Morgunblaðið - 08.02.2017, Side 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2017
Vilhelm Anton Jónsson ereinn þeirra sem lagt hafasitt af mörkum til að geravísindin aðgengileg og
áhugaverð fyrir krakka, fyrst í bóka-
formi en nú einnig á leiksviðinu. Í
Vísindasýningu Villa í leikstjórn
Vignis Rafns Valþórssonar, sem
frumsýnd var á Litla sviði Borgar-
leikhússins, um síðustu helgi, er ætl-
un Villa að gera geggjaðar tilraunir,
varpa ljósi á töfraheim vísindanna og
virkja öflugasta tækið í öllum heimi,
þ.e. ímyndunaraflið.
Villi er ekki fyrr byrjaður á sýn-
ingu sinni en leikkonan Vala Kristín
Eiríksdóttir birtist hugfangin af
gítarleik Villa sem seiddi hana úr
æfingarýminu niður á leiksviðið.
Vala er að vinna einleik sem sam-
settur er af brotum úr þekktum
kvikmyndum og leikritum. Mest fer
þar fyrir meistara Shakespeare og
frægum leikpersónum úr smiðju
skáldsins á borð við Hamlet,
Macbeth, Ríkarð þriðja og Júlíu
Kapúlett sem fullorðnir leikhús-
gestir þekkja iðulega mun betur en
yngri áhorfendur.
Draumur Völu er að einleikurinn
breytist dag einn í söngleik sem inni-
haldi öll bestu söngleikjalög heims
og ekki síst ástardúettinn sem Ewan
McGregor og Nicole Kidman sungu
svo eftirminnilega í kvikmyndinni
Moulin Rouge frá árinu 2001 og
samsettur er úr mörgum af fræg-
ustu ástardúettum síðari ára. Vala á
bara eftir að leysa það hvernig hægt
er að útfæra dúett í einleik!
Með Völu koma tæknitöfrar leik-
hússins og kynnir hún Villa fyrir
mætti lýsingar og hljóðmyndar sem
Magnús Helgi Kristjánsson og
Garðar Borgþórsson leysa af-
skaplega vel af hendi. Leikmynd og
búningar Sigríðar Sunnu Reynis-
dóttur eru vel útfærðir og skapa
leiknum fína umgjörð. Leikmyndin
samanstendur aðallega af grænum
krítartöflum og hvítum tússtöflum
sem luma sumar á skápum þar sem
sjá má ýmis tæki, tilraunaglös og
sýni sem hefði að ósekju mátt nýta
betur í leiknum. Röndóttar buxur
Villa höfðu yfir sér trúðslegan blæ
og missíður hvítur sloppur hans und-
irstrikaði mýtuna um viðutan vís-
indamanninn. Fyrsti búningur Völu
vísaði með skemmtilegum hætti í
karlafatatískuna á tímum Shake-
speare meðan lokabúningurinn kall-
aðist á við rauðan kjól Satine sem
Kidman túlkaði í Moulin Rouge.
Á þeim klukkutíma sem sýningin
tekur sýnir Villi Völu meðal annars
hvernig ryksugufallbyssa virkar,
hvernig nota má loftþrýsting til að
framkvæma ýmsa skemmtilega hluti
og töfrandi eiginleika þurríss. Þegar
Vala hefur bætt við hljóðum og lýs-
ingu tekst þeim að skapa stríðs-
senur, einvígi og ævintýraheima þar
sem lítið er samt skilið eftir fyrir
ímyndunarafl áhorfenda.
Samspil Villa og Völu er skemmti-
legt og afar vel er unnið úr ósættinu
sem kemur upp á milli þeirra eftir að
Vala skemmir óvart sérstaka vél
sem Villi er með í smíðum. Samtal
Villa við sitt innra sjálf var vel út-
fært og óborganlegt að sjá hann
reyna upp á eigin spýtur að ná tök-
um á tækni leikhússins en enda á því
að stökkva milli ljósapolla áður en
hann endaði niðurlútur í snjóbyl.
