhagen, Georg Jensen og
Villeroy & Boch. Mörg þeirra eiga
sér langa sögu eins og Blue Fluted
Plain sem er eitt vinsælasta
matarstellið frá Royal Copen-
hagen og hefur verið í framleiðslu
frá árinu 1775.
Margir eru að safna þessu
stelli og við eigum það alltaf til
auk allra annarra stella frá Royal
Copenhagen. Það er frábært
að gefa þeim sem eru að safna
stellunum einhverja fylgihluti úr
því í tækifæris- eða jólagjafir. Þá
er mikið úrval af fallegri gjafa-
vöru í Kúnígúnd og allir geta
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Verðflokkar eru margir í kerta-
stjökum, glösum, vösum, styttum,
lömpum eða hverju öðru sem
hugurinn girnist,“ segir Jórunn
Þóra og bætir við að margir kaupi
t.d. fallegt Georg Jensen Damask
viskastykki til að taka með sér í
matarboð handa gestgjafanum.
„Það er gjöf sem fólk notar og
endist lengi,“ segir hún.
Borðdúkar, pottar
og barnavörur
Glæsilegir borðdúkar eru
sömuleiðis til frá Georg Jensen
Damask sem hafa verið vinsælir
á jólaborðið. „Dúkarnir eru afar
vandaðir úr egypskri bómull,“
segir Jórunn Þóra og það er hægt
að skoða þá á netinu. „Georg
Jensen Damask var stofnað 1756
og framleiðir vandaða og góða
vefnaðarvöru. Fyrirtækið er sér-
Framhald af forsíðu ➛
staklega þekkt fyrir borðdúka og
sængurföt,“ segir hún enn fremur.
Þá má minnast á búsáhöld, potta
og pönnur frá LeCreuset, WMF,
Wusthof ásamt hinum geysivin-
sælu heimilistækjum frá Kitchen-
Aid. Loks má minna á mikið
úrval af fallegri barnavöru, bæði
matarsett, hnífapör og glös sem
henta til sængur-, skírnar- eða
afmælisgjafa.
Rótgróin verslun
Kúnígúnd er rótgróin verslun sem
flestir þekkja. Hún var stofnuð í
Hafnarstræti árið 1982 en hefur
sífellt verið að færa út kvíarnar og
auka vöruúrvalið. Í dag er Kúní-
gúnd á Laugavegi 53b, í Kringl-
unni og á Akureyri. Þá er öflug
netsíða kunigund.is þar sem hægt
er að skoða vörur og kaupa.
Nýja verslunin í Kringlunni var
opnuð um miðjan október síðast-
liðinn og hefur fengið mjög góðar
viðtökur frá viðskiptavinum sem
hafa lýst mikilli ánægju með
flutninginn á versluninni. Starfs-
menn hafa ávallt lagt áherslu á
góða og persónulega þjónustu og
gjafavörum er pakkað fallega inn
fyrir viðskiptavini.
Nánar um vörur, þjónustu og
opnunartíma Kúnígúnd á
heimasíðunni www.kunigund.is
eða í síma 551-3469.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . N ÓV E M B E R 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R
0
1
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
0
-7
C
6
4
1
E
2
0
-7
B
2
8
1
E
2
0
-7
9
E
C
1
E
2
0
-7
8
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
3
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K