Morgunblaðið - 08.02.2017, Síða 11

Morgunblaðið - 08.02.2017, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2017 Vertu upplýstur! blattafram.is VIÐ VILJUM GETA TREYST. ÞAÐ TRAUST ROFNAR AUÐVELDLEGA ÞEGAR HIÐ VERSTA GERIST. HVAÐ GERIR ÞÚ ÞEGAR TRAUSTIÐ ROFNAR? Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin 20% afs láttur af öllum CHANEL vörum 8 .-10. feb . miðvikudag, fimmtudag og föstudag í verslun okkar. Gréta Boða kynnir nýju vorlitina frá CHANEL kynning Vetraryfirhafnir - Sparidress - Peysur - Blússur - Bolir Laugavegi 63 • S: 551 4422 Útsöluvörur VERÐHRUN 60-70% afsláttur 60–70% afsláttur í nokkra daga Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Áherslan var ekki á launagreiðsl- urnar heldur frekar áhrifin og hversu víðtækar duldar auglýsingar eru, en það þekkist að laun fyrir að auglýsa vörur á samfélagsmiðli geti farið upp í allt að 500 þúsund krón- ur fyrir einn dag eða nokkrar færslur,“ segir Eva María Schiöth Jóhanns- dóttir, sem skilaði lokaverkefni til BS-prófs í við- skiptafræði um vöruinnsetningar og duldar auglýs- ingar frá sjónarhorni bloggara og snappara. „Vöruinnsetningar og duldar aug- lýsingar fela í sér kynningu vöru- merkja án þess að tekið sé fram að um auglýsingu sé að ræða. Þetta er tvíeggjað sverð. Ávinningurinn get- ur verið mikill, en komist upp að bloggari eða snappari hafi blekkt fylgjendur sína kann sá hinn sami að vera rúinn öllu trausti í kjölfarið.“ Sjálf segist Eva María hafa fengið áhuga á viðfangsefninu í kjölfar eig- in reynslu og vina sinna. „Ég hef orðið vör við breytta af- stöðu vina og kunningja til vöru eða vörumerkis í kjölfar bloggfærslu eða snapps frá þekktum einstaklingum. Allt í einu þurfa allir að kaupa sömu vöruna,“ segir hún. Spurð um niðurstöðu rannsóknar sinnar segir Eva María ljóst að bloggarar/snapparar séu að fá þókn- um frá íslenskum fyrirtækjum fyrir að kynna vörur. „Niðurstöðurnar sýndu einnig að bloggarar/snapparar telja sig ekki bera að fullu ábyrgð á því hvað fylgj- endur þeira gera eftir að færsla þeirra er farin í loftið.“ Dulin auglýsing ólögleg Þórunn Anna Árnadóttir, sviðs- stjóri neytendaréttarsvið Neytenda- stofu, segir duldar auglýsingar og vöruinnsetningar brjóta í bága við lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. „Við höfum sent út leiðbeiningar um umdeildar auglýsingar á heima- síðu okkar. Auk þess höfum við fylgt eftir ábendingum og einstaka blogg- um,“ segir Þórunn og bendir jafn- framt á að það sé alveg á hreinu að koma verði fram að viðkomandi aðili fái greiðslu fyrir kynninguna. „Þá skiptir ekki máli í hverju endurgjaldið er fólgið. Það getur verið varan sjálf eða peningagreiðsla svo eitthvað sé nefnt.“ Duldar auglýs- ingar á sam- félagsmiðlum  Frægir snapparar geta fengið allt að hálfa milljón fyrir að kynna vöru í einn dag Morgunblaðið/Golli Auglýsing Vörukynningar á netinu geta verið duldar auglýsingar. Eva María Schiöth Jóhannsdóttir Föðurnafn Kristjáns Þórðar Snæ- bjarnarsonar, formanns Rafiðn- aðarsambands Íslands, misritaðist í frétt um kjaramál í blaðinu í gær. Beðist er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT Rangt föðurnafn Ekki verður úr sameiningu tveggja sveitarfélaga meðfram Þjórsá í Ár- nessýslu við Rangárvallasýslu. Hug- mynd þess efnis var í skoðun að sameina tvo sveitahreppa, Skeiða- og Gnúpverjahrepp og Flóahrepp við Rangárþing eystra og hafði verið fundað vegna þessa. Flóahreppur dró sig nýverið út úr þeim viðræðum og samþykkti þá sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að láta líka staðar numið. Björgvin