Morgunblaðið - 25.04.2017, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 25.04.2017, Blaðsíða 21
var svarið eftir litla þögn: bragð- ið er „meget interessant“. Þetta lýsti Magnúsi vel, hann vildi ekki spilla ánægju Steens en gat samt ekki leynt skoðun sinni á matn- um. Þetta er enn notað sem orð- tak innan fjölskyldunnar og oft var Magnús minntur á það. Að leiðarlokum er okkur hjón- um efst í huga þakklæti fyrir að hafa átt Magnús að, hann var ein af styrku stoðunum okkar á Ís- landi. Viðmóts hans, sem ein- kenndist í senn af hlýju og glettni, verður sárlega saknað. Guð styrki Svandísi, Pétur og fjölskyldu. Blessuð sé minning Magnúsar Oddssonar. Sigríður J. Pétursdóttir og Steen Lindholm. Í dag er Magnús Oddsson lagður til hinstu hvíldar, eftir hægfara en að lokum snörp veik- indi í lokin. Ég var ekki hætt boltaleikj- um, þegar Magnús á Hraunteigi 3 og Svandís frænka mín á Silf- urteigi 3 fóru að fylgjast að og ég fór að taka eftir þessum hávaxna manni. En fjölskyldan á Silfur- teigi 3 var alltaf hluti að tilveru minni enda vorum við Svandís systkinabörn og hist var á hátíð- isdögum eins og um jól, á sjó- mannadaginn og kosningadag svo eitthvað sé nefnt. Eftir Dan- merkurdvöl settust Magnús og Svandís að á Akranesi, þar sem þau störfuðu og reistu sér hús. Nú urðu heimsóknir mér erfiðar, ég varð alltaf sjóveik á Akra- borginni og gat ekki gert vegleg- um veitingum þeirra full skil. En með Hvalfjarðargöngunum breyttist allt til batnaðar. Ég á margar góðar minningar frá þessum samverustundum á Akranesi og einnig frá sumarbú- staðnum og úr gönguferðum. Allt sem þau gerðu var þar gert með nærgætni og hlýju. Magnús og Svandís voru ætíð samhent og samrýnd, ferðuðust mikið bæði innanlands og utan og tóku Pét- ur strax með sem ekki var vana- legt á þeim tíma. Þau tóku virkan þátt í ýmsum félagsmálum og Magnús var góður íþróttamaður og áhugamaður um fótbolta. Magnús var mér ávallt ráða- góður. „Vertu ekki að hika við þetta.“ „Þetta er örugglega rétt.“ „Ekki fresta þessu.“ Launstríð- inn og glettinn og það oft svolítið á danskan hátt. „Ertu ekki að fara í fjallgöngu?“ Og horfir á bílinn minn fullan af skóm af ýmsu tagi og allskyns drasli. Þann 7. apríl síðastliðinn áttum við Svandís og Lilla góða stund með honum, borðuðum pönnu- kökur og spjölluðum. Eins og alltaf var hann áhugasamur og spyr systur sína: „Hvernig geng- ur hjá þér?“ Tilbúinn að hlusta og hjálpa til við það sem rétt er. Ég sendi fjölskyldum þeirra Svandísar og Péturs og systkin- um Magnúsar einlægar samúð- arkveðjur. Ég þakka fyrir hlýja samfylgd með virðingu og þökk. Bryndís Kristiansen. Aldrei hefur mér veist jafn erfitt að festa á blað minning- arorð og nú, þegar vinur minn til 70 ára, Magnús Oddsson, er fall- inn frá. Leiðir okkar lágu saman um 10 ára aldurinn, þegar faðir minn hafði fengið lóð við Gullteig og stóð þar í framkvæmdum. Fyrsta árið bjuggum við inni í Laugarneskampi og þar segist Magnús fyrst hafa hitt mig er hann knúði dyra til að spyrjast fyrir eða rukka. Í dyrunum stóð strákur, sem reyndi að snúa út úr öllu sem hann sagði. Eftir þessu man ég ekki, en hitt er víst að þar hittust tveir jafnaldrar, sem áttu eftir að halda vináttu þar til yfir lauk. Þótt við værum sjaldnast bekkjarfélagar bund- umst við sterkum böndum innan KFUM. Okkar starfsstöð var í Laug- arnesinu. Þar var Magnús í frá- bærum hópi, hugmyndaríkur, glaðvær og markviss. Þegar á þurfti að halda samdi hann gam- ansögur sem lifðu kynslóða á milli innan starfsins. Trúin á Jes- úm Krist sem frelsara var hon- um eðlislæg og þar gat hann