Morgunblaðið - 08.02.2017, Page 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér gengur flest í haginn þessa dag-
ana. Atburðarásin virðist nánast fyrirfram-
ákveðin. Gerir sú vitneskja þig drjúgan með
þig? Líklega, en reyndu að draga dul á það.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur úr fjölmörgum tækifærum að
velja og þarft hvergi að óttast það að þú ráðir
ekki við hlutina. Samvera ykkar skiptir meira
máli en samræður ykkar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ef þú veist ekki hvernig þú átt að
taka á vandamáli, er alltaf möguleiki að bíða
og sjá hvort það hverfi. Miðlaðu hugsunum
þínum til einhvers traustvekjandi og hlustaðu
á svarið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Nú er komið að skuldadögum. Tilfinn-
ingalegur þroski er að vilja að aðrir séu ham-
ingjusamir, jafnvel þótt maður tengi ekki við
það sem veitir þeim hamingjuna.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú er lag að eiga góða stund með vin-
um og vandamönnum. Gerðu það sem til þarf
og ræddu svo við fjölskylduna um þau vanda-
mál sem þarf að leysa.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Forðastu misskilning annarra með því
að setja mál þitt fram með ótvíræðum hætti.
Ekki slæmt! Í kvöld skaltu njóta stöðugleika,
hláturs og hlýju sem þú hefur skapað sjálfum
þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gæðin sem þú glæðir daginn með auka
líkurnar á heppni. Með ótrúlegum skilningi
brúar þú kynslóðabilið einn og sér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú heldur þína ræða að vanda,
en sérð hana í öðru ljósi þegar einhver spyr
þig út úr. Innan fárra ára muntu standa á há-
tindi starfsferils þíns.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Lokaðu þig ekki af frá umheim-
inum þótt þú sért ekki upp á þitt besta.
Gættu þess að blandast ekki persónulega í
málið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Reiddu þig ekki um of á aðra því
þegar til kastanna kemur þá er þetta þitt
hlutverk sem þú berð ábyrgð á. Kannski hef-
ur takmarkið ekki sama aðdráttarafl fyrir þig
og áður.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það getur reynst þér skeinuhætt
að hlaupa í blindni eftir athugasemdum ann-
arra.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vinur eða kunningi lætur ekki vel að
stjórn þessa dagana, sama hvað þú reynir.
Reyndu að halda ró þinni og bíða til morguns.
Sr. Karl Sigurbjörnsson biskupvarð sjötugur 5. febrúar 2017.
Sr. Hjálmar Jónsson sendi honum
þetta ljóð með hamingjuóskum frá
Dómkirkjunni:
Skyggnumst við gegnum tímans tjöld
sem tíminn er stöðugt að prjóna.
Í Vestmannaeyjum er eldgos við völd,
ungur prestur að tóna.
Liðið er fram á aðra öld
og ennþá er Karl að þjóna.
Boðunin einatt beitt og sterk,
bylmingsrödd orðið flytur.
Predikun einnig mjúk og merk
og mildur á henni litur.
Heilagt Guðs orð og hjálparverk
í huganum eftir situr.
Sýnt hefur alúð, dáð og dug
döprum, veikum og klökkum.
Hindurvitnunum vísað á bug
und veraldarkólgubökkum.
Þjónustu alla af heilum hug
og heitum kærleika þökkum.
Þegar ég renndi augunum yfir
bókarkilina í skápnum mínum í gær
stöðvaðist ég við „Bréf til beggja
vina“ eftir Magnús Stefánsson –
Örn Arnarson – þetta skáld sem ég
kunni spjaldanna á milli þegar ég
var strákur. Annar viðtakandinn er
Þórhallur Jóhannesson læknir. Þeir
voru samtíða í Kaupmannahöfn.
Magnús segist aðeins muna að hann
bauð Þórhall velkominn með löngu
kvæði, sem nú sé gleymt, en endaði,
minnir Magnús, á þessu:
Svo verðurðu ætur og óðara sett
í embættistunnu af þér ketið.
Í einu bréfanna er þetta kvæði:
Hafstraumarnir bera
fræ frá strönd að strönd
þó styttist ekki hafið
sem skilur þau lönd.
