Fréttablaðið - 06.11.2017, Side 38

Fréttablaðið - 06.11.2017, Side 38
Stóru málin eftir helgina í enska boltanum Stærstu úrslitin Chelsea hjálpaði bæði sér og Manchester City með 1-0 sigri á Manchester United á Brúnni. Spánverjinn Álvaro Morata skoraði sigurmarkið á 55. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf landa síns César Azpilicueta en þeir hafa náð vel saman í vetur. City er þar með komið með átta stiga for- skot á toppi deildarinnar. Hvað kom á óvart? Staðan var ekki björt fyrir liðs- menn Everton þegar aðeins 25 mínútur voru eftir af leiknum og liðið 2-0 undir á heimavelli á móti Watford. Gylfi Þór Sigurðsson og félögum tókst hinsvegar á ótrú- legan hátt að snúa leiknum við, skora þrjú mörk á lokakaflanum og tryggja sér þrjú stig sem komu liðinu upp úr fallsæti. Mestu vonbrigðin Ekkert gengur hjá lærisveinum Jose Mourinho í Manchester United á útivelli í deildinni. Liðið hefur aðeins fengið eitt stig og skorað eitt mark í síðustu þremur útileikjum sínum og er fyrir vikið komið átta stigum á eftir ná- grönnum sínum í City. Enska úrvalsdeildin Staðan Úrslit 11. umferðar 2017-18 Stoke - Leicester 2-2 0-1 Vicente Iborra (33.), 1-1 Shaqiri (39.), 1-2 Riyad Mahrez (60.), 2-2 Peter Crouch (73.). Southampton - Burnley 0-1 0-1 Sam Vokes (81.). Newcastle - Bournem. 0-1 0-1 Steve Cook (90.+2). Swansea - Brighton 0-1 0-1 Glenn Murray (29.). Huddersfield - WBA 1-0 1-0 Rajiv van La Parra (45.). West Ham - Liverpool 1-4 0-1 Mohamed Salah (21.), 0-2 Joël Matip (24.), 1-2 Manuel Lanzini (55.), 1-3 Alex Chamberlain (56.), 1-4 Salah (75.). Tottenham - Cry. Palace 1-0 1-0 Heung-min Son (64.). Man. City - Arsenal 3-1 1-0 Kevin De Bruyne (19.), 2-0 Sergio Agü- ero, víti (50.), 2-1 Alexandre Lacazette (65.), 3-1 Gabriel Jesus (74.). Chelsea - Man. United 1-0 1-0 Álvaro Morata (55.). Everton - Watford 3-2 0-1 Richarlison (46.), 0-2 Christian Kabasele (64.), 1-2 Oumar Niasse (67.), 2-2 Dominic Calvert-Lewin (74.), 3-2 Leighton Baines, víti (90.+1). Cleverley klikkaði á víti í upp- bótartíma leiksins. FÉLAG L U J T MÖRK S Man. City 11 10 1 0 38-7 31 Man. Utd 11 7 2 2 23-5 23 Tottenham 11 7 2 2 20-7 23 Chelsea 11 7 1 3 19-10 22 Liverpool 11 5 4 2 21-17 19 Arsenal 11 6 1 4 20-16 19 Burnley 11 5 4 2 10-9 19 Brighton 11 4 3 4 11-11 15 Watford 11 4 3 4 17-21 15 Huddersf. 11 4 3 4 8-13 15 Newcastle 11 4 2 5 10-10 14 Leicester 11 3 4 4 16-16 13 Southamp. 11 3 4 4 9-11 13 Stoke City 11 3 3 5 13-22 12 Everton 11 3 2 6 10-22 11 West Brom 11 2 4 5 9-14 10 Bournem 11 3 1 7 7-14 10 West Ham 11 2 3 6 11-23 9 Swansea 11 2 2 7 7-13 8 C. Palace 11 1 1 9 4-22 4 Okkar menn Íslendingar í efstu tveimur deildunum í Englandi Everton Gylfi Þór Sigurðsson Lék fyrstu 85 mínúturnar í 3-2 endurkomusigri Ever- ton á heimavelli á móti Watford. Cardiff City Aron Einar Gunnarsson Var ekki með Cardiff vegna meiðsla í tapleik á móti Bristol City. Reading Jón Daði Böðvarsson Gat ekki spilað vegna meiðsla þegar Reading vann 4-2 útisigur á Derby. Bristol City Hörður B. Magnússon Búinn að vinna sér sæti í liðinu og lagði upp sigur- markið í 2-1 sigri á Cardiff City. Burnley Jóhann Berg Guðm. Lagði upp sigurmark Burnley níu mínútum fyrir leikslok í útisigri á Southampton. Aston Villa Birkir Bjarnason Sat allan tímann á bekknum í 2-1 tapi fyrir Sheffield Wednesday heima. 30. október 2017 á Turf Moor Stoðsending á Jeff Hendrick á 74. mínútu í 1-0 sigri Burnley á New- castle FóTBolTi Jóhann Berg Guðmunds- son ætti að koma í góðu skapi til móts við félaga sína í landsliðinu þegar strákarnir okkar hittast í Katar í dag. Lið hans Burnley er í hópi sjö efstu liða ensku úrvals- deildarinnar eftir þriðja útisigur- inn á tímabilinu um helgina. Engin útivallarvandræði lengur Liðið sem fékk 83 prósent stiga sína á heimavelli sínum á síðustu leiktíð (33 af 40) hefur blómstrað á útivöllum í vetur og er nú með þremur fleiri stig þar (11) en á hinum einstaka heimavelli þess á Turf Moor (8). Sigurinn á mánudagskvöldið var