Morgunblaðið - 21.04.2017, Blaðsíða 4
Húsakostur Byggingarnar nýju eru um 400 fermetrar. Við hönnun þeirra
var þess gætt að þær féllu vel að stórbrotinni náttúru við Vatnajökul.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Nýtt þjónustuhús við Fjallsárlón í
Öræfasveit verður tekið formlega í
notkun á morgun, laugardag. Tæp
fjögur ár eru síðan byrjað var að
bjóða upp á siglingar um lónið sem
er nokkuð vestan við Jökuslá á
Breiðamerkursandi. Þær ferðir
njóta vaxandi vinsælda sem aftur
kallaði á að aðstaða við Fjallsárlón
væri byggð upp og nú er hún komin;
400 fermetra húsakostur þar sem
eru gestamóttaka, veitingastofa og
fleira sem þarf að vera á svona stað.
Glæsileg aðstaða
„Aðstaðan er glæsileg, svo ég segi
sjálfur frá,“ segir Steinþór Arnarson
á Hofi í Öræfum, sem við annan
mann stendur að þessari starfsemi.
Um reksturinn starfrækja þeir
Fjallsárlón ehf. og er uppbyggingin
alfarið kostuð af félaginu. Siglingar
um lónið þar sem notaðir eru slöngu-
bátar skora líka hátt og þúsundir
ferðamanna fara í þær á sumri
hverju.
Fjallsárlón er þjóðlenda í eigu rík-
isins, en löng hefð er fyrir því í
Öræfasveit að það sé nýtt af bænd-
um á Hofi. Þaðan er Steinþór og fyr-
ir vikið hefur hann sterka tengingu
við staðinn. Það að hefja starfsemina
við lónið og byggja þar hús í þjóð-
lendu kallaði á leyfi frá forsæt-
isráðuneytinu svo og Sveitarfé-
laginu Hornafirði.
Vandað til verka
„Þetta var heilmikið ferli að fara í
gegnum og margir komu að málum.
Það var líka mikilvægt að vanda til
verka í öllu tilliti enda er náttúran á
þessum stað stórbrotin og mann-
virki á svæðinu verða að falla að
henni,“ segir Steinþór að síðustu.
Nýbygging við
Fjallsárlón í notkun
Áfangastaður í Öræfasveit Gesta-
móttaka og veitingastofa Siglingar
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2017
ÍSLENSKA KÍSILSTEINEFNIÐ FRÁ GEOSILICA
INNIHELDUR HREINAN JARÐHITAKÍSIL
*Rannsóknir hafa sýnt fram á þessi áhrif, kísilvatnið er fæðubótarefni og kemur ekki í staðinn fyrir lyf.
Nánari upplýsingar má finna á www.geosilica.is
geoSilica kísilvatnið fæst í öllum helstu apótekum,
heilsuvöruverslunum, Hagkaupum, Nettó,
Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica.
KRISTÍN
JÚLÍUSDÓTTIR
„Ég heiti Kristín
og var ráðlagt að
prófa geosilica
vegna hármissis. Fékk nokkra skallabletti líklegast
vegna áfalls og að vera 23 með skalla var ekki
drauma aðstæðurnar! Fyrst leit þetta ekkert
svakalega vel út þar sem hárið virtist ekki ætla að koma til baka. Ég byrjaði að taka
þetta inn á hverjum degi og viti menn. Hárið byrjaði að vaxa á ógnarhraða!
Ég er svo ánægð að þetta gerðist svona fljótt því læknarnir sögðu að kannski kemur
það aftur kannski ekki og ekki til eitthvað úrræði sem er betra en annað.
En geosilica fékk allavega hárið til þess að vaxa!
Hér er smá fyrir og eftir myndir. “
• Styrkir bandvefinn*
• Stuðlar að þéttleika í beinum*
• Styrkir hár og neglur*
• Stuðlar að betri myndun kollagens
fyrir sléttari og fallegri húð*
staklega skilgreindum verslunar- og
þjónustukjörnum.
„Í þessu tiltekna máli reyndi
borgina að koma til móts við eig-
endur staðarins og sýna sveigj-
anleika. Því var farið í sérstaka
grenndarkynningu, en þar komu
fram mótmæli íbúa í nágrenni stað-
arins,“ segir hann.
Hjálmar segir að í ljósi aukinnar
ferðaþjónustu í Reykjavík hafi
borgin skoðað fjölgun aðalgatna í
vetur og m.a. komi til greina að
hluti Ægisíðu falli þar undir.
„Sú vinna er algjörlega aðskilin
þessu einstaka máli en gæti orðið til
þess að veitingastaðurinn Borðið
fengi vínveitingaleyfi.“
svæðið við veitingastaðinn Borðið
flokkað sem nærþjónustukjarni.
Hjálmar Sveinsson, borg-
arfulltrúi og formaður umhverfis-
og skipulagsráðs, segist harma nið-
urstöðuna, en bendir á að borgin
verði að fylgja reglum aðalskipu-
lagsins.
„Niðurstaðan er vissulega úr
takti við stefnu borgarinnar að auka
fjölbreytni og bæta þjónustu inni í
hverfum en við verðum að fylgja
reglum samþykkts aðalskipulags.
