Fréttablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 46
#farasparabara Það er mikilvægt að eiga fyrir góðum hlutum í lífinu og þeim óvæntu. Skráðu þig í reglubundinn sparnað strax í dag. íslandsbanki.is/farasparabara Gotterí eða gott frí? Það er stundum haft á orði að fólk sem er borið og barnfætt á eyju sé eilítið öðruvísi en þeir sem eiga rætur sínar á meginlandi. Að það að lifa og deyja umkringdur hafinu móti manneskjuna á ein- hvern óræðan hátt. Franski mynd- listarmaðurinn Ange Leccia er fæddur árið 1952 á Korsíku, en sérstaða eyjunnar hefur alla tíð heillað hann sem skapandi mynd- hverfing á mörkum tíma og rúms. Í dag verður opnuð í Listasafni Íslands sýning á hans þekktasta verki, La Mer (Hafið), en verkið er í stöðugri mótun og umbreytingu enda aðlagar hann það að sýn- ingarrýminu hverju sinni. Leccia vinnur með vídeólistina og í verk- inu gefur að líta hafið við æsku- slóðir hans á Korsíku sem hann myndar aftur og aftur, sífellt með nýjum tækjum. Tíminn birtist sem röð kyrrstæðra ramma eða í runu augnablika sem þjóta hjá, síflæð- andi eins og aldan sem brotnar Alltaf þegar ég loka augunum þá sé ég Korsíku Ange Leccia á Listasafni Íslands þar sem sýningin hans verður opnuð í dag í nýrri mynd eins og hún gerir í hvert eitt sinn. FréttAbLAðið/Eyþór á ströndinni, líkt og endurtekið söngl án upphafs, miðju og endis. Æsa Sigurjónsdóttir er sýningar- stjóri á sýningu Leccia í Listasafni Íslands og hún segir að hann sé ótvíræður frumkvöðull í vídeó- listinni. „Leccia er einn af þessum þekktu vídeólistamönnum í Frakk- landi og hefur einnig kennt fjöl- mörgum af þeim sem hafa komið í kjölfarið, listamönnum á borð við Dominique Gonzalez-Foerster og Philippe Parreno. Þannig að það má vel segja að hann sé brautryðjandi í þessari tækni og nálgun. Hann var í hópi þeirra fyrstu í Frakklandi sem tóku til við að byggja brú á milli kvikmyndaformsins, þá einkum nýbylgjunnar, og vídeótækninnar. Brú á milli kvikmyndatjaldsins og safnarýmisins á sjöunda og áttunda áratugnum. Hann vinnur mikið úr þeim menningararfi og varð tví- mælalaust fyrir miklum áhrifum frá Jean-Luc Godard og fleiri kvik- myndagerðarmönnum af þeirri kynslóð en var á sama tíma einn fyrsti listamaðurinn til þess að flytja þessa list inn í safnarýmið. Verk hans eru ekki bara eitthvað sem var varpað á vegg heldur eru í raun heildstæð innsetning inni í sýningarrýminu. Rannsókn á fagur- fræði miðlanna er eitt af viðfangs- efnum hans enda mótar sú fagur- fræði sjónheim okkar samtíma.“ Ange Leccia er staddur hér á landi í tilefni af opnun sýningarinnar og næsta sunnudag kl. 14 ætlar Æsa að spjalla við listamanninn á safninu. Leccia segir sjálfur að hann hafi ungur að árum verið í tilraunaskóla fyrir listir á Korsíku en að þaðan hafi leiðin legið til Parísar. „Ég fór í Sorbonne og þar var ég að læra til- raunakennda kvikmyndalist en á sama tíma var upphafið að vídeó- listinni að gerjast. Þetta var svona frá 1972 til 1977 og þessum tíma var nýbylgjan að ryðja sér til rúms í Frakklandi og listamenn þessa tíma höfðu mikil áhrif á mig. Þetta var svona ákveðin uppljómun.“ Leccia segir að á sama tíma og hann hafi verið að heillast af þess- ari list í París þá hafi hann upplifað sig sem aðeins öðruvísi komandi frá Korsíku. „Ég held að þetta sé eins með ykkur Íslendinga og okkur á Korsíku – hafið umlykur okkur og við þurfum að horfa á heiminn frá ströndinni. Fyrir mér þá eru þessi tengsl við hafið ákaflega mikilvæg og því hefur það orðið mér að yrkis- efni í öll þessi ár.“ Leccia segir að verkið sem hann hafi með sér til Íslands, La Mer, sé skotið á strönd sem hann þekki vel. „Ég byrjaði á þessu verki eftir nokkuð langa dvöl í Japan, þar sem ég kynntist náttúrunni og ákveð- inni nálgun við að skoða hana á heimspekilegan máta. Þegar ég kom svo heim til Korsíku þá horfði ég á landið mitt, landslagið og hafið með öðrum hætti en áður og byrjaði þá að vinna að þessu verki. Þannig að þetta verk hefði í raun aldrei orðið til ef ekki hefði verið fyrir Japansferðina og það sem ég kynntist þar. Ég held að sú upplifun að koma til landa og í menningu sem stendur okkur fjær fái okkur til þess að horfa á heimili okkar og æskustöðvar með nýjum hætti. Hér á Íslandi er gríðarlega afger- andi og mögnuð náttúra og fyrir mér er þetta eins og að horfa á einhvers konar upphaf lífsins. Ég vona að Íslendingar sjái hvað þetta er einstakt og að þeim lánist að vernda þessa náttúru, byggi ekki of marga vegi, of stór hús o.s.frv. vegna þess að þessi náttúra er einstök. Sjálfur bý ég í París, er stundum í New York eða einhvers staðar í stórborgum víða um heim en það breytir því ekki að þegar ég loka augunum þá sé ég eyjuna mína. Þá sé ég Korsíku. Þannig að alltaf þegar ég þarf að taka stóra ákvörð- un í mínu lífi þá fer ég til Korsíku vegna þess að þar er og verður alltaf heimili mitt. Korsíka er alltaf heim.“ Stilla úr vídeóverkinu La Mer eftir Ange Leccia. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Ég vona að Íslend- ingar sjái hvað þetta er einstakt og að þeim lánist að vernda þessa náttúru, byggi ekki of marga vegi, of stór hús o.s.frv. vegna þess að þessi náttúra er einstök. Í dag verður opnuð í listasafni Íslands sýningin la mer eða hafið, þekkt- asta sýning franska myndlistarmanns- ins ange leccia sem er borinn og barn- fæddur á korsíku sem hann segir að sé og verði alltaf heim í hans huga. 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r38 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð menning 0 2 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :4 3 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 2 2 -1 2 8 0 1 E 2 2 -1 1 4 4 1 E 2 2 -1 0 0 8 1 E 2 2 -0 E C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.