Morgunblaðið - 25.04.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.04.2017, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2017 Vor 2017 Opið virka daga frá 10-18, laugardag 11-15. Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi „Hjá okkur þar sem námið hefur verið stytt úr fjórum árum í þrjú er hver nemandi aðeins dýrari en í gamla kerfinu,“ segir Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari Kvenna- skólans og fyrrverandi formaður Skólameistarafélagsins. Hann seg- ir að það vanti upp á það að í fjár- veitingum sé tekið tillit til þessa eins og fyrirheit hafi verið gefin um. Talað hafi verið um að stytt- ing framhaldsnámsins ætti að koma skólunum til góða fjárhags- lega. Óánægja er meðal stjórnenda framhaldskólanna með naumt skammtaðar fjárveitingar sem valda því að rekstur margra skóla er í járnum um þessar mundir og stöðugt verið að grípa til nýrra aðhaldsaðgerða. Fram kom í frétt- um RÚV um helgina að í Flens- borgarskóla í Hafnarfirði hefði öllu starfsfólki við ræstingar verið sagt upp.Verða þrif í skólanum boðin út. Einnig kom fram að stjórnunarstöðum hefur verið fækkað, vinnuhlutfalli breytt og yfirvinnubann verið sett á starfs- menn skólans. Nokkrir skólar sem farið hafa fram úr fjárheimildum hafa fengið skuldir niðurfelldir. Að sögn Hjalta Jóns er unnið að endurskoðun reiknilíkans sem fjárveitingar til framhaldsskóla byggjast á. Vonast hann til að það skili einhverjum úrbótum. Hann segir að fjárþörf skólanna sé mis- munandi á hvern nemanda, meiri í verknámi en í bóknámi, og svo hafi alls kyns þættir í kennara- samningum áhrif, svo sem minni kennsluskylda þegar náð er 50 og 60 ára aldri. Þannig atriði geti munað nokkrum stöðugildum í hverjum skóla. Hjalti Jón segir að hlutfall launa í rekstri framhaldsskóla hafi hækkað. Það hafi lengi vel verið um 80% af heildarfjárveitingunni, en sé nú orðið hátt í 90%. „Afgangur skólanna til almenns rekstrar, svo sem tækjakaupa og reksturs húsnæðis sem eru mikil- vægir þættir, er af þessum sökum orðinn lítill,“ segir hann. „Þessir rekstrarliðir hafa verið í miklu svelti.“ gudmundur@mbl.is Fé skortir til al- menns rekstrar framhaldsskóla  Hlutfall launa nálgast 90%  Reikni- líkan í endurskoðun í ráðuneytinu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Framhaldsskólar Fé skortir til tækjakaupa og almenns rekstrar. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Neyðarsafnanir UNICEF og Rauða krossins vegna fæðuskorts í Suður- Súdan, Jemen, Nígeríu og Sómalíu hafa gengið vel síðustu vikur. Nærri tíu milljónir króna hafa þeg- ar safnast hjá UNICEF. Framlögin fara í að hjálpa börnum í neyð í Suð- ur-Súdan, þar sem nú ríkir hungurs- neyð, og í Jemen, Nígeríu og Sómalíu þar sem hungursneyð vofir yfir. UNI- CEF er á vettvangi í öllum ríkjunum og veitir margskonar neyðarhjálp, að sögn Sigríðar Víðis Jónsdóttur fjöl- miðlafulltrúa UNICEF á Íslandi. Framlögin í neyðarsöfnunina fara í að bjarga lífi vannærðra barna með því að veita þeim nauðsynlega meðferð, dreifa hreinu vatni, bólusetja börn, tryggja þeim heilsugæslu og sjá til þess að hreinlætismál séu í lagi. Sigríður segir að flestir gefi í söfn- unina með því að senda smáskilaboð í gegnum farsíma. Þá hafa grunnskóla- nemendur líka gengið í hús, haldið tombólu og meðal annars látið ágóð- ann af afar metnaðarfullri menning- arvöku sem þeir héldu renna í hjálp- arstarfið. Neyðarsöfnun UNICEF er enn í fullum gangi og verður haldið áfram eins lengi og þarf. Hjá Rauða krossinum hafa safnast um 3,5 milljónir í söfnun meðal al- mennings, en