Fréttablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 56
Útbreiðsla rafsígaretta hefur aukist verulega hér-lendis síðustu misseri og sérstaklega meðal unglinga. Einn af hverjum tuttugu fullorðnum hefur prófað rafsígarettur en það er enn meira sláandi að annar hver framhaldsskólanemi hefur prófað að veipa. Fyrir utan nikótín hafa mörg önnur skaðleg efni fundist í raf- sígarettum, en þær gefa ekki eingöngu frá sér vatnsgufu eins og oft er haldið fram. Megin- uppistaða vökvans í rafsígarett- um er própýlen glýkól og/eða glýseról. Þegar fólk veipar hitnar rafsígarettuvökvinn og við það myndast formaldehýð sem er krabbameinsvaldandi efni, en það er þekktur áhættuþáttur hvít- blæðis og krabbameins í nefkoki og eitlum. Sýnt hefur verið fram á að því hærri hita sem tækið er stillt á, því meira magn myndast af þessu skaðlega efni. Í veipvökva hafa fundist fleiri skaðleg efni, t.d. akrólein sem getur skaðað lungnavef. Nikótín er það efni sem flestir sækjast eftir með því að veipa en nikótín hækkar blóð- þrýsting, eykur hjartslátt og hefur örvandi áhrif. Taugakerfi barna er sérstaklega viðkvæmt fyrir nikó- tíni því það hefur ekki náð fullum þroska. Börn eru þess vegna í aukinni hættu á að ánetjast rafsígarettum, jafnvel þótt þær eigi ekki, sam- kvæmt innihaldslýsingu, að inni- halda nikótín. Því miður er ekkert eftirlit með hvaða veipefni eru í umferð á Íslandi. Þeir sem nota rafsígarettur geta því ekki verið vissir um hvaða efni þeir eru að anda að sér eða í hvaða magni. Sumir telja að rafsígarettureyk- ur sé skaðlaus fyrir þá sem anda honum að sér óbeint en í reykn- um hafa fundist eiturmálmar, t.d. tin, kadmíum, blý og kvikasilfur, og jafnvel í hærri skömmtum en í sígarettum. Það er því bæði varasamt að veipa og að vera innan um raf- sígarettureyk. Niðurstaða: Skaðleg efni finnast í rafsígarettuvökva og þeir sem hafa aldrei reykt sígarettur ættu ekki að byrja að nota rafsígarettur. Lesendum er bent á að senda sérfræðingum okkar spurningar tengdar heilsu og lífsstíl á heilsanokkar@frettabladid.is. Er varasamt að veipa? Heilsan okkar Lára Sigurðar- dóttir, læknir og doktor í lýð- heilsuvísind- um, svarar spurningum lesenda. Fyrir utan nikótín HaFa mörg önnur SkaðLEg EFni FundiSt í raFSígarEttum, En þær gEFa Ekki Eingöngu Frá Sér vatnSguFu EinS og oFt Er HaLdið Fram. þingmenn þá og nú FroSti SigurjónSSon Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður 2013–2016 Framsóknarflokkur F. 19. desember 1962 Kom inn í stjórnmálin eins og stormsveipur og heillaði marga með hugmyndum sínum. Nafn hans hefur dúkkað upp að undanförnu í stjórnarmyndunum og benti Jón Baldvin Hannibalsson á að hann gæti vel verið utanþingsráðherra bankamála en hann situr í Bankaráði Seðla- banka Íslands auk þess að sinna stjórnarmennsku hjá Dohop.com sem hann stofnaði. Þótt flestir séu búnir að fá nóg af pólitík og innihaldslausu þvaðri eru nokkrir sem hafa skilið eftir sig eftirminnileg spor. Á síðustu fjórum árum hafa margir fengið sér sæti sem alþingismenn og lítið gert, en öðrum tókst að gera sig gilda um aldur og ævi. öSSur SkarpHéðinSSon Alþingismaður Reykjavíkurkjör- dæmis norður 1991-2016 alþýðuflokkur, samfylkingin F. 19. júní 1953 Einn af uppá- halds þing- mönnum landans enda auð- þekktur á skegg- inu og slaufunni. Mælskur með eindæmum en var settur í