Morgunblaðið - 16.05.2017, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2017
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna
gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga
frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til
og með 15. maí 2017, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. maí 2017 og
önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. maí
2017, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti
í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á
skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi,
gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi
af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteigna-
gjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra,
ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis,
veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald,
gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa,
auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt
álagi á ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu
endurgjaldi ásamt álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur
skattur á fjármálafyrirtæki, jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og
ofgreiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum
gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að
leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 19.100 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald
er 2.000 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem
fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald,
afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt,
búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda
bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum
þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega
búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin
hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu
áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. maí 2017
Tollstjóri
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
Sýslumaðurinn á Austurlandi
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Rauður þráður síðustu kosninga íEvrópu er slök útkoma sósíal-
demókrata og jafnvel hrun. Ísland
hefur ekki skorið sig úr.
Þjóðverjar kjósatil ríkisþings 24.
september nk. Þótt
langt sé þangað til
eru vísbendingar
teknar að berast.
Þýskir kratar sitjasem minni
flokkur í stjórn frú
Merkel. Þeir skiptu
nýverið um for-
mann, kusu sér
Martin Schulz, sem
lengi hefur puðað í Brussel.
Virtist hagur flokksins vænkastmjög og bentu spár til að krat-
ar kynnu að velta Merkel úr stóli
kanslara. En stríðsgæfan stóð stutt.
Í nokkrum síðustu fylkiskosn-ingum hefur fylgið lekið og loks
hrunið af krötum. Nú síðast í fjöl-
mennasta fylki Þýskalands, Nord-
rhein Westfalen, þar sem 18 millj-
ónir búa. Kratar voru langstærsti
flokkur fylkisins og áttu forsætis-
ráðherrann.
Nú fóru þeir úr 39,1% fylgi niðurí 31,2%. Töpuðu 7,9 prósentu-
stigum. Flokkur Merkel bætti við sig
6,7 og varð stærstur. AfD, Nýr kost-
ur fyrir Þýskaland, fékk 7,4%. Þann-
ig fylgi dugar flokknum til að kom-
ast á ríkisþingið í Berlín. En 7,4 %
sýna líka að vindurinn er úr seglum
AfD.
Þýskt stórblað sagði í gær, að„sósíalistinn“ Macron hefði gert
fulltrúa hægriflokks Frakka að for-
sætisráðherra sínum. Þýska stór-
blaðið gleymdi því að Macron forseti
er nýbakaður fyrrverandi sósíalisti.
Angela Merkel
Rauður þráður
trosnar
STAKSTEINAR
Martin Schulz
Veður víða um heim 15.5., kl. 18.00
Reykjavík 12 skýjað
Bolungarvík 10 léttskýjað
Akureyri 12 alskýjað
Nuuk 1 léttskýjað
Þórshöfn 9 rigning
Ósló 12 rigning
Kaupmannahöfn 14 skýjað
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 12 heiðskírt
Lúxemborg 21 heiðskírt
Brussel 20 rigning
Dublin 18 skýjað
Glasgow 15 alskýjað
London 17 alskýjað
París 24 heiðskírt
Amsterdam 18 súld
Hamborg 19 heiðskírt
Berlín 19 heiðskírt
Vín 19 skýjað
Moskva 16 heiðskírt
Algarve 28 heiðskírt
Madríd 26 heiðskírt
Barcelona 23 heiðskírt
Mallorca 24 léttskýjað
Róm 23 þrumuveður
Aþena 25 léttskýjað
Winnipeg 19 alskýjað
Montreal 16 skýjað
New York 15 léttskýjað
Chicago 20 heiðskírt
Orlando 28 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
16. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:08 22:41
ÍSAFJÖRÐUR 3:47 23:12
SIGLUFJÖRÐUR 3:29 22:56
DJÚPIVOGUR 3:32 22:17
Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðar-
dóttir, hefur auglýst laust til um-
sóknar embætti sóknarprests í
Dómkirkjunni í Reykjavík, Reykja-
víkurprófastsdæmi vestra. Skipað
er í embættið frá 1. júlí næstkom-
andi til fimm ára. Umsóknarfrestur
er til og með 8. júní nk.
Embætti sóknarprests Dómkirkj-
unnar telst til höfuðembætta þjóð-
kirkjunnar. Séra Hjálmar Jónsson
hefur gegnt embættinu frá árinu
2001. Hann lætur af störfum að eig-
in ósk um næstu mánaðamót. Séra
Sveinn Valgeirsson gegnir embætti
prests við Dómkirkjuna.
Dómkirkjan í Reykjavík er emb-
ættiskirkja biskups Íslands og þar
með höfuðkirkja hinnar lúthersku
þjóðkirkju Íslands sem og sóknar-
kirkja nokkurra elstu hverfa
Reykjavíkur. Hún er við Austurvöll
og var vígð árið 1796.
Pretsembætti á Akureyri
Þá hefur biskup Íslands auglýst
laust til umsóknar embætti prests
við Glerárkirkju á Akureyri, sem er
í Eyjafjarðar- og Þingeyjar-
prófastsdæmi. Skipað er í embættið
frá 1. júlí nk. til fimm ára.
Umsóknarfrestur er til og með 6.
júní nk.
Séra Jón Ómar Gunnarsson hef-
ur gegnt embættinu en hann hefur
tekið við embætti prests í Fella- og
Hólaprestakalli í Efra Breiðholti.
Sóknarprestur Glerárkirkju er séra
Gunnlaugur Garðarsson.
sisi@mbl.is
Laust emb-
ætti við
Dómkirkju
Morgunblaðið/Jim Smart
Dómkirkjan Höfuðkirkja landsins.