Morgunblaðið - 08.02.2017, Síða 33

Morgunblaðið - 08.02.2017, Síða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2017 Haraldur Ingi Haraldsson, mynd- listarmaður og bæjarlistamaður Akureyrar í ár, opnar í dag mál- verkasýninguna „Rat Race í Gall- erý H“ sem er, samkvæmt tilkynn- ingu, „til heimilis á Veraldar- vefnum nr. 91“. Sýningin er opin á vefsíðunni hingi.weebly.com/ og á Facebook má finna slóðina með að slá orðið codhead inn í leitarstikuna. Á sýningunni eru 19 málverk, unnin á síðasta eina og hálfa ári, og hafa þau ekki verið sýnd í sýningar- sal áður enda unnin sérstaklega fyrir þessa sýningu. Verkin eru sögð pólitísk og frásagnarleg og fjalla öðru fremur „um hættuleg- ustu farsóttina sem plagað hefur mannkynið: græðgi og valdafíkn“. Haraldur notar akrýlliti og málar á grafíska filmu með pappírsbaki og er sýningin hluti af myndheimi sem Haraldur hefur verið að þróa frá því um 2000 og kallar Codhead. Haraldur Ingi er menntaður í myndlist og sagnfræði frá Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands, Há- skóla Íslands og AKI Akademie Voor Beeldende Kunst í Enschede í Hollandi og Die Vrije Academie Psychopolis í Haag í Hollandi. Hann hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í sam- sýningum. Málverkasýning Haraldar Inga á vefnum Dans Eitt verka Haraldar Inga á vefsýn- ingunni, Dans hinna særðu þorska. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Myndlistartvíæringurinn Moment- um hefst í bænum Moss í Noregi á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga, 17. júní, og stendur hann yfir til 11. október. Nú hefur vefsíða tvíærings- ins, sem er sá níundi í röðinni, verið opnuð (slóðin er momentum9.no) og liggur því fyr- ir hverjir munu sýna og hverjar eru áherslur og hugmyndir sýn- ingarstjóranna. Þeir eru fimm talsins og fulltrúi Íslands mynd- listarmaðurinn Jón B.K. Ransu. Hinir eru Ulrika Flink frá Svíþjóð, Ilari Laamanen frá Finnlandi, Jacob Lillemose frá Danmörku og Gunhild Moe frá Nor- egi. Momentum er ein stærsta sýning sem haldin er á Norðurlöndunum á samtímamyndlist og teygir sig víða um borgina Moss, innandyra sem utan. Jón segir um 40 listamenn sýna verk sín á tvíæringnum og að þeir séu ekki allir myndlistarmenn. Meðal sýnenda megi m.a. finna höf- und skáldsagna sem byggja á mynd- um (e. graphic novelist) og hönnuði. „Búi Aðalsteinsson er vöruhönnuður og Public Dreaming er dúett arki- tekts og listfræðings,“ nefnir Jón sem dæmi. „Svo erum við með H. R. Giger, þann sem hannaði geim- veruna í kvikmyndinni Alien. Hann var auðvitað málari en við ætlum að sýna hannaða hluti eftir hann sem hafa lítið verið sýndir í myndlistar- samhengi. Málverkin hans hafa þá frekar verið sýnd,“ bætir Jón við. Orðaleikur -Talandi um Alien þá er útgangs- punktur tvíæringsins „alienation“ … „Já, eða titillinn er Alienation og útgangspunkturinn „alien encoun- ters“. Þýðingin á alienation er mjög lokuð á íslensku, „firring“, sem er einhver marxísk merking. Marx var að velta fyrir sér alienation út frá kapítalisma og svoleiðis. Titillinn er ákveðinn orðaleikur, leikur með orð- in alien og nation og svo alienation. Alien er auðvitað eitthvað sem er framandi, einhvers staðar annars staðar frá og kannski erum við að leika okkur svolítið með það. Það getur verið eitthvað utan úr geimn- um en svo eru líka listamenn eins og Wael Shawky frá Egyptalandi sem er að vinna með kristinn og arab- ískan