Morgunblaðið - 30.03.2017, Side 32

Morgunblaðið - 30.03.2017, Side 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARS 2017 Vöruhönnuðurinn Thomas Thwaites heldur fyrirlestur um verk sín í Listaháskóla Íslands í dag kl. 12.15 í fyrirlestrasal A í Þverholti 11. Thwaites sló í gegn á síðasta ári með verkefninu A holiday from being human (GoatMan), þ.e. Frí frá því að vera maður (Geitamaðurinn) en fyrir verkefnið hlaut hann meðal annars Ig Nobel-verðlaunin sem veitt eru fyrir óvenjulegar vísinda- rannsóknir. Í verkefninu setti hann sig í spor geitar, hannaði gervilimi sem gerðu honum kleift að ganga á „fjórum fót- um“ og lifa í geitahjörð í Ölpunum í þrjá daga, að því er fram kemur í til- kynningu. Thwaites hlaut auk þess mikla athygli fyrir verkefnið The Toaster Project þar sem hann bjó til brauðrist frá grunni. Thwaites er gestakennari við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands og leiðbeinir þar nemendum á þriðja ári í vöru- hönnun með lokaverkefni þeirra í vikulangri vinnustofu. Fyrirlesturinn í dag fer fram á ensku og er opinn almenningi. „Geitamaðurinn“ segir frá verkum sínum Ljósmynd/Tim Bowditch Geitamaður Thomas Thwaites hannaði gervilimi sem gerðu honum kleift að ganga á „fjórum fótum“ og lifa í geitahjörð í Ölpunum í þrjá daga. Ljósmynd/Tim Bowditch Vinir Thwaites með geit. borgar í evr- ópska slamm- verkefninu Drop the Mic. Ljóða- slamm felst í flutningi frum- samins ljóðs þar sem áherslan er ekki síður á flutninginn en á ljóðið sjálft. Þannig telst hefðbundinn ljóðaupplestur ekki til ljóðaslamms. Viðtökur áhorf- enda skera úr um hvaða ljóð ber sigur úr býtum og verður notast við hávaðamæli til þess að skera úr um það, skv. tilkynningu. Vald- ið er því í höndum áhorfenda. Ljóðaslamm Borgarbókasafnsins fer fram í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20-22 og munu 15 flytjendar keppa þar í ljóðaflutningi. Keppn- in er nú haldin í fyrsta sinn utan menningarhúsa Borgarbókasafns- ins, en slammið var árlegur við- burður á árunum 2008-2015 á Safnanótt í Borgarbókasafninu í Grófinni en féll niður sökum dræmrar þátttöku árið 2016. Ljóðaslammið hefur nú verið endurvakið í nýjum búningi og um leið verið fært nær evrópskri slammhefð, eins og segir í til- kynningu, en slammstýra verður Vigdís Ósk Howser Harðardóttir, fyrrverandi Reykjavíkurdóttir og fulltrúi Reykjavíkur Bókmennta- Ljóðaslamm í Borgarbókasafninu Vigdís Ósk Howser Harðardóttir Boðið verður upp á samtal við listamennina Hlyn Hallsson og Ósk Vilhjálmsdóttur sem eiga verk í sýningaröðinni Hrinu, í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi í kvöld kl. 20. Rætt verður um tilurð verk- anna, inntak þeirra og útfærslu, auk þess sem horft er til sam- hengis þeirra við önnur verk á ferli listamannanna sem og þróun vídeólistar almennt. Sigurður Trausti Traustason, deildarstjóri safneignar og rannsókna, og Markús Þór Andrésson, deild- arstjóri sýninga og miðlunar, leiða samtalið og er gestum velkomið að taka þátt. Spurt og svarað með Hlyni og Ósk Samtal Hlynur Hallsson og Ósk Vilhjálmsdóttir eiga verk í Hrinu. Erlingskvöld verður haldið í kvöld kl. 20 í Bókasafni Reykjanesbæjar. Slík kvöld eru haldin til heiðurs fyrrverandi bæjarlistamanni Kefla- víkur, Erlingi Jónssyni, og helguð menningu. Í ár koma fram þrír rit- höfundar sem fjalla um sín nýjustu verk og einnig koma fram Söngva- skáld Suðurnesja. Andri Snær Magnason les úr smásagnasafni sínu Sofðu ást mín, Gerður Kristný les úr bókinni Hestvík sem er þriðja skáldsaga hennar fyrir full- orðna og Jónína Leósdóttir les úr nýjustu glæpa- sögu sinni, Stúlkan sem enginn saknaði. Söngvaskáld Suðurnesja flytja svo brot af því besta úr nýjustu tónleikaröð sinni, söngvari er Elmar Þór Hauksson og á píanó leikur Arnór B. Vilbergsson. Kynnir er Dagný Gísladóttir. Andri, Gerður og Jónína á Erlingskvöldi Jónína Leósdóttir Ævintýrið um prins í álögum sem verður ekki