Morgunblaðið - 08.02.2017, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2017
oðið úrvalið
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og sk
Klassísk gæða húsgögn
á góðu verði
Opið virka daga
10-18
laugardaga
11-15
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Fyrirtækið Garðlist ehf. hefur kært
ákvörðun Isavia um að ganga til
samninga við fyrirtækið Hreina
Garða ehf. til
kærunefndar út-
boðsmála, en mál-
ið varðar trjáfell-
ingu í Öskjuhlíð
vegna Reykja-
víkurflugvallar.
Er þess krafist að
nefndin gefi álit
sitt á skaðabóta-
skyldu og ógildi
ákvörðunina.
Isavia leitaði til fimm rekstrar-
aðila og var Garðlist ekki á meðal
þeirra. Tilboð Hreinna Garða hljóð-
aði upp á um 18,5 milljónir króna,
en samkvæmt lögum skal bjóða út
vöru og þjónustu sem nemur yfir 15
milljónum króna.
Öll nema eitt á landsbyggðinni
Ágreiningur stendur um hvort
undanþága í lögunum um veitufyr-
irtæki, þ. á m. þau sem reka flug-
velli, eigi við um Isavia. Viðmið-
unarmörk fyrir slík fyrirtæki eru 64
milljónir króna. Brynjar Kjærne-
sted, framkvæmdastjóri Garðlistar,
segist í samtali við blaðið geta boðið
lægra verð en samþykkt var.
„Ef Isavia vill gera hagkvæm inn-
kaup, þá reynir það að fá sem flesta
til að bjóða í verkið,“ segir hann.
Brynjar segir að enginn þeirra
aðila sem leitað var til sé staðsettur
á höfuðborgarsvæðinu utan
Hreinna Garða. Því hafi verið auð-
velt fyrir fyrirtækið að bjóða lágt
verð.
„Það er mjög einkennilegt að
ekkert fyrirtækjanna sé á höfuð-
borgarsvæðinu nema eitt og það fái
verkið. Þetta er auðveldast fyrir
það enda engir samkeppnisaðilar í
kringum það,“ segir hann.
Þá bendir Brynjar einnig á að
ráðgjafar Isavia í trjáfellingunum
hafi þótt samþykkt verktilboð of
hátt, en kaupunum var þó engu að
síður fram haldið. Segir hann einnig
að kostnaðaráætlun hafi ekki verið
lögð fram vegna verksins.
Kæra ákvörðun Isavia
Framkvæmdastjóri Garðlistar segir
að gengið hafi verið framhjá fyrirtækinu
og að trjáfellingin sé útboðsskyld
Brynjar
Kjærnested
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Öskjuhlíð Til stendur að fella tré í Öskjuhlíð til að greiða fyrir flugleiðum á
Reykjavíkurflugvelli. Fyrirtækið Hreinir Garðar sinnir verkinu.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Börn sem vistuð voru á Kópavogshæli á ár-
unum 1952 til 1993 þurftu mörg hver að sæta al-
varlegu líkamlegu og andlegu ofbeldi. Bæði frá
hendi starfsfólks og annarra vistmanna.
Er þetta meðal þess sem fram kemur í
skýrslu vistheimilanefndar um vistun barna á
Kópavogshæli, sem skilað var til dómsmála-
ráðherra í gær. Þá höfðu stjórnvöld einnig í
verulegum mæli vanrækt að skapa skilyrði svo
unnt væri að mæta lögbundnum kröfum um að-
búnað barna, að því er fram kemur í skýrslunni.
Lögbundnar forsendur skorti
„Við gerum greinarmun á fullorðins- og
barnadeildum þó að börn hafi verið vistuð á
báðum. Börn á fullorðinsdeildum þurftu í tals-
vert meira mæli að sæta líkamlegu og andlegu
ofbeldi auk vanrækslu. Engu að síður, þegar við
förum vandlega yfir gögnin, staðfestum við að
börn á barnadeildum hafi í einhverjum mæli
orðið fyrir líkamlegu og andlegu ofbeldi og í
verulegum mæli vanrækslu,“ segir Hrefna
Friðriksdóttir, formaður visheimilanefndar, í
samtali við Morgunblaðið. „Nefndin skoðaði
meðal annars tildrög vistunar, þar eru helstu
niðurstöðurnar að það hafi skort lögbundnar
forsendur til að vista börn með fullorðnum.“
Fram kemur í skýrslunni að yngsta barnið
sem vistað var á fullorðinsdeild hafi verið fjög-
urra ára gamalt. Upplýsingar um ofbeldið feng-
ust úr sjúkraskrám, dagbókarfærslum hælisins
og viðtölum við vistmenn, en einungis átta úr
hópi vistfólks gátu tjáð sig sjálf með beinum
hætti um vistun sína á Kópavogshæli.
Einn þeirra er maður sem var vistaður 7 ára
gamall á Efra-Seli, útibúi Kópavogshælis. Þá
lýsir hann því að hafa verið bundinn við stól og
tönn dregin úr honum án deyfingar þegar hann
fékk tannpínu. Hann hefði þá öskrað og grátið
og verið „hent niður í kjallara“. Sami maður
minnist þess að hafa ælt matnum sínum og var
hann þá látinn borða æluna upp aftur, en hann
segir m.a. í skýrslunni: „[É]g hef aldrei borðað
síld … ég ældi þessu, ég var látinn éta æluna
upp þrisvar, fjórum, fimm sinnum niðri í kjall-
ara, svona var meðferðin á okkur þarna … var
stundum að dunda við að éta upp æluna í þrjá til
fjóra tíma.“
„Við vorum bara rusl“
Hann segir einnig að meðferðin á Efra-Seli
hafi verið verri en í Breiðavík, en hann hafði
einnig verið vistaður þar. „Meðferðin á krökk-
unum á Efra-Seli var verri en í Breiðavík …
það mátti ganga um svona hálfvita bara eins og
þú vildir, það mátti sparka í þá ef þess þurfti,
það mátti berja þá ef þess þurfti … við vorum
ekki neitt, við vorum bara rusl … ég upplifði
mig [eins og] einskis virði … það var allt brotið
niður fyrir manni,“ segir maðurinn.
