Morgunblaðið - 08.02.2017, Side 4

Morgunblaðið - 08.02.2017, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2017 Vöruhús veitingamannsins allt á einum stað Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | Sími 595 6200 | bakoisberg.is Opið virka daga kl. 8.30-16.30 ...Margur er knár þótt hann sé smár Nýji SX Rational 2/3 GN ofninn gerir allt það sama og stærri gerðirnar. kjósa eða að það láti sig málefni sam- félagsins litlu varða. Að fá kosninga- rétt á sveitarstjórnarstigi gæti hugs- anlega breytt þessu, því þar er verið að taka ákvarðanir um mál sem varða okkar nærumhverfi.“ Áherslurnar yrðu fjölbreyttari Katrín segir nokkrar ástæður fyrir því að ákveðið hafi verið að miða við 16 ára aldur. „Þetta er tímamótaald- ur að mörgu leyti; þarna eru krakk- arnir að fara í framhaldsskóla, þetta er aldurstakmarkið til að byrja í formlegu starfi með stjórnmála- flokkunum og í þeim löndum, þar sem kosningaaldur hefur verið lækk- aður, er miðað við 16 ár.“ Spurð hvort hún telji að lækkun kosningaaldurs gæti breytt áherslum í stjórnmálum segist hún vera sann- færð um það. „Þetta gæti haft góð áhrif á stjórnmálin á ýmsan hátt. Áherslurnar yrðu aðrar og fjöl- breyttari.“ kosið. Þátttaka þeirra var meiri en hjá eldri krökkum með kosningarétt sem sýnir að það er talsverður áhugi hjá krökkum yngri en 18 ára á að hafa áhrif.“ Kynslóðin sem ekki kýs? Í drögum frumvarpsins segir að því sé ætlað að styðja við lýðræðis- þátttöku ungs fólks og auka kosn- ingaþátttöku þess, en tölur Hagstofu Íslands sýna að kosningaþátttaka er minnst hjá yngsta aldurshópnum. T.d. var almenn þátttaka 79,2% í síð- ustu alþingiskosningum, en einungis 67,7% í yngsta aldurshópnum. Í for- setakosningunum síðasta sumar var kosningaþátttakan 63,8% í aldurs- hópnum 18-19 ára, en almenn þátt- taka var 73,6%. Í síðustu sveitar- stjórnarkosningum árið 2014 kusu 66,5%, en hlutfallið var 47,5% í yngsta kjósendahópnum. Katrín seg- ir þetta áhyggjuefni. „En þetta þarf ekki að þýða að ungt fólk vilji ekki Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Sakborningi í sakamáli tengdu and- láti Birnu Brjánsdóttur hafa verið kynntar þær upplýsingar sem lög- reglan hefur undir höndum. Játning liggur ekki fyrir. Í gær staðfesti Hæstiréttur Íslands tveggja vikna gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir grænlenska skipverjanum af Pol- ar Nanoq. Grímur Grímsson, yfirlögreglu- þjónn sem stýrir rannsókn sakamáls- ins, segir að maðurinn verði yfir- heyrður á næstu dögum, en ekki sé komin nákvæm tímasetning á því. Þá gerir Grímur ráð fyrir því að rann- sókn málsins muni ljúka á næstu vik- um og í framhaldinu taki héraðssak- sóknari ákvörðun um ákæru. Engin frekari gögn Enn er unnið úr tækni- og síma- gögnum sem gegnt hafa lykilhlut- verki við rannsókn málsins. Þeirri vinnu er ólokið. „Við höfum ekki feng- ið frekari gögn á undanförnum dög- um en þau sem við vorum með. Við erum eingöngu að klára það að setja þau inn í rannsóknina. Heildarmynd- in hefur legið fyrir í nokkurn tíma, en svo er verið að ganga frá lausum end- um og gögnin unnin í þaula áður en þau eru sett inn í sakamálin,“ segir Grímur. Sagt var á vef RÚV að drukknun hefði verið dánarorsök Birnu en einn- ig að þrengt hefði verið að öndunar- vegi hennar áður henni var varpað í sjóinn. Grímur vildi ekki staðfesta þetta þegar eftir því var leitað. En líkt og fram hefur komið fannst blóð úr Brynju í rauða Kia Rio-bílnum sem hinn grunaði hafði til umráða nóttina sem Birna hvarf. Síminn efstur á blaði Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er ekki talið að vopn hafi leitt til þess að blóðið úr Brynju hafi kom- ist í bílinn. „Síminn er efstur á blaði,“ segir Grímur, spurður um þau sönn- unargögn sem lögreglan leitar helst að við rannsóknina og á þar með við farsíma Birnu. Ekki lögð áhersla á að finna vopn við rannsóknina  Skipverjanum voru kynntar upplýs- ingar sem lögregla hefur undir höndum Morgunblaðið/Golli Gæsluvarðhald Hæstiréttur stað- festi gæsluvarðhaldsúrskurð. Björgunarsveitir Slysavarnafélags- ins Landsbjargar á Norðurlandi voru kallaðar út um klukkan fimm í gær vegna manns sem lenti í sjálf- heldu á Krossöxl ofan Ljósavatns. Fjallið er, skv. upplýsingum frá björgunarsveitum, mjög bratt, kjarri vaxið og erfitt yfirferðar, ekki síst í myrkri. Manninum tókst að gefa björgunarmönnum ljós- merki sem auðveldaði leitina til muna, en hann hafði lagt á fjallið frá áningarstað við Ljósavatn. Maðurinn var ekki búinn til fjall- göngu og var orðinn kaldur, en óslasaður þegar fjallabjörgunar- menn komu að honum. Var hann þá í rúmlega 500 metra hæð. Manni bjargað úr sjálfheldu á Kross- öxl við