Fréttablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 34
Í dag klæðist ég bara því sem mér finnst nett hverju sinni, alveg sama hvað öðrum finnst. Starri Freyr Jónsson starri@365.is Handboltamaðurinn efnilegi Arnar Freyr Ársælsson lék sína fyrstu A-landsliðsleiki í sumar auk þess sem hann leikur með taplausu liði FH sem trónir á toppi Olís-deildar karla. Hand- boltinn skipar eðlilega stóran sess í lífi Arnars en auk hans starfar hann sem markaðsstjóri hjá Core heildverslun og sér þar m.a. um þekkt vörumerki á borð við Nocco, Barebells og froosh. „Þetta er svona það tvennt sem lífið snýst um. Svo á ég mér að sjálfsögðu minni áhugamál eins og tísku og föt, tón- list, ferðalög og almennt „tjill“ með vinum. Ég reyni að ferðast eins og ég get en flest ferðalög mín tengjast vinnu eða handboltanum. Þá er bara að nýta þær ferðir, upplifa og skoða eitthvað nýtt í leiðinni.“ Arnar og félagar hans í FH ætla sér stóra hluti á tímabilinu en það eru líka krefjandi og skemmtilegir tímar fram undan í starfi hans. „Það er krefjandi að vinna með stór vörumerki og því virkilega skemmtilegir tímar fram undan sem ég hlakka til. Annars skiptir bara mestu máli að vera ekkert að pæla of mikið í framtíðinni, ég reyni frekar að lifa lífinu einn dag í einu og njóta meðan vel gengur.“ Hvernig lýsir þú fatastíl þínum? Stíllinn breytist og þróast Foreldrar handboltamannsins Arnars Freys höfðu mikil áhrif á fatastíl hans þegar hann var yngri. Hann fylgist mikið með tískunni á netinu og lýsir fatastíl sínum sem hefðbundnum götustíl. Arnar Freyr klæðist hér Su preme Nasty Nas bol, H&M Beckham buxum og Vans skóm. MYNDIR/ERNIR Hér klæðist Arnar Supreme úlpu, North Face bol, buxum frá Acne og Yeezy skóm. Sem „basic“ götustíl. Brakandi strigaskór sem skera sig úr, nettar buxur og svo skiptir efri hlutinn meira máli. Akkúrat núna er ég mikið að vinna með hettupeysur og jakka yfir. Þetta er svona hvers- dagslegur fatnaður hjá mér. Hvernig þróaðist tískuáhugi þinn? Ég á frekar unga foreldra sem hafa alltaf verið meðvitaðir um tískuna. Þegar ég var yngri keyptu þau oft föt sem ég þorði ekki að klæðast því ég var smeykur um að skera mig úr. En það hefur breyst og í dag klæðist ég bara því sem mér finnst nett hverju sinni, alveg sama hvað öðrum finnst. Síðustu ár hefur áhugi minn á tísku aukist og með því breytist og þróast stíllinn. Hvernig fylgist þú með tískunni? Ég fylgist mikið með tískunni á netinu, t.d. gegnum blogg eða sam- félagsmiðla. Mestu áhrifin koma frá ákveðnum hipphopp götustíl. Ég nálgast þessa stíla annaðhvort á síðum eins og hypebeast, highsno- biety og svo mikið á Instagram en þar fylgist maður með áhrifavöld- um úr þessum heimi og ýmsum fatamerkjum. Hvar kaupir þú helst föt? Ég kaupi föt nær eingöngu erlendis eða á netinu. Það kemur mjög sjaldan fyrir að ég kaupi mér föt hér heima, þá helst hjá 66°Norður. Á netinu er ég mikið að braska í endursöluheiminum þar sem ég kaupi sjaldgæf föt og skó sem fást ekki lengur í búðum. Áttu þér uppáhaldsverslanir? Heima er það líklega 66°Norður en erlendis eru það margar. Ef ég vil kaupa hversdagsföt kíki ég í t.d. Weekday en ef ég vil meiri klassa er það Dover Street Market. Áttu uppáhaldsflík(ur)? Nasty Nas bolurinn minn og Stone Island/Supreme hettupeysan. Áttu þér tískufyrirmynd? Ég fylgist með nokkrum mismunandi en í dag er ég mikill Vivian Frank maður. Bestu og verstu fatakaupin? Bestu kaupin mín er líklega Suptempo skórnir mínir sem ég endurseldi svo á fjórföldu verði. Verstu kaupin eru á Asos, veit ekki hversu oft ég hef keypt eitthvað þar sem passar ekki eða ég nota aldrei. KRINGLUNNI | 588 2300 20% afsláttur af kjólum Gildir 2.-5. nóvember Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Stærðir 38-58 Nýjar vörur streyma inn 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . N ÓV E M B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 0 2 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :4 3 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 2 2 -0 3 B 0 1 E 2 2 -0 2 7 4 1 E 2 2 -0 1 3 8 1 E 2 1 -F F F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 6 4 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.