Fréttablaðið - 02.11.2017, Síða 6

Fréttablaðið - 02.11.2017, Síða 6
ÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ D Framlagning kjörskráa Kjörskrár vegna kosningar um sameiningu sveitarfélaganna Garðs og Sandgerðis sem haldnar verða laugardaginn 11. nóvember 2017 skulu lagðar fram eigi síðar en 1. nóvember 2017. Kjörskrár skal leggja fram á skrifstofu sveitarstjórna eða á öðrum hentugum stað sem sveitarstjórn ákveður. Þeim sem vilja koma að athuga­ semdum er bent á að senda þær hlutaðeigandi sveitarstjórn. Dómsmálaráðuneytinu 1. nóvember 2017 Rafvirkjar LED tunnuljós Endursöluaðilar um land allt Snjöll lýsing! OSRAM LIGHTIFY: Aðlagaðu ljósið að þínum þörfum með Appi Jóhann Ólafsson & Co. Krókháls 3, 110 Reykjavík 533 1900 olafsson.is #farasparabara Það er mikilvægt að eiga fyrir góðum hlutum í lífinu og þeim óvæntu. Skráðu þig í reglubundinn sparnað strax í dag. íslandsbanki.is/farasparabara Djús eða hús? fólk „Það er ekkert á leiðinu hennar og hefur aldrei verið, ekki trékross einu sinni,“ segir Jóna Sigríður Jóns- dóttir, sem er í forsvari fyrir hópi sex kvenna úr Mýrdal sem eru að safna fyrir legsteini á leiði förukonunnar Vigdísar Ingvadóttur. Vigga gamla eins og Vigdís var köll- uð fæddist 1864 í Norður-Hvammi í Mýrdal. Hún var lögð í einelti á sínu eigin heimili og lagðist í flakk aðeins tíu ára gömul og var förukona þar til hún lést 92 ára gömul árið 1957. „Vigga ólst upp í systkinahópi í Norður-Hvammi í Mýrdal og þar var hún höfð útundan og án þess að ég hafi ábyrgar heimildir fyrir því hef ég heyrt að pabbi hennar hafi ekki verið henni góður,“ segir Jóna um ástæður þess að Vigdís lagðist kornung í flakk. „Hún virtist hafa mikla ánægju af því og fékk að halda því áfram alla ævina.“ Vigdís flakkaði mest milli bæja í Mýrdal en lagði leið sína líka í austur- hluta Rangárvallarsýslu. Þótt hún hafi verið nokkuð föst við bæinn Hvol síðustu áratugi ævi sinnar hélt hún áfram flakki fram á níræðisaldur. „Vigga heimsótti nánast hvern einasta bæ og var alltaf velkomin alls staðar,“ segir Jóna sem kveður Viggu gömlu alls ekki hafa lagt fyrir sig að bera sögur milli bæja. „Það eina sem hún bað um og gladdi hana mjög var ef það var rétt að henni einhver tuska eða tölur, ullarlagður eða bandhnykill sem hún notaði til að skreyta fötin sín. Hún var nefnilega mjög sérstæð í útliti vegna þess að hún klæddi sig í svo litsterk föt og hún sást langar leiðir af því að hún glitraði hreinlega,“ lýsir Jóna sem í æsku náði að kynnast Viggu eins og hinar konurnar í hópnum sem ætt- aðar eru úr  Dyrhólahverfi og vilja nú að gömlu förukonunnar sé minnst á sómasamlegan hátt. „Þá var skólinn í Litla-Hvammi og hún kom oft í skólann og fékk að líta yfir hópinn. Sjálf var hún aldrei í skóla,“ segir Jóna sem kveður vís- bendingar um að Vigga hafi verið ólæs. „En hún var vel gefin, kunni mikið af ljóðum utan að og var mjög hnyttin í tilsvörum.“ Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hefur samþykkt að styrkja legstein- inn fyrir Vigdísi með 50 þúsund krónum. Aðspurð segir Jóna enn vanta nokkuð upp á fyrir kostnaði. „Okkur langar svolítið til að þetta geti orðið táknrænt fyrir hana,“ segir Jóna sem árið 2011 hélt myndlistarsýningu tileinkaða Viggu í Byggðasafninu í Skógum og skrifaði bréfið þar sem óskað er eftir styrk frá Mýrdalshreppi og færir þar rök fyrir því að Vigdísi verði sýndur þessi virðingarvottur. „Hún var þrátt fyrir fátækt og umkomuleysi einn eftirminnilegasti Mýrdælingur sem uppi var á síðustu öld.“ gar@frettabladid.is Förukona fær legstein sextíu árum eftir lát sitt Vigdís Ingvadóttir sem mætti harðræði föður síns og var höfð útundan í stórum systkinahópi í Mýrdal áður en hún lagðist í flakk aðeins tíu ára gömul fær loks legstein á leiði sitt sextíu árum eftir að hún dó í hárri elli að loknu flakki í 80 ár. Menjar á sálinni „Vigga var alin upp í mikilli fátækt og við alls konar harðrétti, enda hefur hún borið þess menjar alla sína löngu ævi, bæði að því er snertir líkamsatgjörvi, og ekki síður hefur það orðið afdrifaríkt fyrir sálarlíf hennar. Hún mun fljótt hafa verið einna minnst metin á heimilinu,“ segir í um- fjöllun um Vigdísi Ingvadóttur í tímaritinu Samvinnu árið 1956, skömmu áður en hún lést. „Þegar Vigga fellur í valinn, hverfur ein- hver einkennilegasta og sérkenni- legasta kona, sem Mýrdalurinn hefur alið síðustu hundrað árin, og þó að víðar væri leitað.“ Magnús Finnbogason í Samvinn- unni 1. desember 1956. Þá var skólinn í Litla-Hvammi og hún kom oft í skólann og fékk að líta yfir hópinn. Sjálf var hún aldrei í skóla. Jóna Sigríður Jónsdóttir Vigga gamla í túlkun listakonunnar Jónu Sigríðar Jónsdóttur. Danmörk Skotárás var gerð á Norður- brú í Kaupmannahöfn um klukkan sjö að staðartíma í fyrrakvöld. Þrír menn voru skotnir, einn lét lífið en tveir særðust. Hinn látni var 30 ára gamall og var meðvitundar laus þegar lögreglan og sjúkralið kom á vettvang. Hann var úrskurðaður látinn þegar sjúkrabíllinn kom á spítalann. Fjölmargar skotárásir hafa verið gerðar undanfarið á Norðurbrú og þar í kring. Jyllands Posten segir þessar árásir tengjast átökum milli gengja sem hafa staðið yfir í rúmt hálft ár. Torben Svarrer, hjá dönsku lögregl- unni, segir að hinn látni hafi verið úr glæpagengi. Íbúar á Norðurbrú óttast að skot- árásirnar fari versnandi. „Nú skjóta þeir til að drepa. Fyrr á árinu virtist þetta vera meira til að hræða eða að þeir skutu eitthvað handahófskennt og fóru svo í burtu,“ segir Terje Bech. Svarrer telur hins vegar ekki að átökin séu að aukast. „Það hafa verið rólegir tímar og svo síðar tímar þar sem skotárásirnar hefjast aftur. Það er því vafasamt að vera að segja að spennan sé að aukast,“ segir hann. - jhh Íbúar óttast ástandið á Norðurbrú Það hefur mikil spenna verið á Norðurbrú og svæðinu þar í kring undanfarna mánuði. Fréttablaðið/EPa 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 f I m m T U D a G U r6 f r é T T I r ∙ f r é T T a b l a ð I ð 0 2 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :4 3 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 2 2 -2 1 5 0 1 E 2 2 -2 0 1 4 1 E 2 2 -1 E D 8 1 E 2 2 -1 D 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.