bak- sætið eftir hrunið. Nýtur lífsins í rauða botn enda birtust fréttir fyrir skömmu um að hann væri búinn að skafa af sér fjölmörg kíló og hefði sjaldan litið jafn vel út. vigdíS HaukSdóttir Alþingismaður Reykjavíkurkjör- dæmis suður 2009–2016 Framsóknarflokkur F. 20. mars 1965. Þegar Vigdís talaði þá hlustaði fólk og yfirleitt brást við. Einn allra eftir- minnilegasti þingmaður síðari tíma. Sagði það sem henni lá á hjarta og hafði bein í nefinu. Hlustaði lítið á nettröllin. Hún var fyrsti fagdeildarstjóri og kennari við blómaskreytingabraut Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykjum í Ölfusi 1988–1991 og eigandi Jóns Indíafara. Sló í gegn sem veislustjóri Miðflokksins á kosninganótt. róbErt marSHaLL Alþingismaður Suðurkjördæmis 2009–2013 samfylkingin, utan flokka Alþingismaður Reykjavíkurkjör- dæmis suður 2013–2016 Björt framtíð. F. 31. maí 1971. Fréttamaðurinn sem gerðist pólitík- us. Fann sig illa í Samfylkingunni og sat utan flokka um skamma stund áður en hann gekk í raðir Bjartrar framtíðar þar sem hann sat í þrjú ár á þingi en hætti í upphafi árs þar líka. Barðist aðallega fyrir styttri vinnuviku og þeirri frábæru hugmynd að færa frídaga að helgum. Er nú ritstjóri Vertu úti, tímarits um um útivist, hreyfingu og áskor- anir í íslenskri náttúru. guðmundur StEingrímSSon Alþingismaður Norðvesturkjör- dæmis 2009–2013 Framsóknarflokkur, utan flokka Alþingismaður Suðvesturkjör- dæmis 2013–2016 Björt framtíð. F. 28. október 1972. Pistlahöfundurinn sem fetaði í fótspor föður síns, Steingríms Hermannssonar, en fann sig ekki í grænum lit Framsóknarmanna og gerði Bjarta framtíð að sinni. Situr nú við hlið félaga síns, Róberts Marshall, og ritstýrir tímaritinu Vertu úti, auk þess sem Bak- þankar hans eru farnir að sjást á ný – sem er fagnað- arefni. ELín HirSt Alþingismaður Suðvesturkjör- dæmis 2013–2016 sjálfstæðisflokkur Fréttakonan sem bundnar voru miklar vonir við enda hafði hún verið lengi á skjáum lands- manna og þurft að taka margar stórar og erfiðar ákvarðanir á sínum langa fjölmiðlaferli. Lagði til eina tillögu, Aðgerða- áætlun gegn súrnun sjávar á norðurslóðum, og fór 72 sinnum upp í hið háa ræðupúlt Alþingis. aðrir EFtirminniLEgir þingmEnn SEm HaFa HorFið á SíðuStu árum unnur Brá Konráðsdóttir l Alþingismaður Suðurkjördæmis 2009–2017 sjálfstæðisflokkur Kristján L. Möller l Alþingismaður Norðurlands vestra 1999–2003, l Alþingismaður Norðausturkjör- dæmis 2003–2016 samfylkingin Einar K. Guðfinnsson l Alþingismaður Vestfjarða 1991–2003. l Alþingismaður Norðvesturkjör- dæmis 2003–2016 sjálfstæðisflokkur Ásta Guðrún Helgadóttir l Alþingismaður Reykjavíkurkjör- dæmis suður 2015–2017. Píratar Birgitta Jónsdóttir l Alþingismaður Reykjavíkurkjör- dæmis suður 2009–2013. Borgarahreyfingin, Hreyfingin l alþingismaður Suðvesturkjör- dæmis 2013–2016, l alþingismaður Reykjavíkurkjör- dæmis norður 2016–2017 Píratar Benedikt Jóhannesson l Alþingismaður Norðausturkjör- dæmis 2016–2017 Viðreisn 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r48 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð Lífið 0 2 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :4 3 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 2 2 -3 5 1 0 1 E 2 2 -3 3 D 4 1 E 2 2 -3 2 9 8 1 E 2 2 -3 1 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.