Fréttablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 2
Veður Suðvestanátt í dag, víða 8-15 m/s, en hvassari á stöku stað. Skúrir síðdegis. Skýjað en að mestu þurrt um landið norðaustanvert og þar birtir til síð- degis. sjá síðu 36  Ásgeir lék fyrir troðfullu húsi á Grund Fullt var út úr dyrum þegar tónlistarmaðurinn Ásgeir mætti á dvalarheimilið Grund í gær til að spila fyrir heimamenn. Leikskólabörn úr nágrenn- inu fengu líka að vera með. Einar Georg Einarsson, faðir Ásgeirs, tók þátt í skemmtuninni. Tónleikarnir voru í tilefni af Airwaves. Fréttablaðið/Ernir PFAFF - GRENSÁSVEGI 13 - SÍMI 414 0400 - PFAFF.IS - Fylgstu með okkur á Facebook Verð: 8.500 kr. Tilboð: 5.950 kr. Verð: 14.900 kr. Tilboð: 9.990 kr. HELGAR- SPRENGJA Vönduð loftljós á sérstöku helgartilboði LögregLumáL Talið er líklegt að börn hafi kveikt í niðurgröfnum strætisvagni í Grafarholti í gær. Ásgeir Pétur Guðnason, lögreglufull- trúi hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu, segir allt benda til íkveikju og að lögreglan telji sig komna á spor þeirra sem kveikt hafi eldinn. Tilkynnendur hafi séð börn á svæðinu og þau hafi einnig sést á öryggismyndavélum Krónunnar sem er þarna rétt hjá. Talið er að þeir sem kveiktu eldinn séu á aldrinum tíu til tólf ára. Tilkynning um eldinn barst um klukkan fimm í gær og hafði slökkvi- liðið ráðið niðurlögum eldsins rétt eftir klukkan átta um kvöldið. Sam- kvæmt upplýsingum frá slökkvi- liðinu hafði vagninn verið niður- grafinn og notaður sem geymsla um áraraðir. Þess vegna var mikill eldsmatur í honum og slökkvistarfið snúið. – skó Telja börn hafa kveikt eldinn Útivist „Þetta sækir enn nokkuð á mig, þessi ferð, og ég hef fengið sím- töl frá mönnum sem týndust í þoku á fjöllum fyrir um þremur áratugum síðan og þetta er enn þá að plaga þá,“ segir Valdimar Gunnar Jónsson, sem lagði upp frá Slitvindastöðum á Snæfellsnesi þann 5. nóvember í fyrra og tapaði áttum í þoku. „Leit að tveimur rjúpnaskyttum á Snæfellsnesi sem staðið hefur yfir í hálfan sólarhring hefur enn engan árangur borið.“ Þannig hófst frétt á Vísi að morgni 6. nóvember 2016. Höfðu þá Valdimar og systursonur hans, Daði Rúnar Jónsson, verið týndir í svartaþoku. Fjölskylda og vinir biðu heima eftir frekari fregn- um í óvissu og ótta. Víðtæk leit var gerð að þeim félögum og komu á annað hundrað manns að henni. Þoka skall á og hírðust þeir í litlu klettabyrgi um nóttina. Snemma morguns brast svo á með hvassviðri svo leitarskil- yrði voru erfið. „Við þekkjum þetta svæði vel og höfum margoft gengið þetta svæði. En svæðið gerbreytist í fimm metra skyggni og við vorum rammvilltir,“ segir Valdimar. Þegar Valdimar hugsar til baka hefði verið hægt að koma í veg fyrir það að týnast á fjalli þessa helgi. Nú sé hann búinn GPS-staðsetningar- tæki, aukarafhlöðu fyrir tækið auk þess að vera með hleðslugeymi fyrir símann þannig að hann verði aldrei straumlaus. „Við viljum öll læra af mistök- unum og við urðum fyrir því að týnast á landi sem við töldum okkur þekkja nokkuð vel. Við fórum því aftur á fjallið í ágúst og þá náðum við að setja saman púslin. Þetta er eitthvað sem mun aldrei gerast aftur og ég er mun betur búinn en áður. Einnig hafa vinir mínir sett sig í samband við mig því þeir vilja koma með mér á rjúpu. Þeir telja sig örugga um að sömu mistök verði ekki gerð aftur.“sveinn@frettabladid.is Leitin enn að angra rjúpnaskyttu ári síðar Hinn 5. nóvember lögðu tveir menn upp til rjúpnaveiða frá Slitvindastöðum á Snæfellsnesi. Þeir urðu rammvilltir í svartaþoku. Lífsreynslan og sjálfsásökunin hefur ekki horfið. Nú er Valdimar með GPS-staðsetningartæki og aukarafhlöðu. Skyggni til leitar var lítið sem ekkert en á annað hundrað manns kom beint eða óbeint að leitinni að Valdimar og Daða í fyrravetur. MynDir/lanDSbjörg Valdimar gunnar jónsson. DómsmáL Árið 2016 bárust Hæsta- rétti Noregs 829 beiðnir um áfrýj- unarleyfi og voru 102 áfrýjunarleyfi veitt, eða sem nemur tæpum 12 pró- sentum. Hefur þetta hlutfall verið svipað frá árinu 2013. Á árinu 2016 var 869 málum skotið til Hæstarétt- ar Íslands með áfrýjun eða kæru og var fjöldi afgreiddra mála á því ári 762 talsins, sem er svipaður fjöldi og árin 2013-2015. Sendinefnd frá Hæstarétti Íslands heimsótti Hæstarétt Noregs í síð- ustu viku til að kynna sér verklag norska réttarins við veitingu áfrýj- unarleyfa. Ferðin var liður í undir- búningi Hæstaréttar Íslands við að móta nýtt verklag við veitingu áfrýj- unarleyfa þegar Landsréttur tekur til starfa. Þá mun málum sem fara fyrir Hæstarétt Íslands fækka. – jhh Kynntu sér verklag Norðmanna BretLanD Sir Michael Fallon, varn- armálaráðherra Breta og æðsti yfir- maður hersins, hefur beðist lausnar. Talsmaður hans staðfesti í gær að blaðakona hefði kvartað undan honum fyrir að hafa lagt hönd á hnéð á henni í kvöldverði árið 2002. Í bréfi sem sir Michael sendi vegna afsagnar sinnar segir hann að þingmenn hafa sætt margvís- legum ásökunum. Þar á meðal hann. „Margar af þessum ásökunum hafa verið rangar. En ég viðurkenni að ég hef gerst sekur um athæfi sem mætir ekki þeim kröfum sem við gerum til hersins.“  – jhh Ráðherra hættir vegna áreitni Sir Michael Fallon, varnarmálaráð- herra breta 2 . n ó v e m B e r 2 0 1 7 F i m m t u D a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð 0 2 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :4 3 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 2 1 -F 9 D 0 1 E 2 1 -F 8 9 4 1 E 2 1 -F 7 5 8 1 E 2 1 -F 6 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.