Morgunblaðið - 25.04.2017, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2017
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Barnamenningarhátíð verður sett í
sjöunda sinn í dag kl. 11 í Hörpu en
þá munu 1.600 fjórðubekkingar úr
grunnskólum í Reykjavík taka þátt í
frumflutningi á lagi sem tónlistar-
konan Salka Sól Eyfeld samdi fyrir
hátíðina og nefnist „Ekki gleyma“.
Grunnskólanemarnir tóku þátt í að
semja textann,
unnu verkefni í
skólum sem fólst
í að svara spurn-
ingunni „Hvað
getum við gert til
að vernda jörð-
ina?“ og hug-
myndir þeirra
voru svo nýttar af
Sölku í lag henn-
ar og texta.
Þema opnunar-
viðburðar hátíðarinnar í ár tengist
umhverfisvitund og náttúrunni og
verður því fagnað með fjölbreyti-
legum hætti í Hörpu. Dagur B. Egg-
ertsson borgarstjóri setur hátíðina
með börnunum í Eldborg og stendur
dagskráin fram á kvöld. Meðal við-
burða verða lúðrablástur, atriði úr
leikritinu Bláa hnettinum, listdans,
hipphopp-dans, rapparinn Ljúfur
Ljúfur flytur „Orðbragðslagið“ og
700 leikskólabörn syngja lög Ólafs
Hauks Símonarsonar kl. 13.30 og 15
í Eldborg. Síðastnefndi viðburður-
inn er samstarfsverkefni Tónskóla
Sigursveins og yfir 30 leikskóla í
Reykjavík.
Betri jörð
„Þema hátíðarinnar er jörðin okk-
ar og vitund um hana, hvað við get-
um gert til þess að gera jörðina betri
fyrir komandi kynslóðir,“ segir
Björg Jónsdóttir, annar af tveimur
verkefnastjórum hátíðarinnar hjá
Höfuðborgarstofu. Þemað birtist
m.a. í fyrrnefndu hátíðarlagi Sölku
Sólar og verkefninu sem fjórðu-
bekkingar unnu í tengslum við það.
„Það eru alls konar verkefni á hátíð-
inni sem leikskólar og grunnskólar
unnu sem hafa vísan í þemað. Til
dæmis er sýning í Dalskóla um of-
gnóttina en þar skoðuðu börnin um-
hverfi sitt, hvað við notum mikið af
öllu og leikskólabörn í miðborginni
skoðuðu líka umhverfi sitt, fugla og
náttúruna og ýmislegt. Þetta leynist
því víða,“ segir Björg um þemað en
dagskrá hátíðarinnar má finna í
heild á heimasíðu hennar, barna-
menningarhatid.is. Yfir 150 við-
burðir eru í boði í ár og því af nógu
að taka.
Björg segir afar skemmtilegt að
skipuleggja Barnamenningarhátíð.
„Þessi hátíð er samstarfsverkefni
Höfuðborgarstofu og skóla- og frí-
stundasviðs í Reykjavík og þetta er
þátttökuhátíð. Við óskum eftir þátt-
töku ýmissa aðila, bæði leik- og
grunnskóla og einkaaðila, félaga-
samtaka og safna; listasafna, Borg-
arsögusafns, Borgarbókasafns,
Þjóðminjasafns, s.s. lista- og menn-
ingarstofnana í Reykjavík,“ segir
Björg. Þessar stofnanir haldi sýn-
ingar, standi að fjölbreytilegum
verkefnum, sýni afrakstur þeirra og
bjóði upp á skapandi smiðjur.
Valin verk eftir börn flutt af
fagmönnum í tónlist
„Skilgreining okkar á Barna-
menningarhátíð er „fyrir börn, af
börnum og með börnum“,“ segir
Björg um hátíðina. Menningu barna,
skoðunum þeirra og verkum sé gert
hátt undir höfði og þá m.a. með því
að fá fullorðna tónlistarmenn til að
flytja tónverk eftir börn. Vísar
Björg þar í einn af stærri viðburðum
hátíðarinnar, Upptaktinn - tónsköp-
unarverðlaun barna og ungmenna,
sem er samstarfsverkefni Hörpu,
Listaháskóla Íslands og Barna-
menningarhátíðar. Með Upptakt-
inum er áhersla lögð á að hvetja
ungt fólk til að semja tónlist og
senda inn eigin tónsmíðar. Úr þeim
eru svo valin verk og fullunnin af
fagmönnum með aðstoð tónskálda.
Verkin verða flutt af fagfólki í tónlist
í Kaldalónssal Hörpu í dag kl. 17.
Af fleiri viðburðum hátíðarinnar í
dag má nefna 70 ára hátíðarsýningu
Félags íslenskra listdansara í Eld-
borg kl. 19.30 en á henni munu list-
dansskólar höfuðborgarsvæðisins
sameina krafta sína og þátttakendur
eru nemendur skólanna á aldrinum
fjögurra til átján ára.