Skafti Bjarnason, odd- viti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, segir að þessar sameiningarþreif- ingar hefðu ekki virkað nema allir væru samstiga og því hafi verið al- menn sátt um að leggja þær til hlið- ar. Sameining allrar Árnessýslu Hins vegar er kominn skriður á að skoða sameiningu nánast allrar Ár- nessýslu, en samráðshópur sveitar- félaga sýslunnar ákvað að bjóða út greiningarvinnu og fékk tilboð frá fimm fyrirtækjum. Samþykkt var að ganga til samninga við KPMG og mun fyrirtækið vinna greiningu og gerð sviðsmynda um kosti og galla sameiningar sveitarfélaga í sýslunni. Björgvin Skafti segir að niður- stöðu vinnu KPMG verði að vænta á vormánuðum. „Skýrslan verður fyrst skoðuð hjá sveitarstjórnum og ef hún er alveg ómöguleg verður dæmið slegið af, en annars verður haldið áfram og kosið. Í maí reiknum við þá með að halda íbúafundi þar sem verður farið yfir þetta og svo yrði kosið um samein- ingu á haustmánuðum,“ segir Björg- vin Skafti. Bláskógabyggð var til að byrja með ekki með í samráðshópnum, eitt sveitarfélaga í sýslunni, en ákvað að taka þátt í vinnunni með KPMG þó ekki sé stefnt á sameiningarviðræð- ur þar. Að sögn Björgvins Skafta ætla þeir að nýta vinnuna sem fram- tíðargreiningu á sveitarfélaginu. „Þessi vinna skilar heilmiklu fyrir sveitarfélögin þó ekki verði af sam- einingu, við erum t.d. með frekar hátt flækjustig í byggðasamlögum og slíku og það verður tekinn skurk- ur í að skoða það.“ ingveldur@mbl.is Sameining skoðuð  Farið af stað í greiningarvinnu á sameiningu sveitarfélaga í Árnessýslu  Yrði kosið í haust  Sameinast ekki yfir Þjórsá Morgunblaðið/Árni Sæberg Árnessýsla Selfoss er stærsti bærinn í sýslunni og þjónustar allt svæðið. Landssamband veiðifélaga vekur at- hygli á því að Norway Royal Salmon, aðaleigandi Arctic Sea Farm sem hyggst auka mjög laxeldi á Vest- fjörðum, stundi grænt eldi með ófrjóum laxi í Noregi en óski leyfis til að flytja inn norskan laxastofn til ræktunar á Íslandi með tilheyrandi hættu fyrir hinn villta íslenska laxa- stofn. Skipulagsstofnun kynnti nýlega áform Arctic Sea Farm um 7.600 tonna framleiðslu á laxi í Ísafjarðar- djúpi og óskaði eftir athugasemdum við tillögu að matsáætlun. Fyrr á árinu var kynnt tillaga að matsáætl- un sama fyrirtækis vegna 4.000 tonna laxaframleiðslu í sjókvíum í Arnarfirði. Það er sjálfstætt um- hverfismat sem kemur í kjölfar vinnu sem áður hafði verið lögð í sameiginlegt mat Arctic Sea Farm og Fjarðalax í sama firði. Landssamband veiðifélaga vekur athygli á því í fréttatilkynningu af þessu tilefni að fyrirtækið hafi leyfi til eldis á norskum laxi í Dýra- firði og hyggist nú stórauka laxeldið. Í matsáætluninni komi fram að það vilji leyfi til að flytja inn norskan laxastofn til ræktunar á Íslandi. Fram kemur að í Noregi sé óheimilt að flytja inn erlenda laxastofna vegna hættu á erfðamengun. Í tilkynningunni segir að Norway Royal Salmon ráði nú yfir 10 græn- um eldisleyfum í Noregi en þau séu háð þeim skilyrðum að eingöngu megi nota geldfisk til eldis. „Alvar- legt ástand laxastofna í norskum ám vegna erfðamengunar frá norsku laxeldi hefur leitt til þess að fyrir- tæki fá ekki viðbótarleyfi til að ala frjóa laxa í norskum fjörðum. Norway Royal Salmon ætlar hins vegar að hagnast á eldi frjórra laxa í sjókvíum hér við land með þekktum afleiðingum fyrir hinn villta íslenska laxastofn,“ segir í tilkynningunni. Hætta fyrir laxastofna  Gagnrýna áform um innflutning og eldi á norskum laxi Lax Veiðimenn í fallegri á. mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.