Annað væri ekki góð stjórnsýsla,“
segir Hjálmar og bendir á að skil-
greining á aðalgötum hafi verið við-
leitni borgarinnar að koma til móts
við rekstur annars staðar en á sér-
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
„Ein forsenda þess að við keyptum
húsnæðið og settum upp veitinga-
staðinn á þessum tiltekna stað var
það sem við töldum vera vilyrði
borgarinnar fyrir því að fá vínveit-
ingaleyfi,“ segir Friðrik Ársælsson,
einn eigenda veitingastaðarins
Borðsins við Ægisíðu í Vesturbæ
Reykjavíkur.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og
auðlindamála hafnaði kröfu eigenda
staðarins um að breyta rekstri hans
úr flokki I í flokk II en við það
hefði staðurinn fengið leyfi til að
selja vín til klukkan ellefu á kvöld-
in.
„Við viljum geta boðið við-
skiptavinum okkar upp á léttvín og
bjór með matnum og gerðum ráð
fyrir því í viðskiptaáætlun okkar.
Sambærilegir staðir sem eru í
íbúðahverfum í Reykjavík hafa
fengið vínveitingaleyfi,“ segir Frið-
rik, en þess má geta að þar sem
veitingastaðurinn er til húsa hefur
verið verslunar- og veitingarekstur
í hátt í 70 ár, m.a. staðir með næt-
ursöluleyfi.
Ægisíða ekki aðalgata
Forsenda þess að ekki fékkst vín-
veitingaleyfi liggur í aðalskipulagi
Reykjavíkurborgar, en Ægisíða er
hvorki skilgreind sem aðalgata né
Ljósmynd/Marino Thorlacius
Veitingahús Staðurinn stendur við Ægisíðu í Vesturbæ Reykjavíkur.
Gætu fengið leyfið síðar
Veitingastaðurinn Borðið fær ekki vínveitingaleyfi þótt
sambærilegir staðir hafi slíkt Borgin harmar málið
Umferðartafir
urðu á Holta-
vörðuheiði í gær
þar sem unnið
var að því að
bjarga flutn-
ingabíl sem fór
út af á heiðinni á
miðvikudag.
Gunnar Örn Jak-
obsson, formað-
ur Björgunar-
sveitarinnar Húna, sagði aðgerðir
hafa gengið hægt en vel.
„Verkefnið hófst klukkan ellefu
og síðustu bílar voru að koma í hús
núna rétt fyrir níu.“
Tafir voru á Holta-
vörðuheiði vegna
björgunarstarfa
Ófærð Margir lentu
í klandri á heiðinni.
Lögreglan á Suðurlandi fékk í lok
árs 2016 afhenta tvo nýja fjórhjóla-
drifna og vel tækjum búna lög-
reglubíla af gerðinni Skoda Superb
auk þess sem embættið er með öfl-
ugan Ford Transit sem gerður er
til umferðareftirlits. Einnig eru lög-
reglumenn á Suðurlandi með þrjár
breyttar jeppabifreiðar sem sinna
m.a. eftirliti á hálendinu.
Kemur þetta fram í athugasemd-
um frá bílamiðstöð ríkislögreglu-
stjóra (RLS), en tilefnið er ummæli
Sveins Kr. Rúnarssonar, yfirlög-
regluþjóns á Suðurlandi, í Morg-
unblaðinu í gær. Þar sagði hann
nauðsynlegt að endurnýja bíla al-
mennrar lögreglu og að fimm af bíl-
um lögreglunnar á Suðurlandi væru
komnir á endurnýjunartíma. Þá
sagði Sveinn Kr. ólíklegt að þeir
fengju nema einum lögreglubíl
skipt út í ár.
Fá einnig bíl frá sérsveit RLS
Í athugasemdum bílamiðstöðvar
RLS segir einnig að lagt hafi verið
út í mikinn kostnað við að breyta
áðurnefndum jeppabifreiðum að ósk
lögreglustjórans á Suðurlandi.
„Þá er lögreglan með þrjá ágætis
bíla [af gerðinni] Skoda Scout 4x4
árgerð 2011-2012. Einn jepplingur
er í notkun hjá þeim og er hann
orðinn lúinn og fer úr umferð á
næstunni,“ segir í athugasemdum
bílamiðstöðvar RLS.
Er þar jafnframt tekið fram að
lögreglumenn á Suðurlandi fái brátt
nýjan sérútbúinn og sérhannaðan
lögreglubíl á þessu ári auk þess
sem þeir fá einn af bílum sérsveitar
ríkislögreglustjóra í maí næstkom-
andi.
„Samkvæmt kaupáætlun ársins
2017 er fyrirhugað að kaupa níu
sérútbúna lögreglubíla fyrir lög-
regluembættin á landsbyggðinni,
þrjú sérútbúin lögreglubifhjól og
tvo sendibíla fyrir lögregluna á höf-
uðborgarsvæðinu,“ segir einnig í at-
hugasemdum bílamiðstöðvar RLS.
Þrír nýir á skömmum tíma
Lögreglan á Suðurlandi fékk tvo nýja lögreglubíla í lok árs 2016 og fær einn
afhentan í ár Fyrirhugað að kaupa níu bíla og þrjú bifhjól fyrir landsbyggðina
Það var rífandi stemning í Eldborgarsal Hörpu í gær-
kvöldi þegar breski grínistinn Ricky Gervais var þar
með sýninguna Humanity. Þetta var fyrsta uppistands-
sýning Gervais í sjö ár, en hann á að baki langan og
fjölbreyttan feril sem skemmtikraftur. Hörpugestir
gengu því að góðu vísu í gærkvöldi og skemmtu sér vel.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gestir gengu að góðu vísu hjá Gervais