Morgunblaðið - 16.05.2017, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.05.2017, Blaðsíða 18
BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ávef Reykjavíkurborgarhefur verið auglýst tillagaað breytingu á Aðal-skipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Markmið tillögunnar er að stemma stigu við fjölgun gisti- staða í miðborginni. Breytingar- tillagan gerir ráð fyrir því að frekari uppbygging gististarfsemi verði ekki heimil nema þá sem ákveðið hlutfall nýrrar uppbyggingar að undangenginni deiliskipulagsgerð. Drög að aðalskipulagsbreyting- unni voru í kynningu frá október 2016 fram til mars á þessu ári og barst fjöldi athugasemda, ekki síst frá fasteignaeigendum í miðborg- inni. Skilningur sumra fasteignaeig- enda er sá að með takmörkunum á gististarfseminni hafi orðið til nýtt kvótakerfi. Í athugasemdunum má finna nýyrði svo sem „starfsemis- kvóti“ og „gistikvóti“. Meðal þeirra sem sendu at- hugasemdir var Reitir fasteigna- félag. Félagið á hagsmuna að gæta á miðborgarsvæðinu. Eignir Reita á svæðinu eru 17 talsins en mögulega fjölgar þeim um 5 fljótlega, þar sem Reitir hafa gert samninga við Stefni um kaup á tilteknum fasteigna- félögum. Heildarfermetrafjöldi er 27.397 en 47.157 ef eignirnar sem eru í áð- urnefndu kaupferli eru taldar með. „Fyrir hið fyrsta viljum við benda á að mikilvægt er að skerpa á því með einhverjum hætti hver sé eigandi starfsemiskvóta á hverjum tíma,“ segir m.a. í bréfi Reita. „Eign“ fasteignaeigenda „Eðli málsins samkvæmt hlýtur kvótinn að tilheyra þeirri fasteign, sem starfsleyfi er veitt út frá og þar með ,,eign“ eða réttindi fasteign- areiganda en ekki rekstraraðila,“ segir ennfremur. Reitir telja það skipta máli að gagnsæi sé haft í þeim starfsemis- kvótum sem búið sé að útdeila og þeim sem eftir eru í pottinum. „Ef litið er til þess að starfsem- iskvótar eru sameiginleg auðlind fasteignareigenda miðborgar á skil- greindu kvótasvæði hlýtur að vera æskilegt að breyting á notkun hús- næðis sé kynnt fyrir viðkomandi hagsmunaaðilum og þeim gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna áður en hún er afgreidd af borgaryfir- völdum,“ segir í bréfinu. „Þar sem starfsemiskvóti felur í sér kvöð á fasteign og takmörkun á eignarrétti fasteignareigenda velt- um við því fyrir okkur hvort þing- lýsa ætti slíkri kvöð um takmarkanir á notkun fasteigna eða fasteigna- hluta,“ segir loks í bréfi Reita. Miðbæjarfélagið, hagsmuna- samtök rekstraraðila og eigenda at- vinnuhúsnæðis í miðbænum, mót- mælti í bréfi hugmyndum um að takmarka gistiþjónustu í mið- bænum. Félagið segir í athugasemdum sínum að þau telji umræddar breyt- ingar fela í sér brot á 72. grein stjórnarskrár Íslands. Þær muni hafa í för með sér beina skerðingu á verðmæti fasteigna á svæðinu. 72. greinin hljóðar svo: „Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir.“ Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fagnar aftur á móti framkomnum breytingatillögum. Mikil uppbygg- ing gististaða á íbúðasvæðum valdi ákveðnu ónæði. Athugasemdafrestur við skipu- lagstillöguna er til og með 23. júní næstkomandi. „Starfsemiskvóti“ í miðborg Reykjavíkur Morgunblaðið/Árni Sæberg Hótelstarfsemi Mikil fjölgun hótela hefur orðið í Kvosinni og þeim mun fjölga á næstu árum. Nú þegar hefur verið settur hótelkvóti á þessu svæði. 