Ljósavatn Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Norðmenn tóku við þrefalt fleiri hælisleitendum á síðasta ári á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinn- ar en þeir sendu úr landi, en reglu- gerðin felur í sér viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða Schengen-ríki beri ábyrgð á með- ferð hælisumsóknar sem einstak- lingur leggur fram í einu aðildar- ríkja Schengen-svæðisins. Þannig er stjórnvöldum heimilað að senda við- komandi hælisleitanda aftur til þess Schengen-ríkis sem hann kom fyrst til. Samkvæmt norskum fjölmiðlum tók Noregur við 2.736 einstakling- um, sem vísað var aftur til Noregs, en vísaði aðeins 837 einstaklingum til annarra Evrópulanda. „Þetta er ekki sérstaklega skráð hér á landi enda tilvikin afar fá,“ segir Þórhildur Hagalín, upplýs- ingafulltrúi Útlendingastofnunar, um fjölda hælisleitenda sem sendir eru aftur til Íslands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. „Landfræðileg lega Íslands og takmörkun á beinu flugi til landsins er þannig að ekki margir koma fyrst til Íslands áður en haldið er annað í Evrópu. Það kemur því ekki oft fyr- ir að fólk er sent aftur til Íslands á grundvelli reglugerðarinnar.“ Langflestir hælisleitendur sem nú sækja til landsins koma frá Make- dóníu og Albaníu og gildir reglu- gerðin almennt ekki um þá. Þróunin er svipuð í byrjun þessa árs og var á síðasta ári en um 60-70 hælisleit- endur komu til landsins í janúar. Fleiri til Noregs en frá landinu  Nær þrefalt fleiri hælisleitendur eru sendir til Noregs á grundvelli Dyflinnar- reglugerðarinnar en frá landinu  Nánast óþekkt að slíkt komi fyrir á Íslandi Hælisleitendur » Rúmlega 2.700 hælisleit- endur sendir til Noregs á grund- velli Dyflinnarreglugerðarinnar. » Rétt rúmlega 800 sendir frá Noregi á sömu forsendum. » Vandamál sem Ísland kann- ast ekki við vegna landfræði- legrar legu. „16 ára krakkar geta verið með alveg jafn miklar skoðanir og haft jafn mik- inn áhuga á að hafa áhrif og krakkar sem eru tveimur árum eldri og komn- ir með kosningarétt,“ segir Inga Huld Ármann, 16 ára nemandi í Verslunar- skóla Íslands. „Við erum byrjuð að borga skatta og mér finnst lýðræð- islegt að við höfum eitthvað að segja um í hvað þeir eru notaðir.“ Inga seg- ist telja að ef kosningaaldurinn yrði færður niður, þá yrði hugað betur að málefnum ungs fólks. Máni Þór Magnason, skólabróðir hennar og jafnaldri, er sama sinnis. „Ungt fólk ætti að hafa meiri áhrif í samfélaginu og að kjósa er ein leið til þess,“ seg- ir Máni. Spurður hvort hann myndi nýta sér kosningarétt sinn í næstu sveitarstjórnarkosningum, ef svo færi að frumvarpið yrði að lögum, segir hann svo vera. „Ég myndi klárlega kjósa sjálfur ef ég fengi að kjósa í dag. Og ég held að flestir krakkar myndu gera það.“ Ungt fólk ætti að hafa meiri áhrif ÞAU BORGA SKATTA EN FÁ EKKI AÐ KJÓSA Inga Huld Ármann Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Ungt fólk vill hafa meiri áhrif, en því finnst að ekki sé verið að leita til þess við ákvarðanatöku. Ein leið til að breyta þessu er að lækka kosninga- aldur. Þetta segir Katrín Jakobs- dóttir, formaður Vinstri grænna, sem hyggst leggja fram frum- varp á Alþingi í þessari viku um breytingar á lög- um um kosningar til sveitarstjórna. Verði frumvarpið að lögum munu aldursmörk kosn- ingaréttar í næstu sveitarstjórnarkosningum, sem fyrirhugaðar eru á næsta ári, verða við 16 ára aldur í stað 18 ára eins og nú er. Á þessu tiltekna aldursbili eru um 9.000 ungmenni sem munu þá bætast í hóp kjósenda. Kjörgengi myndi áfram miðast við 18 ára aldur. Að frumvarpinu standa, auk Katr- ínar og fleiri þingmanna VG, þing- menn úr Viðreisn, Pírötum, Samfylk- ingu og Bjartri framtíð. Þetta verður í fjórða skiptið sem frumvarp um lækkun kosningaaldurs er lagt fram, en í fyrri skiptin var miðað við að kosningaaldur yrði al- mennt lækkaður. Það krefst stjórnarskrárbreytingar, en þegar eingöngu er um að ræða kosn- ingaaldur til sveitarstjórnarkosninga þarf einungis lagabreytingu til. Undanfarið hefur Katrín fundað með ungu fólki úr ýmsum ungmenna- ráðum þar sem efni frumvarpsins hefur verið rætt og hún segir mörg áhugaverð sjónarmið hafa komið þar fram. „Til dæmis að of lítið er leitað til ungs fólks í stefnumótun. Við ræddum líka #ÉGKÝS-verkefnið sem var í gangi fyrir síðustu þing- kosningar þar sem framhaldsskóla- nemendur undir kosningaaldri gátu Morgunblaðið/Eggert Á kjörstað Þingmenn fimm flokka standa að frumvarpi um lækkun kosningaaldurs í sveitarstjórnarkosningum. „Þetta gæti haft góð áhrif á stjórnmálin“  Þingmenn fimm flokka vilja lækka kosningaaldur í 16 ár Katrín Jakobsdóttir Máni Þór Magnason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.