Vala var orkumikil á sviðinu og
stökk áreynslulaust inn í eintöl sín.
Þrátt fyrir marga góða spretti
virkaði sýningin á köflum óþarflega
brokkgeng jafnt í orku og efnis-
tökum. Ekki bætti úr skák að stóra
ástarsöngatriðið sem sótt var í
Moulin Rouge stóð ekki undir því að
vera sá hápunktur uppgjörsins sem
augljóslega var lagt upp með. Mögu-
lega mætti skrifa það á hljóðnema
leikaranna tveggja sem ekki virtust
virka sem skyldi í laginu, en þess ut-
an hentaði tóntegundin ekki Völu
þar sem hún neyddist til að syngja
óþarflega lágt mestan part lagasyrp-
unnar meðan Villi fór létt með sinn
hluta.
Sem betur fer lumaði leikhóp-
urinn á öðrum efnafræðilegum há-
punkti undir lok sýningar þegar Villi
og Vala bjuggu til svokallað „fíla-
tannkrem“ með miklum bravúr sem
framkallaði eðlilega mikil fagn-
aðarlæti meðal áhorfenda á öllum
aldri. Grunnhugmynd sýningarinnar
um að blanda saman töfrum vísinda
og leikhússins er góð, en þegar upp
var staðið saknaði rýnir þess að vís-
indin og ímyndunaraflið fengju
meira rými en raunin varð.
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Vísindasýning „Villi [Vilhelm Anton Jónsson] er ekki fyrr byrjaður á sýningu sinni en leikkonan Vala Kristín
Eiríksdóttir birtist hugfangin af gítarleik Villa sem seiddi hana úr æfingarýminu niður á leiksviðið,“ segir í rýni.
Töfrar vísindanna
Borgarleikhúsið
Vísindasýning Villa bbbmn
Eftir Vilhelm Anton Jónsson, Völu Krist-
ínu Eiríksdóttur og Vigni Rafn Valþórs-
son. Leikstjórn: Vignir Rafn Valþórsson.
Leikmynd og búningar: Sigríður Sunna
Reynisdóttir. Lýsing og myndband:
Magnús Helgi Kristjánsson. Tónlist: Vil-
helm Anton Jónsson. Hljóð: Garðar
Borgþórsson. Leikgervi: Margrét Bene-
diktsdóttir. Leikarar: Vilhelm Anton
Jónsson og Vala Kristín Eiríksdóttir.
Frumsýning á Litla sviði Borgarleik-
hússins laugardaginn 4. febrúar 2017.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Stofnfundur fé-
lagssamtakanna
Vinir Listasafns-
ins á Akureyri
verður haldinn í
dag, miðviku-
dag, klukkan 17
í Listasafninu,
Ketilhúsi. Á
fundinum geta
áhugasamir velt
fyrir sér hlut-
verki og tilgangi slíkra samtaka
og rætt hugmyndir. Stefnt er á að
meðlimir geti komið með hug-
myndir að fyrirlestrum, mál-
þingum og annarri dagskrá.
Á dagskrá er meðal annars frá-
sögn Rósu Kristínar Júlíusdóttur
af sambærilegri starfsemi lista-
safna í öðrum löndum, og Hlynur
Hallsson safnstjóri segir frá starf-
semi Listasafnsins, framkvæmd-
um við það og framtíðarmögu-
leikum.
Stofna vinafélag
Listasafnsins
Frá sýningu í Lista-
safninu á Akureyri.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Úti að aka (Stóra svið)
Lau 4/3 kl. 20:00 Frums. Sun 12/3 kl. 20:00 5. sýn Fös 24/3 kl. 20:00 aukas.
Sun 5/3 kl. 20:00 2. sýn Fös 17/3 kl. 20:00 6. sýn Lau 25/3 kl. 20:00 9. sýn
Fim 9/3 kl. 20:00 3. sýn Lau 18/3 kl. 20:00 aukas. Sun 26/3 kl. 20:00 10. sýn.