Brosir sól til sólar
.. í sólkerfa heim‘.
Samt eru þær skildar
af ómælisgeim‘.
Og aldrei, aldrei getur
ást og vinamál
úthafið brúað,
sem skilur sál frá sál.
Þótt sama okið yrði
á allra herðar lagt
aldrei gætu mannshjörtun
slegið í takt.
Og þar er „Á eyðisandi“:
Þegar yfir farið flaut
fram af eyðisandi,
kaus ég heldur hafsins skaut
en hrekjast einn að landi.
Lífið bætir þraut á þraut,
þyngri er seinni vandinn.
Aldan sú sem bátinn braut
bar mig upp á sandinn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Biskup sjötugur og bréf til vinar
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sjá heiminn
í öðru ljósi.
ÉG ÆTLA AÐ REYNA AÐ
VERA MINNA KRÚTT
NEI,
GET ÞAÐ
EKKI
SUMIR DREKAR ERU LJÓTIR! OG
FJÖLÞREIFNIR!
LEYFÐU MÉR
AÐ REYNA…
„ÉG SKAL VIÐURKENNA AÐ ÉG SÉ AÐ BRÁÐNA,
EF HÚN VILL VIÐURKENNA AÐ HÚN SKILUR
ÍSSKÁPINN EFTIR OPINN.“
„SKULDAR HANN ÞÉR ENNÞÁ
ÞENNAN 2.000 KALL?“
HJÓNABANDSRÁÐGJÖF
Fyrir jól kom út ljóðabókin Alheim-urinn o.s.frv. eftir tvo unga höf-
unda sem yrkja saman, Huga Hólm
Guðbjörnsson og Jóhann Ragnars-
son. Kveðskapinn kalla höfundarnir
atómljóð auk þess sem eitt ljóð sé
með fornyrðislagi, eina limru sé að
finna í henni og eina haíku. Þá eru
líka tvær snaggaralegar fundar-
gerðir frá Anarkistafélagi eðlisfræð-
inga. Bókin fór ekki hátt í jóla-
bókaflóðinu, enda var hún ekki
fáanleg í bókabúðum, en Víkverji hef-
ur spurnir af að hún fáist nú í bóka-
búð Máls og menningar við Lauga-
veginn.
x x x
Bókin sjálf er mjög mínímalísk oghafa höfundarnir ekki einu sinni
fyrir því að setja blaðsíðutöl, hvað þá
útgáfustað og ár. Kannski vegna þess
að bókin er tímalaus.
x x x
Á kápu sést sjóndeildarhringur þarsem mætast dimmblátt haf og
grár himinn í fjarska.
x x x
Ljóðin í bókinni eru flest stutt oglaggóð, mörg í spakmælastíl, og
skiptast á húmor og alvara eins og sjá
má á eftirfarandi sýnishornum.
„Ekkert sameinar fólk/jafnmikið/og
ást þeirra/á hatri,“ segir í einu þeirra.
x x x
Í öðru er lífinu líkt við skipsferð þarsem farþegar eru ekki í fyrirrúmi:
„Kæru farþegar/í siglingu með lífs-
ferjum ehf/eru engir björgunarbátar/
og farþegum/er gróflega mismunað/-
Skipstjórinn ykkar.“
x x x
Þeir koma til varnar starfsstéttsem lengi hefur mátt þola illt
umtal: „Það er lægð yfir landinu/allir
fúlir og reiðir/við mig./Þetta er ekki
mér að kenna/ég er bara veðurfræð-
ingur.“
x x x
Og þeir taka sjálfa sig hæfilega al-varlega: „Ég vona að niður-
stöður/úr Pisa könnuninni/versni/
með árunum/því þá mun bókin mín/
seljast betur.“ vikverji@mbl.is
Víkverji
Ekki er hjálpræðið í neinum öðrum og
ekkert annað nafn er mönnum gefið
um víða veröld sem getur frelsað
okkur.“
(Postulasagan 4:12)
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt landÁratuga
reynsla
Langstærstir í viðgerðum og sölu á
Alternatorum og Störturum
Einnig getum við úvegað startara og alternatora
í allskonar smávélar frá Ameríku