Morgunblaðið - 16.05.2017, Side 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2017
✝ Guðjón S. Þor-valdsson fædd-
ist 27. júlí 1950.
Hann lést 4. maí
2017.
Foreldrar hans
voru Þorvaldur
Guðjónsson, söðla-
smíðameistari, f.
16. febrúar 1908,
d. 28. mars 1996,
og Elsa Dóra Guð-
jónsson, húsmóðir,
f. 30. janúar 1916, d. 17. mars
1992. Guðjón var næstyngstur
fjögurra systkina. Þau eru Kar-
ólína Hulda Þorvaldsdóttir, f.
29. nóvember 1937, Ragnar V.
Þorvaldsson, f. 5. janúar 1944,
og Jóhann H. Þorvaldsson, f.
19. ágúst 1951. Guðjón var ein-
hleypur og barnlaus.
Guðjón ólst upp í Smálönd-
um í Reykjavík og bjó í for-
eldrahúsum til 1984 er hann
fluttist í eigin íbúð
í Hraunbæ 170.
Eftir grunnskól-
ann fór Guðjón
fljótlega að læra
bifvélavirkjun og
útskrifaðist í þeirri
iðn frá Iðnskól-
anum í Reykjavík.
Hann vann við
bílaviðgerðir í
mörg ár bæði hjá
Vökli og síðan hjá
Sambandinu. Hann starfaði
einnig sem bílstjóri hjá Steypu-
stöðinni og hjá flutningsfyr-
irtækinu GG og síðan réð hann
sig til Frumherja bifreiða-
skoðun, þar sem hann starfaði
sem skoðunarmaður og starf-
aði þar uns hann lét af störfum
vegna veikinda.
Útför hans fer fram frá Ár-
bæjarkirkju í dag, 16. maí
2017, klukkan 13.
Við Gaui kynntumst 1983, þeg-
ar ég keypti Plymmann af honum.
Upp úr því myndaðist vinátta og
sá hann um viðhaldið á kagganum
alla tíð síðan. Vikulega snæddum
við saman á laugardögum og var
þá mikið rætt.
Hann kvaddi þessa tilveru núna
þegar drunurnar frá Kvartmílu-
brautinni byrja að heyrast þetta
árið, þar sem við vorum fastagest-
ir í mörg ár!
Kær kveðja,
Gunnar Ólafur og
fjölskylda, Vesturholti.
Það er með trega og söknuði
sem ég kveð bæði góðan vin sem
og vinnufélaga. Ég kynntist þess-
um góða dreng þegar ég hóf störf
hjá Frumherja sem bifreiðaskoð-
unarmaður árið 2006. Við áttum
dýrmæta vináttu enda Guðjón ein-
stakur, hvers manns hugljúfi sem
og úrræðagóður og vandvirkur
bifvélavirki sem vann sína vinnu af
mikilli nákvæmi og sanngirni.
Við áttum sameiginlegt áhuga-
mál en Guðjón hafði mikinn áhuga
á hverskyns upptökum, hvort sem
það var á filmu eða stafrænt og
hafði hann gaman af að ræða þetta
málefni en ég starfaði um árabil
sem sýningarstjóri hér í bænum.
Guðjón var húmoristi með ein-
dæmum, stríðinn, glettinn í til-
svörum og reytti af sér brandara
sem fékk okkur til að hlæja mikið
með þegar hann var að rifja upp
gamla tíma.
Það var mikið áfall fyrir alla
sem þekktu Guðjón þegar hann
greindist með illvígan sjúkdóm
sem tók mikinn toll af honum og
varð hann að hætta vinnu í kjölfar-
ið um tíma. Honum tókst þó með
ótrúlega aðdáunarverðri þraut-
seigju og elju að komast aftur á
fætur en hann var duglegur að
ögra sjálfum sér og naut hreyfing-
ar helst og útiveru mikið. Úlfars-
fellið var eitt af þeim fjöllum sem
hann reyndi að ganga sem oftast
á, nærri í hvaða veðráttu sem var.
