Morgunblaðið - 08.02.2017, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 08.02.2017, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það hrukkumargir afhjörunum hér á landi þegar Trump, forseti Bandaríkjanna, ákvað að stöðva um þriggja mán- aða skeið að íbúar 7 tiltekinna landa fengju óhindraðan aðgang að Banda- ríkjunum. Demókratar vestra höfðu þegar orðið æfir og skipulagt mótmæli víða. Það er ekkert athugavert við það. Það er pólitík og demókratar meta það svo að leið þeirra út úr ósigrum í fylkiskosningum, fulltrúa- og öldungadeildar- kosningum og tap Hvíta húss- ins, sé þessi. Þeir skipuleggja því mótmæli hvenær sem Trump ákveður eitthvað. Og þar sem hann er dugnaðar- forkur, sem að sögn sefur að- eins 4 tíma á sólarhring, er mörgu að mótmæla. Þá er það góð afsökun fyrir demókrata að þeir hafa nokk- uð til síns máls um að fyrr- nefnd aðgerð kunni að skila litlu og jafnvel minna en engu. Augljóst er að hún var flaust- urslega útfærð og kynningin ófullnægjandi. Þetta og fleira getur verið hluti af skýringu þess að demókratar láti eins og þeir séu harmi slegnir og hneykslaðir vegna fyrrnefnds þriggja mánaða frests. Raunar gaf Obama út slíka 6 mánaða frestun á Írak árið 2011 og enginn sagði neitt vestra og á Íslandi fréttu hvorki utanríkisráðuneytið né Píratar af málinu. Demókrat- ar bera fyrir sig að sex mán- aða frestunarmálið hafi með einhverjum óljósum hætti ver- ið eðlisbetra en þriggja mán- aða pásan. Það er orðalag sem þýðir: Obama gerði það og þess vegna er það ekki bara skárra heldur næstum full- komið. Því Obama gerði helst aldrei neitt í slíkum málum og átti þess vegna hrós skilið í hvert skipti sem hann gerði eitthvað. Sú málsbót eigi ekki við um Trump sem sé að næst- um allan sólarhringinn og sendi svo út tístpósta þessar fjórar stundir í svefnrofunum, sem sjáist stundum á tístinu. Menn skilja svo sem tap- sára demókrata gagnvart sigri andstæðinganna í nær öllum þeim kosningum sem fóru fram 8. nóvember sl. En af hverju láta íslenskir demó- kratar í öllum flokkum svona núna? Það veit enginn, en þeir um það. En þeir eru þá heldur betur búnir að fá verkefnið núna, svo að þingið og utan- ríkisráðuneytið verður að all- ar næstu vikur og mánuði, því að Abe, forsætisráðherra Jap- ans, tilkynnti á þriðjudag að Japan tæki ekki við neinum flótta- mönnum eða inn- flytjendum. Abe sagði að Japan léti hagsmuni heima- landsins ganga fyrir. Þess konar hagsmunir munu koma ráða- mönnum hér í opna skjöldu, en þó einkum það, að einhvers staðar sé talið að slíkir hags- munir standi framar því sem henta kann fólki í fjarlægum heimshlutum. Við þessi tíðindi munu þingmenn Pírata sjálf- sagt fara yfir alla tölvuleiki sem þeir hafa spilað til þessa, sem er mikið verk, og kanna hvort fyrirbærið komi fram þar. Íslenska utanríkisráðu- neytið gæti jafnvel skroppið heim frá Brussel til að fletta þessu fyrirbæri upp. En í framhaldi af slíkum aðgerðum mun mikið ganga á. Gera má ráð fyrir að japanski sendi- herrann verði þegar kallaður á teppið og honum rétt harð- orð mótmæli íslenskra stjórn- valda. Þarna er ekki aðeins á ferðinni þriggja mánaða hlé, gert til að fara yfir viðkvæmt mál 7 þjóða, heldur tekur ákvörðun Japana til alls heimsins og mun standa allt þar til Japan hefur komið lagi á tiltekin innanlandsmál. Abe sagði í viðtalinu sl. þriðjudag að hann byndi vonir við að það mundi takast á næstu 50 ár- um. Ríkisútvarpið hefur hamast eins og Pírati yfir hléinu á meðan Bandaríkin finna leiðir til að taka á móti fólki frá löndum þar sem „Íslamska ríkið“ fer sínu fram og stjórn- völd geta ekki veitt sömu upp- lýsingar um innflytjendur, flóttamenn og ferðamenn sem öðrum ríkjum er gert að veita. Vonandi telur