Morgunblaðið - 08.02.2017, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2017
8. febrúar 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 112.52 113.06 112.79
Sterlingspund 142.46 143.16 142.81
Kanadadalur 86.61 87.11 86.86
Dönsk króna 16.35 16.446 16.398
Norsk króna 13.734 13.814 13.774
Sænsk króna 12.915 12.991 12.953
Svissn. franki 113.88 114.52 114.2
Japanskt jen 1.0011 1.0069 1.004
SDR 153.31 154.23 153.77
Evra 121.63 122.31 121.97
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 156.3691
Hrávöruverð
Gull 1231.0 ($/únsa)
Ál 1811.0 ($/tonn) LME
Hráolía 56.85 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Halldór Benjamín
Þorbergsson, fram-
kvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins,
andmælir þeirri full-
yrðingu Þorsteins
Víglundssonar, vel-
ferðarráðherra og
fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra SA,
þess efnis að ofhitn-
un sé í kortunum á fasteignamarkaði.
Segir Halldór að húsnæðisverð sé enn
undir sögulegu meðaltali.
SA hafna því að ofhitnun
sé á fasteignamarkaði
Halldór Benjamín
Þorbergsson
STUTT
„Við verðum sem samfélag að
ákveða hverskonar störf við viljum
vera með hér á landinu. Viljum við
einblína á störf sem eru algjörlega
undir náttúruauðlindum komin, eða
þau sem stuðla meira að sjálfbærum
hagvexti og borga auk þess hærri
laun og þola betur sveiflur í hagkerf-
inu.“
Jón vill að litið verði á íslenska
þekkingu og hugverk sem auðlind.
„Rétt eins og við viljum vernda aðrar
auðlindir, þá þurfum við að vernda
þessa. Hugverkaréttindi eru tólið
sem fyrirtækin geta notað til að
vernda samkeppnisforskotið sem er
afrakstur nýsköpunar.“
Hann segir að ímynd, orðspor og
viðskiptavild séu orðin gríðarlega
stór hluti af verðmætum fyrirtækja í
dag. „Verðmætasta vörumerki
heims, Google, er til dæmis virði 229
milljarða bandaríkjadala. Virði vöru-
merkja er þannig orðið jafnvel helm-
ingur af virði verðmætustu fyrir-
tækjanna, en markasverð Google er
einmitt um 560 milljarðar dala. Í
þessu samhengi skipta áþreifanlegu
verðmætin nánast engu máli þegar
kemur að samkeppnisforskoti fyrir-
tækjanna. Þetta sést vel á því einnig
að 87% af samanlögðu verðmæti fyr-
irtækja í S&P 500 vísitölunni banda-
rísku eru óáþreifanleg og þar eru
hugverk oft stærstur hluti þeirra. Ef
fyrirtækin huga ekki að sínum hug-
verkamálum og vernda ekki þessi
verðmæti, þá geta þau hreinlega
þurrkast út.“
Spurður um nýleg dæmi þar sem
reynt hafi á hugverkaréttindi hér á
landi, nefnir Jón hið svokallað Sushi
Samba-mál, þar sem alþjóðleg keðja
fékk því framgengt að íslenskur veit-
ingastaður með sama nafn þurfti að
skipta um nafn.
Þúsundir nýrra vöru-
merkja skráðar árlega
Óáþreifanlegt Google er verðmætasta vörumerkið, Apple kemur næst.
Hugverkaréttindi
» Hugverkaiðnaðurinn stend-
ur fyrir 90% af utanríkis-
viðskiptum ESB.
» Í Bandaríkjunum eru fyrir-
tæki í hugverkaiðnaði virði
6.500 milljarða bandaríkja-
dala, en 6.100 milljarða dala
virði í Evrópu.
» 60.000 vörumerki eru skráð
á Íslandi, þar af 7.200 í eigu
Íslendinga.
Vernda orðspor og ímynd 60 þúsund vörumerki
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Þúsundir erlendra fyrirtækja sjá sér
hag í því árlega að skrá vörumerki
sín hjá íslensku Einkaleyfastofunni, í
þeim tilgangi að vernda orðspor sitt
og ímynd hér á landi.
Mikil aukning hefur einnig orðið á
alþjóðavettvangi síðustu ár í skrán-
ingu hugverka-
réttinda, eins og
fram kom í máli
Jóns Gunnars-
sonar, samskipta-
fulltrúa Einka-
leyfastofu, á
nýafstaðinni UT-
messu.
„Það er mikil
aukning á skrán-
ingu vörumerkja
um allan heim.
Árið 2015 voru tæplega sex milljónir
umsókna um vörumerki í heiminum
sem er 15% aukning frá árinu á und-
an,“ sagði Jón í samtali við Morg-
unblaðið.
2.838 erlend vörumerki voru skráð
hér á landi á síðasta ári, og 581 ís-
lenskt. Samtals eru skráð vörumerki
á Íslandi nú 58.893 talsins, en þar af
eiga Íslendingar 7.313.
