Morgunblaðið - 16.05.2017, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2017
Tengsl geta verið milli aukinnar
neyslu á sushi á Vesturlöndum og
fjölgun sýkinga af völdum sníkla að
því er kemur fram í grein í lækna-
tímaritinu British Medical Journal.
Sníklar sem þessir þrífast í
hráum fiski og geta valdið hita,
magaverkjum og uppköstum. Hing-
að til hafa flest tilfelli greinst í Jap-
an en í greininni kemur fram að til-
fellum fjölgar stöðugt í Evrópu. Í
blaðinu er rakin saga Portúgala,
sem reyndist vera með orma í
magavegg og var það rakið til
sushi-neyslu. Vitað er að þessir
sníklar finnast í laxi og sjóbirtingi
en þeir drepast með réttri meðferð.
Árni Kristmundsson hjá Keldum,
tilraunastöð Háskóla Íslands, segir
að þrátt fyrir mikla neyslu á sjávar-
afurðum hér á landi hafi þetta aldr-
ei verið til vandræða og engin
aukning í smiti undanfarin misseri.
Hann sagði það algjöra undantekn-
ingu ef fólk hér á landi sýktist af
neyslu sjávarfangs.
Davíð Tho Van Duong hjá veit-
ingahúsinu Osushi tók í svipaðan
streng og sagðist ekki vita nein
dæmi um slíkt.
Engin smit
vegna sushi
Morgunblaðið/Kristinn
Sushi Ekki er vitað til að sushi-
neysla hér hafi valdið veikindum.
Héraðsnefndir Rangæinga og Vest-
ur-Skaftafellssýslu hafa fyrir sitt
leyti heimilað Skógasafni að kaupa
húsnæði gamla héraðsskólans í
Skógum. Heimildin er háð samþykki
sveitarfélaganna fimm sem standa
að nefndunum. Verði af kaupum er
fyrirhugað að selja húsin aftur undir
ferðaþjónustu eða rekstur sem fellur
vel að starfsemi safnsins.
Ríkið á Skógaskóla. Honum til-
heyra tvö hús, gamla héraðsskóla-
húsið og yngri heimavistarbygging.
Eddu-hótel hefur verið rekið í hús-
unum og Skógasafn hefur einnig
haft aðstöðu á heimvistinni fyrir
starfsmenn.
Egill Sigurðsson, formaður hér-
aðsnefndar Rangæinga, segir að
málefni Skógaskóla hafi lengi verið í
lausu lofti. Héraðsnefndirnar vilji
hafa vald á þessum eignum og reyna
að tryggja að þær drabbist ekki
frekar niður en orðið er.
Hann segir að nú sé komið að end-
urbótum húsnæðis og viðhaldi.
Nefnir hann að ekki séu snyrtingar
inni á gistiherbergjum eins og ferða-
menn geri nú kröfu um. Þess má
geta að Guðjón Samúelsson húsa-
meistari teiknaði hús héraðsskólans
og er útlit þess friðað.
Kaupverð húsanna er 150 millj-
ónir samkvæmt verðmati sem gert
var í vetur. Egill segir að Skógasafn
hafi ekki hug á að fara út í ferða-
þjónustu. Það muni hins vegar reyna
að koma eignunum í rekstur og
tryggja að viðhaldi þeirra verði
sinnt. Skógar eru eftirsóttur staður
og á hann ekki von á öðru en það
gangi vel. helgi@mbl.is
Skógasafn kaupir skólahús
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Forn frægð Héraðsskóli og framhaldsskóli voru í Skógum í fimmtíu ár.
Áfram rekin ferðaþjónusta í héraðsskólanum
Skógarmítlar
finnast á Höfn
Skógarmítill Fannst á ketti á Höfn.
Nokkrir skógarmítlar hafa fundist á
Höfn í Hornafirði í vor, líkt og á síð-
asta ári. Skógarmítill er blóðsuga
sem leggst á fugla, ketti, hunda og
menn, en talið er að þeir berist til
landsins með fuglum, segir á heima-
síðu Náttúrustofu Suðausturlands.
Skógarmítill fannst m.a. á ketti á
Höfn í byrjun mánaðarins, en þeir
eru enn sem komið er fágætir hér á
landi. Á heimasíðunni segir að ef
mítill hefur sogið sig fastan sé rétt
að fara að öllu með gát þegar hann
er fjarlægður. Það sé best gert með
því að klemma pinsettuodda um
munnhluta mítilsins og lyfta honum
beint upp frá húðinni.
Ljósmynd/Erling Ólafsson