þó á Turf Moor þegar liðið vann Newcastle 1-0. Jóhann Berg sem endaði fjög- urra ára og 34 leikja bið sína eftir marki í íslenska landsliðsbún- ingnum þegar íslensku strákarnir tryggðu sig inn á HM í síðasta mánuði kom til baka til Burnley með sjálfstraustið í botni. Jóhann Berg kom íslenska lið- inu í 1-0 úti í Tyrklandi sem og nánast gulltryggði sigurinn með því að koma Íslandi í 2-0 á móti Kósóvó á Laugardalsvellinum. Mikilvægi markanna verður aldrei metið að fullu en íslenska liðið var komið í báðum tilfellum í allt aðra og betri stöðu í hreinum úrslita- leikjum um sæti á HM í Rússlandi næsta sumar. Þrjár stoðsendingar í 4 leikjum Frá því að hann kom til baka þá hefur Jóhann Berg gefið þrjár stoð- sendingar í fjórum deildarleikjum Burnley og þessar stoðsendingar hafa skilað Burnley-liðinu samtals sjö stigum. Auk þess að leggja upp sigurmarkið í leikjunum á móti bæði Newcastle og Southampton þá lagði Jóhann Berg einnig upp jöfnunarmarkið í 1-1 jafntefli við West Ham. Sex stiga stoðsendingar á sex dögum Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley unnu tvo 1-0 sigra á sex dögum í ensku úrvalsdeildinni, þann fyrri á mánudag og þann seinni á laugardaginn. Í báðum leikjum var það gullsending Íslendingsins sem skóp sigurmarkið og Burnley er nú öllum að óvörum í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Jóhann Berg sat á bekknum í síðasta leik Burnley fyrir þetta sögufræga landsleikjahlé í byrjun október en kom aftur út sem ein af hetjunum sem komu litla Íslandi á heimsmeistaramótið í fyrsta skiptið. Hann byrjaði reyndar á bekknum í fyrsta leik eftir lands- leikina en kom þá inná og lagði upp jöfnunarmark liðsins á móti West Ham. Sean Dyche, knattspyrnustjóri Burnley, hefur verið með okkar mann í byrjunarliðinu í síðustu tveimur leikjum og sér ekki eftir því í dag. Jóhann Berg lagði upp sigurmark Jeff Hendrick á mánu- daginn og svo lagði hann upp sigurmark Sam Vokes um helgina. „Þetta er eitt af bestu skallamörkum sem ég hef séð. Þetta var frábær fyrirgjöf og frábær afgreiðsla,“ sagði Sean Dyche um sigurmark- ið hjá Sam Vokes sem kom níu m í n ú t - um fyrir l e i k s - lok. „Við þ u r f t u m a ð h a f a mikið fyrir þ e s s u m t v e i m u r sigrum en það mátti ekki mikið útaf bera. Við vitum h v e r j i r við erum og ég er m j ö g ánægður með hvar við erum. Það eru krefjandi verkefni á leið- inni en liðið veit að það kemur ekk- ert til okkar nema að við vinnum fyrir því,“ sagði Dyche. Frábær bolti Sam Vokes kom inn á sem vara- maður á móti sínu uppeldisfélagi. „Ég veit að þegar Jóhann er með boltann þá vill hann skipta yfir á vinstri fótinn sinn. Hann náði frábærum bolta fyrir og það var æðislegt að ná að skalla boltann í markið. Þetta snýst um liðið og við erum með sterkt lið núna, sterkasta liðið okkar í nokkur ár,“ sagði Sam Vokes. Jóhann Berg hefur gefið 3 stoð- sendingar á 242 mínútum frá því að hann kom aftur til Burnley eftir að hafa hjálpað Íslandi að komast á HM í fyrsta sinn sem þýðir að hann er að gefa stoðsendingu á 80 mínútna fresti. Nýtt persónulegt met Með þessum þremur stoðsend- ingum þá er Jóhann Berg búinn að setja nýtt persónulegt met í ensku úrvalsdeildinni en hann náði „bara“ að gefa tvær stoðsendingar á síðasta tímabili sem hans fyrsta í vinsælustu deild Evrópu. Þá var hann ellefu stoðsending- um á eftir landa sínum Gylfa Þór Sigurðssyni en nú er hann þremur stoðsendingum á undan Gylfa sem  á enn eftir að gefa stoðsendingu á ensku úrvalsdeildinni á þessu tíma- bili. ooj@frettabladid.is 80 mínútur milli stoðsendinga Jóhanns Berg í síðustu fjórum deildarleikjum. 6 . N ó v e M B e r 2 0 1 7 M Á N U D A G U r14 S p o r T ∙ F r É T T A B l A ð i ð 0 6 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :5 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 2 6 -6 2 0 8 1 E 2 6 -6 0 C C 1 E 2 6 -5 F 9 0 1 E 2 6 -5 E 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 5 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.