Morgunblaðið - 16.05.2017, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulífið
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2017
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Verð frá
kr. 3.612
Pinnamatur 12 tegundirVörunúmer 25123
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.
16. maí 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 104.56 105.06 104.81
Sterlingspund 134.52 135.18 134.85
Kanadadalur 76.14 76.58 76.36
Dönsk króna 15.271 15.361 15.316
Norsk króna 12.154 12.226 12.19
Sænsk króna 11.748 11.816 11.782
Svissn. franki 103.73 104.31 104.02
Japanskt jen 0.9183 0.9237 0.921
SDR 142.69 143.55 143.12
Evra 113.63 114.27 113.95
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 144.4971
Hrávöruverð
Gull 1231.5 ($/únsa)
Ál 1879.0 ($/tonn) LME
Hráolía 50.76 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Eimskipafélag
Íslands hefur
fengið nýtt gáma-
flutningaskip af-
hent, og mun það
sigla undir fær-
eyskum fána, að
sögn Ólafs W.
Hand, upplýsinga-
fulltrúa félagsins.
Skipið, sem upp-
haflega hét Sophia, hefur fengið nafn-
ið Selfoss.
Eldra skip með sama nafni var selt
fyrir nokkrum misserum.
Í febrúar sl. tilkynnti Eimskipa-
félagið um sölu á skipi sínu Brúar-
fossi, sem var smíðað árið 1992. Sel-
foss, sem er smíðaður árið 2008,
mun leysa það skip af hólmi.
Selfoss er 700-gámaeiningaskip
og er með svipaða burðargetu og
Brúarfoss, en er öflugra skip að öðru
leyti, að sögn Ólafs.
Eimskip rekur núna 21 skip eftir
þessar breytingar. tobj@mbl.is
Nýr Selfoss til Eimskips
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Þrjú hundruð rúmmetrar af vatni á
dag renna í gegnum nýja vatns-
hreinsistöð Coca Cola á Íslandi, sem
er sögð sú fullkomnasta hér á landi.
Fyrirtækið notar 3,9 lítra af vatni til
að framleiða hvern lítra af drykk, en
vatnið sem um ræðir er notað til
hreinsunar, kælingar og fleira.
Stöðin skilar vatninu frá sér í nær
sama ástandi og það var í þegar tekið
var á móti því til drykkjargerðar, eða
tíu sinnum hreinna en krafist er sam-
kvæmt lögum.
Allt vatn, þar á
meðal skolp, fer
um stöðina sem
kostaði um 350
milljónir króna og
árlegur rekstur
kostar 30-40 millj-
ónir.
Stöðin er hluti af
sjálfbærni Coca
Cola á Íslandi,
sem félagið tekur mjög alvarlega.
„Sjálfbærni snýst um hvað þú gerir í
dag til að viðhalda framtíðinni,“ segir
Carlos Cruz, forstjóri félagsins, í
samtali við Morgunblaðið og bætir við
að sjálfbærnin sé þrískipt; samfélags-
leg, hagræn og umhverfisleg.
Öryggi og heilsa
Í hagræna hlutanum er öryggi
starfsfólks og heilsa í fyrirrúmi að
sögn Carlosar. „Þar erum við vottuð
samkvæmt ISO 18001 gæðastaðlin-
um, og stuðlum að auki markvisst að
heilsusamlegu lífi starfsmanna til að
líf þeirra verði gott í framtíðinni,“
segir Carlos.
Hann segir að enginn sé fullkominn
og nokkur slys hafi orðið á síðasta ári
.„Það urðu til dæmis slys í dreifing-
unni vegna þess að bílstjórarnir voru
einir að flytja bjór við erfiðar aðstæð-
ur. Nú eru alltaf tveir menn í öllum
bílum.“ Hluti af hagræna hlutanum er
fjölbreytni og jafnrétti. „Við erum
ekki jafnlaunavottuð ennþá, en við
stefnum þangað og stjórnendateymið
okkar er nú þegar tveir karlar og
tvær konur.“ Hlutfall kvenna í verk-
smiðjustörfum er þó enn aðeins 30%,
en Carlos segir stefnt að jöfnu hlut-
falli kynjanna þar líka. Starfsfólk fé-
lagsins er af 15 þjóðernum og for-
stjórinn er stoltur af því.
