Morgunblaðið - 16.05.2017, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2017
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Ákveðið bóluefni gegn lungnabólgu
hefur ekki verið til hér á landi síðan í
lok síðasta árs. Um er að ræða bólu-
efnið Pneumovax sem er oftast notað
gegn lungnabólgu í fullorðnum en
það ver gegn pneumokokkum sem er
baktería sem er ein algengasta orsök
lungnabólgu. Pneumovax er annað
tveggja bóluefna gegn lungnabólgu
sem er notað hér á landi en hitt er
fyrst og fremst ætlað börnum og
ungmennum.
Kristján Linnet, lyfjafræðingur
hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis-
ins, segir að það sé alltaf slæmt þeg-
ar bóluefni skorti og það felist ákveð-
in áhætta í biðinni eftir því.
Pneumovax er oftast gefið eldra fólki
og fólki sem er með ýmsa undirliggj-
andi sjúkdóma.
Lyfjadreififyrirtækið Vistor flytur
bóluefnið inn. Samkvæmt upplýsing-
um þaðan hefur það ekki fengist síð-
an í nóvember í fyrra vegna vanda-
mála hjá framleiðanda, en bóluefnið
hefur líka verið illfáanlegt í öðrum
löndum. Lausn er þó í sjónmáli því
Vistor fékk 200 pakkningar nýlega
sem nú er verið að umpakka með ís-
lenskum fylgiseðli og verður bólu-
efnið komið í sölu næstu daga. Þá er
von á 400 pakkningum til viðbótar
fljótlega þannig að samkvæmt upp-
lýsinum frá Vistor ætti vandamálið
að vera leyst um næstu mánaðamót.
ingveldur@mbl.is
Ákveðin áhætta í biðinni
Bóluefni gegn lungnabólgu ófáanlegt í nokkra mánuði
Morgunblaðið/Ómar
Bólusett Ákveðinn hópur er bólusettur gegn lungnabólgu.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
„Þetta er bara mat mitt eftir að hafa
rætt við þingflokkinn um það hvern-
ig störfum þingflokksformanns og
innra skipulagi þingflokksins eigi að
vera háttað. Þar sem við erum ekki
sammála um það er eðlilegast að ég
stígi til hliðar,“ segir Ásta Guðrún
Helgadóttir, þingmaður Pírata, en
hún hefur hætt sem þingflokksfor-
maður flokksins vegna ágreinings
við meirihluta þingflokksins. Hún
greindi frá þessu á Facebook-síðu
sinni í gær.
Ásta Guðrún segir aðspurð að
málið snúist ekki um neitt eitt ákveð-
ið mál heldur sé um heildstætt mat
hennar að ræða. Þá sé ekki um mál-
efnaágreining að ræða heldur
ágreining um skipulag. „Þannig að
þetta er kannski ekki alveg eins
spennandi og mætti halda,“ segir
hún. „Þetta snýst einfaldlega um það
hvert eðli og ábyrgð þingflokksfor-
manns eigi að vera og við erum bara
ekki sammála um það þannig að það
er rétt að einhver annar taki við kefl-
inu.“
Einar tekur við keflinu
Einar Aðalsteinn Brynjólfsson
tekur við þingflokksformennsku Pír-
ata sem hann segir vera spennandi
starf. „Núna erum við á þeim stað í
starfi okkar að endaspretturinn er
að hefjast hjá okkur í þinginu. Við
ákváðum að skerpa á og skipuleggja
okkur, skoða áherslur, hlutverk,
valdsvið og annað slíkt. Okkur þótti
þetta vera rétti tíminn til þess,“ segir
Einar. Líkt og Ásta Guðrún skýrir
Einar ekki nánar í hverju ágreining-
urinn fólst sem leiddi til afsagnar
Ástu.
Björn hættir í stjórn þingflokks
Stólaleikur í þingflokki Pírata hélt
áfram í gær þegar Björn Leví Gunn-
arsson hætti í stjórn þingflokksins.
„Ég stakk upp á þessu, er kominn
í tvær nefndir og það er nóg að gera.
Þetta er hluti af strúktúr sem við er-
um að fara í. Þetta var ekkert flókið
frá mínum bæjardyrum séð,“ sagði
Björn við mbl.is. en tók jafnframt
fram að hann teldi samskipti ekki
eiga eftir að verða stirð í þingflokkn-
um þrátt fyrir afsögn Ástu.
Tveir hættu vegna ágreinings
Morgunblaðið/Eggert
Ásta Hætt sem þingflokksformaður.
