Morgunblaðið - 08.02.2017, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2017
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
gerðu tónlist á makkann þinn
Duet 2
stúdíógæði í lófastærð
One
fyrir einfaldar upptökur
MiC
hágæða upptökur
Jam
alvöru gítarsánd
mikilvægara í enda dagsins að vinna
með góðu og áhugaverðu fólki.“
Sigrún Eva segist ekki ferðast
eins mikið lengur og hún gerði.
„Ég gerði það meira fyrstu árin,
en eftir langan tíma verður þreyt-
andi að ferðast endalaust. Ég tek
helst að mér verkefni í New York,
þótt ég fari líka til Miami, Los Angel-
es, San Francisco og víðar í Banda-
ríkjunum og stundum líka til Suður-
Ameríku og Evrópu.“
Heppin og þakklát
„Það er mjög mikið að gera hjá
mér. Ég reyni að segja eins mikið já
og ég get en maður verður líka
stundum að fá frí. Ég vinn mjög
óreglulega; stundum á hverjum ein-
asta degi, stundum annan hvern dag.
Ég veit yfirleitt ekki fyrr en um sex-
leytið á kvöldin hvað ég er að gera
daginn eftir,“ segir Sigrún Eva, sem
Hildur Loftsdóttir
hildurl@mbl.is
Þ
að er ekki hlaupið að því
að ná í Sigrúnu Evu
Jónsdóttur fyrirsætu,
sem býr og starfar í New
York. Hún gaf blaða-
manni tíma fyrir spjall eftir mynda-
töku fyrir fatamerkið Rag & Bone og
fyrir jógatímann sem hún var á leið-
inni í.
Sigrún Eva hefur unnið fyrir
umboðsskrifstofuna Women 360
Management undanfarið í eitt og
hálft ár, en áður vann hún hjá Wil-
helmina Models.
„Ég var í fríi í New York með
foreldrum mínum og við vorum að
versla í Soho þegar útsendari um-
boðskrifstofunnar pikkaði í mig og
gaf mér nafnspjaldið sitt. Daginn eft-
ir fór ég og hitti aðstandendur Wil-
helmina Models. Sumarið eftir, þeg-
ar ég var 19 ára, vann ég fyrir þau,
kláraði síðan menntaskólann heima
og flutti hingað út eftir stúdents-
próf,“ segir Sigrún Eva, sem sér ekki
eftir þeirri ákvörðun, enda er hún
ánægð í starfi og á einnig bandarísk-
an kærasta sem var áður fyrirsæta
en vinnur núna í hugbúnaðargeir-
anum.
Gaman að vinna fyrir GAP
Sigrún Eva vinnur fyrir vinsæl
tískumerki eins og GAP, Rag and
Bone, Adidas og Free People, og
stórar verslanakeðjur eins og Saks
Fifth Ave og Target. „Mér finnst
mjög skemmtilegt að vinna fyrir
GAP, en ég var í myndatöku fyrir
þau síðast í Los Angeles núna í
nóvember. Mér finnst Free People
líka skapandi og fallegt merki og
gaman að vinna fyrir það,“ segir Sig-
rún Eva spurð hver séu uppáhalds-
verkefnin hennar. „Þó svo að mynda-
takan sé flott finnst mér miklu
Fyrirsæta í bestu borginni
Sigrún Eva Jónsdóttir hefur verið fyrirsæta næstum
sex ár í New York, sem hún segir bestu borgina
fyrir fyrirsætustörf. Hún segist notfæra sér öll
tækifæri sem gefast til að læra og kynnast nýjum
hlutum meðfram starfinu.
Ljósmynd/Craig Wetherby
Fótbolti Sigrún Eva æfir fótbolta með liði í Chinatown í New York.
Ljósmynd/Anna Wolf
Forsíðustúlka Sigrún Eva á forsíðu veftímaritsins Valentine.
Sjálfsmynd Sigrúnu Evu þykir
mikilvægast að vinna með góðu og
áhugaverðu fólki.
Małgorzata Dajnowicz verður með
fyrirlestur í dag, miðvikudag, kl. 12 í
stofu 131 í Öskju, náttúrufræðahúsi
HÍ, og nefnist hann Pólsk kvenna-
tímarit á tuttugustu öld. Hún mun
fjalla um mest lesnu kvennatímaritin
sem gefin voru út í Póllandi 1945-
1989. Tímaritin voru víðlesin og
markhópurinn menntakonur sem
bjuggu í borgum. Þegar útgáfa tíma-
ritanna hófst boðuðu þau kommún-
íska hugmyndafræði. Á áttunda ára-
tugnum aðlöguðust pólsku tímaritin
breytingum á kynhlutverkum kvenna
og fyrirmyndirnar sem þau birtu leit-
uðust við að standa jafnfætis karl-
mönnum á ýmsum sviðum sam-
félagsins. Þessar breytingar opnuðu
á nýjar leiðir við að skilgreina kyn-
hlutverk og höfðu mikil áhrif á þær
kvenímyndir sem settar eru fram í
tímaritum sem markaðssett eru fyrir
konur sérstaklega. Á sama tíma jókst
einnig umfjöllun um stjórnmál og fé-
lagsleg málefni í tímaritunum. Á
kommúnistatímanum voru fjölmiðlar
peð í höndum ríkisstjórnarinnar og
tilgangur fjölmiðlaumfjöllunar var að
breiða út stefnu stjórnvalda og
styðja við hið sósíalíska ríki.
Małgorzata Dajnowicz er prófessor
við Háskólann í Białystok í Póllandi
og forstöðumaður Rannsóknarstofu í
kvennafræðum við skólann. Fyrir-
lesturinn, sem haldinn er á ensku, er
öllum opinn.
Hádegisfyrirlestur í dag
Áhrif tímarita
á kvenímyndir
Fyrirlesari Małgorzata Dajnowicz.
Svokölluð dragsjó eru einstaklega
skemmtileg og hressandi í allri sinni
litadýrð og ýkjum. Og nú geta Íslend-
ingar notið slíkrar sýningar, því frá
Brighton til Íslands kemur tvíeyki í
dragi sem ætlar annað kvöld,
fimmtudag 9. febrúar, að setja upp
kabarett eina kvöldstund í Reykjavík.
Þetta mikla ýkjuverk kallar sig
Lydia L’Scabies & Rococo Chanel.
Þeirra sviðsframkoma ku vera engu
öðru lík, og verður viðburður þessi á
Loft hosteli í Bankastræti 7. Hefjast
herlegheitin kl. 21, en gott er að
mæta snemma því gert er ráð fyrir að
allt verði vitlaust, rétt eins og það
varð þegar bresk systir þeirra í dragi,
Crystal Lubrikunt, kom nýlega fram á
Loftinu.
Tvíeykið Lydia L’Scabies & Rococo
Chanel hefur orð á sér fyrir að vera
nokkuð hrollvekjandi, og stendur til
að sýna gestum inn í nýjan dimman
heim. Í ummælum sem vitnað er til
segir meðal annars að tvíeyki þetta
dansi á hárréttri línu milli kabaretts
og hryllings. Leikur þeirra er sagður
snilldarlegur um leið og hann er
hrollvekjandi. Nú er lag að kynna sér
þessar næturverur annað kvöld og
ekki skemmir fyrir að ókeypis er inn á
sýninguna.
Lydia L’Scabies & Rococo Chanel sýna á Loftinu í kvöld
Breskt dragtvíeyki kemur til
Reykjavíkur í öllu sínu veldi
Drag Sýning Lydia og Rococco er blanda af kabarett og nettum hryllingi.