18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Tölvuþrjótargerðu viða-mikla árás á föstudaginn og náðu að sýkja um 200.000 tölvur í 150 löndum með svonefndu „gísla- tökuforriti“. Slík forrit læsa tölvum og dulkóða gögn og hleypa notendum þeirra ekki aftur að þeim, nema þeir fallist á að greiða „lausnargjald“, sem að þessu sinni var „einungis“ um 30.000 krónur. Árásin hafði að sjálfsögðu viðamiklar afleiðingar, en árás- in var sérstaklega skæð í Evr- ópuríkjum og Rússlandi, þar sem ýmis fyrirtæki og ríkis- stofnanir urðu fyrir barðinu á þrjótunum. Sá angi hennar sem mesta athygli vakti í fjölmiðlum var hins vegar það að með árás- inni tókst nærri því að lama tölvukerfi breska heilbrigðis- kerfisins. Að mati Europol er hér um að ræða einhverja stærstu netárás allra tíma og segja fulltrúar hinna evrópsku lögreglu- samtaka að mikið og samhent alþjóðlegt átak muni þurfa til þess að hafa hendur í hári þeirra sem þarna stóðu að baki. Árásin hefur vakið ýmsar spurningar um tölvuöryggi. Svo virðist sem að vírusforritið hafi nýtt sér veilu í Windows- stýrikerfi Microsoft-fyrirtæk- isins, sem nýverið hafði komist upp, og búið var að þróa upp- færslu fyrir. Hins vegar höfðu margir ekki enn náð sér í upp- færsluna, eða voru enn með gamlar tölvur, sem gerði þrjót- unum auðveldara fyrir. Þá vekur athygli, að þrjótarnir hag- nýttu sér kóða sem hannaður var af bandarískum leyniþjón- ustustofnunum til þess að fremja árás sína. Lengi hefur verið vitað að ríki á borð við Rússland og Kína hafi á sínum snærum ýmsa „sérfræðinga í nethernaði“ sem tilbúnir eru að valda miklum usla, ef til stríðs- átaka kemur. Nú blasir við að vestræn lýðræðisríki hafa einn- ig safnað upp slíkri þekkingu og þarf ekki að koma á óvart. Engu að síður vaknar sú spurning hvers vegna þau úr- ræði eru ekki betur varin en svo, að kóðunum sé lekið á netið þar sem hver sem er getur kom- ist í tæri við þá. Að auki vaknar sú spurning hvort Bandaríkja- stjórn eða aðrir búi yfir vitn- eskju um frekari veikleika, sem tölvuþrjótar gætu enn komist í og nýtt sér? Árásin undirstrikar þörfina á því að fyrirtæki og ein- staklingar séu ávallt vel vak- andi um að stýrikerfi sín séu uppfærð, og að varnarforrit séu í góðu lagi, auk þess sem tor- tryggni gagnvart tölvupósti er ávallt af hinu góða. Þá þarf að huga alvarlega að því hvort ekki sé réttara að ríki og njósna- stofnanir sem finna veikleika í hugbúnaði láti viðkomandi fyrirtæki vita af honum, í stað- inn fyrir að verða til þess að hann sé misnotaður, líkt og nú hefur gerst. Ein stærsta netárás allra tíma vekur spurningar} Tölvuöryggi á oddinn Kosningabar-áttan í Bret- landi hefur svo sem ekki farið mjög hressilega af stað. Af fyrstu skoðana- könnunum að dæma virtist sem helsta spurningin sem þyrfti að svara í þingkosn- ingunum yrði hversu stór meiri- hluti Íhaldsflokksins og Theresu May forsætisráðherra yrði. Engu að síður var forvitnilegt að sjá hvort andstæðingar flokks- ins, og þá helst Verkamanna- flokkurinn og Jeremy Corbyn, formaður hans, gætu náð vopn- um sínum á ný. Fyrir helgina kom síðan reið- arslag fyrir Corbyn, þegar upp- kasti að stefnuskrá flokksins var lekið í fjölmiðla. Þar kom fram að Verkamannaflokkurinn ætlaði sér að bjóða fram undir vinstri- sinnuðustu stefnu sem hann hefði nokkru sinni tekið upp frá árinu 1983, þegar hann beið af- hroð gegn Margaret Thatcher. Stefnuskráin þá hlaut viður- nefnið „lengsta sjálfsvígsbréf sögunnar“. Að þessu sinni er tal- að um „dýrasta sjálfsvígsbréf sögunnar“, þar sem stefnuskráin gerir ráð fyrir víðtækri þjóðnýtingu á ýms- um fyrirtækjum, til að mynda lestar- kerfi Bretlands og orkufyrirtækjum. Þá myndi rík- ið stórauka útgjöld sín, og treysta á að hægt yrði að skatt- leggja þá ríkustu í Bretlandi til þess að standa undir hinum aukna kostnaði. Loforðin eru með öðrum orðum gefin án þess að séð verði að Verkamanna- flokkurinn hafi hugað að fjár- mögnun þeirra. Viðbrögðin hafa verið eins og við var að búast. Kosningar í Bretlandi, eins og víða annars staðar, hafa oftar en ekki ráðist af því hvor flokkurinn hefur náð betri vígstöðu á miðju stjórn- málalitrófsins. Með hinni nýju stefnuskrá virðist ljóst að Verkamannaflokkurinn ætlar ekki einu sinni að reyna að nálg- ast miðjuna, heldur er á harða- hlaupum yst yfir á vinstri jaðar- inn. Búast má við því að breskir kjósendur svari því á sinn hefð- bundna hátt. Verkamanna- flokkurinn semur „dýrasta sjálfvígs- bréf allra tíma“} Hlaupið frá miðjunni T ækifæri ganga flestum úr greip- um því þau eru klædd í smekk- buxur og virðast vera vinna.