Fös 10/3 kl. 20:00 aukas. Sun 19/3 kl. 20:00 7. sýn Fim 30/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 11/3 kl. 20:00 4. sýn Mið 22/3 kl. 20:00 8. sýn Fös 31/3 kl. 20:00 aukas.
Sprenghlægilegur farsi eins og þeir gerast bestir.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fös 10/2 kl. 20:00 150. s Sun 19/2 kl. 20:00 154. s Lau 8/4 kl. 20:00 158. s
Lau 11/2 kl. 20:00 151. s Fim 23/2 kl. 20:00 155. s Þri 11/4 kl. 20:00 159. s
Fös 17/2 kl. 20:00 152. s Fös 24/2 kl. 20:00 156. s Mið 19/4 kl. 20:00 160. s
Lau 18/2 kl. 20:00 153. s Lau 25/2 kl. 20:00 157. s Lau 22/4 kl. 20:00 161. s
Glimmerbomban heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Lau 11/2 kl. 13:00 32. s Sun 5/3 kl. 13:00 35. s Sun 26/3 kl. 13:00 38. s
Sun 19/2 kl. 13:00 33. s Sun 12/3 kl. 13:00 36. s Lau 1/4 kl. 13:00 39. s
Lau 25/2 kl. 13:00 34. s Sun 19/3 kl. 13:00 37. s Lau 8/4 kl. 13:00 40. s
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Ræman (Nýja sviðið)
Fim 9/2 kl. 20:00 12.sýn
Nýtt verk sem hlaut Pulitzer-verðlaunin 2014! Síðasta sýning!
Hún Pabbi (Litla svið )
Fim 9/2 kl. 20:00 11.sýn Fös 10/2 kl. 20:00 12.sýn
Í samstarfi við leikhópinn Trigger Warning. Síðustu sýningar!
Illska (Litla sviðið)
Fim 2/3 kl. 20:00 Fös 10/3 kl. 20:00
Fös 3/3 kl. 20:00 Lau 11/3 kl. 20:00
Samstarfsverkefni við Óskabörn ógæfunnar
Vísindasýning Villa (Litla svið )
Lau 11/2 kl. 13:00 3. sýn Lau 18/2 kl. 13:00 5. sýn Sun 19/3 kl. 13:00 Táknmáls.
Sun 12/2 kl. 13:00 4. sýn Sun 19/2 kl. 13:00 6. sýn
Ferðalag fyrir börn um töfraheim vísindanna.
Salka Valka (Stóra svið)
Mið 8/2 kl. 20:00 14. sýn Sun 12/2 kl. 20:00 16.sýn Sun 26/2 kl. 20:00 18.sýn
Fim 9/2 kl. 20:00 15 sýn Fim 16/2 kl. 20:00 17.sýn
Ein ástsælasta saga þjóðarinnar í leikstjórn verðlaunaleikstjórans Yönu Ross
#islenskaoperan · Miðasala: opera.is
HRÍFANDI UPPLIFUN
ÓPERA / LEIKRIT EFTIR POULENC & COCTEAU
FRUMSÝNING 9. FEBRÚAR 2017 Í HÖRPU
LEIKGERÐ OG LEIKSTJÓRN:
BRYNHILDUR GUÐJÓNSDÓTTIR
FLYTJENDUR AUÐUR GUNNARSDÓTTIR,
ELVA ÓSK ÓLAFSDÓTTIR OG
EVA ÞYRI HILMARSDÓTTIR
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Djöflaeyjan (Stóra sviðið)
Lau 11/2 kl. 19:30 38.sýn Lau 18/2 kl. 19:30 39.sýn Fös 24/2 kl. 19:30 40.sýn
Kraftmikill söngleikur um skrautlegt mannlíf í braggahverfum Reykjavíkur!