allt sitt líf leitað trausts. Unglings- árin renna í gegnum huga minn. Hann var í „launuðu“ námi, ég í skóla. Því var það mikill fengur þegar hann eignaðist bílinn. Nú gátum við kippt ýmsum með okkur á rúntinn og orðið margs vísari En árin liðu. Ég lauk námi í Danmörku og flutti nokkru síðar á Akranes um það leyti sem hann hóf nám ytra. Ég er ekki frá því að vera mín og konu minnar á Akranesi hafi orðið til þess að hann réðst hingað einnig og tók við starfi rafveitustjóra. Víst er að ég hvatti hann til þeirrar ákvörðunar. Með honum og Svandísi konu hans fengum við líka tvo öfluga starfsmenn í starf KFUM og K á Akranesi, sem blómstraði um þær mundir og Akranes fékk traustan og öflug- an stjórnanda, sem svo sannar- lega hefur reynst traustsins verður. Í áranna rás hlóðust á hann margvísleg störf, sem urðu þess valdandi að hann varð að draga sig út úr virku KFUM- starfinu. Í öllum þessum störfum komu forystuhæfileikar og skipulagsgáfur hans vel í ljós. Stríðnispúkinn var taminn og í stað hans kominn varkár stjórn- andi, sem ekki flanaði að ákvörð- unum, heldur kynnti sér málin vel áður en hann myndaði sér skoðun og tók ákvörðun. Fréttin um andlát hans kom mér í opna skjöldu. Ég hafði komið til hans nokkrum dögum fyrr og þóttist þekkja til veikinda hans. Hafði fylgst með þeim um nokkurra ára skeið og hvernig þau höfðu eins og tekið völdin um sl. áramót. Í huga mér er hryggð og eftirsjá en þó einnig fullt af þakklæti. Þakklæti fyrir þær ein- stöku minningar sem ég á af samveru og samstarfi við góðan dreng. Þakklæti til Guðs fyrir það að hafa leitt okkur saman í trúarsamfélagi sem okkur var dýrmætt. KFUM sér á eftir tryggum félaga og fyrrverandi verkamanni svo og Gídeonfélagið á Akranesi og Kátir drengir, sem er hópur gamalla KFUM-félaga úr Laugarnesinu, sem haldið hafa hópinn öll þessi ár. En hann er kvaddur í þeirri fullvissu að við megum í öruggri trú fela hann í faðm þeim Guði sem hann setti traust sitt á. Ég og Sigurbjörg kona mín vottum Svandísi, Pétri og fjöl- skyldu hans okkar innilegustu samúð. Guð blessi minningu Magnúsar Oddssonar. Jóhannes Ingibjartsson. Meira: mbl.is/minningar Í dag er kvaddur vinur minn, Magnús Oddsson, fyrrverandi bæjar- og veitustjóri á Akranesi. Með Magnúsi er fallinn frá mikill drengskaparmaður sem kom víða við og hafði áhrif bæði sem embættismaður og ekki síður í leiðtogastörfum innan íþrótta- hreyfingarinnar. Það varð mín gæfa þegar ég var ráðinn sem innheimtustjóri hjá Akranesbæ 1975 af Magnúsi, sem þá var bæjarstjóri og þar með yfirmaður minn. Magnús hafði mikinn metnað fyrir starfi sínu hjá Akranesbæ, bæði varð- andi rekstur og framkvæmdir. Þá var honum mjög annt um að starfsfólki bæjarins liði vel og hann átti sinn þátt í að það var samhentur og skemmtilegur hópur. Frá fyrstu kynnum kom okkur Magnúsi vel saman og báðir höfðum við mikinn áhuga á íþróttum og þá sérstaklega knattspyrnu. Hann hvatti mig mjög til þátttöku í félagsmálum og studdi mig á þeim vettvangi á allan þann hátt sem honum var unnt. Hann kom því þó fljótt á framfæri að að hann væri KR- ingur úr Vesturbænum, en með árunum lét hann það smám sam- an víkja og varð síðan einn af hörðustu stuðningmönnum ÍA. Magnús var formaður ÍA um árabil og á þeim tíma sem hann gegndi formennsku beitti hann sér fyrir byggingu íþróttahússins á Jaðarbökkum og um svipað leyti voru fleiri mannvirki byggð á íþróttasvæðinu. Er óhætt að fullyrða að þar fór hann fremstur í flokki þeirra sem þá voru við stjórnvölinn. Þegar ég hóf afskipti af stjórn- málum og varð bæjarfulltrúi 1994 tók nýr kafli við í