Morgunblaðið - 21.04.2017, Síða 13
Heilluð af mokkaskinni Fyrirsætan Heiða Guðný tekur sig vel út með vörur Sigríðar Sunnevu frá WETLAND, herðaslár, töskur, trefla og aðra fylgihluti sem gerðir eru úr íslensku mokkaskinni.
spurði hvort ég væri til í að sitja
fyrir á myndum hjá henni með
mokkavörurnar hennar sem hún
hannar undir merkjum WET-
LAND. Það var skemmtilega súr-
realískt í hvaða aðstæðum ég var
þegar hún hringdi í mig, þá var
ekkert fjarri mér en að sitja fyrir
á myndum. Ég var í bílnum mín-
um í fósturtalningaferðalagi ásamt
lærlingnum Guðrúnu Hildi og
schäfer-hundinum mínum. Við vor-
um öll frekar hárug, sveitt og skít-
ug, angandi af viðvarandi fjár-
húsalykt, með húfurnar ofan í
augum og rauðeygar af þreytu,“
segir Heiða og bætir við að vissu-
lega hafi hún líka sagt já af því
hún sé veik fyrir mokkaflíkum.
Vöðvahlunkur með vinnu-
hendur getur setið fyrir
„Í gamla daga fékk ég varla
meira en nokkrar myndir og kvef
að launum fyrir að sitja fyrir, en
Sigríður Sunneva borgaði mér í
dýrindis mokkaflík, svo það var
ekki erfitt að segja já við þessu
verkefni. Mér finnst líka heiður að
fá að taka þátt í því sem hún er að
gera í sinni hönnun með þessa af-
urð sauðkindarinnar.“
Myndatakan fór fram í lok
mars, svo Heiða náði af sér mesta
fósturtalningalúkkinu áður en til
hennar kom, eins og hún orðar það
sjálf.
„Ég sagði Sigríði Sunnevu að
hún yrði að athuga hvort hún gæti
notað mig því ég væri ekki með
fyrirsætulíkama, ég væri meira
eins og herðabreiður spjótkastari.
Ég væri vöðvahlunkur með vinnu-
hendur. En henni fannst það engin
fyrirstaða. Þegar hún vildi hafa
mig berleggjaða á einhverjum
myndum sagði ég henni að ég væri
öll í marblettum því ég var nýbúin
að rýja, en henni fannst það
bara betra,“ segir Heiða og
hlær. „Það er sem sagt al-
veg hægt að vera módel þó
að maður sé með hendur
eins og stunguskóflur og
lærin þakin marblettum
eftir kindahorn.“
Góð tilfinning
að fljótið
fái að renna
ósnert
Heiða hefur
árum saman bar-
ist fyrir því að
ekki verði virkjað
í landi hennar og
heiðarlöndum
Skaftártung-
unnar, og stend-
ur sú barátta
enn.
„Hugmynd
að Búlands-
virkjun er í
verndarflokki í
rammaáætlun
þrjú, eins og hún
er núna fyrir
þinginu. Ég sendi
athugasemdir við
þingsályktunar-
tillöguna og fagna
því að þetta sé í verndarflokki en
gerði athugasemdir við hugmyndir
um Hólmsárvirkjun, sem er enn í
biðflokki. Það þarf blessunarlega
mikið að gerast til að Búlands-
virkjun fari úr verndarflokki fyrir
þinginu, svo ég leyfi mér að vera
töluvert bjartsýn.
Á nýársdagsmorgun á þessu
ári var mjög fallegt veður hér og
ég heyrði í fljótinu, hvernig það
kliðaði milli skara, og ég hugsaði
að þetta væri í fyrsta sinn í mörg
ár sem ég gat verið nokkuð viss
um að fljótið fengi að renna
ósnert. Það var rosalega góð
tilfinning. Mér líður fyrir vik-
ið svo miklu betur, og finn
fyrst núna hvað álagið og
stressið er búið að vera
mikið og taka af mér
toll. Þessi barátta
harðnaði mjög
árið 2012 og
það var gríð-
arlegt álag á
mér í kring-
um hana.“
Heiða bæt-
ir því við að
margir slagir
séu eftir, marg-
ar slæmar
virkjana-
hugmyndir
séu á borðinu.
„Hólmsár-
virkjun er í
bið, Skrokk-
alda er
hræðileg
hugdetta, og
ég skil hvað
fólkinu líður
illa úti við
Þjórsá, það á eft-
ir að takast á um
hana.“
Ljósmyndir í stúdíói/Jón Páll Vilhelmsson
Gaman Heiða kunni vel við sig í gúmmístígvélum í ljósmyndastúdíóinu.
Hlýtt Heiða hjúpuð
skinni góðu.
„Ég sagði Sigríði
Sunnevu að hún yrði
að athuga hvort hún
gæti notað mig, því ég
væri ekki með fyrir-
sætulíkama, ég væri
meira eins og herða-
breiður spjótkastari.“
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2017
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
plankaparket
Verðdæmi:
190 mm Eik Rustik burstuð
mattlökkuð 6.990.- m2