Annar aðili sem einnig var vistaður á Efra-
Seli, þá 11 ára gamall, lýsir miklu ofbeldi. Hon-
um var ítrekað refsað með því að læsa hann inni
í myrkri kompu í kjallara. Þá sagðist hann einn-
ig hafa ennisbrotnað, nefbrotnað og viðbeins-
brotnað þegar honum var hrint niður stiga. Þá
er vert að geta þess að í sjúkraskrám mátti
finna nokkrar færslur um að börn hefðu verið í
göllum sem voru reimaðir að aftan.
Dagbókarfærslur starfsmanna sýna einnig
að börn voru ítrekað bundin niður. Má í því
samhengi nefna færslu frá 1982 sem sýnir að 14
ára einhverft barn hafi þótt erfitt á nóttunni og
þá var „lengst af gripið til þess ráðs að binda
[X] niður í rúmið“. Einnig er að finna fleiri
færslur eins og „X kom, 13 ára, tolldi ekki í
rúminu fyrr en hún var bundin“ og „þegar ég
kom á næturvakt var X með ól á höndunum,
veit ekki hvað hann gerði,“ svo dæmi séu tekin.
Málið fær meira en fulla athygli
„Ég vona að það fari af stað samtal milli
dómsmálaráðherra og þá velferðarráðherra
sem er með málefni fatlaðs fólks á sinni könnu,“
segir Hrefna Friðriksdóttir um framhaldið.
Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra
segir næstu skref vera þau að starfsmenn ráðu-
neytisins fari yfir þessi mál með hliðsjón af lög-
um um sanngirnisbætur.
Guðrún Ögmundsdóttir, tengiliður vegna
vistheimila, mun aðstoða vistmenn að koma sín-
um málum á framfæri. „Ég tek núna málið, fer
yfir skýrslunar og kem með tillögur til ráðherra
um hvað skal gera. Þetta fær sko meira en fulla
athygli, því þetta eru alvarlegar niðurstöður.
Þetta fer bara í 150% faglegan farveg, þar sem
þetta er metið og tekin ákvörðun um hvernig
eigi að mæta þessum hóp. Það er mikilvægt að
honum sé mætt af mikilli virðingu.“
„Ég upplifði mig einskis virði“
Skýrslu vistheimilanefndar um Kópavogshæli skilað til dómsmálaráðherra Börn sættu alvarlegu
ofbeldi árum saman Allt niður í fjögurra ára gömul börn á fullorðinsdeildum án lagalegra forsendna
Morgunblaðið/Golli
Fundur Hrefna Friðriksdóttir, formaður vist-
heimilanefndar, kynnir niðurstöður skýrslu.
Dregið var í áskrifendaleik Morg-
unblaðsins í gær um glæsilegan
sportjeppa af gerðinni Lexus NX
300h F Sport, að verðmæti tæplega
10 milljónir króna. Sá heppni reynd-
ist vera Þorgeir Ingi Njálsson, dóm-
stjóri við Héraðsdóm Reykjaness og
einn áskrifenda blaðsins.
Áskrifendaleikurinn er samstarfs-
verkefni Morgunblaðsins og Lexus,
en Haraldur Johannessen, ritstjóri
Morgunblaðsins og framkvæmda-
stjóri Árvakurs, og Páll Þorsteins-
son, upplýsingafulltrúi Toyota á Ís-
landi, drógu út vinningshafann.
Lexus-sportjeppinn verður af-
hentur nýjum eiganda í dag.
jbe@mbl.is
Glæsibifreiðin dregin út
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Happdrætti Haraldur Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins (t.v.), og Páll
Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota á Íslandi, drógu út vinningshafann.
Dómstjóri við
héraðsdóm vann
Lexus-sportjeppa
Verulega hefur gengið á verkfallssjóð
Sjómanna- og vélstjórafélags Grinda-
víkur vegna yfirstandandi verkfalls-
aðgerða, en samkvæmt heimildum
blaðsins er hann nú tómur. Hefur fé-
lagið sent fyrirspurn til Alþýðu-
sambands Íslands (ASÍ) um úthlutun
úr sameiginlegum sjóðum þeirra, en
félagið er hluti af ASÍ.
Sameiginlegur sjóður ASÍ er fjár-
magnaður þannig að hvert aðildar-
félag greiðir ákveðið álag af iðgjaldi
sínu. „Þau lögðu fram fyrirspurn og
við fórum yfir það í miðstjórn að móta
reglur um það til hvers þessi sameig-
inlegi sjóður væri notaður,“ segir
Gylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ,
og ítrekar að ekki hafi komið formleg
umsókn.
Gylfi segir að verið sé að móta regl-
ur um úthlutun og í framhaldi af því
verði fjallað um einstakar beiðnir.
Sjóðurinn
nú tómur
SVG horfir til ASÍ
eftir aðstoð