Morgunblaðið - 16.05.2017, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2017
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 595 6200 | bakoisberg.is
Vöruhús
veitingamannsins
allt á einum stað
Ilmurinn af nýbökuðu bakkelsi selur
www.wiesheu.de/en
BAKO ÍSBERG kynnir
ofna frá Wiesheu
miðvikudaginn 17. maí
á Höfðabakka 9.
Bakarameistarar
frá Wieshau baka
frá kl. 10-16.
Wiesheu er þýskur sérhæfður framleiðandi
á ofnum fyrir matvælaiðnaðinn. Áhersla
er lögð á sjónræna nálgun þ.e. ofnarnir
henta einstaklega vel í opnu rými þar sem
viðskiptavinurinn skynjar með öllum skyn-
færum nýbakað bakkelsi.
Tap í veðmálum á netinu er ekki frá-
dráttarbært frá skatti. Þetta er nið-
urstaða yfirskattanefndar eftir að
skotið var til hennar kæru í kjölfar
þess að ríkisskattstjóri felldi niður í
skattskilum kæranda, sem var einka-
hlutafélag, gjaldfært tap af veð-
málum vegna íþróttakappleikja á
vefsíðunni Betfair. Er yfirskatta-
nefnd sammála ríkisskattstjóra sem
taldi að um væri að ræða persónuleg
útgjöld eiganda sem ekki tengdust
atvinnurekstri félagsins.
Kærandi hafði árin 2010 til 2012
tapað rúmum 250 milljónum króna
vegna þátttöku í getraunastarfsemi
fyrrnefndrar vefsíðu. Ríkisskatt-
stjóri ákvað að endurákvarða op-
inber gjöld hans. Hækkaði hann
gjaldfærðan launakostnað svo og
stofn til tryggingagjalds um sömu
upphæð og dregin hafði verið frá á
skattframtali félagsins.
Ekki sama og
verðbréfaviðskipti
Í úrskurði yfirskattanefndar er
saga málsins rakin. Þar kemur fram
að eigandi og fyrirsvarsmaður einka-
hlutafélagsins stofnaði aðgang að
vefsíðunni Betfair í sínu nafni. Það
taldi ríkisskattstjóri ekki jafngilda
því að opna viðskiptamannareikning
hjá verðbréfamiðlara sem annaðist
fjárfestingar fyrir þriðja aðila í eigin
nafni, eins og haldið var fram af hálfu
kæranda. Var bent á að um verð-
bréfaviðskipti giltu sérstök lög and-
stætt því sem við á um þátttöku í get-
raunastarfsemi eða veðmálum.
Ríkisskattstjóri hafnaði því alfarið
að félög gætu haft veðmál sem hluta
af starfsemi sinni þótt rekstur
tengdrar starfsemi gæti fallið þar
undir. Benti hann á að í almennum
hegningarlögum væri kveðið á um að
sá sem gerði sér fjárhættuspil eða
veðmál að atvinnu skyldi sæta refs-
ingu. Í lögunum kæmi einnig fram að
öflun tekna með fjárhættuspili félli
undir það að afla sér framfærslu með
ólöglegu móti.
Veðjað á gjaldmiðla
Þá bendir ríkisskattstjóri á að ekki
hafi verið farið með umræddar
greiðslur, persónuleg útgjöld kær-
anda upp á um 250 milljónir króna,
sem lið í arðgreiðslum til hans. Því sé
um óheimila úthlutun af fjármunum
félagsins til viðkomandi að ræða.
Fram kemur að kærandi hefur frá
stofnun einkahlutafélagsins stundað
umfangsmikil viðskipti sem fólust í
spákaupmennsku með samninga
tengda gjaldmiðlum. Taldi kærandi
að í eðli sínu væru slík viðskipti ekki
neitt annað en veðmál um þróun og
gengi ákveðins andlags út frá
ákveðnum forsendum. Þátttaka hans
í erlendri getraunastarfsemi með
hagnaðarvon í huga hafi byrjað í
kjölfar falls fjármálakerfisins haust-
ið 2008, þegar fyrri viðskipti félags-
ins lokuðust, m.a. vegna gjaldeyris-
hafta.
Í úrskurði yfirskattanefndar er
tekið undir með ríkisskattstjóra að
veðmál vegna íþróttakappleikja á
vefsíðum á borð við Betfair teljist til
fjármálagerninga í skilningi laga eða
að jafna megi þeim til slíkra gern-
inga. Fram kemur að kærandi hafi
veðjað um markafjölda í knatt-
spyrnuleikjum og aðra hliðstæða
þætti. Viðskiptin hafi verið gerð á
öllum tímum sólarhringsins en þó
einkum á kvöldin þegar viðkomandi
leikir fóru fram.
Yfirskattanefnd segir að ekki
verði séð að gerð hafi verið grein fyr-
ir tekjum og gjöldum af viðskipt-
unum við Betfair með neinum við-
hlítandi hætti í bókhaldi kæranda, og
telur að það styðji þá ályktun ríkis-
skattstjóra að veðmálin hafi í raun
ekki farið fram á vegum kæranda.
Loks fellst yfirskattanefnd á
ákvörðun ríkisskattstjóra um skatt-
lagningu launatekna og hækkun
tryggingagjalds vegna hinnar ólög-
mætu úthlutunar fjármuna úr einka-
hlutafélaginu á árunum 2010 til 2012.
gudmundur@mbl.is
Tapaði 250 milljónum í veðmálum
á netinu og vildi draga frá skatti
Yfirskattanefnd segir tapið ekki frádráttarbært Hækkaði álagninguna
Morgunblaðið/Golli
Skattur Ekki er hægt að stunda veðmál á netinu í nafni einkahlutafélags og
fá tapið dregið frá skatti eins og um verðbréfaviðskipti sé að ræða.
Pokasjóður hefur hleypt af stað
landsátakinu „Tökum upp fjölnota“
en Íslendingar standa öðrum þjóðum
langt að baki þegar kemur að notkun
fjölnota poka en sala þeirra hefur þó
tekið kipp undanfarin misseri.
Hver Íslendingur notar að með-
altali 105 plastpoka á ári en stefnt er
að því að ná tölunni niður í 90 poka
fyrir árslok 2019 en sjóðurinn sem
hefur haft tekjur af sölu plastpoka í
um tvo áratugi er með þessu móti að
vinna að því að leggja sjálfan sig nið-
ur.
Þegar átakinu var ýtt úr vör í gær
mætti Björt Ólafsdóttir umhverfis-
ráðherra með sinn eigin fjölnota
poka að heiman þar sem stóð skýr-
um stöfum „Recycle or Die“ sem út-
leggst sem endurvinnið eða deyið á
íslensku. Hún sagði skilaboðin skýr –
nauðsynlegt væri að fækka plastpok-
um verulega.
Átak Allt of fáir taupokar á Íslandi.
Endur-
vinnsla
eða dauði
Landsátak gegn
plastpokanum