aflétt nema stúlka verði ástfangin af honum áð- ur en rós sem geymd er í höll hans deyr. Bönn- uð börnum yngri en 9 ára. Metacritic 66/100 IMDb 6,2/10 Sambíóin Álfabakka 17.10, 18.00, 20.00, 20.50, 22.10 Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00, 22.10 Sambíóin Kringlunni 17.20, 20.00, 22.10 Sambíóin Akureyri 17.10, 20.00 Sambíóin Keflavík 20.00 Beauty and the Beast Chips 16 Þeir Jon Baker og Frank Ponch- erello eru lögreglumenn sem eiga að gæta að því að lögum og reglum sé fylgt en þeir félagar taka starf sitt hins vegar ekkert allt of alvarlega. IMDb 6,2/10 Sambíóin Álfabakka 17.50, 20.00, 22.10, 22.40 Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 22.40 Sambíóin Kringlunni 17.50, 20.00, 22.40 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.50 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.40 Kong: Skull Island 12 Könnunarleiðangur á hina dularfullu Hauskúpueyju snýst fljótlega upp í baráttu upp á líf og dauða. þegar leiðang- ursmenn þurfa að glíma við sjálfan King Kong og önnur skrímsli. Metacritic 63/100 IMDb 7,5/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.40 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.20 Sambíóin Kringlunni 22.40 Sambíóin Akureyri 17.30, 22.10 Sambíóin Keflavík 22.10 Life 16 Vísindamenn um borð á Al- þjóðageimferðamiðstöðinni hafa það markmið að rann- saka fyrstu merki um líf frá öðrum hnetti. IMDb 7,8/10 Smárabíó 17.40, 19.30, 20.00, 22.10, 22.20 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 20.00 Get Out 16 Allison vill kynna Chris fyrir foreldrum sínum, en Chris er hræddur um að foreldrar hennar taki sér ekki vel. Metacritic 83/100 IMDb 8,3/10 Laugarásbíó 20.00, 22.30 Smárabíó 20.10, 22.45 Borgarbíó Akureyri 22.20 Logan 16 Logan er að niðurlotum kominn en þarf að hugsa um hinn heilsulitla Prófessor X. Metacritic 75/100 IMDb 9,0/10 Smárabíó 19.50, 22.30 Borgarbíó Akureyri 22.00 A Dog’s Purpose 12 Metacritic 43/100 IMDb 4,9/10 Sambíóin Kringlunni 17.40 La La Land Morgunblaðið bbbbb Metacritic 93/100 IMDb 8,5/10 Sambíóin Kringlunni 20.00 Fist Fight 12 Metacritic 37/100 IMDb 5,9/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Sambíóin Egilshöll 17.50, 22.30 Hidden Figures Saga kvennana sem á bak við eitt af mikilvægustu af- rekum mannkynssögunnar. Metacritic 74/100 IMDb 7,9/10 Smárabíó 17.00 Háskólabíó 21.00 Borgarbíó Akureyri 17.40 Hjartasteinn Örlagarík þroskasaga sem fjallar um sterka vináttu tveggja drengja. Morgunblaðið bbbbm IMDb 7,9/10 Smárabíó 17.30 Háskólabíó 18.00, 21.00 Split 16 Kevin er klofinn persónuleiki og með 23 persónuleika. Metacritic 62/100 IMDb 7,5/10 Laugarásbíó 22.35 John Wick: Chapter 2 16 Morgunblaðið bbbmn Metacritic 75/100 IMDb 8,6/10 Laugarásbíó 20.00 Madama Butterfly Háskólabíó 18.15 Power Rangers 12 IMDb 7,0/10 Laugarásbíó 17.30, 20.00, 22.15 Smárabíó 16.50, 17.10, 20.00, 22.45 Háskólabíó 18.10 Borgarbíó Akureyri 17.40, 20.00 Rock Dog Metacritic 49/100 IMDb 5,7/10 Sambíóin Álfabakka 18.00 The Lego Batman Movie Morgunblaðið bbbmn Metacritic 75/100 IMDb 7,9/10 Sambíóin Álfabakka 17.40 Stóra stökkið IMDb 6,9/10 Laugarásbíó 17.30 Smárabíó 15.30 Syngdu Metacritic 60/100 IMDb 7,3/10 Smárabíó 15.15 Billi Blikk IMDb 5,2/10 Laugarásbíó 17.30 Toni Erdmann Morgunblaðið bbbbm Metacritic 94/100 IMDb 7,7/10 Bíó Paradís 18.00 Moonlight Morgunblaðið bbbbn Metacritic 99/100 IMDb 8,2/10 Bíó Paradís 20.00 The Other Side of Hope Metacritic 89/100 IMDb 7,7/10 Bíó Paradís 22.30 Gamlinginn 2 IMDb 6,5/10 Gamlinginn fer í ferðalag um alla Evrópu í leit að rúss- neskri gosdrykkjauppskrift Bíó Paradís 18.00 The Midwife IMDb 7,4/10 Bíó Paradís 20.00 Manchester by the Sea 12 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 96/100 IMDb 8,1/10 Bíó Paradís 22.30 Paterson Morgunblaðið bbbbb Metacritic 90/100 IMDb 7,7/10 Bíó Paradís 22.00 Kvikmyndir bíóhúsannambl.is/bio Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.