auk þess sendi Rauði krossinn á Íslandi strax um 16,5 millj- ónir til Jemen og um 11 milljónir til Sómalíu í gegnum Alþjóða Rauða krossinn. Þörfin gríðarleg Söfnunin hefur gengið vel og fólk brugðist vel við beiðni Rauða krossins um stuðning, að sögn Brynhildar Bolladóttur, upplýsingafulltrúa Rauða krossins. „Oft hefur reynst erfiðara að fá viðbrögð frá fólki þegar ekki er um skyndilega atburði að ræða eins og náttúruhamfarir en við erum mjög ánægð með hvernig til hefur tekist núna,“segir Brynhildur. Til að gefa í söfnun Rauða krossins er m.a hægt að senda smáskilaboð með farsíma eða setja af stað per- sónulega söfnun á vefsíðunni gefa.raudakrossinn.is. Brynhildur segir að ekki hafi verið ákveðið hve lengi söfnunin standi yfir. „Þörfin er gríðarleg svo að við höldum öllum leiðum til þess að safna enn opnum og metum þörfina og ástandið reglu- lega.“ AFP Frá Jemen Neyðarsafnanir UNICEF og Rauða krossins vegna fæðuskorts í Suður-Súdan, Jemen, Nígeríu og Sómalíu hafa gengið vel. Neyðarsafnanirnar enn í fullum gangi  UNICEF og Rauði krossinn safna svo lengi sem þarf Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir setti á fót sína eigin söfnun á söfnunarsíðu Rauða krossins, www.gefa.- raudikrossinn.is. Þar er hægt að hefja sérsniðna söfn- un sem notendur geta deilt á samfélagsmiðlum og hvatt vini og vandamenn til að gefa í. Kolbrún Birna valdi að safna vegna fæðuskorts í Afríku undir yfir- skriftinni „Hjálpið mér að hjálpa þeim“. Hún er nú kom- in með 93.000 kr., sem dugar fyrir mat fyrir 48 manns í mánuð. „Ég vildi leggja mitt af mörkum fyrir gott mál- efni. Þetta kerfi Rauða krossins er sniðugt, þar er hægt að persónugera safnanirnar. Það er annað en að sjá einhvern bauk úti í búð, þá ertu ekki að tengja jafn- mikið og þegar einhver sem þú þekkir er að benda þér á málefni og segja hvers vegna það skiptir máli. Mörg okkar munar ekki um að gefa nokkra þúsundkalla í slíka söfnun en þeir geta breytt lífi fólks þar sem neyðar- ástand ríkir,“ segir Kolbrún Birna. „Hjálpið mér að hjálpa þeim“ PERSÓNULEG SÖFNUN Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir Laugardaginn 29. apríl nk. stendur til að safna saman þeim, sem eiga æskuminningar úr Skjólunum, nán- ar tiltekið frá Innri- og Ytri Skjól- um; Faxaskjóli og Sörlaskjóli. Fyrirhugað er að hittast við gömlu Sunnubúðina kl 13. Núverandi íbúar eru boðnir vel- komnir og hvattir til að mæta en allnokkrir þeirra eru af annarri og þriðju kynslóð frumbyggja Skjól- anna. „Markmiðið er fyrst og fremst að hafa gaman af, hitta gamla vini og félaga, spjalla saman, rifja upp bernskubrekin og leikina. Gaman væri ef einhverjir hefðu upp í erminni sögulegan fróðleik af svæðinu eða skemmtilegar sögur að segja frá. Ekki síður væri áhuga- vert að heyra af upplifun þeirra sem nú búa í Skjólunum af hverf- inu,“ segir Ólafur B. Schram, sem undirbýr gönguna. Gengið verður frá Sunnubúð eft- ir Faxaskjóli að mótum Sörlaskjóls og svo út eftir Sörlaskjóli að Vega- mótum. Eftir röltið er ætlunin að koma saman á Rauða Ljóninu. Skjólarar hittast á laugardaginn Tvær tilkynningar bárust slökkvi- liði höfuðborgarsvæðisins um klukkan hálffjögur í gær, í Hafnar- firði. Annars vegar í iðnaðarhús- næði og hins vegar í íbúðar- húsnæði. Bílar voru sendir af stað af öllum stöðvum og liðinu skipt á staðina tvo. Greiðlega gekk að slökkva eld- inn í íbúðarhúsnæðinu en aðallega var um að ræða reyk í iðnaðarhús- næðinu. Eldur á tveimur stöðum í Hafnarfirði Vaskir Slökkviliðsmenn í Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.