Okkur vinnufélögunum til mik-
illar ánægju náði Guðjón að hefja
með okkur störf en sjúkdómurinn
herjaði þó fljótt á hann aftur og
kvaddi hann þetta líf eftir hetju-
lega baráttu þann 4. maí síðastlið-
inn.
Æðruleysi Guðjóns var okkur
svo sannarlega ljós í myrkri og
kenndi okkur margt um hversu
langt hugurinn getur borið okkur.
Ættingjum og aðstandendum
Guðjóns votta ég samúð mína.
Hvíl í friði, kæri vinur.
Kristinn Eymundsson.
Guðjón S.
Þorvaldsson
Okkur systkinin
úr Hjálmholtinu
langar að minnast
hans Manda frænda
okkar með nokkrum orðum en
þó samskiptin hafi minnkað í
gegnum árin eins og oft vill ger-
ast þá er Mandi órjúfanlegur
hluti af okkar uppvexti.
Eftir að foreldrar okkar fluttu
úr Bogahlíðinni eftir fráfall Stef-
áns þá bjuggum við alltaf undir
sama þaki og horfðum eiginlega
á okkur sem eina fjölskyldu en
þar sem Svava frænka var úti-
vinnandi, þá sá mamma um allan
krakkaskarann. Þeir nafnar Þor-
leifur Þór (Polli) og Þorleifur
Valdimar (Mandi) eiga líka heið-
urinn af gælunöfnum hvor ann-
ars. Sagan segir allavega að þeg-
ar þeir voru litlir gat Mandi ekki
sagt Þorleifur og sagði Pollivur
og Polli gat ekki sagt Valdimar
og sagði Mandivar og hafa þessi
gælunöfn fylgt þeim ætíð síðan.
Þorleifur V.
Stefánsson
✝ Þorleifur V.Stefánsson
fæddist 4. sept-
ember 1959. Hann
lést 5. maí 2017.
Útför Þorleifs fór
fram 15. maí 2017.
Mandi frændi
var nær okkur í
aldri og fylgdi hann
því með í flest
ferðalög og útileg-
ur, fór með á Mýr-
arnar og austur á
Borgarfjörð. En
eins og gengur og
gerist breikkaði bil-
ið á milli okkar eft-
ir því sem við elt-
umst og
samgangurinn minnkaði en samt
er það svo, í okkar tilfelli að
minnsta kosti, að fjölskyldu-
tengslin eru ríkari en margt
annað og fengum við þannig
fylgjast með þegar hann kynnt-
ist Önnu sinni og skröltum sam-
an í Skagafjörðinn í brúðkaupið
þeirra. Við fengum líka að kynn-
ast flottu drengjunum þeirra,
Stefáni Óla og Magnúsi Smára,
og verða þeir vonandi áfram
hluti af stórfjölskyldunni. Það er
stórt skarð hoggið í okkar rann
með allt of ótímabæru fráfalli
þessa góða drengs.
Við vottum Önnu og strákun-
um innilega samúð okkar og
megi minning Manda lifa með
okkur um ókomna tíð.
Þorleifur, Stefanía, Jóhann
og Bergrún Jónsbörn.
✝ Árni Ingi-mundarson,
múrari, fæddist 10.
júlí 1935 á Melhóli í
Meðallandi. Hann
lést á Landakots-
spítala 6. maí 2017.
Foreldrar hans
voru Ingimundur
Sveinsson bóndi, f.
2. febrúar 1893, d.
6. maí 1982, og Val-
gerður Ingibergs-
dóttir húsfreyja, f. 9. apríl 1905,
d. 8. ágúst 1994. Systkini Árna:
Guðjón, látinn, Sveinbjörg Gróa
og Bergur. Eiginkona hans er
Guðrún Káradóttir og börn
þeirra: Helgi Valur,
f. 1966, og Ingvar
Kári, f. 1968.
Barnabörn Árna
eru Andri Már
Helgason, f. 1994,
og Ævar Þór
Helgason, f. 2000.