Hluti af sjálfbærninni er kröfur
sem gerðar eru til samstarfsaðila.
„Við hættum til dæmis viðskiptum við
vínheildsala í Afríku þegar fréttist að
hann færi ekki nógu vel með sitt
starfsfólk.“
Carlos segir fyrirtækið meðvitað
um þátt sykurs og áfengis í ýmsum
nútímasjúkdómum, og bjóði því fjöl-
breytta og vel merkta valkosti hvað
stærðir og sykurmagn varðar. Þá sé
endurgjöf til samfélagsins í formi
styrkja einnig hluti af sjálfbærninni. Í
umhverfismálunum er félagið með
ISO 14001 vottun, en hluti af henni er
að allar vörurnar eru endurvinnan-
legar. „Við höfum sett okkur ný
markmið í orkusparnaði og munum
slökkva á vélum okkar um helgar.“
Skila vatninu jafn hreinu til
baka og það var í byrjun
Morgunblaðið/Eggert
Umhverfi Skrautfiskarnir í vatnshreinsistöðinni þurfa að geta lifað góðu lífi í hreinsuðu vatninu í fiskabúrinu.
Sjálfbærni
» Fyrirtækið hefur gefið út
ítarlega sjálfbærniskýrslu,
annað árið í röð.
» Móðurfélagið CCEP er skráð
á markað sem leggur enn ríkari
kröfur á íslenska félagið.
» 1% af veltu fer í samfélags-
styrki, um ein milljón evra.
» Verksmiðjan hér verður í lok
árs fyrsta Coca Cola-verk-
smiðjan í heiminum með eng-
an útblástur koltvísýrings.
Áhersla á sjálfbærni hjá Coca Cola á Íslandi Samfélagsstyrkir 1% af veltu
Carlos Cruz
Hagar skiluðu 4.036 milljóna króna
hagnaði á síðasta rekstrarári, en því
auk 28. febrúar síðastliðinn. Hagn-
aðurinn svarar til 5,0% af veltu
félagsins.
Vörusala Haga á síðasta rekstrar-
ári, frá mars 2016 til febrúar 2017,
nam 80,5 milljörðum króna og jókst
um 2,7% frá rekstrarárinu á undan.
Þess má geta að meðaltal vísitölu
neysluverðs án húsnæðis lækkaði
um 0,40% á milli sömu tímabila.
Framlegðin hjá Högum nam 20,0
milljörðum króna og reyndist 24,8%
á rekstrarárinu, en hún var 24,4%
árið á undan.
Afkoma fyrir fjármagnsliði, af-
skriftir og skatta (EBITDA) nam 6,0
milljörðum króna, en var 5,7 millj-
arðar króna árið áður. EBITDA-
hlutfall var 7,5%, en var 7,2% rek-
starárið á undan.
Handbært fé frá rekstri á rekstr-
arárinu nam 5,8 milljörðum króna og
jókst lítillega á milli ára. Handbært
fé í lok febrúar var 2,5 milljarðar
króna og lækkaði um 1,3 milljarða á
rekstrarárinu.
Heildareignir samstæðu Haga
námu 30,1 milljarði króna í lok
rekstrarársins. Eigið fé var 17,4
milljarðar og eiginfjárhlutfall 57,8%
í lok febrúar.
Stefna Haga er að greiða hluthöf-
um arð sem nemur að lágmarki 50%
hagnaðar, auk kaupa á eigin bréfum í
þeim tilgangi að lækka hlutafé. Sam-
hliða kaupum félagsins á Lyfju og
Olís hefur stjórn Haga hins vegar
ákveðið að víkja frá áður samþykktri
arðgreiðslustefnu og leggja til við
aðalfund að ekki verði greiddur út
arður til hluthafa árið 2017.
sn@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verslun Finnur Árnason er forstjóri
Haga sem á gott rekstrarár að baki.
Hagnaður Haga
var 4 milljarðar
Vörusala jókst
um 2,7% á nýliðnu
rekstrarári