samskipt- um okkar Magnúsar sem þá var að nýju orðinn veitustjóri. Ég kom fljótlega inn sem stjórnar- maður í Akranesveitu og síðar stjórnarformaður. Það var mikill lærdómur að vinna með Magnúsi að veitumálunum í nýrri stofnun. Þar var enn til staðar sami metn- aður hjá honum sem fyrr og ná- kvæmur var hann í öllum sínum verkum, stundum full-nákvæmur að manni fannst. Í fararbroddi hjá honum var þó alltaf að starfs- fólkið fengi að njóta sín bæði í leik og starfi. Eins var rík í hon- um snyrtimennska og fegrun umhverfisins og ber Rafveitu- garðurinn og gróðursetning þar og einnig við Andakílsvirkjun honum fagurt vitni. Það verða aðrir sem rekja lífs- hlaup Magnúsar en ég vil með þessum fátæklegu orðum þakka honum tryggð og vináttu við mig öll þessi ár. Við Skagamenn eig- um honum mikið að þakka. Ég votta aðstandendum Magnúsar mína dýpstu samúð. Gunnar Sigurðsson, fv. forseti bæjarstjórnar Akraness og stjórn- arformaður Akranesveitu og Andakílsárvirkjunar. Mig langar að minnast vinar míns, Magnúsar Oddssonar, með örfáum orðum. Við vorum nágrannar í Laugarneshverfinu frá barn- æsku og fram á fullorðinsárin. Við urðum fljótt leikfélagar og þegar aldurinn leyfði fórum við að sækja fundi í KFUM sem þá hélt fundi í litlu húsi neðst við Kirkjuteig. Þar störfuðum við síðar og urðum sveitarstjórar, hvor með sína sveit. Það kom fljótt í ljós að Magnús var góðum hæfileikum gæddur, var frjór í hugsun og gat verðið gamansamur og stundum svolítill grallari. Ég minnist framhaldssögu sem við sveitarstjórarnir sögðum á sunnudagsfundum. Þetta var saga sem við bjuggum til og hver tók við af öðrum. Það reyndist oft snúið og erfitt að taka við sögunni þar sem Magnús hafði endað. Magnús var duglegur að fá drengi úr Klepps- holtinu til að mæta á fundi, en Kleppsholtið var hans svæði. Síð- ar, eftir að við höfðum lokið iðn- námi, lá leiðin til Kaupmanna- hafnar í framhaldsnám, Ég fór á undan Magnúsi í nám í bygging- artæknifræði en Magnús í raf- magnstæknifræði. Þá rak KFUM í Kaupmannahöfn stúd- entagarð (pensjonat) þar sem námsmenn frá Íslandi, sem jafn- framt voru félagar í KFUM, gátu leigt herbergi og verið í fæði. Ég var búinn að vera þarna í þrjá vetur áður en Magnús kom út. Það vildi svo skemmtilega til að Magnús fékk herbergi við hliðina á mínu. Þá voru einnig tveir aðrir landar mættir í framhaldsnám, Sverrir Norðfjörð í arkitektanám og Guðmundur Hallgrímsson í lyfjafræði. Við fengum því hagað þannig að við höfðum fjögur her- bergi á sama gangi og voru þau innst á ganginum. Þarna mynd- aðist góður félagsskapur og mikil samheldni. Það varð að reglu að líta upp frá námsefninu á kvöldin og slappa af yfir tesopa og köku- bita sem einn af okkur hafði tek- ið með úr bakaríi. Á þessum kvöldum var oft tekið fram tafl ef ekki var Mogginn til staðar, en hann var hægt að kaupa á járn- brautarstöðinni. Sverrir var góð- ur skákmaður og glímdu þeir Magnús og hann oft. Einnig var reynt að hlusta á fréttir að heim- an á stuttbylgju ef skilyrði voru góð. Magnús reyndist góður og skemmtilegur félagi og nágranni. Til að kynnast Sjálandi leigðum við okkur VW-rúgbrauð og fór- um í skoðunarferð. Þar held ég að Magnús hafi átt frumkvæðið. Þetta reyndist mjög skemmtileg og eftirminnileg ferð. Það var eins og að bilið á milli okkar yrði langt, eftir að Magnús og Svan- dís fluttu á Akranes, þó hittumst við af og til í tengslum við fundi í litlum kristniboðsflokki sem stofnaður var á unglingsárum okkar í Laugarnesinu. Hin seinni árin kom það fyrir að við hitt- umst í messu í nýlegri sveita- kirkju í Úthlíð í Biskupstungum þegar messað var á hátíðisdög- um, en þau hjón höfðu keypt sumarhús í landi Úthlíðar. Þegar ég lít til baka finn ég til þakk- lætis fyrir að hafa fengið að kynnast og starfa með Magnúsi á yngri árum. Við hjónin vottum Svandísi, Pétri og fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð og biðjum algóðan Guð að blessa þau og styrkja í sorg þeirra. Narfi. Magnús Oddsson starfaði sem veitustjóri og bæjarstjóri á Akranesi. Hann helgaði Akra- neskaupstað starfskrafta sína í rúma þrjá áratugi. Magnús átti jafnframt farsælan feril í starfi innan íþróttahreyfingarinnar bæði hér á Akranesi og á lands- vísu. Magnús þekkti ég fyrst og fremst persónulega í gegnum son hans og góðan vin minn, Pét- ur. Magnús var framsýnn og ráðagóður og reyndist hann og hans eftirlifandi eiginkona Svan- dís Pétursdóttir mér alltaf vel. Þeir sem þekkja Magnús af störfum sínum eru sammála um að Magnús var sómamaður, klók- ur samningamaður en umfram allt heiðarlegur. Akraneskaup- staður þakkar Magnúsi Oddssyni fyrir ómetanlegt starf í þágu Akraneskaupstaðar og íþrótta á Akranesi og sendi ég fyrir hönd kaupstaðarins Svandísi, Pétri vini mínum og fjölskyldu og öðr- um aðstandendum innilegar samúðarkveðjur. Af virðingu við minningu Magnúsar er flaggað í hálfa stöng við bæjarskrifstofur Akraness í dag. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2017 Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Elskulegur bróðir minn, STEINÞÓR JÓNSSON, Litla-Botni, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi mánudaginn 17. apríl. Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 27. apríl klukkan 13. Þorkell Jónsson Ástkær móðir mín, amma og langamma, HELGA ÞÓRÐARDÓTTIR frá Ísafirði, lést á Landakoti síðastliðinn fimmtudag, 20. apríl. Pétur Njarðvík Brynhildur Pétursdóttir Sigurður Jónsson barnabarnabörn Ástkær sonur okkar, bróðir og mágur, BJARNI JÓHANNES ÓLAFSSON tónlistarmaður, Tjarnarlundi 10 h, Akureyri, lést 19 apríl. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 2. maí klukkan 13.30. Sigríður María Bjarnadóttir Ólafur H. Sigurðsson Kolbrún Lára Vilhelmsdóttir Sigurður Ólafsson Jóna Árný Þórðardóttir Ragna Dögg Ólafsdóttir Sigurður Kári Jónsson Helena Lind Ólafsdóttir Hanna Lára Ólafsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLL DAGBJARTSSON, fv. skipstjóri, Silfurbraut 8, Höfn Hornafirði, lést 18. apríl á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði, Höfn. Útförin fer fram frá Hafnarkirkju föstudaginn 28. apríl klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Skjólgarð, Hornafirði. Guðrún Magnúsdóttir Dagbjartur Pálsson Þóra Sveinsdóttir Vigfúsína Pálsdóttir Jóhann Kiesel Magnús Pálsson Arna Steinsen barnabörn og barnabarnabörn Elsku bróðir okkar, ÓLAFUR BERGMANN SIGURÐSSON, til heimilis á Sævarstíg 6, Sauðárkróki, lést á Heilbrigðisstofnun Skagafjarðar föstudaginn 21. apríl. Útförin verður auglýst síðar. Ragnar L. Sigurðsson Gunnar M. Sigurðsson og fjölskylda Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORBJÖRG JÓNASDÓTTIR, Dúbba, fv. stöðvarstjóri P Flateyri, lést á Landspítalanum 21. apríl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 28. apríl klukkan 11. Blóm afþökkuð en bent er á Björgunarsv. Sæbjörg á Flateyri, kt. 470290-2509, banki 154-26-10272. Guðmundur Jónas Kristjánsson María Kristín Kristjánsdóttir, Sigurbjörn Svavarsson Kristjana Þorbjörg Sigurbjörnsd., Jóhann Bragi Fjalldal Björn Þór Sigurbjörnsson Freyja María Fjalldal Sigurbjörn Kári Fjalldal Katrín Margrét Fjalldal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.