Morgunblaðið - 08.02.2017, Side 26

Morgunblaðið - 08.02.2017, Side 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2017 TE & KAFFI NOTAR EINGÖNGU ÚRVALS KAFFIBAUNIR FRÁ BESTU RÆKTUNARSVÆÐUNUM, SÉRVALDAR OG BRENNDAR AF BRENNSLUMEISTARA. ILMANDI HLUTI AF DEGINUM Íslenskt fjölskyldufyrirtæki og framleiðsla síðan 1984 Jón Ástþór Sigursveinsson, framkvæmdastjóri BílamálunarSigursveins, á 50 ára afmæli í dag. Fyrirtækið sér um tjóna-skoðun, réttingar, rúðuísetningar og bílasprautun. Jón byrjaði að vinna hjá föður sínum, Sigursveini Sigurðssyni, í bílamálun þegar hann var 14 ára gamall og hefur verið í þessum bransa allar götur síðan. Þeir feðgar stofnuðu þetta fyrirtæki, Bíla- málun Sigursveins, árið 2001, en Sigursveinn seldi Jóni sinn hlut í því fyrir fjórum árum. „Við erum fjögur sem vinnum hérna, þar af ein sem vinnur á skrif- stofunni. Það er alltaf nóg að gera og hefur aukist jafnt og þétt síð- ustu misserin með aukinni bílasölu. Áhugamálin mín eru aðallega fjölskyldan. Ég varð afi í fyrsta sinn núna 18. janúar, frábært að eignast litla afastelpu og maður hefur verið að snuddast í kringum það. Ég hef gaman af allri útiveru, fer mikið með syni mínum í göngu- og hjólreiðatúra og einnig hef ég gaman af að ferðast bæði hérlendis og erlendis.“ Jón ætlar ekki að gera neitt sérstakt í tilefni dagsins. „Ég mæti í vinnuna og ætlaði að fara leynt með afmælið en þú ert núna búinn að skemma það,“ segir Jón í gríni við blaðamanninn. „Konan mín verður fimmtug í desember og við höldum sennilega 100 ára afmæli saman á miðju árinu.“ Eiginkona Jóns er Guðný Helga Axelsdóttir viðskiptafræðingur. Börn þeirra eru Sandra Dís, 28 ára, Erla Ástrós 21 árs og Daníel Ást- þór 11 ára. Í vinnugallanum Jón hefur unnið við bílamálun frá unglingsaldri og rekur núna sitt eigið fyrirtæki, Bílamálun Sigursveins. Ætlaði að fara leynt með afmælisdaginn Jón Sigursveinsson er fimmtugur í dag A gnes Löve fæddist í Reykjavík 8.2. 1942 og ólst þar upp. Hún lauk landsprófi frá Gagn- fræðaskólanum við Vonarstræti 1958, stundaði nám við KÍ 1958-60, Tónlistarskóla Reykja- víkur 1954-60, nám við Staatliche Hochschule für Musik í Leipzig 1960-67, lauk einleikara- og kenn- araprófi frá sama skóla 1967, dvaldi við nám við óperudeild Kon- unglega leikhússins í Kaupmanna- höfn 1981, stundaði leiðsögunám við Ferðamálaskóla Íslands 1992 og hefur sótt margvísleg námskeið hjá virtum tónlistarmönnum. Agnes var kennari við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar 1967- 78, lausráðinn hljóðfæraleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands 1971-81, lausráðinn píanóleikari við Þjóð- Agnes Löve, píanóleikari og fyrrv. skólastjóri – 75 ára Heima í stofu Agnes með sonum sínum, Þorsteini og Jóni, tengdadóttur og tveimur barnabörnum. Sinnti tónlistinni með leik, kennslu og stjórnun Brugðið á leik Agnes við píanónið og Reynir með nikkuna á góðri stund. Fáskrúðsfjörður Stef- án Rökkvi fæddist á Sjúkrahúsinu á Ak- ureyri á bóndadaginn, 22. janúar 2016. Hann vó 3.850 grömm og var 52 cm langur. For- eldrar hans eru Tinna Hrönn Smáradóttir og Sigurður Sindri Stef- ánsson. Nýir borgarar Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.