Árni lauk sveins-
prófi í múraraiðn
frá Iðnskólanum í
Reykjavík 1971 og
starfaði við iðn sína
alla tíð þar til starfsævi hans
lauk.
Útför hans fer fram frá Selja-
kirkju í dag, 16. maí 2017, og
hefst athöfnin klukkan 11.
Elsku Árni.
Ég kallaði þig reyndar oft afa
og börnin mín þig langafa og þér
leiddist það ekki. Þú hafðir
skemmtilegan húmor, talaðir
ekki af þér en bættir oft einhverj-
um gullkornum í umræðuna og
þá gjarnan í hnyttnari kantinum.
Það var alltaf svo rólegt yfir þér,
yfirvegaður og sóttist ekki eftir
athygli. Þú varst hagleiksmaður
sem tókst þér ýmislegt fyrir
hendur, allt frá því að mála trjá-
greinar upp í að smíða sumarbú-
stað. Ég mun alltaf hugsa til þín
þegar ég set upp greinar um jól
og páska. Þrátt fyrir að manna-
mót væru ekki í neinu uppáhaldi
þá lést þú þig ekki vanta á stór-
viðburði hjá okkur í fjölskyldunni
og þykir mér ótrúlega vænt um
það. Á síðustu misserum fjaraði
smátt og smátt undan en amma
hélt ótrauð áfram að annast þig af
mestu kostgæfni. En nú er kallið
komið og lúnir leggir eflaust
hvíldinni fegnir. Við fjölskyldan
kveðjum þig með þessu ljóðbroti:
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Perla Lund, Högni, Salka
Heiður og Katla Móey.
Árni
Ingimundarson
✝ Dagmar Þor-bergsdóttir,
Dæja, fæddist á
Vopnafirði 26. maí
1939. Hún lést 24.
apríl 2017.
Hún var elsta
barn hjónanna
Þorbergs Ágústs
Jónssonar frá
Arnarnúpi í Dýra-
firði og Guðrúnar
Sigurjónsdóttur
frá Skálum í Vopnafirði. Al-
systkin Dagmars eru Sigur-
björn Eðvald, f. 4. febrúar
1943, d. 2. ágúst árið 2016,
Halldór Hilmar, f. 21. júní 1944,
Hörður Steinar, f. 13. nóv-
ember 1947, Rannveig Guð-
björg Birgitta, f. 29. júní 1950,
og Ágúst Rúnar, f. 26. sept-
ember 1956. Hálfsystkin henn-
ar sammæðra eru Gísli Vilberg
Sigurbjörnsson, fæddur 2. júní
1936, d. 17. apríl 2011, og Erna
Nilsen, fædd 29. desember
1934, en hún ólst ekki upp hjá
móður sinni.
Dagmar giftist Guðmundi
Stefánssyni, skipstjóra, stýri-
manni og vélstjóra, frá Karls-
skála við Reyðarfjörð 4. nóv-
ember 1961. Þau eignuðust
þrjú börn saman, en fyrir átti
Dagmar dótturina
Margréti Kristínu
sem Guðmundur
ættleiddi og eru
því börnin fjögur.
Þau eru: 1) Mar-
grét Kristín Guð-
mundsdóttir, f. 6.
apríl 1959. Hennar
maki er Björn Ingi
Sverrisson og börn
þeirra eru: Anna
Þorbjörg, Berglind
Elva og Bryndís Kristína. Anna
Þorbjörg á tvö börn, þau eru
Funi Víborg og Íris Máney. 2)
Guðrún Sigríður Guðmunds-
dóttir, f. 3. maí 1962, hún var
gift Árnþóri Magnússyni og átti
með honum börnin Guðmund
Daða og Elínu Láru, drenginn
Guðmar eignaðist hún með
Ágústi Kárasyni. Guðmundur
Daði á Indriða Örn og Elín
Lára á Dagmar Júlíu, Rúnar
Leó og stjúpdótturina Sigurrós.