enginn að hið faglega „RÚV“ hafi hamast vegna þess að Bandaríkin og þó einkum Trump eigi í hlut. Og vonandi á slíkt enn síður við um þingið og nýja ríkis- stjórn landsins, sem stóð sig síst lakar í málinu en Píratar, en auðvitað ekki betur. Óhugsandi er að langvar- andi andúð á tilteknu ríki hafi ráðið fárinu, þegar um heilagt prinsippmál er að ræða, sem ekki voru tök á að taka upp af sama tilefni árið 2011 þegar allir prinsippmennirnir voru uppteknir við að ganga í Evr- ópusambandið. Því ætti að vera augljóst að Japan verði í erfiðum málum núna, þegar hin faglega ís- lenska réttlætishugsjón fer í gang. Sú nær út fyrir öll mörk og eru landamæri þar sann- arlega innifalin. Japönsk yfirvöld munu taka við flóttamönnum og innflytjendum eftir hálfa öld, ef vel gengur} Miklu stærra mál Í aðdraganda forsetakosninganna vest- an hafs í lok síðasta árs var mikið rætt um störf sem flutt hefðu verið úr landi þegar þarlend fyrirtæki settu upp verksmiðjur í öðrum löndum í leið að ódýrara vinnuafli. Sumir gera því skóna að þetta hafi verið eitt af því sem réð úrslitum í þeim kosningum, en þó að dæmi séu til um það var þessi umræða á villigötum. Obbi starfanna, þrír fjórðu hlutar þeirra, var nefnilega einfald- lega lagður niður vegna vélvæðingar og endur- skipulagningar – vélmennin tóku við og með það verður ekki aftur snúið. Nýlegt dæmi um vélvæðingu er frá Donggu- an í Kína þar sem framleiðandi íhluta í farsíma endurskipulagði og vélvæddi verksmiðju sína svo rækilega að hann gat sagt upp nánast öllu starfsfólkinu – fækkaði því úr 650 í 60 – og framkvæmdastjórinn stefnir að því að þeir verði aðeins 20 áður en langt um líður. Afraksturinn er svo ekki bara minni launakostnaður, heldur jukust afköst líka umtalsvert (250% meiri afköst) og framleiðslugöllum fækkaði líka umtalsvert, fóru úr 25% í innan við 5%. Nú halda eflaust einhverjir að þó að verið sé að reka ófaglært verksmiðjufólk (sem er reyndar margt fag- lært) séu þeir óhultir, en það er öðru nær. Sú var tíðin að lyftuverðir voru í öllum lyftum, símtöl voru afgreidd í gegnum skiptiborð og loftskeytamenn voru á öllum tog- urum, öll ferðalög voru skipulögð af ferðaskrifstofum og allur texti sem birtist í Morgunblaðinu var sleginn inn af setjurum; það var mikil bylting og umdeild þegar blaðamenn tóku að slá sjálfir texta inn í tölvukerfi Moggans skömmu áður en ég hóf þar störf. Fleiri störf munu hverfa á næstu árum og áratugum og sum þeirra eru nánast horfin: kjötiðnaðarmenn, úrsmiðir, gjaldkerar, leigu- bílstjórar, sjúkraliðar, póstberar, lána- fulltrúar, geislafræðingar og svo má lengi telja. Stærsti vogunarsjóður heims er með í smíðum hugbúnað sem á að leysa millistjórn- endur af hólmi – deildarstjóra, verkstjóra, starfsmannastjóra og svo framvegis. Í útvarpsþætti á BBC ræddi þáttarstjórn- andi við lækni sem hafði sterkar skoðanir á því að þrátt fyrir alla vélvæðingu væru engar lík- ur á að nokkuð apparat getið komið í stað læknis (það er margsannað að tölvur eru al- mennt fljótari og nákvæmari við ýmsar sjúk- dómsgreiningar en hámenntaðir og þrautþjálfaðir læknar, sérstaklega ef greina á eftir myndum). Þegar þar var komið sögu sagði maður sem var líka gestur í þættinum og hefur skrifað bók um vélvæðingu starfa: Þetta er einmitt algengt viðkvæði hjá því fólki sem ég ræði við um bókina – öllum finnst það gefa augaleið að störf annarra muni hverfa, en ekki þeirra eigin, því þau séu svo merkileg og einstök. Já, einmitt, hugsaði ég. Eins og tölva muni nokkurn tíma geta skrifað pistil í Morgun- blaðið! arnim@mbl.is (Þessi pistill var skrifaður af iPistill, útgáfa 1.0.) „Árni Matthíasson“ Pistill Vélmenni í veiðihug STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Takmörkuð ökufærni við hérlendar aðstæður BAKSVIÐ Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Ferðamenn frá Ítalíu, Spáni,Kína og Póllandi slasastoftast í umferðinni hér álandi á meðan ferðamenn frá Danmörku, Svíþjóð og Bretlandi lenda í fæstum umferðarslysum. Þetta kemur fram í nýútgefinni skýrslu; Umferðaröryggi erlendra ferðamanna á Íslandi, sem er unnin af Verkfræðistofu Haralds Sigþórs- sonar og af Stefáni Einarssyni með styrk frá Rannsóknarsjóði Vega- gerðarinnar. Markmið verkefnisins var að greina hvaða áhrif sívaxandi fjöldi ferðamanna á Íslandi hefur haft á umferðaröryggi á undan- förnum árum. Á árunum 2002 til og með 2015 slösuðust 1.275 ferða- menn, sem ekki höfðu íslenska kennitölu, í umferðinni á landinu, en slösuðum erlendum ferðamönnum hefur fjölgað í hlutfalli við fjölgun ferðamanna. Slæm færð helsta orsökin Erlendir ferðamenn lenda frek- ar í umferðarslysum yfir vetrarmán- uðina en yfir sumarmánuðina, júní, júlí og ágúst. Þegar helstu orsakir slysa með meiðslum árin 2011 til 2015 eru skoðaðar sést orsaka- samhengi við takmarkaða ökufærni þess sem ekki er vanur akstri við ís- lenskar aðstæður, segir í skýrslunni. Slæm færð er helsta orsökin eins og hjá öllum slösuðum en hjá ferða- mönnunum er algengara að lausa- möl, mjóir vegir, vindhviður, svefn- leysi, ekið á röngum vegahelmingi og gáleysi verði þess valdandi að slys verður. Þá var gerð athugun á tegund- um slysanna árin 2011-2015 og segir í skýrslunni að það veki furðu að tvö algengustu slysin hjá bæði öllum slösuðum og slösuðum ferðamönn- um er útafakstur af beinum vegi hægra og vinstra megin. Erlendu ökumennirnir lenda hlutfallslega oftar í árekstrum við umferð sem kemur á móti á beinum vegi. „Þetta tengist mjög sennilega því að þeir hafa ekki vanist því að aka á svo mjóum vegum í sínu heimalandi. Slys sem vekja athygli meðal er- lendu ferðamannanna eru ökutækja- veltur, en þær eru sennilega oft af- leiðingar of hraðs aksturs miðað við aðstæður, þannig að menn missa stjórn á bifreiðunum. Þá eru tvær tegundir slysa sem vekja athygli vegna þess að þær henda hjá útlend- ingum, en það eru annars vegar slys í eða eftir hægri beygju, út af hægra megin. Einnig slys í eða eftir hægri beygju, út af vinstra megin,“ segir í skýrslunni. Skýrsluhöfundar leggja til að sérstakar rýniathuganir fari fram á leyfilegum hámarkshraða og hraða- merkingum í vegakerfi landsins. Þeir leggja jafnframt til, að kynn- ingarefni verði unnið fyrir bílaleig- ur, þar sem fram komi þekking fjöl- mennustu hópa erlendra ferða- manna í umferðaröryggislegu tilliti og farið verði í gegnum þætti sem teljist sérstakir veikleikar þeirra við akstur í íslensku umhverfi. Þá þyrfti að auka viðbúnað vegna vetrarakst- urs sérstaklega, staðsetja var- úðarmerkingar með góðum fyrir- vara og endurtaka þær og stækka sum skilti við þjóðvegina. Fjöldi slasaðra ferðamanna og fjöldi ferðamanna -prósenta af heild áranna 2002 til 2015 18% 16% 14% 12% 10% 8% 6% 4% 2% 0% Heimild: VHS og Vegagerðin Fjöldi Slasaðir 2002 2004 2006 2008 2010 2012 2014 2016 Fjöldi slasaðra ferða- manna eftir árstíðum Heimild: VHS og Vegagerðin 2002 2016 160 140 120 100 80 60 40 20 0 Sumar Vetur 223 erlendir ferðamenn slösuðust í umferðinni hér á landi árið 2016. 18 létust í umferðarslysum í fyrra og voru tveir ferðamenn þar á meðal. 213 slösuðust árið 2015 og þá voru fimm erlendir ferðamenn meðal þeirra 16 sem létust í umferðar- slysum það ár. 123 ferðamenn slösuðust í umferð- inni 2014 og enginn lést. 2,5 milljónir erlendra ferðamanna er spáð að komi hingað til lands á þessu ári. Þeir voru um 1,7 milljónir 2016 og um 1,3 milljónir 2015. ‹ UMFERÐARSLYS › »

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.