Morgunblaðið - 30.03.2017, Síða 23

Morgunblaðið - 30.03.2017, Síða 23
auðvitað til þess merkilega ár- gangs myndlistarnema við Hand- íða- og myndlistarskólann sem hann tilheyrði, þar sem voru m.a. þeir Erró og Hringur Jóhannes- son. Ferill Björns eftir það var sérkennilegur, með prófi í skilta- gerð á sjötta áratugnum í Dan- mörku og öðru prófi í innanhúss- arkitektúr í sama landi, milli þess sem hann vann sem togarasjó- maður. Aldrei fékk ég botn í þetta lífshlaup, en gerði mér helst í hug- arlund að framan af hefði Björn ekki treyst sér til að lifa af mynd- list. Nema hvað hann birtist löngu síðar, endurfæddur myndlistar- maður og kennari, eftir nám og störf á Sléttunum miklu í Banda- ríkjunum, af öllum stöðum. Eiginlega má segja að Björn hafi komið með amerískt víðerni inn í íslenska myndlist, bútað nið- ur að hætti þarlendra málara á borð við Richard Diebenkorn. Oft og tíðum skildu íslenskir áhofend- ur hans ekki hvernig hægt væri að mála landslag án fjalla, var það ekki resept upp á einhvers konar víðáttubrjálæði? En málverk Björns höndluðu víðáttur af yfir- vegun og smekkvísi, breyttu flat- lendi í átakasvæði og blæbrigða- ríkar sneiðmyndir. Litir og línur voru ekki notuð með samræmdum takti íslenskum, heldur sem að- skilin og dýnamísk fyrirbæri að amerískum hætti. Samt fór ekkert á milli mála að þessar myndir spruttu upp úr ís- lensku umhverfi, fyrirbærum sem Björn hafði séð á gönguferðum sínum á hálendinu. Árið 2009 tókst mér að véla Björn til að halda sýningu á verk- um sínum í Listasafni Reykjaness. Þar er mér efst í minni hógværð hans; listamaðurinn var hreint ekki viss um hvort verk hans ættu nokk- urt erindi við aðra en hann sjálfan. En viðtökur þeirra og viðmótið á staðnum glöddu Björn engu að síð- ur og allar götur síðan var hann mér bæði hlýr og ráðhollur. Í of- análag var hann sannkallaður fróð- leiksbrunnur um menningarlífið í landinu á árum áður, og hélt óskertu minni til hins síðasta. Ég vil leyfa mér að senda hug- heilar samúðarkveðjur til fjöl- skyldu hans frá hádegisvinum hans við Skólavörðustíginn. Aðalsteinn Ingólfsson. Við systurnar ólumst upp með eitt af verkum Björns á stofuvegg. Stórt akrýlmálverk af jökli, hvítt, blátt og gult á lit. Verk sem fékk hugann til að reika í allar áttir, hvort sem það tók mann með sér í náttúruna eða til að dvelja í tækninni við það að ímynda sér í hvaða röð hver litur var málaður í verkinu. Verk sem kom ró á hug- ann og maður gat gleymt sér um stund. Verk sem var í raun ekkert ólíkt Birni sjálfum, rólegt, yfirveg- að og alvarlegt en um leið glað- legt, litríkt og djúpt. Björn og pabbi voru góðir vinir. Björn var með djúpt tilfinningalíf og bjó yfir mikilli visku sem maður skynjaði strax sem krakki. Hann kom auga á og orðaði oft hið augljósa sem eldri kynslóðin gerði yfirleitt ekki. Hann var líka húmoristi og sá spaugilegu hliðina á lífinu. Þegar fyrsta barnabarnið fæddist foreldrum okkar fyrir ná- kvæmlega 18 árum var Björn gestur á heimili okkar. Á meðan pabbi og mamma stóðu í símanum og gáfu tengdasyni sínum ná- kvæmar leiðbeiningar um það hvernig leggja ætti bílnum með hvítvoðungnum til að koma í veg fyrir