Sífellt sýnilegri
Spurð að því hvernig aðsóknin að
hátíðinni hafi verið á undanförnum
árum segir Björg að hún hafi verið
góð og að hátíðin verði sífellt sýni-
legri, m.a. á Facebook þar sem fólk
hefur undanfarna daga keppst við að
birta barnamyndir af sér og „tagga“
hátíðina, þ.e. merkja með #barna-
menningarhatid.
„Við erum í góðu samstarfi við
KrakkaRÚV sem sinnir okkur ótrú-
lega vel,“ segir Björg en hægt verð-
ur að fylgjast með viðburðum hátíð-
arinnar næstu sex daga á Krakka-
RÚV þar sem ungir fréttamenn úr
8.-10. bekk munu sinna frétta-
miðlun. Opnunarviðburður hátíðar-
innar verður auk þess sýndur í
beinni útsendingu á RÚV 2.
Hátíðin stendur til 30. apríl og um
helgina, 29. og 30. apríl, leggja börn
Ráðhús Reykjavíkur undir sig með
viðburði sem nefnist Ævintýra-
höllin. Hátíðinni lýkur svo formlega
á sunnudaginn með „risastóru
krakka-rave-partíi“, að sögn Bjarg-
ar, í ráðhúsinu. „Það verður klukku-
stundarlangt rave-partí með plötu-
snúðum, confetti og öllu,“ segir hún
kímin að lokum.
Í tilefni af Barnamenningarhátíð
verður haldin sýning í Þjóð-
minjasafni á myndverkum eftir
börn sem flúið hafa með fjöl-
skyldum sínum stríð og erfiðar
aðstæður í heimalandi þeirra.
Sýningin byggist á listasmiðju
sem myndlistarkonan Ásdís Kal-
man stýrði í samstarfi við
Rauða krossinn á Íslandi og
Þjóðminjasafn Íslands en mark-
miðið með smiðjunni var þrí-
þætt: Að virkja og hvetja unga
hælisleitendur til að tjá sig
myndrænt, án orða, en flest
barnanna tala önnur tungumál
en íslensku eða ensku; að bjóða
þeim að taka þátt í Barna-
menningarhátíð með því að
setja upp sýninguna og að gera
börnin sýnilegri í nærsamfélag-
inu. Sýningin stendur yfir frá
deginum í dag til 1.maí.
Tjáning í myndum án orða
SÝNINGIN BÖRN Á FLÓTTA Í ÞJÓÐMINJASAFNINU
Hælisleitendur Eitt af verkunum á
sýningunni sem opnuð verður í dag.
Morgunblaðið/Ómar
Fjör Frá Barnamenningarhátíð árið 2012 en þá brugðu fimir trúðar á leik við Laugardalslaug með sundgesti.
Fyrir börn, eftir börn
og með börnum
Barnamenningarhátíð verður sett í Eldborg í dag
Björg
Jónsdóttir
Stuttmynd Nönnu Kristínar Magn-
úsdóttur, Ungar eða Cubs á ensku,
var valin besta sjálfstæða evrópska
kvikmyndin á ÉCU – European In-
dependent Film Festival sem lauk í
París um helgina. Ungar var valin
sú besta af þeim fjölbreytilegu
kvikmyndum sem sýndar voru á há-
tíðinni, þar á meðal heimildar-
kvikmyndum og leiknum kvik-
myndum í fullri lengd. Með helstu
hlutverk í Ungum fara Ólafur Darri
Ólafsson, Ragnheiður Ugla Ocares
Gautsdóttir, Anna Bíbí Wium
Axelsdóttir, Agla Bríet Gísladóttir
og Vigdís Hrefna Pálsdóttir. Mynd-
in fjallar um einstæðan föður sem
vill uppfylla draum ungrar dóttur
sinnar um að halda náttfatapartí
fyrir vinkonur sínar.
Þetta voru fjórðu verðlaunin sem
Ungar hreppir á alþjóðlegum kvik-
myndahátíðum erlendis en hún var
líka valin stuttmydn ársins á Eddu-
hátíðinni, og besta íslenska stutt-
myndin á Northern Wave og RIFF
hátíðunum á síðasta ári.
Að þessu sinni voru 73 kvikmynd-
ir frá 28 löndum valdar til sýningar
á ÉCU – The European Independ-
ent Film Festival. Við lok hátíðar-
innar voru veitt 25 verðlaun og við-
urkenningar í fjórtán flokkum.
Ungar Nönnu Kristínar valin sú besta
Lukkuleg Nanna Kristín Magnúsdóttir
með verðlaunaskjal í lok hátíðarinnar.
Í Austurríki er enn tekist á um
eignarhald á málverkum sem nas-
istar stálu af gyðingum á tíma
seinni heimsstyrjaldarinnar. Upp-
boðshúsið Im Kinsky í Vínarborg
hyggst í næstu viku selja „Portrett
af manni“ eftir hollenska 17. aldar
málarann Bartholomeus van der
Helst þrátt fyrir að erfingjar eig-
endanna sem verkinu var á sínum
tíma stolið frá mótmæli því og
heimti að verkinu verði skilað.
