Morgunblaðið - 30.03.2017, Side 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARS 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú skalt taka þér tíma til að íhuga
framtíðaráform þín. Ef þau snúa að heilsu
verður heppnin með þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú átt auðvelt með að sannfæra við-
mælendur þína og átt því að notfæra þér
það til hins ítrasta. Láttu það þó ekki stíga
þér til höfuðs heldur gefa þér aukinn byr.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Sköpunargáfa þín er með mesta
móti þessa dagana. Innibyrgðar tilfinningar
eiga til að leita út með slæmum hætti þegar
síst varir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þessi tími er þér gagnlegur til sköp-
unar svo þú skalt reyna að fá sem mest tóm
til þeirra starfa. Láttu skoðun þína í ljós.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú gengur vel að styðja sjálfsbjargar-
viðleitni mannkynsins. Krabbi og meyja eru
liðsmenn þínir á kosmíska sviðinu og hvetja
þig á ólíkan en árangursríkan máta.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það eru einhverjir sem geta ekki stillt
sig um að reyna að gera þér lífið leitt.
Hvíldu þig augnablik ef þú þarft eða fáðu
þér kaffibolla. Svo þarft þú ekki að gera
neitt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú geislar af krafti og ert tilbúin(n) að
hefjast handa hvort sem er í starfi eða
einkalífi. Nú sérðu akkúrat hvernig þið bætið
hvort annað upp. Tilfinningarnar eru hreinar
og klárar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Sparaðu þér ekki ómakið í
rannsóknunum, því án niðurstaða þeirra
verður allt þitt erfiði unnið fyrir gíg. Gerðu
upp við þig hvort vandamálin eru tímabund-
in eða hvort komið er að leiðarlokum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Notaðu helgina til þess að kom-
ast aftur í snertingu við vonir þínar og þrár.
Gefðu þér tíma til að sinna þínum nánustu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vænleg tækifæri bíða þín og þú
skalt ekki hika við að grípa þau sem þér líst
best á. Einblíndu á aðalatriðin og þá mun
lausnin fljótlega liggja í augum uppi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Hlutirnir gerast hraðar í kringum
þig en þér finnst þægilegt. Gönguferð í
morgunsárið hreinsar blóðið og slær
ánægjulegan tón fyrir daginn í heild.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Næstu daga áttu eftir að vekja mun
meiri eftirtekt en áður. Láttu ekki ganga á
hlut þinn og vertu alls óhræddur við að verja
það sem er þitt.
ÍVísnahorni á þriðjudag birtist 6asem Björn Ingólfsson hafði ort á
morgungöngu og önnur eftir Sig-
rúnu Haraldsdóttur. Sigmundur
Benediktsson spurði þau síðan á
Leirnum hvaða reglur giltu um 6u.
Hann hefði aldrei reynt við hana
áður – „gerðist bara hermikráka“:
Langasands ég lötra oft um flæði
lipur aldan flytur glaðan söng,
þar sem bindast örmum grund og
græði
gefur orkan ríkust sáttaföng,
hér má losa hljótt í góðu næði
hulið farg af sál og geði þröng-
u.
Björn brást vel við – sagði að hin
upprunalega 6a væri fimm braglið-
ir tvíliða í hverri ljóðlínu, kvenrím
og karlrím til skiptis: „Þú mundir
þess vegna fá A ef þetta væri á sam-
ræmdu prófi,“ sagði hann og bætti
við að Sigrún hefði samið tíma-
móta-6u um morguninn með nýju
sniði, þrír bragliðir þríliða og allir
með karlrími. – „Ég held ég verði
að gefa henni A líka og + að auki
fyrir frumleika.“
Sigrún gladdist yfir úrskurðinn,
sagðist aldrei áður hafa fengið A+.
– „Ekki ónýtt það :)“
Sigmundur þakkaði Birni útskýr-
inguna og matið:
Við 6u-na held ég samt hætti
þó hugrekkið matið þitt bætti,
það morgunljóst mun ekki hækka
og mér finnst svo dapurt að lækka.
Það hefur komið fram í fréttum
að Ásatrúarmönnum hefur fjölgað
um 50% frá síðasta ári, sem gefur
tilefni til að rifja upp stökur eftir
Sveinbjörn allsherjargoða á Drag-
hálsi. Vel fer á að byrja á þessari:
Dularmögn frá eldri öldum
óspillt þögnin dró að sér;
rímuð sögn frá römmum völdum
rökkurfögnuð veitti mér.