„Það sem þetta segir okkur er að
erlend fyrirtæki sjá sér hag í því að
vernda sitt orðspor og ímynd hér á
landi. Alþjóðleg fyrirtæki horfa
þannig fram á veginn og sjá fyrir sér
að eiga í viðskiptum hér á landi í
framtíðinni.“
Jón segir að vörumerki geti verið
ýmiskonar sýnileg tákn, til dæmis
orð og orðasambönd, myndir (lógó),
heiti á fyrirtækjum, slagorð, umbúð-
ir vöru og fleira.
Þolir betur sveiflur
Jón bætir við að hugverkasköpun
sé orðin stór hluti af hagkerfinu og
ekki sé hægt að hunsa það lengur.
Icelandair Group hagnaðist um
89,1 milljón dollara á síðasta
rekstrarári, jafnvirði 10,1 milljarðs
króna. Felur það í sér samdrátt í
hagnaði sem nemur um 20%, mælt
í dollurum, en hann reyndist árið
2015 111,2 milljónir dollara. Tekjur
félagsins jukust á síðasta ári og
námu tæpum 1,3 milljörðum doll-
ara, eða um 147 milljörðum króna,
samanborið við rúman 1,1 milljarð
dollara árið á undan. Kostnaður
jókst hins vegar verulega milli ára
og fór úr rúmum 900 milljónum
dollara í tæpan 1,1 milljarð dollara,
jafnvirði tæplega 121 milljarðs
króna.
Flutti félagið 600 þúsund fleiri
farþega í millilandaflugi á síðasta
ári en árið 2015 og reyndust þeir
3,7 milljónir talsins.
EBITDA á 4. ársfjórðungi lækk-
aði mjög frá fyrra ári. Reyndist
hún 2,5 milljónir dollara, saman-
borið við 22,9 milljónir dollara á
sama fjórðungi árið 2015. Segir í
tilkynningu frá félaginu að lækkun
meðalfargjalda og sterkara gengi
íslensku krónunnar skýri lakari af-
komu að mestu.
Eiginfjárhlutfall 44%
Eignir félagsins námu tæpum
1,3 milljörðum dollara, jafnvirði
147 milljarða króna um áramót.
Skuldir voru 724 milljónir dollara,
eða 82 milljarðar króna. Eiginfjár-
hlutfall félagsins var 44% í árslok
og handbært fé og markaðsverð-
bréf námu 250 milljónum dollara.
Segir félagið að það geri ráð fyrir
að það muni leiða til 30 milljóna
dollara betri afkomu á ársgrund-
velli, jafnvirði 3,4 milljarða króna,
þegar þær aðgerðir sem það
hyggst ráðast í verða að fullu
komnar til framkvæmda í ársbyrj-
un 2018.
Fleiri kostir fyrir farþega
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
félagsins, segir að þær breytingar
sem félagið kynnti samfara upp-
gjörstölum síðasta árs geti falið í
sér mikil tækifæri fyrir félagið.
„Eftir sem áður bjóðum við við-
skiptavinum þjónustu þar sem allt
er innifalið. Við erum hins vegar
að aðlaga þjónustu okkar að mark-
hópi sem við viljum höfða sterkar
til. Einfaldleikinn höfðar til hóps
viðskiptavina sem vilja púsla sam-
an sinni þjónustu sem getur einnig
verið mismunandi frá einni ferð til
þeirrar næstu. Með breytingunum
stækkum við hóp mögulegra við-
skiptavina og með nýjum enn hag-
kvæmari fargjöldum fáum við auk-
inn sýnileika í dreifileiðum á
netinu.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Flug Björgólfur Jóhannsson segir
að breytingar feli í sér ný tækifæri.
Minni hagnaður Icelandair
Hagnaður ársins 2016 reyndist 20% minni en árið 2015
Rekstrarkostnaður upp um 17% Félagið boðar aðgerðir
● Hlutdeild WOW
air í heildarfjölda
farþega um Kefla-
víkurflugvöll í
janúar var 35% en
var 18% í sama
mánuði í fyrra, að
því er fram kemur
í tilkynningu frá
félaginu. WOW air
flutti 170 þúsund
farþega til og frá
landinu í janúar sem er 237% fjölgun
milli ára. Sætanýting var 85% og
jókst um 3 prósentustig miðað við
sama mánuð í fyrra þrátt fyrir 230%
aukningu á sætaframboði. Fram-
boðnum sætiskílómetrum hjá WOW air
fjölgaði um 284% í janúar milli ára.
WOW air mun frá lokum mars fljúga
tvisvar á dag til London, Parísar og
Amsterdam en félagið hóf áætl-
unarflug til New York í lok nóvember.
Þá bætast Miami og Pittsburgh við í
vor og sumar.
Þriðjungur farþega um
Keflavík með WOW air
WOW Farþega-
fjöldi þrefaldaðist.
Tilboðsverð kr. 75.161,-
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Vitamix S30
• Tvær könnur fylgja 600 ml
drykkjarkanna og 1,2 l kanna
• Stiglaus hraðastýring ásamt
pulse rofa
• Uppskriftarbók fylgir
Hann er mættur!!!
Jón
Gunnarsson