Morgunblaðið - 25.04.2017, Side 27
spilaði tennis um allmörg ár og sat
einnig í stjórn Tennissambands Ís-
lands. Þá hafa þau hjónin verið í
gönguklúbbnum „Óbyggðirnar
Kalla“ frá árinu 1995 og gengið vítt
og breitt um Ísland í ákaflega
skemmtilegum félagsskap.
Árið 2002 fóru þau hjónin, ásamt
bróður Þórhalls og mágkonu, Atla
Arasyni og Guðnýju Eiríksdóttur, í
hjólaferð um vínhéruð Frakklands
og varð ekki aftur snúið. Þau hafa
síðan farið árlega í slíkar hjólaferð-
ir til Frakklands, Spánar og Ítalíu.
Fjölskylda Þórhalls er honum
mjög kær og finnst þeim hjónum
fátt skemmtilegra en að ferðast
innanlands sem utan með börnum
og tengdabörnum. Þeir eru nú fáir,
staðirnir á landinu sem fjölskyldan
hefur ekki heimsótt.
Fjölskylda
Eiginkona Þórhalls er Rannveig
Tómasdóttir, f. 17.7. 1950, fyrrv.
flugfreyja hjá Icelandair. For-
eldrar: hennar voru Tómas Gústav
Magnússon, f. 23.11. 1911, d. 17.1.
1968, forstjóri í Reykjavík, og k.h.,
Sigríður Sigurðardóttir, f. 16.5.
1920, d. 14.10. 1987, húsfreyja í
Reykjavík.
Börn Þórhalls og Rannveigar eru
1) Halla Björg Þórhallsdóttir, f.
26.6. 1975, viðskiptafræðingur hjá
Deloitte, í sambúð með Guðmundi
Kristinssyni, tölvunarfræðingi hjá
RB; 2) Þorbjörg Þórhallsdóttir, f.
18.4. 1981, tölvunarfræðingur hjá
Advania, gift Gísla Þór Guðmunds-
syni, tölvunarfræðingi hjá Gang-
verki, og 3) Tómas Magnús Þór-
hallsson, f. 1.5. 1985, lögmaður hjá
BBA legal, í sambúð með Unni
Lilju Hermannsdóttur, lögmanni
hjá Landslögum lögmannsstofu.
Systkini Þórhalls: Jón Kristinn
Arason, f. 12.3. 1946, prófessor em-
eritus í stærðfræði við HÍ, búsettur
í Hafnarfirði, kvæntur Sigrúnu
Kristinsdóttur viðskiptafræðingi;
Sveinn Arason, f. 20.4. 1948, Rík-
isendurskoðandi, búsettur í Garða-
bæ, kæntur Jónu Möller, fyrrv. að-
stoðarskólastjóra; Arnþór Óli
Arason, f. 5.5. 1950, jarðfræðingur í
Reykjavík; Atli Arason, f. 7.6. 1952,
viðskiptafræðingur hjá Tollstjóra,
búsettur í Reykjavík, kvæntur Guð-
nýju Eiríksdóttur lífefnafræðingi;
Anna Björg Aradóttir, f. 4.1. 1955,
sviðsstjóri hjá embætti landlæknis,
búsett í Reykjavík en maður henn-
ar er Þorleifur Magnússon húsa-
smíðameistari; Halldór Arason, f.
15.10. 1957, viðskiptafræðingur og
löggiltur endurskoðandi hjá
Deloitte, búsettur í Garðabæ,
kvæntur Helgu Ólafsdóttur kenn-
ara, og Nanna Huld Aradóttir, f.
21.6. 1962, innri endurskoðandi
Seðlabankans, búsett í Reykjavík
en maður hennar er Pétur Ingólfs-
son byggingaverkfræðingur.
Foreldrar Þórhalls voru Ari
Kristinsson, f. 6.11. 1921, d. 5.2.
1964, fulltrúi sýslumanns á Húsavík
1947-56, og sýslumaður Barðstrend-
inga á Patreksfirði frá 1956 og til
dánardags, og k.h., Þorbjörg Þór-
hallsdóttir, f. 2.6. 1919, d. 15.5.
1992, húsfreyja, síðast í Reykjavík.