Ólíkt flestum öðrum Evrópu-
löndum þar sem skylt er að skila
stolnum listaverkum til fyrri eig-
enda, þá gilda slík lög ekki í Aust-
urríki. Uppboðshúsið viðurkennir
að verkinu hafi á sínum tíma verið
stolið en heldur því fram að núver-
andi eigandi hafi keypt verkið í
góðri trú fyrir 13 árum og sé því í
fullum rétti að selja það nú.
Málverkið var meðal nokkur
hundruð listaverka sem var stolið
árið 1943 af Schloss-fjölskyldunni
sem átti gríðarlegan fjölda verka
eftir flæmska og hollenska meist-
ara. Verkið var meðal þúsunda
listaverka sem listfræðingar völdu
til að mynda listasafnið Führer-
museum sem Adolf Hitler hugðist
koma upp í Linz. Verkinu var síðan
aftur stolið í stríðslok þegar það
var komið í vörslu bandamanna.
Nú hefur 162 listaverkum af 333
sem stolið var af Schloss-fjölskyld-
unni verið skilað og hefur hún gert
kröfu í sjö til, þar á meðal það sem
nú stendur til að selja. Ekki er vitað
hvar hin eru.
Tekist á um listaverk sem nasistar stálu
Umdeilt Hluti af málverki Bartholomeus
van der Helst af óþekktum manni.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Nýja sviðið)
Mið 26/4 kl. 20:00 aukas. Fim 11/5 kl. 20:00 22. sýn Lau 3/6 kl. 20:00 45. sýn
Fim 27/4 kl. 20:00 aukas. Fös 12/5 kl. 20:00 23. sýn Þri 6/6 kl. 20:00 aukas.
Fös 28/4 kl. 20:00 16. sýn Lau 13/5 kl. 13:00 aukas. Mið 7/6 kl. 20:00 48. sýn
Lau 29/4 kl. 20:00 17. sýn Sun 14/5 kl. 20:00 aukas. Fim 8/6 kl. 20:00 49. sýn
Sun 30/4 kl. 20:00 18. sýn Mið 17/5 kl. 20:00 aukas. Fös 9/6 kl. 20:00 50. sýn
Mið 3/5 kl. 20:00 aukas. Fim 18/5 kl. 20:00 30. sýn Lau 10/6 kl. 20:00 51. sýn
Fim 4/5 kl. 20:00 aukas. Fös 19/5 kl. 20:00 31. sýn Sun 11/6 kl. 20:00 52. sýn
Fös 5/5 kl. 20:00 aukas. Lau 20/5 kl. 20:00 32. sýn Mið 14/6 kl. 20:00 53. sýn
Lau 6/5 kl. 20:00 19. sýn Sun 21/5 kl. 20:00 33. sýn Fim 15/6 kl. 20:00 54. sýn
Sun 7/5 kl. 20:00 20. sýn Fim 1/6 kl. 20:00 43. sýn
Mið 10/5 kl. 20:00 21. sýn Fös 2/6 kl. 20:00 44. sýn
Opnar kl. 18:30, frjálst sætaval. Panta verður veitingar með dags fyrirvara.
Úti að aka (Stóra svið)
Fim 27/4 kl. 20:00 24. sýn Fim 4/5 kl. 20:00 27. sýn Fim 11/5 kl. 20:00 30. sýn
Lau 29/4 kl. 20:00 25. sýn Fös 5/5 kl. 20:00 28. sýn Sun 14/5 kl. 20:00 31. sýn
Sun 30/4 kl. 20:00 26. sýn Sun 7/5 kl. 20:00 29. sýn Fim 18/5 kl. 20:00 32. sýn
Sprenghlægilegur farsi eins og þeir gerast bestir.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fös 28/4 kl. 20:00 161 sýn. Mið 24/5 kl. 20:00 167 sýn. Fim 1/6 kl. 20:00 173 sýn.
Lau 6/5 kl. 20:00 162 sýn. Fim 25/5 kl. 20:00 168 sýn. Fös 2/6 kl. 20:00 174 sýn.
Fös 12/5 kl. 20:00 163 sýn. Fös 26/5 kl. 20:00 169 sýn. Fim 8/6 kl. 20:00 175 sýn.
Lau 13/5 kl. 13:00 164 sýn. Lau 27/5 kl. 20:00 170 sýn. Fös 9/6 kl. 20:00 176 sýn.
Fös 19/5 kl. 20:00 165 sýn. Sun 28/5 kl. 20:00 171
sýn.
Lau 20/5 kl. 13:00 166 sýn. Mið 31/5 kl. 20:00 172 sýn.
Gleðisprengjan heldur áfram! Síðustu sýningar.
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 30/4 kl. 13:00 aukas. Sun 14/5 kl. 13:00 aukas.
Sun 7/5 kl. 13:00 aukas. Sun 21/5 kl. 13:00 aukas.
Fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Vísindasýning Villa (Litla svið )
Sun 30/4 kl. 13:00 aukas.
Síðustu sýningar!
Elly - haustið 2017 (Stóra sviðið)
Fim 31/8 kl. 20:00 1. sýn Lau 2/9 kl. 20:00 3. sýn
Fös 1/9 kl. 20:00 2. sýn Fim 7/9 kl. 20:00 4. sýn
Sýningar í haust komnar í sölu.