Ásta Guðrún Helgadóttir hættir sem þingflokksformaður flokksins Björn Leví Gunnarsson, þing-
maður Pírata, hættir í stjórn þingflokksins Einar Aðalsteinn Brynjólfsson nýr þingflokksformaður
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, kom til Færeyja í gær þar sem Ak-
sel V. Johannesen, lögmaður Færeyja, tók á móti honum. Ásamt forset-
anum er utanríkisráðherra Íslands, Guðlaugur Þór Þórðarson með í för.
Forsetinn mun m.a. sækja stríðsminjasafnið heim og flytja fyrirlestur um
baráttuna fyrir fiskimiðunum ásamt því að heimsækja tónlistarskóla Sør-
vágur og snæða kvöldverð með bæjarstjóra bæjarins.
Ljósmynd/Sverri Egholm
Guðni Th. Jóhannesson í heimsókn í Færeyjum
Forsetinn
floginn til
Færeyja
RVK studios, framleiðslufyrirtæki
Baltasars Kormáks og RÚV hafa
gert með sér samkomulag um þró-
un og undirbúning 6-8 sjónvarps-
þátta og kvikmyndar sem byggjast
á skáldverki Halldórs Laxness,
Sjálfstæðu fólki.
Baltasar mun leikstýra verkinu
ásamt því að skrifa handritið í sam-
starfi við aðra handritshöfunda.
Framleiðslan er sögð vera einhver
sú allra umfangsmesta í íslenskri
kvikmynda- og sjónvarpssögu.
Áætlað er að tökur geti hafist síðla
árs 2018 og fara þær fram á Íslandi.
Gera þætti byggða
á Sjálfstæðu fólki
Fulltrúar Pírata viku af fundum
fastanefnda klukkan 10 í gær til
að ræða forystukrísu í eigin
þingflokki, að því er Pawel Bar-
toszek, þingmaður Viðreisnar,
sagði í þingsal í gær. Bað hann
forseta Alþingis að ítreka við
formenn þingflokka að haga
starfi sínu svo að þeir trufluðu
ekki vinnu fastanefnda og að
fastanefndum væri sýnd virð-
ing.
Viku af fundi
GAGNRÝNDI PÍRATA
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
„Við stefnum að því að á næstu árum
verði Sjúkrahúsið á Akureyri að há-
skólasjúkrahúsi,“ segir Sigurður
Einar Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri lækninga á Sjúkrahúsinu á
Akureyri, en með nýjum samningi
við Háskólann á Akureyri á að efla
rannsóknir í heilbrigðisvísindum og
bæta aðstöðu háskólanema við
sjúkrahúsið.
„Samningurinn við Háskólann á
Akureyri gerir starfsmönnum okkar
kleift að bera akademískar nafn-
bætur og hvetur þá til frekari vís-
indastarfa.“
Sigurður segir að sjúkrahúsið
sinni nú þegar kennslu bæði lækna-
og hjúkrunarfræðinema og sinni vís-
indalegum rannsóknum. Með nýjum
samningi sé hins vegar verið að
leggja enn frekari áherslu á þessa
þætti í þeirri viðleitni að sjúkrahúsið
fái nafnbótina háskólasjúkrahús.
„Í lögum segir að Landspítalinn
sé eina háskólasjúkrahús landsins
en við ætlum að finna hvar mörkin
liggja og sækjast eftir sömu nafn-
bót,“ segir hann og bætir því við að
nú þegar taki sjúkrahúsið við lækna-
nemum frá Reykjavík og sinni klín-
ísku námi hjúkrunarfræðinema við
Háskólann á Akureyri.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Heilbrigði Sjúkrahúsið á Akureyri.
Stefna á háskóla-
sjúkrahús á Akureyri
Efla á kennslu og rannsóknir
Björgunarsveitir á Þórshöfn voru
kallaðar út í gærkvöldi vegna
manns sem lenti í grjóthruni og
slasaðist á fæti í Læknisstaðabjargi
á Langanesi.
Aðstæður á slysstað voru frekar
erfiðar því ofan bjargsins er löng
og brött brekka áður en þverhnípt
bjargið tekur við. Björgunarmönn-
um tókst að síga niður til mannsins
þar sem hann lá á syllu um 20
metra neðan við bjargbrúnina. Þeir
veittu þeim slasaða nauðsynlega að-
hlynningu, komu honum fyrir á
börum og hífðu hann upp þar sem
sjúkrabíll beið hans og flutti á
sjúkrahús.
Björguðu manni af
syllu á Langanesi