Úr frændgarði Þórhalls Arasonar
Þórhallur
Arason
Ingileif Jónsdóttir
húsfreyja í Fagradal
Sveinn Jónsson
b. í Fagradal í Vopnafirði
Kristbjörg Sveinsdóttir
húsfreyja á Djúpavogi,
Húsavík og í Reykjavík
Þórhallur Sigtryggsson
kaupfélagsstjóri á Húsavík
Þorbjörg Þórhallsdóttir
húsfreyja, síðast í Rvík
Anna Jakobína Vigfúsdóttir
húsfreyja á Húsavík
Sigtryggur Sigtryggsson
verslunarmaður á Húsavík
Árni Óla
blaðamaður á Morgunblaðinu
Garðar Þórhallsson
aðalbókari Búnaðarbankans
Sigtryggur Þórhallsson
bókari
Jón Kristinsson
bóndi og listmálari í Lambey í Fljótshlíð
Óli og Páll Þór Kristinssynir
kaupmenn á Húsavík
Jakobína Sigríður Sigtyggsdóttir
húsfreyja á Húsavík
Sigtryggur Klemenzson
ráðuneytisstjóri í
fjármálaráðuneytinu og
síðar seðlabankastjóri
Garðar
Garðarsson
lögmaður
og stofnandi
Landslaga lög-
mannsstofu
Sigtryggur
Sigtryggsson
blaðamaður
á Morgun-
blaðinu
Dr. Jón Kristinn Arason
stærðfr.próf. við HÍ
Sveinn Arason
ríkisendurskoðandi
Arnþór Óli Arason
jarðfræðingur
Atli Arason
viðskiptafræðingur
Anna Björg Aradóttir
hjúkrunarfræðingur hjá
Landlæknisembættinu
Halldór Arason
stjórnarformaður Deloitte
Nanna Huld Aradóttir
innri endursk. Seðlabanka Íslands
Dr. Ari
Kristinn
Jónsson
rektor HR
Hólmfríður Þórarinsdóttir
síðast bús. í Vestmannaeyjum
Óli Jón Kristjánsson
b. í Kílakoti o.v. í Keldu-
hverfi, síðar á Húsavík
Guðbjörg Óladóttir
húsfreyja á Húsavík
Kristinn Jónsson
kaupmaður á Húsavík
Ari Kristinsson
sýslumaður á Patreksfirði
Guðríður Ólafsdóttir
frá Mýrarhúsum, Seltjn.
Jón Arason
prestur á Húsavík
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2017
Hörður Zóphaníasson fæddistá Akureyri 25.4. 1931. For-eldrar hans voru Sigrún J.
Trjámannsdóttir húsfreyja og Zóp-
hanías Benediktsson skósmiður.
Stjúpfaðir Harðar var Tryggvi Stef-
ánsson, skósmiður á Akureyri og
síðar bóndi á Þrastarhóli.
Eftirlifandi eiginkona Harðar er
Ásthildur Ólafsdóttir, fyrrv. skóla-
ritari og eru börn þeirra Ólafur
Þórður, prófessor við HÍ; Sigrún
Ágústa kennari; Tryggvi Harðarson
sveitarstjóri; Ragnhildur Gísla,
fyrrv. kaupmaður; Elín Soffía kenn-
ari; Kristín Bessa húsmóðir, og Guð-
rún, bóndi á Hvassafelli.
Hörður lauk kennaraprófi frá KÍ
1954 og stundaði nám við Danmarks
Lærerhøjskole í Kaupmannahöfn.
Hann var kennari á Hjalteyri 1954-
58, skólastjóri Barna- og unglinga-
skólans í Ólafsvík 1958-60, kennari
við Flensborg 1960-70, yfirkennari
1963-70 og skólastjóri Víðistaða-
skóla frá stofnun 1970 til 1992. Auk
þess annaðist hann bindindisfræðslu
í skólum á vegum Áfengisvarnaráðs.
Hörður var bæjarfulltrúi Alþýðu-
flokksins í Hafnarfirði 1966-74 og
1978-86, sat m.a. í miðstjórn og
framkvæmdastjórn Alþýðuflokks-
ins, sat í stjórn UMSE, Sparisjóðs
Hafnarfjarðar, var formaður öldr-
unarmiðstöðvarinnar Hafnar, Kaup-
félags Hafnfirðinga , KRON, yfir-
kjörstjórnar BSRB, Sjúkrasamlags
Hafnarfjarðar, Barnaverndarfélags
Hafnarfjarðar og Félags kennara á
eftirlaunum.
Hörður var í Skátafélagi Akureyr-
ar, stjórnaði skátafélögum í KÍ, á
Hjalteyri og í Ólafsvík, var félags-
foringi Hraunbúa, um árabil, lengi í
forystu St. Georgsgilda á Íslandi og
heiðursfélagi Hraunbúa og St.
Georgsgildisins í Hafnarfirði.
Eftir Hörð liggja tvær ljóðabæk-
urnar Vísnagaman og vinamál og
Hugsað í hendingum, námsefni fyrir
grunnskóla, sagnfræðirit og söng-
textar, auk þess sem hann sat í rit-
stjórn ýmissa blaða og tímarita og
samdi og þýddi fjölmargar greinar.
Hörður lést 13.5. 2015.