kúltúr. Það er líka ákveðið „al- ien“. Alien getur líka verið sá sem býr hinum megin við landamærin, eins og í Bandaríkjunum þar sem á að byggja stóran vegg til að halda þeim frá. Þeim sem kallaðir eru „il- legal aliens“,“ útskýrir Jón. -Getur þetta líka átt við þá sem eru utan við normið? „Ja, jafnvel ekki utan við normið heldur það sem er okkur að ein- hverju leyti framandi. Frankenstein er t.d. alien fyrir okkur þannig að við tökum þetta svolítið á þeim nótum,“ segir Jón og bætir við að hugmyndin um alien og alienation eigi vel við á vorum dögum, eftir að Donald Trump tók við embætti Bandaríkja- forseta. Hvað er hið norræna? Sem fyrr segir eru sýningar- stjórar tvíæringsins fimm og segir Jón að þeir, auk fjölda annarra, hafi verið beðnir um að koma með tillögu að sýningu og segja frá því hvernig þeim þætti spennandi að fjalla um hið norræna. „Ég gerði það, var valinn og fór svo að hitta hitt fólkið. Við vissum í sjálfu sér ekki af hverju við vorum valin saman, fórum að bera saman okkar tillögur og þær voru ekki einu sinni eins,“ segir Jón og hlær. „Hins vegar var sýn okkar á hið norræna svipuð. Við vorum ekkert sérlega spennt fyrir að fjalla um hið nor- ræna út frá einhverju sögulegu, upp- runa, heldur þótti okkur meira spennandi að skoða hið norræna í samhengi við framtíðina. Miða við ástandið eins og það er hvað varðar innflytjendur, flóttamenn og annað. Hvað er hið norræna í því samhengi og hver er framtíðin? Ég hugsa að það hafi frekar tengt okkur en ann- að,“ segir Jón. Þetta hafi sameinað sýningarstjórana og þeir hafi fundið sameiginlegan flöt í tillögum sínum, ákveðinn áhuga á skáldskap. „Fict- ional list,“ segir Jón og grípur til enskunnar. Skammt frá höfuðborginni Íslendingarnir sem sýna á Mo- mentum 9 eru fyrrnefndur Búi Aðal- steinsson vöruhönnuður, Olga Berg- mann og Anna Hallin sem verða með verkefni sem tengist náttúrusafni Moss, að sögn Jóns, og listmálarinn Ragnar Þórisson. Um 30.000 manns búa í sjávar- bænum Moss og segir Jón að tvíær- ingurinn fari aðallega fram á tveim- ur stöðum, í Momentum kunsthall og Galleri F15 sem er nær sjónum. Þá verða einnig sýnd verk inni í bænum, utan þessara tveggja aðal- sýningarstaða. „Þetta er eins og að fara til Reykjanesbæjar,“ segir Jón um fjarlægðina milli Ósló og Moss. -Það hlýtur að fjölga hressilega í bænum meðan á tvíæringnum stendur? „Já, það gerir það og vonandi enn meira núna en áður,“ segir Jón kím- inn. En ætlar hann að vera með ís- lenska fánann og gasblöðru við setn- ingu tvíæringsins 17. júní? „Ég var að spá í það, já, að vera með fánann og syngja eitthvað,“ segir Jón og hlær. Eitthvað framandi  Jón B.K. Ransu er einn sýningarstjóra tvíæringsins Mo- mentum í Noregi  „Alienation“ er yfirskrift tvíæringsins Jón B.K. Ransu Í Garði Verk eftir Olgu Bergmann og Önnu Hallin frá árinu 2012, innsetn- ing sem þær gerðu í Garði. Olga og Anna sýna saman á Momentum 9. Án titils Hluti olíumálverks án titils í stærðinni 200x175 cm eftir Ragnar Þórisson, frá árinu 2015. Ragnar verður meðal sýnenda á Momentum. Flugnaverksmiðja Verkið Fly Fac- tory eftir Búa Aðalsteinsson, stál- skápur sem lirfur voru ræktaðar í til manneldis. Verkið er frá árinu 2014. Vefsíða Momentum 9: momentum9.no Miðasala og nánari upplýsingar 5% SÝND KL. 5.20 SÝND KL. 8, 10.10 SÝND KL. 10.40 SÝND KL. 8, 10.30 SÝND KL. 5.40 - ísl tal SÝND KL. 6

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.