3) Elín Ágústa Guðmundsdóttir,
f. 11. maí 1963, gift Jóni Guð-
mundssyni og þeirra börn eru
Dagrún Malmquist og Guð-
mundur. 4) Guðmar Guðmunds-
son, f. 28. ágúst 1966, d. 28.
nóvember 1987.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Nú þögn er yfir þinni önd
og þrotinn lífsins kraftur
í samvistum á sæluströnd
við sjáumst bráðum aftur.
(Ingvar N. Pálsson.)
Elsku mamma, það er skrítið
að hafa þig ekki lengur hjá okk-
ur í þessu lífi. Við erum búnar
að eiga ljúfsárar stundir hjá
pabba í Dagsbrún síðustu daga
og margar minningar hafa kom-
ið upp í huga okkar. Ef við för-
um aftur í tíma þá yljar það
okkar hjörtum hversu mikla
umhyggju þú gafst okkur í
æsku með öllum sögunum þín-
um og ljúfum söngvum sem við
fengum að heyra. Fallegu föt-
unum sem þú bæði saumaðir og
prjónaðir á okkur. Þú varst sjó-
mannskona og þurftir að gera
flestallt sjálf í fjarveru pabba
og þú gerðir það að okkur virt-
ist áreynslulaust. En í dag vit-
um við betur og það er kannski
það sem þú kenndir okkur mest
og best, að vera sjálfstæðar og
sterkar konur. Síðustu ár hafa
verið þér erfið vegna veikinda
þinna en í þeim veikindum sást
vel hversu sterk manneskja þú
varst. Það var góð tilfinning að
vita að þú varst tilbúin að
kveðja þetta líf og við vitum að
þú ert komin á góðan stað með
Guðmari bróður og fleiri ástvin-
um. Hvíldu í friði, elsku
mamma.
Þínar dætur
Margrét, Guðrún og Elín
(Magga, Gunna og Ella.).
Dagmar
Þorbergsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar dóttur
minnar,
ERLU LÓU ÁSTVALDSDÓTTUR.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ástvaldur Eiríksson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
TORFI GEIRMUNDSSON
hárgreiðslu- og hárskerameistari,
Hárhorninu við Hlemm,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 13. maí. Útförin fer fram frá
Árbæjarkirkju fimmtudaginn 18. maí
klukkan 13.
Ingvi Reynir Berndsen Helga Hjaltadóttir
Mikael Torfason Elma Stefanía Ágústsdóttir
Lilja Torfadóttir Guðbjörg Árnadóttir
Knútur Rafn Ármann Helena Hermundardóttir
Bashir Geirmundsson Gemma Crockford
Tryggvi Geir Torfason
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐNI ÓSKAR GESTSSON,
bifvélavirki og langflutningabílstjóri,
Boðaþingi 22,
frá Vík í Mýrdal,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
4. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til allra þeirra sem önnuðust hann.
Guðbjörg Stella Ögmundsdóttir
Guðrún Dröfn Guðnadóttir Sigþór Ingvarsson
Sigrún Harpa Guðnadóttir Guðmundur Þ. Ragnarsson
Ögmundur Jón Guðnason Elísabet G. Þorsteinsdóttir
afabörn og langafabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
STELLA ÞÓRDÍS GUÐJÓNSDÓTTIR,
Sólheimum 32, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut
2. maí, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Reykjavík föstudaginn 19. maí klukkan 13.
Ómar Sigurðsson Sigurbjörg Karlsdóttir
Bára Sigurðardóttir Kristján O. Þorgeirsson
Erla Sigurðardóttir Jón Arnar Sverrisson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
LÁRA STEFANÍA ÓLAFSDÓTTIR,
Skúlagötu 20, Reykjavík,
lést laugardaginn 6. maí.
Útförin fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn
31. maí klukkan 13.
Ólafía G. Kristmundsdóttir
Kristmundur Kristmundsson
Ólafur Sörli Kristmundsson
og fjölskyldur
Ástkær eiginmaður, faðir og afi,
GUNNAR RAFN GUÐMUNDSSON
járnsmiður,
Hálsaseli 37, Reykjavík,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 10. maí.
Guðrún Jónsdóttir
Jóhanna og Jón
og barnabörn