Morgunblaðið - 30.03.2017, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.03.2017, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 3 0. M A R S 2 0 1 7 Stofnað 1913  76. tölublað  105. árgangur  ENGAR DJÚPAR RADDIR Í FJÖL- SKYLDUNNI BÖRN FRÆDD UM KVIKMYNDIR AC MILAN STEFNIR TIL HONG KONG HVAÐ ER KVIKMYNDAHÁTÍÐ? 30 VIÐSKIPTAMOGGINNSÖNGGLÖÐ SYSTKIN 12 MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR SÆNGUR- FATNAÐUR SÆNGUR OG KODDAR HEILSURÚM ALLAR STÆRÐIR FUSSENEGGER Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á rúmdýnum. Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þýski bankinn Hauck & Aufhäuser var aldrei í reynd fjárfestir í Búnaðar- bankanum þegar tæplega 46% hlutur ríkisins var seldur í janúar 2003 en því hafði verið haldið fram allt frá upphafi. Og stóð aldrei til. Það er niðurstaða rannsóknarnefndar Alþingis. Hún tel- ur að stjórnvöld hafi skipulega verið blekkt í aðdraganda og kjölfar sölunn- ar. Gögn nefndarinnar sýna að áður en skrifað var undir samninga um kaup S-hópsins svokallaða, undir merkjum Eglu, og íslenska ríkisins um kaup á bankanum voru með leynd gerðir bak- samningar sem fólu í sér og tryggðu að eignarhald þýska bankans var ekki nema að nafninu til. Þátttaka H&A var einungis tímabundið yfirvarp fyrir endanleg yfirráð, áhættu og ávinning annarra aðila af þessum hlut í kaup- unum. Raunverulegur kaupandi er að mati nefndarinnar aflandsfélagið Welling & Partners Limited sem Kaupþing stóð á bak við. Kaupþing fjármagnaði kaupin á hlutnum sem þýski bankinn skráði sig fyrir og tryggði H&A skaðleysi auk þóknunar fyrir að standa í þessum viðskiptum. Annað félagið tengt Kaupþingi Með þessum samningum var Ólafi Ólafssyni í Samskipum, í gegn um af- landsfélag í hans eigu, tryggður helm- ingur þess nettóhagnaðar sem kynni að verða til. Þegar Búnaðarbankinn var sameinaður Kaupþingi varð til rúmlega 100 milljón dollara hagnaður sem rann til aflandsfélags Ólafs og annars aflandsfélags, Dekhill Advis- ors Ltd. Rannsóknarnefnd Alþingis hefur ekki tekist að afla upplýsinga um raunverulega eigendur síðar- nefnda félagsins eða afdrif fjármun- anna en telur ólíklegt annað en að þessi hluti hagnaðarins hafi runnið til aðila sem tengdust Kaupþingi eða að starfsmenn bankans hafi haft vitn- eskju um hverjir nutu ávinningsins. Stjórnvöld gátu ekki varist Rannsakendur lýstu þeirri skoðun sinni á blaðamannafundi í gær að að- koma erlends banka hefði verið grundvallarforsenda þess að gengið var til samninga við S-hópinn um sölu á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum. „Niðurstaða rannsóknarnefndar- innar er skýr um að stjórnvöld hafi verið beitt skipulegum blekkingum í tengslum við sölu Búnaðarbankans ár- ið 2003 varðandi þátt hins þýska banka í kaupunum. Þessum vel und- irbúnu blekkingum gátu stjórnvöld ekki varist enda höfðu þau ekki ástæðu til að gruna kaupendur um þess háttar athæfi,“ segir Geir H. Haarde sem var fjármálaráðherra þegar hlutabréf ríkisins voru seld. Ólafur Ólafsson segir í yfirlýsingu að það sem á fundi rannsóknarnefndar Alþingis hafi verið nefndir baksamn- ingar hafi verið samningar milli einka- aðila sem engin áhrif höfðu á niður- stöðu á sölu ríkisins á Búnaðar- bankanum. „Hvorki ríkissjóður né almenningur voru verr settir vegna þessara samninga, sem rannsóknar- nefndin kýs að kalla blekkingu.“ Morgunblaðið/Golli Rannsakandi Kjartan Bjarni Björgvinsson, formaður rannsóknarnefndar Alþingis, kynnti niðurstöður sínar á fundi með blaðamönnum í gærmorgun. Skipulegar blekkingar  Rannsóknarnefnd sýnir fram á að aldrei stóð til að þýski bankinn fjárfesti í raun í Búnaðarbankanum  Hagnaðurinn rann til Ólafs Ólafssonar og óþekktra aðila M »10, 11, 14 Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, segist hóflega bjartsýnn á að fyrirtækið nái samningi við Akraneskaupstað á næstu mánuðum sem tryggi áframhaldandi vinnslu botnfisks í bæjarfélaginu. Hann segir að hópuppsögn muni taka gildi fyrir 1. júní ef ekki verður komin niður- staða í viðræðurnar í lok maí. „Við munum þurfa að ráðast í uppsagnir fyrir 1. júni ef ekki verður komin ein- hver niðurstaða í viðræðunum sem fær okkur til að gera annað,“ segir Vilhjálmur. Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraness, segir frestun- ina tækifæri. „Ég er bjartsýnn á að við getum fundið leið í sameiningu til þess að láta þetta ganga upp. Ég vil þó taka fram að það er ekkert gefið,“ segir Sævar og bætir jafnframt við að þetta sé gott fyrsta skref sem feli í sér töluverð tækifæri. »6 Hafa til loka maí til að semja  Hópuppsögn verð- ur frestað um sinn  Fágætur 50 króna seðill seldist á dögunum fyrir um þrjár milljónir króna og fengu færri en vildu. Seð- illinn var gefinn út fyrir ríkissjóð Íslands árið 1925. Kristján X., kon- ungur Íslands og Danmerkur, prýð- ir framhliðina og sjálf fjallkonan trónir á bakhlið. „Ég veit af 7-8 öðr- um svona seðlum auk þeirra ein- taka sem Seðlabankinn á. 50 krón- ur voru hæsta verðgildi íslenskra peninga á þessum tíma,“ segir Þór- arinn St. Halldórsson mynt- kaupmaður sem annaðist sölu á seðlinum sem var í einkaeigu. »4 50 króna seðill seld- ist á þrjár milljónir  Verðmat sem Icora Partners gerði fyrir hóp lífeyrissjóða á Arion banka bendir til að vogunarsjóð- irnir fjórir sem keyptu 29% hlut í bankanum fyrr í þessum mánuði hafi fengið hlutinn á undirverði. Í viðskiptunum var miðað við gengið 0,79 af bókfærðu eigin fé bankans en verðmatið segir bankann standa undir genginu 0,85 af bókfærðu eigin fé. Sé miðað við mat Icora Partners á bankanum er markaðs- verð Arion banka nærri 180 millj- arðar og eignarhlutur ríkissjóðs um 23,4 milljarðar. »Viðskipti Seldur á undirverði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.