að vindur stæði upp í andlit barnsins brosti Björn út í annað í sófanum inni í stofu og sagði frá því að þegar hann fæddist hefði honum verið komið fyrir í bakara- ofni til að halda á honum hita og honum færð geitamjólk til að halda lífi í honum. Elsku Margrét, börn og fjöl- skylda, við vottum ykkur innilega samúð. Við systurnar minnumst Björns með mikilli hlýju og þakk- læti. Kristín, Hildur og Gerður, dætur Jóns Kr. Hansen. MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARS 2017 ✝ Georg Grund-fjörð Georgs- son rafvirki fæddist í Reykjavík 11. jan- úar 1962. Hann lést á Landspítala í Fossvogi 20. mars 2017. Foreldrar hans voru Georg Krist- ján Georgsson, f. 18. nóvember 1925, d. 2. janúar 2008, og Regína Valbjörg Hallsdóttir, f. 7. september 1936, d. 11. sept- ember 1980. Bræður Georgs eru: a) Reynir, f. 21. janúar 1954, maki Laufey Jónasdóttir, b) Rún- ar, f. 13. mars 1956, maki Auður Sigurðardóttir, og c) Róbert, f. 15. apríl 1975, maki Sædís Bára eyjar eru Tess og Sandos. Georg ólst upp bæði í Keflavík og á Hell- issandi. Georg og Ragnheiður byrjuðu búskap sinn í Keflavík og fluttu átta árum síðar til Hellis- sands þar sem Georg reri út á eigin báti, þremur árum síðar fluttu þau aftur til Keflavíkur. Árið 2014 fluttu þau í úthverfi Kaupmannahafnar þar sem þau áttu heima í rúm tvö ár þar til þau komu aftur heim í janúar síð- astliðnum. Georg stundaði sjóinn á tímabili, vann hjá Rafiðn, Varn- arliðinu og síðast hjá Isavia en þurfti að hætta að vinna árið 2013 vegna veikinda. Georg var fyrrverandi formaður Rafiðn- aðarfélags Suðurnesja og var mjög virkur í félagsstarfi hjá Raf- iðnaðarsambandi Íslands og sat í miðstjórn RSÍ á árunum 2003 til 2011, en hann sinnti fjölmörgum verkefnum í félagsstarfinu allan þann tíma og lengur. Útför Georgs fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 30. mars 2017, og hefst athöfnin kl. 13. Jóhannesdóttir. Georg kvæntist Ragnheiði Ragn- arsdóttur, f. 13. apríl 1965, hún er dóttir Ragnars F. Jóns- sonar og Maríu Einarsdóttur. Börn Georgs og Ragnheið- ar eru: 1) Ragnar Þór, f. 31. mars 1985, maki Sesselja Antonsdóttir. Þau eiga tvö börn, Selmu Mjöll, 9 ára, og Anton Karl, 6 ára. 2) Hildur Björg, f. 13. júní 1990, maki Uni Hrafn Karlsson. Þau eiga tvo drengi, Garðar Örn, 8 ára, og Gabríel Fannar, 6 ára. 3) Fanney Rut, f. 26. ágúst 1992, maki Randy Dishaw, stjúpbörn Fann- Í dag verður Georg Grundfjörð lagður til hinstu hvíldar, en hann lést 20. mars langt fyrir aldur fram. Kynni okkar hófust fyrir 34 ár- um þegar hann og Ragnheiður systir fóru að vera saman. Þau hófu búskap í Keflavík og bjuggu þar í átta ár þar til þau fluttu til Hellissands þar sem þau áttu heima í þrjú ár. Þar reri Georg á eigin báti þar til þau fluttu aftur suður, þá fór hann í Fjölbrautaskólann og klár- aði rafvirkjanámið, fyrir tveimur árum fluttu þau til Kaupmanna- hafnar en fluttu svo til baka í jan- úar síðastliðnum. Georg hafði mjög gaman af því að sigla skútum og sigldi hann með alla fjölskyld- una sex sumur á skútunni Uglu um Miðjarðarhafið, einnig var hann mikið fyrir gönguferðir, gekk á jökla og eitt sinn á Hvannadals- hnjúk. Þau hjónin voru