Fréttablaðið - 06.11.2017, Síða 16
Emma Stone,
Sally Field og
Lamar Odom
virðast við fyrstu
sín ekki eiga
margt sameigin-
legt en eiga þó öll
afmæli í dag.
Í dag eiga óvenjumargar stór-stjörnur afmæli. Emma Stone, Sally Field og Lamar Odom eru
fædd 6. nóvember, en auk þeirra
eiga Ethan Hawke, Glenn Frey,
Conchita Wurst og Maria Shriver
líka afmæli í dag.
Kvíðafull kvikmyndastjarna
Emma var aðeins ellefu ára
þegar hún steig á svið í fyrsta
sinn í heimabæ sínum í Arizona.
Það þótti mikill sigur fyrir hana
því Emma þjáðist mjög af kvíða sem
barn. Hún vakti fyrst almenna athygli
fyrir leik í kvikmyndinni Superbad
en Emma er nú orðin súperstjarna og
hlaut Óskarsverðlaunin í fyrra fyrir
frammistöðu sína í La La Land. Hún
er ein hæst launaða leikkona í heimi
og getur valið úr hlutverkum. Nýjasta
myndin hennar heitir Battle of the
Sexes og segir frá tenniseinvígi sem
átti sér stað á milli Billie Jean King og
Bobby Riggs árið 1973.
Litríkur ferill
Sally Field hefur átt fjölbreyttan og
litríkan feril og er hvergi nærri hætt
að leika þótt hún sé orðin löglegur
ellilífeyrisþegi. Hún hóf ferilinn í
sjónvarpsþáttum á borð við The
Flying Nun og The Girl With Somet-
hing Extra. Hún sneri sér síðan að
kvikmyndaleik og fékk Óskarverð-
laun fyrir hlutverk sitt í Norma Rae
þar sem hún fór á kostum. Hún hlaut
sín önnur Óskarsverðlaun fyrir leik
sinn í Places in the Heart, auk fjölda
Golden Globe verðlauna. Sally hefur
leikið í fjölmörgum myndum sem
eru löngu orðnar klassískar, eins og
t.d. Mrs. Doubtfire, Forrest Gump og
Aldrei án dóttur minnar. Árið 2006
sneri hún sér að leik í sjónvarpsþátt-
unum Brothers & Sisters sem gekk
í áraraðir. Sally Field er mikill jafn-
réttissinni og studdi Hillary Clinton
til forsetaembættis í Bandarríkj-
unum á síðasta ári. Svo skemmtilega
vill til að afmælissysturnar Sally
Field og Emma Stone munu leika
saman í Netflix-þáttunum Maniac á
næstunni.
Fagnar deginum
Þá er körfuboltakappinn knái,
Lamar Odom, 38 ára í dag. Hann
spilaði með Los Angeles Lakers og
varð tvisvar sinnum NBA meistari
með liðinu. Lamar skaust hátt upp
á stjörnuhimininn þegar hann
gekk í hjónaband með raunveru-
leikastjörnunni Khloe Kardashian
árið 2009 en hjónin voru um tíma í
aðalhlutverki í eigin raunveruleika-
þætti. Fyrir átti hann þrjú börn með
fyrri eiginkonu sinni, Liza Morales.
Eitt barnanna lést á unga aldri og
fékk það svo mikið á Lamar að
hann segist aldrei muna jafna sig á
missinum. Lamar fagnar því eflaust
að eldast því aðeins tvö ár eru frá
því að hann lá á milli heims og helju
eftir að hafa fundist meðvitundar-
laus á vændishúsi eftir ofnotkun á
m.a. kókaíni. Lamar náði sér betur
en nokkur þorði að vona og hefur
komið fram í myndbandi til varnar
fíkniefnum.
Stjörnum prýddur dagur
Emma Stone þjáðist af kvíða sem barn. Sally Field fagnar 71 árs afmæli í dag.
Ethan Hawke leikari á afmæli í dag.Lamar Odom fagnar eflaust hverjum
afmælisdegi.
Netverslanir athugið!
Föstudaginn 10. nóvember
gefur Fréttablaðið út sérblaðið Singles day.
Ólafur H. Hákonarson markaðsráðgjafi Fréttablaðsins.
Sími 512 5433. Netfang olafurh@365.is
Nánari upplýsingar um verð auglýsinga gefur
Singles day er lang stærsti söludagur netverslana um allan heim.
Þennan dag taka verslanir / netverslanir sig saman og veita
viðskiptavinum verulega góð afsláttarkjör í 24 klukkustundir hið
minnsta.
Markar þessi dagur upphaf jólavertíðar hjá milljónum vefverslana
um allan heim. Singles hefur einnig skotið rótum hér á Íslandi og
fengið frábærar undirtektir.
Í Singles day blaði Fréttablaðsins verður dagurinn kynntur fyrir
lesendum auk þess sem fjöldi íslenskra netverslana mun kynna þar
Singles day tilboðin sín.
Kl. 00.00 laugardaginn 11. nóvember verða svo tilboðin virk og fólki
gefst færi á að gera frábær innkaup á meðan birgðir endast.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . N Óv E m B E R 2 0 1 7 M Á N U DAG U R
0
6
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:5
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
6
-7
F
A
8
1
E
2
6
-7
E
6
C
1
E
2
6
-7
D
3
0
1
E
2
6
-7
B
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
5
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K