“ Þannig komst Thomas Edison að orði og ég held hann hafi haft glettilega rétt fyrir sér. Ég get nefnilega ekki skilið hvers vegna það er ekki meira snobbað fyrir góðu handverki hér á landi en raun ber vitni. Ég hef orðið vitni að fram- úrskarandi fagmennsku og fyrsta flokks handverki ítrekað undanfarnar vikur því við hjónin afréðum nýverið að endurnýja bað- herbergið heima hjá okkur. Til þess þarf margvíslega handverksmenn sem hafa hrifið mig með fagmennsku sinni og handlagni. Ég lít rækilega upp til þessara töffara. Þegar ég var unglingur hófu foreldrar mínir húsbyggingu í Kópavoginum, í hverfi sem var þá að byggjast upp skammt frá Digranesskóla. Sú smíði tók lungann af árinu 1987 og eins og gefur að skilja var straumur iðnaðarmanna í húsinu meðan það tók á sig mynd; húsasmíðameistarinn sem hafði umsjón með verkinu, öðlingur að nafni Ólafur, var viðloðandi verkið frá upphafi til enda og aðrir komu þegar þeirra var þörf; múrari, rafvirki, pípulagningamaður, málarar og fleiri flinkir menn. Ég fylgdist með þeim koma og fara, og í millitíðinni frömdu þeir handverksgaldra sína með hug bæði og höndum og skiluðu afbragðsgóðu verki enda hús foreldra minna úrvalssmíð. En samt man ég að mér – í barnaskap æsku minnar – þótti vinna iðnaðarmannanna framan af ekkert sérstaklega fín. Þangað til einn góðan veðurdag sumarið ’87. Pípulagningameistarinn, sem hafði lagn- irnar í húsi foreldra minna með höndum, kom einn daginn akandi á einkabíl sínum, lík- ast til af því verkið var að baki og hann kom til að skoða klárað verk. Hann renndi í hlað á gljáandi rauðum Volvo 740 GLE af nýjustu og fínustu gerð. Verulega gæjalegur bíll sem mér varð starsýnt á enda áhugasamur um fallega bíla allt frá því í frumbernsku. Mér fannst þetta á skjön við eigin (rang)hug- myndir um iðnaðarmenn og spurði pabba sem svo: „Heyrðu pabbi, er fínt að vera píp- ari?“ Arkitektinn hann faðir minn, mætavel kunnugur mikilvægi handverksmanna í húsa- smíði og skyldum greinum, svaraði um hæl: „Það er fínt ef maður gerir það vel. Það er sama hvað þú leggur fyrir þig, ef þú gerir það vel þá mun það þykja fínt.“ Þetta fannst mér stórmerkilegt. Skakkri hug- myndafræði minni um hvað er fínt og hvað ekki, þegar atvinna fólks er annars vegar var þarna snarlega snúið við. En hvers vegna er vandað handverk og vinna iðn- aðarmanna ekki hærra skrifuð hér á landi en raun ber vitni? Úrsmiðir í Genf, leirkerasmiðir í Stoke-on-Trent, bjórgerðarmeistarar í Bæheimi og ilmvatnsgerðarmenn í Grasse eru dæmi um handverksmenn sem teljast til háaðals í sínum heimalöndum. Hvers vegna er slíkt ekki uppi á teningnum hér á landi? Veit það einhver? jonagnar@mbl.is Jón Agnar Ólason Pistill Atvinnusnobb á villigötum STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Í aðalskipulagi Reykjavíkur var svæði miðborgarinnar skipt upp í þrjú undirsvæði, miðborgar- kjarna, blandaða miðborgar- byggð á forsendum atvinnu- starfsemi og blandaða mið- borgarbyggð á forsendum íbúðarbyggðar. Svæðið nær allt frá Grandagarði í vestri að Höfðatorgi í austri. Miðborgarkjarninn er lang- umfangsmestur. Hann nær m.a. yfir Kvosina, hafnarsvæðið, Laugaveg og Skólavörðuholtið. „Auk uppbyggingar á hótel- um er orðið algengt að ein- staklingar og lögaðilar eigi fjölda íbúða í miðborginni sem eru leigðar út til ferðamanna. Breyting á landnotkunarskil- málum miðar að því að tryggja að íbúðabyggð í miðborgar- kjarna haldist sem íbúðabyggð og umbreytist ekki nema að takmörkuðu leyti í gistiþjón- ustustarfsemi,“ segir m.a. í nýju skipulagstillögunni. Stórt svæði í miðbænum BREYTT SKIPULAG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.