Morgunblaðið - 30.03.2017, Blaðsíða 11
11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARS 2017
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Kjartan Bjarni Björgvinsson, dómari
við Héraðsdóm Reykjavíkur, var einn
í rannsóknarnefndinni, sem rannsak-
aði þátttöku þýska bankans Hauck &
Aufhäuser Privatbankiers KGaA í
kaupum á 45,8% eignarhlut ríkisins í
Búnaðarbanka Íslands hf. o.fl. árið
2003.
Þann 1. september í fyrra var Finn-
ur Þór Vilhjálmsson, saksóknari hjá
embætti Héraðssaksóknara, ráðinn
starfsmaður við rannsóknina.
Morgunblaðið forvitnaðist um bak-
grunn þessara manna, með því að slá
á þráðinn til þeirra í gær:
Var hjá EFTA-dómstólnum
„Ég er fertugur lögfræðingur. Ég
hef verið dómari við Héraðsdóm
Reykjavíkur síðan vorið 2015. Frá
2009 til 2015 starfaði ég hjá EFTA-
dómstólnum sem löglærður aðstoðar-
maður dómara og frá 2006 til 2009 var
ég aðstoðarmaður umboðsmanns Al-
þingis,“ segir Kjartan Bjarni.
Hann segir að hann og Finnur Þór
hafi báðir verið í leyfi frá sínum störf-
um, á meðan þeir unnu rannsóknina.
„Ráðherra veitti mér leyfi frá störf-
um, á meðan á þessari rannsókn
stóð,“ sagði Kjartan Bjarni.
Finnur Þór er 39 ára saksóknari
hjá héraðssaksóknara:
„Ég vann áður hjá sérstökum sak-
sóknara, en þar byrjaði ég árið 2011.
Þar áður var ég starfsmaður rann-
sóknarnefndar Alþingis, sem skilaði
stóru rannsóknarskýrslunni árið
2010. Fyrir þann tíma vann ég hjá
Tryggva Gunnarssyni, umboðsmanni
Alþingis,“ sagði Finnur Þór.
Voru báðir hjá umboðsmanni
Finnur Þór segir að áður en hann
hóf störf hjá umboðsmanni Alþingis
hafi hann starfað sem lögmaður um
nokkurra mánaða skeið en á meðan
hann var enn í lögfræðinámi hafi hann
starfað meðfram náminu hjá Ragnari
Aðalsteinssyni og Sigríði Rut á lög-
mannsstofu þeirra, sem í dag heitir
Réttur.
Fram kemur í skýrslunni að meðal
þeirra sem hafa veitt nefndinni lið-
sinni við ráðgjöf og ákveðin verkefni
eru Heiðar Þór Guðnason, kerfis-
stjóri, dr. Páll Hreinsson, dómari við
EFTA-dómstólinn, Sigríður Bene-
diktsdóttir, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs Seðla-
banka Íslands, og Tryggvi
Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis.
Pétur Hrafn Árnason hafði umsjón
með prófarkalestri og Anna Sigríður
Guðfinnsdóttir aðstoðaði nefndina við
útgáfu skýrslunnar. Í skýrslunni er
starfsmönnum Alþingis og starfs-
mönnum héraðssaksóknara þakkað
veitt liðsinni og margháttuð aðstoð.
Morgunblaðið/Golli
Fundur Kjartan Bjarni Björgvinsson og Finnur Þór Vilhjálmsson kynntu
helstu niðurstöður rannsóknar sinnar á blaðamannafundi í gærmorgun.
Þeir önnuðust
rannsóknina
Voru í leyfi frá sínum föstu störfum
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16
VOR 2017
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
Ný sending
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum