Fréttablaðið - 02.11.2017, Síða 34
Í dag klæðist ég
bara því sem mér
finnst nett hverju sinni,
alveg sama hvað öðrum
finnst.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Handboltamaðurinn efnilegi Arnar Freyr Ársælsson lék sína fyrstu A-landsliðsleiki
í sumar auk þess sem hann leikur
með taplausu liði FH sem trónir
á toppi Olís-deildar karla. Hand-
boltinn skipar eðlilega stóran sess
í lífi Arnars en auk hans starfar
hann sem markaðsstjóri hjá Core
heildverslun og sér þar m.a. um
þekkt vörumerki á borð við Nocco,
Barebells og froosh. „Þetta er svona
það tvennt sem lífið snýst um.
Svo á ég mér að sjálfsögðu minni
áhugamál eins og tísku og föt, tón-
list, ferðalög og almennt „tjill“ með
vinum. Ég reyni að ferðast eins og
ég get en flest ferðalög mín tengjast
vinnu eða handboltanum. Þá er
bara að nýta þær ferðir, upplifa og
skoða eitthvað nýtt í leiðinni.“
Arnar og félagar hans í FH ætla
sér stóra hluti á tímabilinu en það
eru líka krefjandi og skemmtilegir
tímar fram undan í starfi hans.
„Það er krefjandi að vinna með
stór vörumerki og því virkilega
skemmtilegir tímar fram undan
sem ég hlakka til. Annars skiptir
bara mestu máli að vera ekkert
að pæla of mikið í framtíðinni, ég
reyni frekar að lifa lífinu einn dag í
einu og njóta meðan vel gengur.“
Hvernig lýsir þú fatastíl þínum?
Stíllinn breytist og þróast
Foreldrar handboltamannsins Arnars Freys höfðu mikil áhrif á fatastíl hans þegar hann var yngri.
Hann fylgist mikið með tískunni á netinu og lýsir fatastíl sínum sem hefðbundnum götustíl.
Arnar Freyr
klæðist hér
Su preme Nasty
Nas bol, H&M
Beckham
buxum og Vans
skóm.
MYNDIR/ERNIR
Hér klæðist Arnar Supreme úlpu, North Face bol, buxum frá Acne og Yeezy skóm.
Sem „basic“ götustíl. Brakandi
strigaskór sem skera sig úr, nettar
buxur og svo skiptir efri hlutinn
meira máli. Akkúrat núna er ég
mikið að vinna með hettupeysur
og jakka yfir. Þetta er svona hvers-
dagslegur fatnaður hjá mér.
Hvernig þróaðist tískuáhugi
þinn? Ég á frekar unga foreldra sem
hafa alltaf verið meðvitaðir um
tískuna. Þegar ég var yngri keyptu
þau oft föt sem ég þorði ekki að
klæðast því ég var smeykur um að
skera mig úr. En það hefur breyst
og í dag klæðist ég bara því sem
mér finnst nett hverju sinni, alveg
sama hvað öðrum finnst. Síðustu ár
hefur áhugi minn á tísku aukist og
með því breytist og þróast stíllinn.
Hvernig fylgist þú með tískunni?
Ég fylgist mikið með tískunni á
netinu, t.d. gegnum blogg eða sam-
félagsmiðla. Mestu áhrifin koma
frá ákveðnum hipphopp götustíl.
Ég nálgast þessa stíla annaðhvort á
síðum eins og hypebeast, highsno-
biety og svo mikið á Instagram en
þar fylgist maður með áhrifavöld-
um úr þessum heimi og ýmsum
fatamerkjum.
Hvar kaupir þú helst föt? Ég
kaupi föt nær eingöngu erlendis
eða á netinu. Það kemur mjög
sjaldan fyrir að ég kaupi mér föt
hér heima, þá helst hjá 66°Norður.
Á netinu er ég mikið að braska í
endursöluheiminum þar sem ég
kaupi sjaldgæf föt og skó sem fást
ekki lengur í búðum.
Áttu þér uppáhaldsverslanir?
Heima er það líklega 66°Norður
en erlendis eru það margar. Ef ég
vil kaupa hversdagsföt kíki ég í t.d.
Weekday en ef ég vil meiri klassa er
það Dover Street Market.
Áttu uppáhaldsflík(ur)? Nasty
Nas bolurinn minn og Stone
Island/Supreme hettupeysan.
Áttu þér tískufyrirmynd? Ég
fylgist með nokkrum mismunandi
en í dag er ég mikill Vivian Frank
maður.
Bestu og verstu fatakaupin? Bestu
kaupin mín er líklega Suptempo
skórnir mínir sem ég endurseldi
svo á fjórföldu verði. Verstu kaupin
eru á Asos, veit ekki hversu oft ég
hef keypt eitthvað þar sem passar
ekki eða ég nota aldrei.
KRINGLUNNI | 588 2300
20%
afsláttur
af kjólum
Gildir 2.-5. nóvember
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
Nýjar vörur streyma inn
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . N ÓV E M B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
0
2
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:4
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
2
2
-0
3
B
0
1
E
2
2
-0
2
7
4
1
E
2
2
-0
1
3
8
1
E
2
1
-F
F
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
1
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K