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Fös 10/2 kl. 19:30 38.sýn Lau 18/2 kl. 19:30 41.sýn Fös 24/2 kl. 19:30 44.sýn
Lau 11/2 kl. 19:30 39.sýn Sun 19/2 kl. 19:30 42.sýn
Fös 17/2 kl. 19:30 aukasýn Fim 23/2 kl. 19:30 43.sýn
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Óþelló (Stóra sviðið)
Fim 9/2 kl. 19:30 10.sýn Fim 16/2 kl. 19:30 aukasýn Lau 25/2 kl. 19:30 12.sýn
Fös 10/2 kl. 19:30 aukasýn Fös 17/2 kl. 19:30 11.sýn
Vesturport tekst á nýjan leik á við Shakespeare!
Gott fólk (Kassinn)
Sun 12/2 kl. 19:30 10.sýn Fim 16/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 25/2 kl. 19:30 12.sýn
Síðustu sýningar!
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 12/2 kl. 13:00 4.sýn Sun 19/2 kl. 16:00 aukasýn Sun 5/3 kl. 13:00 10.sýn
Sun 12/2 kl. 16:00 aukasýn Sun 26/2 kl. 13:00 5.sýn Sun 5/3 kl. 16:00 11.sýn
Sun 19/2 kl. 13:00 6.sýn Sun 26/2 kl. 16:00 7.sýn
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Gísli á Uppsölum (Kúlan)
Mið 8/2 kl. 19:30 Lau 11/2 kl. 14:00
Fim 9/2 kl. 19:30 Sun 12/2 kl. 14:00
Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins.
Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 9/2 kl. 20:00 21.sýn Fös 17/2 kl. 20:00 27.sýn Fös 24/2 kl. 20:00 32.sýn
Fös 10/2 kl. 20:30 22.sýn Fös 17/2 kl. 22:30 28.sýn Fös 24/2 kl. 22:30 33.sýn
Fös 10/2 kl. 23:00 23.sýn Lau 18/2 kl. 20:00 29.sýn Lau 25/2 kl. 20:00 34.sýn
Lau 11/2 kl. 20:00 24.sýn Lau 18/2 kl. 22:30 30.sýn Lau 25/2 kl. 22:30 35.sýn
Lau 11/2 kl. 22:30 25.sýn Sun 19/2 kl. 21:00 aukasýn Fim 2/3 kl. 20:00 36.sýn
Fim 16/2 kl. 20:00 26.sýn Fim 23/2 kl. 20:00 31.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Tímaþjófurinn (Kassinn)
Fös 24/3 kl. 19:30 Frums Fös 31/3 kl. 19:30 5.sýn Sun 9/4 kl. 19:30 9.sýn
Lau 25/3 kl. 19:30 2.sýn Þri 4/4 kl. 19:30 6.sýn Mið 19/4 kl. 19:30 10.sýn
Mið 29/3 kl. 19:30 3.sýn Fim 6/4 kl. 19:30 7.sýn Fös 21/4 kl. 19:30 11.sýn
Fim 30/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 7/4 kl. 19:30 8.sýn
Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi
Húsið (Stóra sviðið)
Lau 11/3 kl. 19:30 Frums Lau 18/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 25/3 kl. 19:30 5.sýn
Fim 16/3 kl. 19:30 2.sýn Fös 24/3 kl. 19:30 4.sýn
Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga.
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 8/2 kl. 20:00 Mið 1/3 kl. 20:00 Mið 22/3 kl. 20:00
Mið 15/2 kl. 20:00 Mið 8/3 kl. 20:00 Mið 29/3 kl. 20:00
Mið 22/2 kl. 20:00 Mið 15/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Íslenski fíllinn (Brúðuloftið)
Lau 11/2 kl. 13:00 Lau 18/2 kl. 13:00
Lau 11/2 kl. 15:00 Lau 18/2 kl. 15:00
Aukasýningar - aðeins þessar sýningar