mjög dugleg að fara í útilegur með bakpoka og litla kúlutjaldið sitt sem ég kallaði Ástarhreiðrið. Öll börn hændust að honum, það var eins og hann gengi í barn- dóm þegar hann umgekkst þau, hann var svo barngóður. Barnabörnin dáðu afa sinn, hann var alltaf tilbúinn að fara í leiki með þeim, spilaði við þau, sagði þeim margar sögur, sat oft á gólfinu og eldaði með þeim mat og var þá með kokkahúfu og svuntu, uppáhaldið hjá barnabörnunum var þegar þau fengu að sitja á bak- inu á afa á meðan hann skreið um gólfið og lék öskrandi ljón. Hans heitasta ósk var að fá kis- una Bellu heim frá Kaupmanna- höfn þar sem hún fékk ekki leyfi í janúar þegar þau fluttu heim en nú fékkst grænt ljós um daginn og kom hún heim í gær. Georg var tekinn frá okkur allt of snemma, það þyrmdi yfir okkur og söknuður sem fyllti hugann en efst í huga var þó þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast þessum góða manni. Elsku systir, hvað þú varst sterk þegar við og fleiri vorum hjá Georg þegar hann dró síðasta and- ann og þvílík hetja sem þú ert búin að vera í veikindum hans. Við sendum þér og allri fjöl- skyldunni samúðarkveðjur og kveðjum hann með hlýju í hjarta, minning um einstakan mann mun lifa. Rebekka og Smári. Nú er góður vinur og félagi bú- inn að kveðja okkur allt of snemma. Ég kynntist Gosa árið 2008 þegar ég tók fyrst sæti í mið- stjórn Rafiðnaðarsambands Ís- lands en þá hafði Gosi setið í mið- stjórn í einhver fimm ár og var þá formaður Rafiðnaðarfélags Suður- nesja. Það má með sanni segja að hann litaði umhverfið í kringum sig og lífgaði hressilega upp á það. Með eindæmum skemmtilegur drengur sem þú gast treyst 100% því hann lá svo sannarlega ekki á sínum skoðunum. Hann var alltaf tilbúinn að ráðleggja mér í mínum störfum bæði áður en ég varð for- maður RSÍ sem og eftir. En þegar ég horfi til baka skín svo skýrt í gegn með hvaða hætti hann horfði á málin, hann hafði eigin hagsmuni ekki í fyrsta sæti. Hann hugsaði ætíð um heildarhagsmuni sinna félagsmanna enda fulltrúi þeirra. Ég er nokkuð viss um að fjöl- margir félagsmenn í aðildarfélög- um Rafiðnaðarsambands Íslands hafa hitt og kynnst Gosa, en hann var sérstaklega duglegur að sinna fjölskylduhátíð RSÍ sem haldin er á hverju ári, svo dæmi sé tekið. Gosi var duglegur að leggja hönd á plóg við að halda þessari hátíð gangandi. Eitt veit ég fyrir víst að Gosi var búinn að njóta lífsins, ég dáist allt- af að því hugrekki sem þau hjónin bjuggu yfir því það eru ekki marg- ir sem fylgja ævintýramennskunni eftir með eins miklum dugnaði og þau gerðu saman. Gosi sagði mér ýmsar sögur af siglingaferðum sem þau fóru á árum áður með börnin með sér. Þegar þau fluttust til Danmerkur hélt hann upptekn- um hætti og festi hönd á skútu þar, sem hann síðan dundaði sér við að gera upp. Ég ætlaði alltaf að heim- sækja þau hjónin þegar þau bjuggu í Danmörku; því miður varð ekkert úr því en ég fylgdist vel með þeim í gegnum samfélags- miðlana. Missir fjölskyldunnar er mikill því ég veit að Gosi var mjög dug- legur að sinna fjölskyldunni, börn- um og barnabörnum. Það er mjög sárt að þurfa að horfa á eftir góð- um dreng, hann kvaddi okkur allt of snemma. Kæra Ragnheiður, börn og barnabörn, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur. Fyr- ir hönd Rafiðnaðarsambands Ís- lands þökkum við kærlega fyrir hans dýrmæta framlag til félags- mála þann tíma sem við fengum að njóta krafta hans. Þökkum kær- lega fyrir allar þær ráðleggingar sem komið hafa. Framlag hans Gosa var okkur sérstaklega dýr- mætt. Ykkar framlag í gegnum Gosa verður ætíð metið að verð- leikum. Hvíldu í friði, kæri vinur. Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðn- aðarsambands Íslands. Í vikunni bárust þau sorgartíð- indi að Georg, góður félagi til margra ára, hefði fallið frá. Þrátt fyrir að hann hafi í mörg ár átt við heilsubrest að etja þá snertu þessi tíðindi mann djúpt. Georg ólst upp við sjómanns- störf, foreldrar hans bjuggu fyrst í Keflavík en fluttu þaðan vestur í Rif. Georg hóf nám í rafvirkjun og lauk sveinsprófi 1997. Hann var ákaflega félagslega sinnaður og varð strax virkur félagi innan sam- taka rafiðnaðarmanna í Rafiðnað- armannafélagi Suðurnesja. Georg var ávallt mikill félagshyggjumað- ur og fann sig því vel í þeirri bar- áttu sem fór fram á vegum verka- lýðsfélaganna. Hann var kjörinn í stjórn Rafiðnaðarfélagsins og síð- ar formaður félagsins. Í kjölfar þess var Georg kjörinn í miðstjórn RSÍ á þingi sambandsins 2003 og sat þar til 2011, en þá var heilsa hans farinn að bresta. Þegar ég fór að vinna með Georg kom fljótt fram að þar fór maður með góða yfirsýn, fylginn sér og beinskeyttur í allri fram- setningu skoðana og var sjálfum sér samkvæmur. Þetta eru góðir eiginleikar í félagslegu starfi og er gott og vandræðalaust að vinna með fólki eins og Georg. Hann setti fram skoðanir sínar með rök- um, stundum nokkuð hvössum, en hafði þann góða eiginleika að hlusta á mótrökin og varð þannig virkur þátttakandi í umræðunni um að ná niðurstöðu og stóð síðan með henni. Kom aldrei í bakið á manni í félagslega starfinu. Góður drengur með félagslegan þroska. Samstarf okkar Georgs var vit- anlega mest á sviði kjaramála og við að leysa deilur á vinnustöðum. En við áttum önnur sameiginleg áhugamál því Georg og Ragnheið- ur voru samhent og stunduðu út- vist og göngur. Georg varð mjög áhugasamur og virkur í uppbygg- ingu orlofskerfis rafiðnaðarmanna þann tíma sem hann var í mið- stjórn sambandsins og hann vann hjá sambandinu um tíma við or- lofssvæði sambandsins við Apa- vatn. Eins og margir félagsmanna RSÍ tók hann miklu ástfóstri við orlofssvæðið og þau Ragnheiður dvöldu þar oft. Þegar ég heyrði dánarfrétt Gosa vinar míns rifjuðust upp samverustundir okkar í útilegum í náttúruparadísinni við Apavatn í sumarveðri eins og það getur best orðið. Þær stundir eru eftirminnilegri en átakafundir um kjarasamn- inga. Sumarnóttin togaði mann í göngu með vatnsbakkanum þar sem náttúran töfraði fram ein- hverja kynjatóna sem knúðu mann til þess að setjast og horfa á daginn skila sér inn í nóttina. Spóinn rauf vellandi kyrrðina og hrossagaukurinn renndi sér um og myndaði seiðandi tóna með fjörðum sínum. Allt þetta rann saman við hvell köll álftanna á vatninu. Smám saman breiddi nóttin mjúka töfrablæju sína yfir allt með töfraljómum