Merkir Íslendingar
Hörður Zóphaníasson
85 ára
Kristinn Skæringsson
Lóa Jónsdóttir
María S. Norðdahl
80 ára
Ásdís Gunnarsdóttir
George Thomas Fox
Kristín Jónsdóttir
Lucinda Gígja Möller
75 ára
Aldís Hjörleifsdóttir
Jóhannes Jónsson
Jón Trausti Steingrímsson
Kristján B. Sigurgeirsson
Tómas Gísli Guðnason
70 ára
Ásbjörn Karlsson
Birgir Úlfsson
Katrín Eiríksdóttir
Pétur Rúnar Sturluson
Ragnheiður Valdimarsdóttir
Sigríður Sigurjónsdóttir
Svavar Björnsson
Þórhallur Arason
60 ára
Ásgerður I. Magnúsdóttir
Gíslína Vilhjálmsdóttir
Guðmundur Hallgrímsson
Guðrún Sigurjónsdóttir
Halldór Tryggvi
Gunnlaugsson
Hannes Einarsson
Hrafnkell Stefánsson
Ireneusz A. Owczarzak
Ívar Snorri Halldórsson
Kolbrún Friðgeirsdóttir
Magnús Sigurðsson
Sigurður Jóhann Hauksson
Sigurjón Georgsson
50 ára
Andrés Jóhann Snorrason
Helga Pála Gissurardóttir
Hulda Katla Sæbergsdóttir
Marteinn Amby Lárusson
Rúnar Helgi Andrason
Soffía Margrét Pétursdóttir
Valgerður Gunnarsdóttir
Þorsteinn K. Jónsson
Þórunn F. Stefánsdóttir
40 ára
Björgvin E. Guðmundsson
Björn Bragi Sævarsson
Corina Varzaru
Elínborg Þorsteinsdóttir
Elín Jóna Rósinberg
Elsa Dóróthea Daníelsdóttir
Hannes Hall
Hlynur Aðalsteinn Gíslason
Hrefna Ástmarsdóttir
Íris Magnúsdóttir
Jill Anette Syrstad
Jón Emil Sigurgeirsson
Magnús Jónsson
Olgeir Steinþórsson
Oscar Valencia Palmero
Selma Kristín Erlendsdóttir
Sigrún Björk Sigurðardóttir
Vala Magnúsdóttir
Þórey Úlfarsdóttir
Örvar Hilmarsson
30 ára
Albert Guðni Albertsson
Alexandra Branzai
Anna Andrésdóttir
Arnór Ármann Jónasson
Björgvin Helgi
Valdimarsson
Emil Örn Emilsson
Eva Rut Tryggvadóttir
Ewelina Niedzwiecka
Gunnar Ormslev
Helga Sæmundsdóttir
Hrefna Dröfn Ísleifsdóttir
María Rán Ragnarsdóttir
Mikolaj Przemyslaw Motyka
Þórhalla Bergey Jónsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Þórhalla ólst upp í
Vogum í Mývatnssveit,
býr í Lynghrauni í Reykja-
hlíð, lauk stúdentsprófi
frá Laugum og starfar í
Vogafjósi sem er fjós,
veitingahús og gistihús.
Maki: Héðinn Björnsson,
f. 1975, kokkur.
Synir: Jón Dagur, f. 2013,
og Davíð Björn, f. 2014.
Foreldrar: Jón Reynir
Sigurjónsson, f. 1954, og
Ólöf Þórelfur Hallgríms-
dóttir, f. 1960.
Þórhalla Bergey
Jónsdóttir
30 ára Hrefna ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
BA-prófi í félagsfræði frá
HÍ og starfar hjá Motus -
innheimtufyrirtæki.
Maki: Kári Skúlason, f.
1986, lyfjafræðingur hjá
Alvogen.
Dóttir: Dagbjört, f. 2014.
Foreldrar: Alda Hafdís
Sigurðardóttir, f. 1955,
skrifstofumaður, og Ísleif-
ur Þorbjörnsson, f. 1951,
verslunarmaður. Þau búa
í Reykjavík.
Hrefna Dröfn
Ísleifsdóttir
30 ára Helga ólst upp á
Bjólu í Rangárþingi ytra,
býr í Reykjavík, lauk lög-
fræðiprófi frá HR og er
lögfræðingur hjá Trygg-
ingamiðstöðinni.
Maki: Guðni Páll Pálsson,
f. 1987, verkfræðingur hjá
Eflu.
Sonur: Birgir Páll, f.
2016.
Foreldrar: Sæmundur
Birgir Ágústsson, f. 1941,
og Svanborg Jónsdóttir, f.
1945, bændur á Bjólu.
Helga
Sæmundsdóttir
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF.
KLETTHÁLSI 3
110 REYKJAVÍK
SÍMI: 540 4900
NETFANG: info@arctictrucks.is
www.arctictrucks.com
VÖNDUÐ JEPPADEKK
FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR
VÖNDUÐ OG HLJÓÐLÁT
DEKK UNDIR FLESTAR
GERÐIR JEPPA OG
JEPPLINGA.
STÆRÐIR FRÁ 29-44 TOMMU.
ÖLL ALMENN
DEKKJAÞJÓNUSTA
TÍMABÓKANIR
Í SÍMA 540 4900