Mér hefur alltaf þótt þessi
skemmtileg:
Í upphafi var orðið
og orðið var hjá þér;
hvað af því hefur orðið
er óljóst fyrir mér.
Þessi staka hefur yfirskriftina
„Þing“:
Fólkið málugt metur hér
meira prjál en arðinn;
reytt var kálið, arfinn er
einn um sálargarðinn.
Þessi er um lygina:
Margur ló, og margur trúði,
mín var róin söm fyrir það.
Harmur þó á hugann knúði
er hjá þér rógurinn settist að.
Eirðarleysi:
Minn hugur úr byggðum til fjalla fer
er friður og stilling bregst,
og annan daginn í eyðisker
í óþoli sínu leggst.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Enn ein 6a og allsherjargoðinn
Í klípu
„ÉG SÉ VÖLLINN, EN HVAR ER
GRUNNURINN?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞÚ ERT HEPPINN AÐ HAFA
VERIÐ Í SÆTISBELTINU ÞÍNU.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
...að brjóta niður múra.
ÞÚ ERT GÓÐUR
STRÁKUR, GRETTIR Ó, JÁ
HVAÐ ER AÐ
KOMA
YFIR MIG?!
SANNUR VÍKINGUR KVEÐUR
ANDSTÆÐINGA SÍNA!
NÁKVÆMLEGA!
ER ÞAÐ EINS OG HINSTA KVEÐJA?
MARKAÐS-
GRUNDVALLARATRIÐI
Þá er vorið að bresta á, enn og aft-ur, og fyrsti vorboðinn kominn.
Ekki er það lóan, heldur það að Vík-
verji fer á stjá og reynir af veikum
mætti að koma sér í form. Hvatinn
að þessu sinni kom frá Frú Víkverja,
sem hafði á orði þegar hún sá okkar
mann í rúllukragapeysu, að Víkverji
væri orðinn helst til of kinnastór fyr-
ir peysuna. Minnti hann því frúna
helst á risastóran hamstur. Það að
Víkverji hafði gleymt að raka sig í
nokkra daga gerði lítið fyrir málstað
hans.
x x x
En hvað á að gera, hvert á að fara?Hver einasta líkamsræktarstöð
á landinu virðist nú reyna að freista
Víkverja með líkamsræktartilboð-
um. Víkverji veit þó ekki alveg hvort
rétta leiðin til að bregðast við kalli
vorsins og „góða veðursins“ um
hreyfingu sé sú að skuldbinda sig í
hálft ár eða svo til þess að fara alltaf
inn í hús að hreyfa sig og svitna fyrir
framan fólk sem allt virðist talsvert
vöðvameira en Víkverji, og sem mun
líklega aldrei kynnast þeirri tilfinn-
ingu hvernig það er að vera ekki í
sínu besta formi, eða því hvernig það
er að vera ekki með hvíttaðar tenn-
ur.
x x x
Það væri því líklega betra fyrirVíkverja ef hann tæki skrefið út
úr líkamsræktarstöðinni og færi
bara út í náttúruna í sumar, til dæm-
is að hlaupa. Sagan sýnir það hins
vegar gjörla að Víkverja er vart
treystandi til þess að halda utan um
sín mál sjálfur. Minnumst þess, að
Víkverji varð ekki eins og stór pera í
laginu og hamstur í framan vegna
þess að hann væri svo duglegur að
taka á því. Víkverji hefur frekar eytt
sínum sælustundum fyrir framan
sjónvarpið og helst með eitthvað sem
honum finnst gott á bragðið, sem
þrengir valmöguleikana talsvert.
x x x
Þannig að Víkverji getur ekki fariðinn, hann getur ekki farið út og
hann má helst ekki borða neitt sem
hann sjálfur hefur valið að leggja sér
til munns. Víkverji er með öðrum
orðum hálfgerður hamstur. Útlitið
hæfir honum því. vikverji@mbl.is
Víkverji
Því að hvar sem tveir eða þrír eru
saman komnir í mínu nafni þar er ég
mitt á meðal þeirra.
(Matt. 18:20)
er komið út, skoðaðu blaðið
á blomaval.is
Blómavals
Páskablað