nætursólar- innar. Fuglarnir höfðu sungið og kvakað allan liðlangan daginn elsku sína yfir ungana sem földu síg í móanum. Þar ríktu engar kreddur og þar var ekkert kúg- andi afl sem myrkvaði tilvist okk- ar. En lífið heldur áfram og þessar dýrmætu minningar á maður um góða vini sem hafa reynst manni vel og verða manni svo verðmætir. Takk, Gosi, fyrir allt sem þú gafst okkur. Við Helena sendum Ragn- heiði, börnum og barnabörnum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi formaður Raf- iðnaðarsambands Íslands. Georg Grundfjörð Georgsson Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐSTEINN VIGNIR GUÐJÓNSSON frá Tunguhálsi, sem lést á heimili sínu föstudaginn 17. mars, verður jarðsunginn frá Sauðárkróks- kirkju laugardaginn 1. apríl klukkan 11. Jarðsett verður í Sauðárkrókskirkjugarði. Inga Björk Sigurðardóttir Valborg Inga Guðsteinsd. Ólafur Kr. Jóhannsson Heiðrún Edda Guðsteinsd. Haraldur Birgisson Guðrún Brynja Guðsteinsd. Gylfi Ingimarsson Ásdís Anna Guðsteinsd. Magnús Kristjánsson og barnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir, stjúpmóðir, dóttir, fósturdóttir og systir, JÓHANNA LÍNDAL JÓNSDÓTTIR, Vesturgötu 157, Akranesi, lést á sjúkrahúsinu á Akranesi 21. mars. Hún verður jarðsungin 31. mars klukkan 13 frá Akraneskirkju. Ari Grétar Björnsson Lilja Petrea Líndal Aradóttir Svanhvít Mjöll Aradóttir Lilja Líndal Gísladóttir, Hjörtur Márus Sveinsson Gísli Baldur Mörköre Kristinn Líndal Jónsson, Fanney Þórðardóttir Márus Líndal Hjartarson, Þura Björk Hreinsdóttir Ólafur Elí Líndal Hjartarson, Berglind Björk Gunnarsdóttir Við þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts og útfarar elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS HANSSONAR pípulagningameistara, Hrafnistu Hafnarfirði, áður Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu á Báruhrauni fyrir mjög góða umönnun. Hafsteinn H. Jónsson Helga Guðbjartsdóttir Guðbjörn H. Jónsson Lydia V. Jónsson Ingibjörg Jónsdóttir Karl Guðmundsson Sesselja Jónsdóttir Hreinn Sigurgeirsson Gísli Jónsson Nora O´Sullivan Jónsson afabörn og langafabörn Ástkær eiginmaður, faðir, sonur, bróðir, mágur og tengdasonur, KRISTINN ÓLAFSSON doktorsnemi í stofnerfðafræði, Breiðvangi 67, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 22. mars. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 31. mars klukkan 15. Ástvinir afþakka blóm vinsamlega en benda þeim sem vildu minnast hans á Hjartavernd. Margrét Arnheiður Jónsdóttir Sigríður Anna Kristinsdóttir Inga Guðrún Kristinsdóttir Ólafur Kristinsson Inga Þórarinsdóttir Helga Ólafsdóttir Lilja Ólafsdóttir Gunnar Sigurðsson Guðlaugur Ólafsson Kristín Sigurðardóttir Hildur Ólafsdóttir Greg Dixon Jón Þorsteinsson Sigríður Anna Þórðardóttir Þökkum af alhug margháttaðan stuðning og vinsemd í veikindum og við andlát og útför móður minnar, dóttur okkar, systur og mágkonu, ÁSDÍSAR MJALLAR GUÐNADÓTTUR. Kjartan Helgi Sigurðsson Lilja Bergsteinsdóttir Guðni Kolbeinsson Hilmir Snær Guðnason Bryndís Jónsdóttir Bergdís Björt Guðnadóttir Kristján Reinholdsson Kristín Berta Guðnadóttir Hörður Sveinsson og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.