Morgunblaðið - 16.05.2017, Side 11

Morgunblaðið - 16.05.2017, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2017 Verð 12.995 Sjá úrvalið á www.skornirthinir.is SMÁRALIND www.skornirthinir.is Str. M-XXL Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Bolir Verð kr. 6.900 Norwegian practitioner in The Lightning Process 1st time in Iceland FREE TALK (English) Saturday 20th of May Time: from 13.00-14.30. Powerful tools in how to use the mind - body - connection to influence your life and wellness For information or reservation of seats please contact Ann Schifte at mail@schifte.no or phone +47 98062029 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Norskt steinefni verður notað við malbikun Húsavíkurganga. Norskt efnisflutningaskip kom til Húsa- víkur um helgina með fyrri farm- inn af tveimur. Efnið bíður á upp- fyllingu við göngin eftir því að malbikunarflokkur geti hafið sitt verk. Vinna við göngin er á áætlun og útlit fyrir að þau verði tilbúin á umsömdum tíma, í ágústmánuði. Norska efnisflutningaskipið Nordfjord kom til Húsavíkur á föstudag með 6.200 tonn af stein- efnum fyrir malbikun ganganna sem liggja frá Húsavíkurhöfn að iðnaðarsvæðinu á Bakka. Skipið lagðist að Bökugarði og stór grafa mokaði efninu á bíla sem óku því að syðri gangamunnanum. Efnið er af tveimur gerðum. Þórir Gunnarsson, rekstrarstjóri hafna hjá Norðurþingi, segir að annað skip sé á leiðinni, væntanlega með annað eins magn. Starfsmenn verktaka við hafn- argerð og gangagerð, Munck Ís- landi, eru að ganga frá undirlagi fyrir slitlag Húsavíkurganga. Efsta lagið er sementsblandað. Malbikunarflokkur sem nú er að störfum í Norðfjarðargöngum kemur til Húsavíkur að því verki loknu til að malbika göngin. Tvö slitlög eru lögð, hvort ofan á ann- að. Þarf sterkt efni í slitlag Haukur Jónsson, deildarstjóri hjá Vegagerðinni á Akureyri, seg- ir að á Húsavíkursvæðinu sé lítið um steinefni sem henti í efsta lag malbiks, slitlagið. Ákveðið hafi verið að flytja inn frá Noregi efni sem henti sérstaklega vel í mal- bik. Það sé valið vegna styrkleika og litar. Áhugi sé á því að hafa ljósara steinefni í göngunum til að lýsa malbikið aðeins upp. Þá sé valið efni af mjög miklum styrk- leika. Hann segir að það sé alls ekki einsdæmi að Vegagerðin og sveit- arfélög flytji inn steinefni í mal- bik. Þannig efni sé notað í umferð- armestu götur á höfuðborgar- svæðinu sem Vegagerðin beri ábyrgð á. Opnað í ágúst Bakkavegur, frá Húsavíkurhöfn í gegnum göngin og að iðnaðar- svæðinu á Bakka er 2,4 km að lengd. Með tengivegum er heild- arlengdin tæpir 3 kílómetrar. Göngin sjálf eru 943 metra löng og alls 992 metrar með veg- skálum. Gerð ganganna og sá hluti hafn- arframkvæmda sem heyrir undir Vegagerðina hefur gengið vel, að sögn Hauks. Verkið er á áætlun og frekar á undan ef eitthvað er. Umsaminn skilatími er 20. ágúst og segir Haukur að ekkert bendi til annars en að sá tími standi. Göngin eru eingöngu ætluð til að tengja iðnaðarsvæðið við höfn- ina. Um þau fara stór ökutæki með hráefni fyrir kísilverið og önnur fyrirtæki sem þar verða og með hráefni til hafnar. Þau verða ekki opin fyrir almenna umferð. Þungir hlutir um höfnina Þótt höfnin sé ekki tilbúin nýt- ist hún ágætlega fyrir flutninga á tækjum og byggingarefni fyrir Þeistareykjavirkjun og kísilver PCC á Bakka. Þyngstu hlutirnir eru tveir 140 tonna hverflar virkj- unarinnar og tveir 90 tonna raf- alar. Væntanlegir eru spennar fyr- ir Landsnet og Landsvirkjun og segir Þórir Gunnarsson, rekstr- arstjóri hafna, að þeir séu einnig þungir. Þá hafi komið þungir tankar fyrir kísilverið og fleiri tæki og byggingarefni sé vænt- anleg. Malbikað með norsku grjóti  Verktakar flytja inn rúm 12 þúsund tonn af steinefni frá Noregi til að nota við malbikun iðnaðar- vegarins um Húsavíkurhöfða  Þingeyskt grjót ekki talið nógu hart fyrir þungaumferð um göngin Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Við Bökugarð Steinefninu er ekið í geymsluhauga við suðurenda Húsavíkurganga. Tók einn dag að losa skipið. Húsavíkurgöng » Göngin tengja iðnaðar- svæðið á Bakka við Húsavík- urhöfn. Um þau fara þunga- flutningar í þágu iðnaðarins á Bakkasvæðinu. » Norska verktakafyrirtækið Leonhard Nilsen & Sønner fékk verkið í samvinnu við dóttur- félag sitt hér á landi, LNS Sögu (nú Munck Íslandi). » Fyrstu sprengingar voru í mars 2016 og lauk í ágúst sama ár. Síðan hefur verið unnið að frágangi. Göngin verða tilbúin til notkunar í ágúst. Samanburður Vegagerðarinnar á hjólfaramyndun í íslensku og norsku malbiki gefur til kynna að mun minni hjólför myndist í norsku malbiki en íslensku. Í skýrslu Vegagerðarinnar um samanburðinn, sem gerður var á síðasta ári, kemur fram að ekki er hægt að skýra með vissu hvað veldur þessum mun. Ekki er talið útilokað að mismunur á mælingum og verklagi skýri hluta munarins sem fram kemur í mælingum á sams konar malbiki. Íslensku malbikunarstöðvarnar hafa eigin steinefnanámur. Efnið er mismunandi. Einnig er töluvert flutt inn af norsku steinefni og það notað þar sem kröfur eru gerðar um sterkara slitlag. Meiri hjólför í íslensku malbiki SAMANBURÐUR VEGAGERÐARINNAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.