Fréttablaðið - 06.11.2017, Síða 6
FLUTNINGASPÁ DAGSINS
SEYÐISFJÖRÐUR
14.00
BREIÐDALSVÍK
17.00
-20° 200 t 25° 4 kg
SPÁÐ ER SENDINGUM
UM ALLT LAND
Endursöluaðilar um land allt
Snjöll lýsing!
OSRAM LIGHTIFY: Aðlagaðu ljósið
að þínum þörfum með Appi
LED lausnir frá
Lýsing fyrir götur,
göngustíga og bílastæði.
Ráðgjöf og nánari upplýsingar
má fá hjá sölumönnum.
Smart City
lausnir
Jóhann Ólafsson & Co.
Krókháls 3, 110 Reykjavík
533 1900
sala@olafsson.is
StjórnSýSla Forsætisnefnd Reykja-
víkurborgar hefur óskað eftir lög-
fræðiáliti frá Trausta Fannari Vals-
syni, dósent í lögfræði við Háskóla
Íslands, og Logos lögmannsþjónustu
vegna vafa um kjörgengi Kristínar
Soffíu Jónsdóttur borgarfulltrúa.
Þetta staðfestir Líf Magneudóttir,
forseti borgarstjórnar. Líf segir að
óskað hafi verið eftir álitunum í
síðustu viku. Ekki reyndist unnt að
funda um málið í forsætisnefnd í
gær þar sem álitin höfðu ekki borist.
Búist er við því að þau verði tilbúin
í næstu viku.
Eins og Fréttablaðið hefur áður
greint frá tók Kristín Soffía sæti
aftur í borgarstjórn í haust eftir að
hafa snúið aftur heim frá Danmörku
þar sem hún var í fæðingarorlofi.
Vafi hefur leikið á kjörgengi hennar.
Ástæðan er sú að í 37. grein sam-
þykktar um stjórn Reykjavíkurborg-
ar og fundarsköp borgarstjórnar
segir: „Þegar borgarfulltrúi flytur úr
sveitarfélaginu um stundarsakir má
borgarstjórn ákveða, að hans ósk,
að hann skuli víkja úr borgarstjórn
þar til hann tekur aftur búsetu í
Reykjavík. Slík ákvörðun skal tekin
áður en borgarfulltrúi flytur um
stundarsakir. Sé ekki tekin ákvörð-
un samkvæmt þessari málsgrein
missir borgarfulltrúi kjörgengi við
skráningu lögheimilis í öðru sveitar-
félagi.“
Helga Björk Laxdal, skrifstofu-
stjóri borgarstjórnar, hefur sagt í
svari til Fréttablaðsins að Kristín
Soffía hafi verið í fæðingarorlofi frá
júnímánuði 2016 til júlímánaðar
2017. Enn fremur að borgarstjórn
hafi enga aðkomu að málefnum
borgarfulltrúa í fæðingarorlofi enda
sitji þeir ekki í borgarstjórn á meðan
á því stendur og þiggja hvorki laun
né önnur réttindi á þeim tíma. Það
er mat Helgu Bjarkar að Kristín
Soffía hafi uppfyllt öll kjörgengis-
skilyrði þegar hún tók sæti í borgar-
stjórn á ný eftir fæðingarorlof.
Síðar hefur Fréttablaðið greint
frá því að upplýsingar úr Þjóðskrá
benda til þess að Kristín Soffía hafi
flutt lögheimilið sitt til Danmerkur
hinn 8. apríl 2016. Samkvæmt upp-
lýsingum úr fundargerðum Strætó
bs. gegndi hún engu að síður skyld-
um borgarfulltrúa 18. apríl 2016
með því að taka þátt í stjórnarfundi
Strætó í gegnum síma. Hún tók
aftur þátt í fundi stjórnar Strætó í
gegnum síma föstudaginn 29. apríl.
jonhakon@frettabladid.is
Borgarstjórn fær tvö álit
á kjörgengi Kristínar
Óskað hefur verið eftir áliti frá dósent við lagadeild Háskóla Íslands og Logos
lögmannsþjónustu um kjörgengi borgarfulltrúa Samfylkingarinnar. Skrifstofu-
stjóri borgarstjórnar telur engan vafa leika á kjörgengi borgarfulltrúans.
Kristín Soffía Jónsdóttir tók sæti að nýju í borgarstjórn Reykjavíkur í haust
eftir að hafa dvalið í Danmörku. FRéttablaðið/ERniR
Kristín Soffía
Jónsdóttir
BErMÚDa Breska krúnan, ráð-
herra úr ríkisstjórn Trump og
stór alþjóðleg fyrirtæki eru meðal
þeirra sem nýttu sér aðstoð App-
leby lögmannsstofunnar til að
koma fjármunum í skjól á lág-
skattasvæði. Þetta sýna gögn úr
leka frá stofunni.
