Morgunblaðið - 08.02.2017, Síða 10

Morgunblaðið - 08.02.2017, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2017 HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is Straumhvörf Audi A3 e-tron sameinar tvo heima Tengiltvinnbíllinn Audi A3 e-tron hefur átt mikilli velgengni að fagna. Hann var valinn besti rafbíll ársins 2015 af What Car? og er með fimm stjörnur í árekstrar- og öryggisprófunum hjá Euro NCAP. 50 kílómetra drægni á raforkunni einni saman dugar í flestar ferðir en með skilvirkri samþættingu rafdrifs og sparneytinnar bensínvélar er samanlögð heildardrægni allt að 940 km. Verð frá 4.860.000 kr. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Umhverfisstofnun hefur gefið Thorsil ehf. nýtt starfsleyfi fyrir rekstri kísil- málmverksmiðju á iðnaðarsvæðinu í Helguvík en úrskurðarnefnd um- hverfis- og auðlindamála ógilti í októ- ber sl. starfsleyfi fyrirtækisins, sem því var veitt 2015. Gerðar eru nýjar kröfur sem fyrir- tækið þarf að uppfylla og nokkur ákvæði leyfisins hafa verið endur- skoðuð fyrst og fremst til að sporna við lyktarmengun frá framleiðslunni en engin umfjöllun var um hugsan- lega lyktarmengun frá fyrirtækinu, hvorki í umhverfismati sem gert var eða í fyrra starfsleyfi. Fyrirtækið stefnir að því að hefja starfsemi í verksmiðjunni á árinu 2019. Undirskriftir og 30 einstaklingar gerðu athugasemdir Nýja starfsleyfistillagan var auglýst frá 3. nóvember 2016 til 2. janúar sl. og bárust m.a. athugasemdir frá 30 ein- staklingum. Þá skrifuðu tæplega 3.500 einstaklingar sem langflestir eru bú- settir í Reykjanesbæ undir undir- skriftalista þar sem farið var fram á að Umhverfisstofnun gæfi ekki út starfs- leyfi fyrir kísilmálmverksmiðju Thor- sil að svo komnu máli. Margir íbúar hafa m.a. lýst áhyggj- um af lykt frá fyrirhugaðri starfsemi verksmiðjunnar þar sem lykt hefur borist frá kísilverksmiðju Sameinaðs Sílikons (United Silicon) í Helguvík og mikil umræða verið um mengun frá henni. Í sumum athugasemdum segja íbúar m.a. að fýla og mengun hafi komið frá verksmiðju Sameinaðs Sílikons og að þeim hrjósi hugur við að fleiri verksmiðjur rísi á svæðinu. Fram kemur í greinargerð Um- hverfisstofnunar að hún hafi breytt nokkrum ákvæðum fyrra starfsleyfis til að koma á móts við ábendingar al- mennings og beri þar helst að nefna ný ákvæði um lykt í greinum 3.19 og 3.20 vegna reynslu sem skapast hefur af hinni verksmiðjunni í Helguvík. Er Thorsil gert að gera ráðstafanir til að varna því að lykt berist frá fram- leiðslustarfseminni þannig að hún finnist ekki utan iðnaðarsvæðisins. „Í grein 3.19 er sérstakt ákvæði um bök- un á fóðringum, en sú grein er samin með það í huga að sá þáttur var ástæða þeirrar mengunar sem frá Sameinuðu Sílikoni kom. Til að árétta frekar að lykt er ekki á meðal þeirra mengunarþátta sem von var á frá þessum rekstri var auk þess sett inn grein 3.20 sem er almenn grein um að varna eigi því að lykt berist frá fram- leiðslunni. Thorsil hefur sett fram minnisblað um bökun á fóðringum sem lá til grundvallar við frágang þessara greina,“ segir í greinargerð vegna útgáfu starfsleyfisins. Verði ekki fyrir óþægindum af uppkeyrslu ofna Í svari Umhverfisstofnunar við einni af mörgum ábendingum íbúa á þá leið að óásættanlegt væri að reisa kísilverksmiðju svo nærri byggð og að lykt og mengun geti haft neikvæð áhrif á framþróun sveitarfélagsins, segir að fyrir liggi greinargerð Thor- sil um ráðstafanir til að takmarka lyktaráhrif. „Gert er ráð fyrir að ofn- ar verði við bökun á fóðringum keyrð- ir á lágu álagi og notað þurrt kolakoks þannig að lykt og reykur verði nær enginn. Með því að hafa þurran jafn- an hita á stigvaxandi álagi þá verður þurrkun og bökun á ofnfóðringu jafn- ari og tekur skemmri tíma. Gert er ráð fyrir að reykjarlykt verði mun minni en ef notað er timbur og dreif- ingin á hugsanlegum raka og rok- gjörnu efni eykst með háum skor- steini að sögn Thorsil sem telur að fólk muni ekki verða fyrir óþægind- um af uppkeyrslu ofna í verksmiðju Thorsil,“ segir í greinargerð Um- hverfisstofnunar. Lykt finnist ekki utan svæðisins  Thorsil ehf. hefur fengið nýtt starfsleyfi frá Umhverfisstofnun fyrir rekstri kísilverksmiðju í Helguvík  Íbúar lýstu í athugasemdum áhyggjum af lykt og mengun vegna reynslu af starfsemi United Silicon Teikning/Skýrsla um mat á umhverfisáhrifum. Iðnaðarsvæði Kísilmálmverksmiðja Thorsil á að taka til starfa um mitt ár 2019. Forsvarsmenn Thorsil ehf. eru ánægðir með að starfsleyfi Um- hverfisstofnunar liggur nú fyrir. Hákon Björnsson framkvæmda- stjóri segir að viðbótarákvæði sem Umhverfisstofnun setur í starfsleyfið séu til komin vegna kvartana í tengslum við gang- setningu verksmiðju United Sili- con. „Við teljum að slíkar uppá- komur þurfi ekki að gerast hjá okkur. Við höldum bara okkar striki.“ Stefnt er að gangsetn- ingu verksmiðjunnar um mitt ár 2019. „Höldum bara okkar striki“ HÁKON BJÖRNSSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.