Fréttablaðið - 02.11.2017, Síða 46
#farasparabara
Það er mikilvægt að eiga fyrir góðum
hlutum í lífinu og þeim óvæntu. Skráðu
þig í reglubundinn sparnað strax í dag.
íslandsbanki.is/farasparabara
Gotterí
eða
gott frí?
Það er stundum haft á orði að fólk sem er borið og barnfætt á eyju sé eilítið öðruvísi en þeir sem eiga rætur sínar á meginlandi.
Að það að lifa og deyja umkringdur
hafinu móti manneskjuna á ein-
hvern óræðan hátt. Franski mynd-
listarmaðurinn Ange Leccia er
fæddur árið 1952 á Korsíku, en
sérstaða eyjunnar hefur alla tíð
heillað hann sem skapandi mynd-
hverfing á mörkum tíma og rúms.
Í dag verður opnuð í Listasafni
Íslands sýning á hans þekktasta
verki, La Mer (Hafið), en verkið er
í stöðugri mótun og umbreytingu
enda aðlagar hann það að sýn-
ingarrýminu hverju sinni. Leccia
vinnur með vídeólistina og í verk-
inu gefur að líta hafið við æsku-
slóðir hans á Korsíku sem hann
myndar aftur og aftur, sífellt með
nýjum tækjum. Tíminn birtist sem
röð kyrrstæðra ramma eða í runu
augnablika sem þjóta hjá, síflæð-
andi eins og aldan sem brotnar
Alltaf þegar ég loka augunum þá sé ég Korsíku
Ange Leccia á Listasafni Íslands þar sem sýningin hans verður opnuð í dag í nýrri mynd eins og hún gerir í hvert eitt sinn. FréttAbLAðið/Eyþór
á ströndinni, líkt og endurtekið
söngl án upphafs, miðju og endis.
Æsa Sigurjónsdóttir er sýningar-
stjóri á sýningu Leccia í Listasafni
Íslands og hún segir að hann sé
ótvíræður frumkvöðull í vídeó-
listinni. „Leccia er einn af þessum
þekktu vídeólistamönnum í Frakk-
landi og hefur einnig kennt fjöl-
mörgum af þeim sem hafa komið í
kjölfarið, listamönnum á borð við
Dominique Gonzalez-Foerster og
Philippe Parreno. Þannig að það má
vel segja að hann sé brautryðjandi í
þessari tækni og nálgun. Hann var í
hópi þeirra fyrstu í Frakklandi sem
tóku til við að byggja brú á milli
kvikmyndaformsins, þá einkum
nýbylgjunnar, og vídeótækninnar.
Brú á milli kvikmyndatjaldsins og
safnarýmisins á sjöunda og áttunda
áratugnum. Hann vinnur mikið úr
þeim menningararfi og varð tví-
mælalaust fyrir miklum áhrifum
frá Jean-Luc Godard og fleiri kvik-
myndagerðarmönnum af þeirri
kynslóð en var á sama tíma einn
fyrsti listamaðurinn til þess að
flytja þessa list inn í safnarýmið.
Verk hans eru ekki bara eitthvað
sem var varpað á vegg heldur eru
í raun heildstæð innsetning inni í
sýningarrýminu. Rannsókn á fagur-
fræði miðlanna er eitt af viðfangs-
efnum hans enda mótar sú fagur-
fræði sjónheim okkar samtíma.“
Ange Leccia er staddur hér á landi
í tilefni af opnun sýningarinnar og
næsta sunnudag kl. 14 ætlar Æsa að
spjalla við listamanninn á safninu.
Leccia segir sjálfur að hann hafi
ungur að árum verið í tilraunaskóla
fyrir listir á Korsíku en að þaðan
hafi leiðin legið til Parísar. „Ég fór í
Sorbonne og þar var ég að læra til-
raunakennda kvikmyndalist en á
sama tíma var upphafið að vídeó-
listinni að gerjast. Þetta var svona
frá 1972 til 1977 og þessum tíma
var nýbylgjan að ryðja sér til rúms í
Frakklandi og listamenn þessa tíma
höfðu mikil áhrif á mig. Þetta var
svona ákveðin uppljómun.“
Leccia segir að á sama tíma og
hann hafi verið að heillast af þess-
ari list í París þá hafi hann upplifað
sig sem aðeins öðruvísi komandi frá
Korsíku. „Ég held að þetta sé eins
með ykkur Íslendinga og okkur á
Korsíku – hafið umlykur okkur og
við þurfum að horfa á heiminn frá
ströndinni. Fyrir mér þá eru þessi
tengsl við hafið ákaflega mikilvæg
og því hefur það orðið mér að yrkis-
efni í öll þessi ár.“
Leccia segir að verkið sem hann
hafi með sér til Íslands, La Mer, sé
skotið á strönd sem hann þekki
vel. „Ég byrjaði á þessu verki eftir
nokkuð langa dvöl í Japan, þar sem
ég kynntist náttúrunni og ákveð-
inni nálgun við að skoða hana á
heimspekilegan máta. Þegar ég
kom svo heim til Korsíku þá horfði
ég á landið mitt, landslagið og
hafið með öðrum hætti en áður og
byrjaði þá að vinna að þessu verki.
Þannig að þetta verk hefði í raun
aldrei orðið til ef ekki hefði verið
fyrir Japansferðina og það sem ég
kynntist þar. Ég held að sú upplifun
að koma til landa og í menningu
sem stendur okkur fjær fái okkur
til þess að horfa á heimili okkar og
æskustöðvar með nýjum hætti.
Hér á Íslandi er gríðarlega afger-
andi og mögnuð náttúra og fyrir
mér er þetta eins og að horfa á
einhvers konar upphaf lífsins. Ég
vona að Íslendingar sjái hvað þetta
er einstakt og að þeim lánist að
vernda þessa náttúru, byggi ekki of
marga vegi, of stór hús o.s.frv. vegna
þess að þessi náttúra er einstök.
Sjálfur bý ég í París, er stundum
í New York eða einhvers staðar í
stórborgum víða um heim en það
breytir því ekki að þegar ég loka
augunum þá sé ég eyjuna mína.
Þá sé ég Korsíku. Þannig að alltaf
þegar ég þarf að taka stóra ákvörð-
un í mínu lífi þá fer ég til Korsíku
vegna þess að þar er og verður
alltaf heimili mitt. Korsíka er alltaf
heim.“
Stilla úr vídeóverkinu La Mer eftir Ange Leccia.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Ég vona að Íslend-
ingar sjái hvað
þetta er einstakt og að
þeim lánist að vernda þessa
náttúru, byggi ekki of
marga vegi, of stór hús
o.s.frv. vegna þess að þessi
náttúra er einstök.
Í dag verður opnuð
í listasafni Íslands
sýningin la mer
eða hafið, þekkt-
asta sýning franska
myndlistarmanns-
ins ange leccia sem
er borinn og barn-
fæddur á korsíku
sem hann segir að
sé og verði alltaf
heim í hans huga.
2 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r38 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð
menning
0
2
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:4
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
2
2
-1
2
8
0
1
E
2
2
-1
1
4
4
1
E
2
2
-1
0
0
8
1
E
2
2
-0
E
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
1
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K