Lekinn hefur hlotið nafnið Para-
dísarskjölin. Appleby er fyrirtæki
staðsett á eynni Bermúda en brot-
ist var inn í tölvukerfi stofunnar
fyrr á þessu ári. Alls 13,4 milljónum
skjala var stolið frá stofunni. Er
þetta næst stærsti leki í sögunni á
eftir Panamaskjalalekanum.
Meðal þess sem kemur fram
í skjölunum er að milljónum
punda frá bresku krúnunni hefur
verið komið fyrir í sjóði á Caym-
an-eyjum. Ekki var vitað um til-
vist peninganna fyrr en nú. Þegar
blaðamenn The Guardian spurðu
krúnuna um féð fengust þau svör
að þau hefðu ekki vitað af félaginu
og fjárfestingum þess.
Nafn Gary John, eins efnahags-
ráðgjafa Donald Trump, kemur
fyrir í skjölunum en hann tengist
22 mismunandi félögum sem Gold-
man Sachs hafði komið fyrir á Ber-
múda. John er einn þeirra sem kom
að frumvarpi Trump sem ætlað er
að ná bandarískum fjármunum úr
skattaskjólum. Af skjölunum má
ráða að John hefur nokkra þekk-
ingu á efninu.
Nafni Rex Tillerson, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, bregður
einnig fyrir í skjölunum en þar
er hann skráður sem stjórnandi
skúffufyrirtækis; orkufyrirtækis-
ins ExxonMobil. Þá er nafn Steve
Mnuchin, fjármálaráðherra lands-
ins, einnig að finna í skjölunum
sem og Jon Huntsman, nýs sendi-
herra Bandaríkjanna í Rússlandi.
Skjölin varpa einnig ljósi á að tvö
rússnesk fyrirtæki, með ríka teng-
ingu við forsetann Vladimír Pútín,
hafi komið töluverðu fjármagni til
Facebook og Twitter í gegnum lág-
skattaríki. Fjárfestingarnar voru
gerðar í nafni Yuri Milner en sá
er viðskiptafélagi Jared Kushner,
tengdasonar Bandaríkjaforseta og
ráðgjafa í Hvíta húsinu.
Nöfn nokkurra tuga Íslendinga
er að finna í gögnunum sem lekið
var. Af Norðurlöndunum á Ísland
fæsta viðskiptavini stofunnar.
Nöfn ríflega þúsund Norðmanna
er hins vegar þar að finna. – jóe
Fyrirmenni um víða veröld nýttu sér skattaskjól í Bermúda
breska krúnan nýtti sér meðal annars þjónustu appleby. FRéttablaðið/EPa
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
SIMBaBVE Bandarísk blaðakona,
sem starfar í Simbabve, hefur verið
handtekin fyrir að móðga Robert
Mugabe, forseta landsins. Konan
sendi frá sér tíst sem yfirvöldum
þótti niðrandi.
„Við erum leidd áfram af sjálf-
elskum og sjúkum manni,“ tísti
Martha O‘Donovan. Með tístinu
fylgdi mynd sem gaf til kynna að líf-
inu væri haldið í Mugabe með hjálp
tækja. Brot O‘Donovan, að tala illa
um þjóðarleiðtogann, getur varðað
allt að 20 ára fangelsisvist.
Mugabe, sem er 93 ára, hefur
stýrt Simbabve frá árinu 1980, fyrst
sem forsætisráðherra en síðar sem
forseti. Með hækkandi aldri hefur
dregið úr því að hann komi fram
opinberlega og eru margir sem telja
að heilsa hans leyfi varla að hann
stýri landinu áfram.
Handtaka O‘Donovan er sú fyrsta
eftir að sérstöku netmálaráðuneyti
var komið á fót í landinu í síðasta
mánuði. Tilgangur þess er að hafa
auga með samfélagsmiðlum og
heimasíðum til að sjá hvort eitt-
hvað ólöglegt eigi sér stað þar.
Mikið hefur verið rætt og ritað um
Mugabe, og stjórn hans, á samfélags-
miðlum í landinu og aldrei meir en
í fyrra. Var ráðuneytinu komið á fót
vegna þessa. – jóe
Handtekin fyrir tíst um Mugabe
O’Donovan sést hér fyrir miðju skömmu áður en hún var leidd fyrir dóm og
úrskurðuð í gæsluvarðhald. FRéttablaðið/EPa
6 . n ó V E M B E r 2 0 1 7 M Á n U D a G U r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a ð I ð
0
6
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:5
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
6
-8
9
8
8
1
E
2
6
-8
8
4
C
1
E
2
6
-8
7
1
0
1
E
2
6
-8
5
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
5
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K